Vísir - 08.02.1980, Side 1

Vísir - 08.02.1980, Side 1
iSTJÚRHAR I SKIPTI I VERRA i IDAG ■ Ráöherrar veröa tíu „Viö gerum ráö fyrir þvi aö stjórnarskiptin fari fram klukkan þrjú i dag”, sagöi Steingrímur Hermannsson, formaöur Framsóknarflokks- ins, i samtali viö Visi i morg- un. Ráöherrarnir veröa nú alls tiu, en hafa áöur veriö flestir niu. Alþýöubandalagiö, sem fær þrjá ráöherra, ákvaö sin ráöherraefni á þingflokks- fundi I nótt, en áöur höföu Framsóknarmenn, sem fá fjóra menn, og stuöningsmenn Gunnars Thoroddsens, sem fá þrjá menn, ákveöiö sin ráö- herraefni. Ráöherrar Framsóknar- flokksins verða Steingrlmur Hermannsson, sem fer með sjávarútvegs- og samgöngu- mál, Ólafur Jóhannesson, sem fer með utanrikismál, Tómas Arnason, sem fer með við- skiptamál og Ingvar Gislason, sem verður menntamálaráð- herra. Ráðherrar Alþýðubanda- lagsins verða Ragnar Arn- alds, sem verður fjármálaráð- herra, Hjörleifur Guttormsson fer með iðnaðar- og orkumál, og Svavar Gestsson, sem fer með félags- og heilbrigðis- og tryggingamál. Gunnar Thoroddsen verður forsætisráöhérra, Friðjón Þórðarson verður dóms- og kirkjumálaráðherra og Pálmi Jónsson landbúnaðarráð- herra. — ATA EINN KEMUR Þfl ANNAR FER ... Káöherrar Alþýöuflokksins munu standa upp úr ráöherrastólum sinum I dag og nýir menn setjast I þeirra staö. Einn þeirra, sem kveðja er Sighvatur Björgvinsson, sem gegnt hefur starfi fjármálaráö- herra en hann er hér á tali viö einn nýju ráöherranna Steingrlm Hermannsson er fara mun meö sjávarútvegs- og samgöngumál i ráöuneyti Gunnars Thoroddsen. Vísismynd: GVA. RÁÐHERRARNIR í STJÚRN GUNNARS THORODDSEN Gunnar forsæt- Pálmi landbún- Friöjón dóms- Svavar Hjörleifur iön- Ragnar fjár- isráöherra aöarráöherra málaráöherra félagsmálaráö- aöarráöherra málaráöherra herra Steingrimur sjávarútvegs- ráöherra ólafur utanrikisráö- herra Tómas viö- skiptaráöherra Ingvar mennta- málaráöherra „MIKW IIM FRKMHJA- GREWSIUR I HfGERlU" „Nefndirnar hafa ekki komið nálægt máli önundar. Þar var ein- göngu um aö ræöa gjaldeyrisyfirfærslumál, og þaö eru einu afskiptin sem Islensk stjórnvöld hafa haft af þesSu” sagöi Jóhannes Nordal seölabankastjóri og formaöur oliuviöskiptanefndar, þegar Visir bar undir hann þau ummæli önundar Asgeirssonar I VIsi I gær, aö margar nefndir væru i landinu varðandi olfumál, þær geröu allar ógagn, en þó engin eins og nefnd Jóhannesar Nordal en fyrir hans atbeina heföi veriö spillt fyrir stórum samningi I desember. Jóhannes sagði, að önundur hefði talið sig geta samið um kaup á miklu magni af hráoliu eftir að hafa farið til Nigeriu I desember, en skilyrði fyrir, að samningar gætu hafist var að 500 þúsund dollarar yrðu greiddir inn á reikning ótilgreinds aðila i Sviss. Ekki lá fyrir hver viðtak- andi greiðslunnar yrði, né fyrir hvaða þjónustu hún færi innt af hendi. Ekki var hægt að staðfesta að af samningum yrði þó greiðsla ætti sér stað. Akvörðun um máls- meðferð var tekin af viðskipta- ráðuneyti i samráði við Seðla- baiikann og Landsbankann, sem er viðskiptabanki OHuverslunar Islands hf. Gjaldeyrisyfirvöld buðust til að leyfa yfirfærslur sem fyrirfram- greiðslu upp i væntanlegan samn- ing um oliukaup, enda yrði ábyrgst að greiðslan gengi til baka, ef ekkert yrði af samning- um. Þessu var hafnað og bentu þau viðbrögð til þess að hér væri ekki um venjulega viðskiptahætti að ræða. „Ég tel vafasamt, að stjórnvöld eigi aðild að eða samþykki, með leyfisveitingum viðskipti sem ekki þola dagsins ljós eða kunna jafnvel að skoðast ólögleg hé’r á - seglr Jóhannes Nordal landi. Það er vitað, að mikið er um það I Nigeriu að það séu alls konar framhjágreiðslur bæði fyrir og eftir yiðskipti. En það liggur lika fyrir að það eru alls ekki öll viðskipti gerö á þeim grundvelli i þessum löndum og vel hægt að skipta við þau án þess. Oliunefnd hefur ekkert komið nálægtþessu. Onundur hefur ekki sent henni sinar athug- anir né hún lagst á móti þeim”, sagði Jóhannes Nordal.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.