Vísir - 20.02.1980, Blaðsíða 1

Vísir - 20.02.1980, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 20. febrúar 1980/ 42. tbl. 70. árg. Rannsðknarlögreglan kannar smygimál I vestmannaeyjum: LÉT LÖGGÆSLAN BJÚR- SIHVGL AFSKIPTALAUST? Rannsóknarlögregla rikisins hefur til meðferð- 'ar meint smygl á áfengum bjór til Vestmanna- eyja sem lögreglan i Eyjum var ásökuð fyrir að hafa látið afskiptalaust. Mál þetta barst Rannsóknar- lögreglunni skömmu fyrir siö- ustu áramót. Aö sögn Arnars Guömundssonar deildarstjóra fékk tollgæslan i Reykjavik upplýsingar um þaö seinnihluta árs 1978< aö tiltekiö magn af á- fengi og bjór heföi fariö um borö I skip er hélt til Vestmannaeyja. Skýrslur tollgæslunnar i Eyjum, en þar annast lögreglumenn tollgæslu, komu hins vegar ekki heim og saman viö upplýsing- arnar aö utan. Virtist sem þarna vantaöi 40-50 kassa af bjór og lftilsháttar af áfengi. Kristján Torfason bæjarfógeti I Vestmannaeyjum sagöi i sam- tali viö VIsi aö fram heföu kom- iö ásakanir um aö lögreglan sem annaöist tolleftirlit heföi látiö þaö afskiptalaust aö bjór heföi veriö smyglaö á land. Þessum ásökunum heföi veriö neitaöen fógeti kvaöst hafa sent máliö til Rannsóknarlögregl- unnar. Arnar Guömundsson sagöi, aö þegar máliö kom þangaö heföi veriö liöiö ár frá þvi aö fariö var aö kanna þetta I Eyjum. „Viö sendum menn þangaö þegar máliö kom hingaö, en rannsókn er erfiö þegar allt er löngu drukkiö og ekki hægt aö festa hendur á neinu”. Bjórmál þetta veröur sent rikissaksóknara sem tekur á- kvöröun um hvort grundvöllur er til frekari aögeröa. —SG Kona lési I bílsiysi Banaslys varö i umferöinni i Reykjavik um hádegi I gær. Ekið var á 76 ára gamla konu við Álf- heima er hún var á leið yfir göt- una og var hún látin er komið var með hana á sjúkrahús. Konan var aö koma frá lækni I húsi Glæsibæjar og var á leiö yfir Alfheima þegar hún varö fyrir bil er kom suöur Alfheima. Hún mun ekki hafa veriö á merktri gang- braut. 1 morgun lá ekki ljóst fýrir hvort náöst heföi til allra ættingja hinnar látnu og nafn hennar er ■ þvi ekki birt hér nú. — SG Hlé á Mngstðrf- um tii 10. mars? Akveðið var á rikisstjórnar- fundi I gær að stefna að þvf að þinghlé verði þegar skattafrum- varp og frumvarp um iand- búnaðarmál verði að lögum, annað hvort I dag eða á morgun, og þinghléið verði þá til 10. mars. Gunnar Thoroddsen, forsætis- ráðherra sagöi I morgun aö hann vildi hafa fulitsamkomulag allra flokka um þetta. Sagöi Gunnar aö þessu heföi veriö vel tekiö, og vænti hann þess aö þaö yröi al- gjört samkomulag um aö gera hlé á störfum þingsins. —H.S. ' * ~ ... ■ ■ ■. —.' ■ Viöarveiðar mætti kanski kalla þessar veiðar, sem stundaðar eru á Siglufirði þessa dagana. Þar er nú verið að brjóta niður gömul sfldar- plon, sem orðin voru illa farin, minjar slldarævintýrisins, og hér er veriö að hreinsa staura og borð upp úr höfninni. Nánar segir frá þessari „niðurrifsstarfsemi” á niundu sfðu Vfsis f dag._____________ Visismynd: Kristján Möller. Starfsmenn Framlelðslueftlrlits siávarafurða ðku 515 ðúsund kílðmetra í fyrra: Jafngildir um 340 ferðum hringfnn í kringum landiöl Forstððumaður eftlrlltsins telur áfangaskýrsluna „marklaust piagg” Akstur starfsmanna Fram- leiðslueftirlits sjávarafurða var á si. ári 510-515 þúsund km og samsvarar það, að þeir hafi ekiö hringveginn um landið 340-350 sinnum. Greiðslur fyrir þennan bllakostnað námu um 50 milljónir króna. Þetta kom fram, þegar Visir ræddi viö Jóhann Guömunds- son, forstjóra Framleiöslueftir- litsirís, I tilefni af frétt, sem birt- ist I blaöinu I gær. Þar var sagt frá áfangaskýrslu nefndar á vegum sjávarútvegsráöuneytis- ins.sem átti aö kanna starfsemi stofnunarinnar. Var niöurstaöa skýrslunnar I þá veru, aö skera mætti niöur starfsemi Fram- leiöslueftirlitsins aö stórum hluta, og þá ekki sist auka- kostnaö ýmiskonar. Jóhann sagöi, aö þessi skýrsla væri marklaust plagg og yröu fullyröingar hennar hraktar liö fyrir liö. Þar væri starfsmönn- um Framleiöslueftirlitsins m.a. brigslaö um stifni og stiröleika, en þess ekki gætt, aö starf sem þetta veröur varla til aö afla mönnum vinsælda, t.d. þegar hafna þyrfti gölluöum fiski. Bæru slik vinnubrögö frekar vott um samviskusemi og heiöarleika aö taka réttar, ákvaröanir, þótt óvinsælar væru. Þá væru fullyröingar um hlutdrægni opinberra starfs- manna alvarleg ásökun, sem svaraö yröi á öörum vettvangi. Jóhanrí var spuröur, hvort hann heföi tölur á reiöum hönd- um um kostnaöarliöi þá, sem lagt væri til I skýrslunni aö skornir væru niöur, en hann kvaö svo ekki vera, en þvi yröi þó svaraö siöar. Þess má geta, aö Fram- leiöslueftirlitiö hefur sent frá sér greinargerö um þetta mál og veröur hún birt I VIsi á morgun. — HR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.