Vísir - 15.02.1980, Page 1

Vísir - 15.02.1980, Page 1
1 Föstudagur 15. febrúar 1980/ 38. tbl. 70. árg. Fegurðardrottning lslands, Kristln Bernharðsdóttir, i hátiðabún- ingi Sigrúnar Jónsdóttur, listakonu, Visismynd: BG. KRISTÍN TIL KANARÍEYJA í Nliss Evrópu-keppnl „Ég er svo heppin, að fólkið, sem ég vinn með og aörir vinir minir hjálpa mér um það sem mig vantar I þessa ferð. Ég er ósköp róleg og er ekki byrjuð að pakka”, sagði Kristin Bernharðsdóttir, fegurðar- drottning frá Vestmannaeyjum, sem er hér að máta búning hjá Sigrúnu Jónsdóttur til að fara með i Miss Evrópu-keppnina á Kanarieyjum. Keppnin er um mánaðamótin, en Kristln fer á sunnudaginn með ÍJrvali og fær þrjá daga fyrir og eftir dagskrána fyrir sjálfa sig. Búningurinn sem hún er I á myndinni er „hátiðarbún- ingur ’74” sem Sigrún er aö senda til Danmerkur, en sjálf verður Kristin í búningi, sem hún fær lánaðan úr Arnessýslu og er svipaður þessum. Hún kvaðst ekki hafa undir- búið sig á neinn hátt, en Einar Jónsson færi með henni og hann væri öllu vanur á þessu sviöi og auk þess heföi Steinn Lárusson hjá Úrvali boðist til að vera henni innan handar. „Það eina sem ég veit er að við eigum að koma fram i siðum kjól.sundbol og þjóöbúningi”, sagði Kristln. —JM 6,67% nækkun 1 frétt frá Kauplagsnefnd segir, að framfærsluvisitalan frá 1. febrúar sl. hafi verið 144 stig, miðað við grunntölu 100, og hefur þá framfærsluvisitalan hækkað um 44% frá 1. febrúar 1979. Verðbótavisitala greiðslu- timabilsins 1. desember 1979 til 29. febrúar 1980, er 134.99 stig, en frá þvl dregst I veröbótaútreikn- ingnum 0..98%, vegna búvöru- verðshækkunar 1. des., 0.63, vegna veröhækkunar á tóbaki og 0,85%, vegna viðskiptarýrnunar. Þessi frádráttur nemur sam- tals 2.48 prósentustigum, og verða þviverðbætur á laun 6.67%. öll laun hækka þá um þessa hundraðstölu, frá byrjun næsta greiðslutlmabils, eða frá og með 1. mars. 1980. H.S. VEL FMNW húsinu Hvarf fundarbjöliu neðri deild- ar Alþingis gerist æ dularfyilra. Nú er komið i ljós að ekki var framiö innbrot I Alþingishúsið I fyrrinótt, heldur var brotist út úr húsinu! Þegar segja átti fund neðri deildar klukkan 14 I gær, fannst hin gamla hljómfagra bjalla þingforseta hvergi. Hefur bjalla þessi staðið á borði forseta ára- tugum saman og þót.ti hvarf hennar með ólíkindum. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar tilkynnti næturvörður Alþingishússins klukkan 01.54 I fyrrinótt að hann hefði heyrt rúðubrot og umgang á neðri hæð hússins. Lögreglumenn komu á vettvang og fóru um allt húsið.en sáu engin ummerki mannaferða. Við rannsókn kom I ljós. að innri rúða á salerni hafði veriö brotin, rimlar siðan fjarlægðir og ytri glugginn opnaöur. Hér virðist þvl um greinilegt útbrot hafa verið að ræða og vaknar þá sú ppurning hvernig þessi óþekkti maður hafi komist inn I húsið. Rannsóknarlögregla rlkisins fékk málið til meðferöar I morg- un. —SG Bjallan sem hvarf t hléi frá óperuflutningnum i Háskólabfói i gærkveidi.frá vinstri: Jón Stefánsson, söngstjóri og organisti, eiginmaður Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur, sem er við hlið hans, Anna Júlianna Sveinsdóttir og lengst til hægri Elisabet Erlingsdóttir, en þær eru allar meðal ein- söngvaranna i óperunni „La Traviata”. Visismynd: JA. Söngvurum og öðrum flytjend- um óperunnar „La Traviata” var geysivel og lengi fagnað. er hún var flutt á vegum Sinfóniuhljóm- sveitar tslands og söngsveitar- innar Fflharmoniu i gærkveldi. Þetta var i annaö sinn, sem verkið er flutt og hefur veriö upp- selt I bæði skiptin. Stjórnandinn Gilbert Levin er á förum af land- inu, en þriðji flutningur tónlistar- innar úr þessari vinsælu óperu verður laugardaginn 23. febrúar næstkomandi. Alls taka 10 einsöngvarar þátt I flutningnum, en stærstu sönghlut- verkin eru I höndum ölafar Kol- brúnar Harðardóttur og Garðars Cortes. Geðsjúk kona var orðln sjálfrl sér 09 öðrum hættuleg: Sólarhrings- barátta að koma henni inn á Kleppi Það tók á annan sólarhring að koma konu, sem þjáðist af alvarlegri geðveiki inn á sjúkrastofnun til meðhöndlunar. Var konan orðin hættuleg sér og umhverfi sinu og þurfti að geyma hana i fanga- geymslu lögreglunnar yfir nótt þar sem ekkert pláss var á Kleppi. Atvik þetta átti sér staö I Reykjavik skömmu fyrir sföustu mánaöamót. Hafði konan átt við langvarandi veikindi að striða og verið til meðferðar á Kleppi. Þjáðist hún af þunglyndi en hafði skömmu áður fengið ný lyf, sem flýta áttu bata hennar. Henni hriðversnaði þó og fékk hún æðis- kast heima hjá sér, þar sem hún nánast lagði heimili sitt I rúst. Munaöi minnstu, að hún kveikti I Ibúðinni. Ekki var hægt aö koma konunni á Kiepp þar sem þar var ekkert sjúkrarúm laust. Varð dóttir kon- unnar þvi að leita á náöir lög- reglunnar til að varna þvi að hún yrði sjálfri sér eöa öðrum til miska. Var þaö svo ekki fyrr en daginn eftir að konan fékk inni á Kleppi. Hafði aöstoðarborgar- læknir þá gengiö I málið. Minnir þetta á mál áfengis- sjúklingsins, sem Visir skýrði frá fyrr I vikunni, en þar var heldur enga bráðaþjónustu að fá fyrir geðsjúka. Nánar segir frá þessu atviki á bls 3 I VIsi I dag. -HR Oularfulllr atburOlr I Aipingishúslnu: Funflap- Djalla hvarl eftir útbrol úr

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.