Vísir - 11.02.1980, Blaðsíða 1
Mánudagur 11. febrúar, 34. tbl. 70. árg.
103 lýstu andstöðu vlð
stjórn Gunnars, 29 með
Fiokksráðsfundí
Slálfstæðisflokksins
lauk á briðja
tfmanum í morgun:
Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins sem haldinn var i gær, samþykkti að lýsa yfir andstöðu flokks-
ins við rikisstjórn Gunnars Thoroddsens og málefnasamning hennar.
Fundurinn hófst klukkan 14.00 og stóð til kl. 2.30 i nótt.
Gunnar Thoroddsen og Geir
Hallgrimsson fluttu báðir ræður
. i upphafi fundarins og lok hans
þar sem þeir skýrðu sin sjónar-
mið. Þá töluðu einnig Pálmi
Jónsson og Friðjón Þórðarson
og fjöldi annarra fundarmanna.
Geir gagnrýndi vinnu-
brögð Gunnars
Geir rakti stjórnarmyndunar-
viðræður og þau óheilindi, sem
hann taldi varaformann flokks-
ins hafa sýnt með þvi að vera
með einkaviðræður við aðra
flokka án þess nokkurn tima að
geta þess i þingflokki. Hann
sagði aðTómas Árnason, Ólafur
Jóhannesson og Steingrimur
Hermannsson hefðu komið sér
saman um, aðhann yrði að fá að
vita um tilburði varaformanns-
ins og hann hefði þvi mætt meiri
hreinskiptni og hreinskilni frá
þessum andstæðingum en vara-
formanni Sjálfstæðisflokksins.
Gunnar talaði um flokks-
ofstæki
Gunnar Thoroddsen sagði að i
skipulagsreglum væri kveðið á
um að flokksráð yrði að sam-
þykkja stjórnaraðild ef þing-
flokkurinn ákvæði að fara i
stjórn, en það væri fjarstæða að
bera það undir flokksráð þegar
einstakir þingmenn færu i stjórn
eins og nú væri. Hann átaldi for-
ystu Geirs fyrir flokknum sem
hann sagði ekki hafa verið sem
skyldi og ætti sinn þátt i hvernig
komið væri fyrir flokknum og
sagði að sæmd Alþingis hefði
legið við ef stjórn hefði ekki
verið mynduð. Um samþykktir
þingflokks miðstjórnar og ann-
arra sagði hann: „Þetta flokks-
ofstæki nálgast fasisma og
nasisma of mikið til að hægt sé
að una þvi. Það skiptir engu um
|^flokka án þess nokkurn tima að þykkja stjórnaraðild ef þing- að una þvi. Það skiptir engu um ar og þingflokks til stjórnar- sátu hjá.
sæmd alþingis og þjóðarheill né
heldur um sæmd manna. Það á
bara að beygja sig i duftið á
hverjum tima”.
I máli manna á fundinum kom
fram mikil gagnrýni á vinnu-
brögð Gunnars Thoroddsen,
sérstaklega frá öðrum þing-
mönnum og var Sverrir Her-
mannsson harðorðastur. Samt
sem áður kom fram i máli
manna almennur vilji til að slita
engin bönd meira en orðið væri
og reyna sættir eins og kostur
væri.
Fyrir fundinum lá tillaga sem
Geir Hallgrimsson mælti fyrir
þar sem Flokksráðið lýsti
stuðningi við afstöðu miðstjórn-
ar og þingflokks til stjórnar-
myndunar Gunnars Thoroddsen
en i þessum samþykktum voru
m.a. hörmuð vinnubrögð Gunn-
ars.
Áðurnefnd tillaga var borin
upp i tveimur liðum. Siðari hlut-
inn, þar sem lögðer áhersla á að
samstaða Sjálfstæðisfólks um
allt land sé meginforsenda fyrir
framgangi sjálfstæöisstefnunn-
ar og hvatt er til einingar og
trúnaðar viö flokkinn til heilla
landi og lýð var samþykkt sam-
hljóða.
Fyrri hluti tillögunnar um
samstöðu með þingflokknum og
miðstjórn og andstöðu við rikis-
stjórnina var siðan samþykktur
með 103 atkvæöum gegn 29, en 9
Foringjar heilsast á Flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins f gsr — f.v. Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
alþingismaður og Geir Hallgrimsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Vfsismynd: GVA
Fokker-flugvél í
..Egilsstaðaflugr
yflr Reykjavík:
Þurfti að
eyða bensín-
blrgðum fyrtr
lendingu
Fokkervél frá Flugleiðum sem
var á leiö til Egilsstaöa og Fær-
eyja sl. laugardag var snúiö viö
vegna þess að tveir mælar i vél-
inni virkuðu ekki.
Að sögn Sveins Sæmundssonar
blaðafulltrúa Flugleiöa bilaði
mælir sem sýnir hjólastillingu og
ennfremur eldvarnaraövörunar-
ljós og ákváðu flugmennirnir þvi
að snúa við. Vegna þess hve flug-
vélin var hlaöin var létt á henni
með þvi að eyða bensinbirgðum
og lenti vélin siðan eftir 36
minútna flug.
Sveinn sagöi að engin hætta
heföi verið á ferðum. Hélt vélin
siöan aftur af stað einum og hálf-
um tima seinna, eftir aö gert
hafði verið við mælana. —HR
Skjálftahrina
víð Kröflu
í nótt
PÚSTURINN TIL GRÆNLANDS
FER FYRST TIL DANMERKUR
,,Jú það er rétt að póstur sem fer milli islands og Grænlands hefur við-
komu i Kaupmannahöfn þrátt fyrir það að á leiðinni sé millilent með hann i
Keflavik” sagði Ólafur Bertelsen stöðvarstjóri SAS á íslandi i samtali við
Visi.
Ólafur sagði að SAS flygi einu
sinni i viku milli Kaupmanna-
hafnar, Keflavikur og Narsa-
ssúak á Suöur-Grænlandi og til
baka aftur sömu leiö. Hins veg-
ar færi pósturinn ætið i gegnum
Kaupmannahöfn milli Islands
og Grænlands og væri skýringin
sem póstþjónustan hefði gefið á
þessu sú, að póstmagnið væri
það lftið að ekki tæki þvi að
setja þaö úr og i vélar á Kefla-
vikurflugvelli.
Þá hefur Visir einnig fregnaö
að síma- og telexsamband milli
tslands og Grænlands þurfi allt
að fara i gegnum Kaupmanna-
höfn þrátt fyrir að sæslma-
strengurinn milli Danmerkur
og Grænlands liggi um tsland.
—HR
,,Það byrjaði skjálftahrina rétt
fyrir klukkan ellefu I gærkvöldi
og stærstu skjálftarnir fundust
um klukkan hálf fimm i nótt”,
sagöi Bryndis Brandsdóttir, jarö-
fræðingur, en hún er á skjálfta-
vaktinni viö Kröflu.
„Stærstu skjálftarnir fundust i
Reykjahliðarhverfinu og hafa
reyndar flestir fundist þar.”
t undanförnum umbrotahrinum
hefur skjálftavirknin alltaf færst
tiltölulega hratt til norðurs eða
suðurs, en þaö hefur hún ekki gert
ennþá. Hún er á tiltölulega af-
mörkuðu svæði og hefur verið það
siðan hún hófst i gærkvöldi. Hvaö
úr þessu verður, getum við ekkert
sagt á þessu stigi málsins”.
Þegar Visir talaöi við Bryndisi
um klukkan hálf ellefu i morgun,
var hlé á skjálftahrinunni.
—ATA