Vísir - 19.02.1980, Blaðsíða 3
VÍSIR
r—
Þri&judagur 19. febrúar 1980
Grasvöllur
I Laugardal
eyðilagður
Tjoniö nemur 600 Dúsundum
,,Ég gæti trúað þvi, að tjónið sem hefur verið
unnið á vellinum nemi um sex hundruð þúsund
krónum, og er þá vinnan ekki talin með”, sagði
Jón Magnússon.verkstjóri við iþróttaleikvanginn
i Laugardal.
Grasvöllur, sem er á milli
aöalleikvangsins og Laugar-
dalslaugarinnar, er nU gersam-
lega uppspændur og grasiö
ónýtt. Völlurinn hefur töluvert
veriö notaöur af almenningi á
sumrin, bæöi sem sparkvöllur
og fyrir „trimmara”.
„Iþróttafélögin viröast vera
með skipulagöar æfingar á vell-
inum og meöan frost var í jöröu
sögöum viö ekkert við þvi, en
þegar þaö kom hláka héldu þeir
. áfram uppteknum hætti. Það
segir sig sjálft, aö völlurinn er
ekki lengi aö eyöileggjast I
hláku þegar 10-20 stórir menn
hlaupa á blautu grasinu.
Þaö er aö sjálfsögöu bannaö
að nota völlinn núna en ég veit
ekki hvernig viö eigum aö fram-
fylgja þvi banni nema meö þvl
aö hafa vaktmann”, sagöi Jón
Magnússon.
—ATA
Jón Magnússon bendir á
skemmdirnar, sem oröiö hafa á
grasvellinum. Vfsismynd: JA.
Merkjasaia
Rauða
krosslns á
Merkjasala Rauöa krossins
veröur aö venju á morgun, ösku-
dag.
Agóöinn af merkjasölunni I
Reykjavík fer m.a. til kaupa á
sjúkrabllum, en deildin hefur
keypt 3 nýja sjúkrablla á 2 sl.
árum og á nú deildin um þessar
mundir 5 sjúkrablla, segir I frétt
frá Rauöa krossinum I Reykja-
vik.
Sumardvöl reykviskra barna
hefur verið starfrækt á vegum
Reykjavlkurdeildarinnar nær ó-
slitiö I 30 ár og hefur sú starfsemi
notiö mikillar vinsælda. Slöastlið-
iö sumar varö starfsemi þessi að
falla niöur sökum skorts á hent-
ugu húsnæöi.
Fræöslustarfsemi hefur ætíð
veriö veigamikill þáttur, einkum
námskeiö I skyndihjálp og lifgun
úr dauöadái. Þaö hefur verið lögö
mest áhersla á blástursaöferöina.
Oll kennsla er ókeypis.
Heimsending máltlða til aldr-
aöra og öryrkja hefur nú hafist
aftur eftir nokkurt hlé.
Enn er leitaö til borgarbúa að
þeir taki sölubörnum vel, þegar
þau bjóöa merkin til sölu.
Talsvert á annaö hundraö sjálf-
boöaliöar úr Kvennaskólanum og
Húsmæöraskóla R.vlkur, hafa nú
og á undanförnum árum hjálpað
sjálfboöaliöum úr R.víkurdeild og
kvennadeild hennar við merkja-
söluna á öskudag.
Sölubörn fá 10% sölulaun, og
þau söluhæstu fá auk þess bóka-
verölaun. Verö merkjanna er kr.
500,-
Bolungarvík:
Fengu 15 Dusund
tonn af loðnu
Þrír loönubátar lönduöu sam-
tals 1700 tonnum I Bolungarvlk I
gærdag og fyrrinótt. A þessari
vertlö hafa þá borist rúmlega 15
þúsund tonn af loönu til Bolungar-
víkur en á allri vetrarvertiöinni I
fyrra var landaö þar tæpum átta
þúsund lestum af loönu.
Fjörugt athafnalif er nú I Bol-
ungarvik og mikil vinna. 1 gær
var verið aö skipa út 700 tonnum
af loönumöli. Landburöur hefur
veriö af fiski aö undanförnu. Má
nafna aö skuttogarinn Heiörún 1S
kom inn I gær meö um 130 tonn
eftir fjögurra daga veiöiferö.
Vestfjaröatogarar hafa veitt
mjög vel aö undanförnu og hafa
þeir einkum haldiö sig I Vlkurál.
— SG
Þorsteínn úlafsson
ráðlnn fulltrúi forstjóra
Sambandsins
Þorsteinn Ólafsson, viöskipta-
fræöingur, hefur veriö ráöinn
fulltrúi forstjóra Sambands is-
lenskra samvinnufélaga, og hóf
hann störf 1. febrúar sl„ aö þvl er
segir I Sambandsfréttum.
Þorsteinn starfaöi I fjármála-
ráöuneytinu frá 1970 til 1976, þar
til hann tók viö framkvæmda-
stjórastarfi viö Kísiliöjuna, og I
október 1978 var hann skipaður
aðstoðarmaöur Hjörleifs Gutt-
ormssonar, iönaðarráöherra.
Hann lét af því starfi þegar rlkis-
stjórn ólafs Jóhannessonar lét af
völdum i fyrra.
Þorsteinn mun vinna aö sér-
stökum verkefnum fyrir forstjóra
Sambandsins i hinu nýja starfi
slnu.
sus viii landsiund
Stjórn Sambands ungra
sjálfstæðismanna hefur
samþykkt ályktun, þar
sem skorað er á miðstjórn
Sjálfstæðisf lokksins að
boða til landsfundar
flokksins síðar á þessu ári.
A þessum stjórnarfundi var
einnig rætt um afstööu SUS til
rikisstjórnarinnar, en ákveðiö aö
blöa með aö boða endanlega af-
stööu til Sambandsráösfundar,
sem haldinn veröur 23. febrúar.
Rétt til setu á þeim fundi eiga
rúmlega 100 forystumenn ungra
sjálfstæöismanna um allt land.
1 ályktun stjórnar SUS er
hörmuö sú staða, sem komin er
upp I Sjálfstæöisflokknum, þar
sem sjálfstæöismenn eru klofnir I
afstööu sinni til rikisstjórnar-
innar. Skoraö er á sjálfstæöis-
menn aö vinna aö sáttum og telur
stjórn S.U.S. aö unnt sé að leysa
innanflokksvandamál Sjálf-
stæðisflokksins án þess aö til
beins klofnings komi.
— SG
Brœðraborgarstíg 43
Sími 14879