Alþýðublaðið - 18.03.1922, Blaðsíða 2
9
ALÞYÐUBLAÐIÐ
málum sem nú liggja fyrir hou-
um. Hann ætlar að gera bandaiag
við fulltrúa þýzka auðvaldsins, þá
Rathenau og Stinnes, um að láta
alþjóða auðhring leggja á frið
saman hátt helsi á rússnesku bylt
inguna og þýzka iðnaðinn — það
er glæsileg framttðarvon fyrir auð
valdíð, en fyrir alþýðuna í Mið
Evrópu og Austur Evrópu er það
alt eins hættulegt eins og hin op
inbera ránsmannapóiittk sem Poin-
caré fylgir. Og þessar sömu fyrir
ætlanir eru i raun og veru einnig
það sem vakir fyrir frjálslynda
(líberala) flokknum enska. Eins og
flokksfundur hans sýndi, sá sem
haldinn var í Manchester í janú-
ar, þá gátu hinir svonefndu »óháðu
frjálslyndu" sem mæltu þar á
móti Lloyd George engin stefnu-
atriði fram fært frábrugðin þvf,
sem vinstri fylkingararmur sam-
steypuflokks hans, sem hann nú
kvað ætla að kaila þjóðlega frjáls
lyndisflokkinn (National Liberal
Party). Þó aðfinsiur Greys lávarð-
ar viðvfkjandi utanrfkispólitíkinni
séu réttar, þá vita allir, að hon-
um ferst ekki, þvf það var hann
sem er orsök í því að England
komst í ófriðinn — samkvæmt
leynisamningum við Frakkland.
Þó árás Asquiths á Lloyd George
fyrir ógnarstjórnina og manndráp
in í írlandi á tímabiii í fyrra hafi
verið réttmæt, þá vita allir samt
að það var hann sem myrti frska
byltingamennina á páskum 1916
og að hann er maðurinn sem
hefir blóð Jimes Conoiiy á sam-
vizkunni. (N1)
Verkamaðurl Hefir þú hugsað
um, hvað verður af þeim pening-
um, sem þú fórnar lifi þtnu vlð
að samansafnaf
Setjum svo að þú hafir unnið
þér inn nokkrar krónur, og verð-
ur ef til vill að fara með þær á
næsta augnabiiki til kúgara þíns,
svo þú getir haft I þig og á.
En aftur á móti atvinnnrekand-
inn, peningamaðurinn, selur þær
afurðir, sem þú hefir varið öllu
starfsþreki þínu við að framleiða,
með jafnvel hundraðfaldri álagn*
ingu. Þeir náðarmolar, sem Iátnir
eru falla I þtnar hendur. eru þvt
aðeins 'örlítið brot af þeím arði
sem þú framleiðir.
Vinur þinn, atvinnurekandinn,
hefir ekki neyna hugmyad um
það, hvað baráttan fyrir tilverunni
verður þér svitadrjúg, því einmitt
þú, færir honum það uyp í hend
urnar sem hann þarf tii lffsins
nota.
Margir atvinnurekendur vfðsveg-
ar um heim, hafa nú á þessum
erfiðu tfmum sem þeir kanna,
ekki fundið sig knúða til þess að
halda atvinnurekstrinum lifandi,
af því, að þeir hafa ekki búist
við að það yrði jafn arðvænlegt
fyrir þá og á venjulegum ttmum,
þ. e þegar eftirspurnin eftir vór-
unni nœr hámarki sínu. Af þessu
leiðir að þú vinur minn og fjöldi
þinna starfsbræðra, verða að reika
um götur og torg, atvinnulausir
svo vikum og mánuðum skiftir,
og kona þín og börn mega ef til
vill hýrast í köldum og rökum
hfbýlum við hungur og klæðleysi.
