Vísir - 13.03.1980, Side 1
Fimmtudagur 13. mars 1980/ 61. tbl. 70. árg.
- 'T- ' ' - : -■
Krisiján fhorTacíus: „Grunnkaupshækkanir eiga rétT á sér”
„AHNAfi ER EKKI A DAG-
SKRA OKKAR SAMTAKA”
„Grunnkaupshækkanir eiga rétt á sér og annað er ekki á dagskrá okkar
samtaka”, sagði Kristján Thorlacius, formaður BSRB, þegar Visir innti
hann eftir viðbrögðum opinberra starfsmanna við tilboði þvi sem Ragnar
Arnalds f jármálaráðherra sendi stjórn og saminganefnd BSRB í gær.
„Ráöherrann lýsti i þessu
bréfi afstööu sinni og stjórn og
saminganefnd BSRB mun koma
saman til fundar á föstudaginn
og taka opinberlega afstööu til
þess, jafnframt þvl sem staöan
almennt i samningamálunum
veröur rædd”, sagöi Kristján.
„Ráöherrann hefur I viötölum
lýst þvi yfir, aö sér fyndist eöli-
legt aö þessi mál yröu leyst á
hinum frjálsa vinnumarkaöi og
ég vil gjarnan aö það komi
fram aö BSRB er hluti af hon-
um. Ég vil láta I ljós undrun á
þeim ummælum fjármálaráö-
herra, aö hann liti ekki á sam-
tök opinberra starfsmanna,
næst stærstu launþegasamtök
landsins, sem hluta af hinum
frjálsa vinnumarkaöi”, sagöi
Kristján.
Aöspuröur um framhaldiö I
þessum málum sagöi Kristján:
„Ég er sannfæröur um, aö þeg-
ar ráöherrarnir hafa fengiö lin-
una frá Vinnuveitendasam-
bandi íslands þá munu þeir fara
eftir henni. Þeir viröast bara
vera aö biöa eftir stefnumörkun
úr þeirri átt”. Sjá bls. 2.
—P.M.
. verður Mónustan
bætt i Bláflöllum?
Þjónuslu-
míðstöö fyrir
250 milli.
1 borgarstjórn Reykjavikur og
þeim sveitarstjórnum, sem aðild
eiga aö Bláfjallasvæöinu, er nú á
dagskrá aö reisa þjónustumiöstöö
á svæöinu,tvilyft hús, sem áætlaö
er aö kosti um 250 millj.kr. I fjár-
hagsáætlun Reykjavikurborgar,
sem afgreidd veröur siöar i þess-
um mánuði, er gert ráð fyrir, aö
bygging hússins hefjist á árinu,
enborgarráö mun taka afstööu til
málsins á fundi sinum á morgun.
Samkvæmt upplýsingum
Stefáns Kristjánssonar, iþrótta-
fulltrúa, á þjónustumiðstöðin aö
gegna þriþættu hlutverki. I fyrsta
lagi aö auka öryggi i ööru lagi
bæta hreinlætisaöstööu og I þriöja
lagi skapa vistarrými fyrir
starfsfólk.
Aösókn aö Bláfjallasvæöinu
hefur þrefaldast frá þvi 1978 eöa
úr 460 þús. i 1100 þús, ef miðað er
viö miöasölu i lyftur Bláfjalla-
nefndar.
Bláfjöllin eru langsamlega fjöl-
sóttasti fólkvangur I landinu, en
þjónusta og hreinlætisaöstaöa er
öll i lágmarki. Hús þaö, sem
fyrirhugaö er aö reisa, mun veröa
svipaö aö stærö og hús sömu
geröar og i Hliðarfjalli viö Akur-
eyri.
Hreggviöur Jónsson starfsmaöur Iþróttaráös, meö teiknlngar af nýju þjónustumiöstööinni.
Vfsismynd: JA
Eggert
aftur I
Ping-
flokklnn?
Guðmundur Karlsson
I llárveitlnganefnd?
Svo viröist sem samkomulag
hafi tekist meö þingflokki Sjálf-
stæöisflokksins og mönnum
Gunnars Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, um skipan sætis Pálma
Jónssonar I fjárveitinganefnd Al-
þingis. Þingflokkurinn kaus i gær
Guömund Karlsson til aö taka
sæti Pálma. Hlaut hann 10 at-
kvæöi, en Egill Jónsson 4. Gunnar
Thoroddsen haföi sótt þaö fast, aö
Eggert Haukdal kæmi fyrir
Pálma og haföi leitaö eftir stuön-
ingi til þess hjá Framsókn og Al-
þýöubandalagi. Nú viröist hins
vegar hafa náöst samkomulag
um Guömund gegn þvi aö Eggert
Haukdal veröi tekinn inn i þing-
flokk Sjálfstæöisflokksins. VIsi
tókst ekki aö ná sambandi viö
Gunnar Thoroddsen eöa Eggert
Haukdal I morgun.
GS
„MEIRA UM VÆNDI HÉR A LANDI
EN FÚLK GERIR SÉR GREIN FYRIR”
- seglr Heiðar Jónsson fyrrverandi sýnlngarmaður I Karon
„Þaö er miklu meira um
vændi hér á landi heldur en fólk
gerir sér grein fyrir” sagöi
Heiöar Jónsson sölumaöur en
hann starfaöi um skeiö i sýn-
ingarsamtökunum Karon, og
hefur oft kynnt sýningar þeirra
Lét hann þessi orö falla þegar
Visir spuröi hann álits á frétt
þeirri sem fréttastofa Borgþórs
Kjærnested sendi til Noröur-
landa um lúxusvændi sýningar-
stúlkna á Noröurlandaráösþing-
inu.
„Þaö er nokkuö um stúlkur,
liklega 40-50, sem vilja veröa
módel en hafa ekki fengið inn-
göngu I sýningarsamtök, oft
vegna slæms mannorðs þeirra.
Þær kalla sig módel og þaö
leikur grunur á aö þær hafi
komiö þarna nálægt”.
— Þessi frétt er þá ekki úr
lausu lofti gripin?
„tlr lausu lofti gripin er hún
ekki þvi ég hef vitað af þvi þó
nokkuö lengi aö þetta fyrirfinnst
hér á landi. Annaö er þaö aö
stúlka sem stundar sýningar-
störf og er ábyrg i sinu starfi,
hún mundi aldrei gera svona.
Þaö veitéglika þviþaö hefur oft
veriö leitaö á stúlkur sem ég
hef unniö meö. Þetta er tekiö
fyrir þegar stúlkur eru teknar
inn i samtök eins og Karon”.
Heiöar sagöi aö þaö heföi
gerst fyrir nokkrum árum aö
feröaskrifstofa ein heföi leitaö
til sýningarsamtaka og spurst
fyrir um þaö hvort hægt væri aö
fá stúlkur til aö fara Ut meö er-
lendum gestum og boröa meö
þeim, án þess aö nokkuð meira
væri þar i spilinu, en þaö hafi
þótt vera of hættulegt og þess
vegna hafnaö.
Þess má geta aö sýningarfólk
hyggst stefna Borgþór vegna
áöurnefnds fréttaflutnings og
ennfremur hefur ólafur Laufdal
veitingamaöur i Hollywood ósk-
aö eftir rannsókn Rannsóknar-
lögreglu rikisins á þvi hvaö hæft
sé i' fréttinni. Sjá nánar i opnu.
—H.R.