Finst þér þetta vera réttlátt? Nei,
og aftur nei. Hvers vegna þarft
þu að líða neyð, þar sem fram
leitt er miklu meira en fyrir kemst
á helmsmarkaðinum ? Af því að
atvinnureksturinn f núverandi
kcpitalista þjóðféiagi er rekinn
með hag einstakra fjársjúkra pen-
icgamanna fyrir augum, án nokk•
urs tillits til þín eða þinna sam-
verkamanna.
Kapitalistarnir, hin ráðandi stétt
þessa tfma, þyfcir það iitlu máli
skifta þótt þú, eða þitt skyldulið,
hafi ekki daglega sitt Iffsviður-
hald, ef þeir fá sjáifir óáreittir að
raka að sér arðinum af svitadrop-
um almennings. ,Við höfum því
miður ekki þörf fyrir þig núna
vinur minn, þetta eru hreinustu
vandræða tfmar, fjárkreppan ætl
ar alveg að gera útaf við okkur
vesalingana, sem erum að reyna
áð halda heiminum við; cn þetta
getur nú lagast bráðlega. Það
væri reynandi fyrir þig að koma
til mfn seinna". Þannig tala kapi-
talistar í eyru fjöldans, á meðan
þeir hlaða sjálfum sér guili og
silfri skreyddar skjaldborgir, sem
við eru tengtar — jafnvel i milj
ónatali — dauðastunur lfkamlega
og andlega þjakaðra veralinga.
Verkamaðurl Þykir þér ekki
pfslarganga þín vera orðin þér
nægilega kvaiafull?
Kajji mel pSenikSkuæ
og kleinum fæst í Litla kaffiaús-
inu, Laugaveg 6. Engir
drykkjupen in gar.
Finst þér ekfci tími til þess
kominn, að þú íarir að hrista af
þér okurhlekkina, sem vafðir hafa
verið um Iífsferii þinn lið fram af
lið? Að þú farir að krefjast þess
réttar, sem þú um aldaraðir hefir
af kapitalistanum, stóreignamann-
inum, verið sviftur; réttinum til
þess, að þú fáir það mikið fyrir
vinnu þíns, að þú, og þín fjöl-
skylda, geti veitt sér holla, góða
fæðu, hlýjan kiæðnað og heilnæm-
ar sólríkar íbúðir. Að þú sért
efnaiega fær um að sjá afkvæm-
um þfnum fyrir andlegri og lík-
amlegri þroskun, að því raarki
sem starfshæfileikar þeirra benda
til. Að þú getir varið frftfmum
þinum við lestur nytsamra bóka,
eða á annac hátt þroskað anda
þinn óhindrað.
Morgunroðitm, árdegissólin,
bjóða þér að hefja höfuð þitt upp
úr hyldýpi eyradar og örbirgðar,
vanþekkingar og þroskaleysís, sem
stálgreipar peningavaldsins feafa
um ótakmarkaðan tíma haldið þér
1 í, þau bjóða þér að kyppa stofn-
fúacum burtu úr þeirri þjóðfélags-
byggingu sern þú tilheyrir, en
byggja á ný lífsglatt og þrótt-
mekið þjóðfélag, þar sem hver
einstaklingur hsfi óhindraður tæki-
færi til að njóta þess andrúms-
lofts, sem starfsþol hans hnegist
að, þeir bjóða þér að hrópa tli
allra samverkamanna þinna nær
og fjær, að taka sér geirinn f
hönd: öreigalýðurl Látið hicar
herskáu auðvaldsstéttir skjálfa
undan kröfum ykkar. Það sé vort
heróp. Við höfum engu öðru að
tapa en hlekkjum okkar, en við
höfum heilan heim að vinna.
Öreigalýður i öllum lóndum
Sameinistl
Já, saraeinist að eflingu einnar
starfandi mentaðrar stéttar.
Armóður.
Kanpfélagið er flutt úr Gamla
bankanum f Pósthússtræti 9 (áður
verzlun Sig. Skúlasonar).