Vísir - 17.03.1980, Page 1
-V'.
.
Séöyfir Kröflusvæðiö f morgun. Greinilega sjást holurnar tvær, sem fóru að blása við eldgosið. Visismynd: GVA
„HRAUNIÐ KOM ÆOANDI
BEINT A MÖTI OKKUR”
sagOi Eysteinn Tryggvason. larOfræðlngur, sem svo sannarlega komst I návlgl vlö nýja hraunlO
Frá Sæmundi Guðvinssyni, blaðamanni Visis á gossvæðinu.
„Við vorum að furða okkur á hvað sauð mikið á þessu þegar eldveggurinn
kom allt i einu á móti okkur á miklum hraða. Mér fannst hann vera i um 150
m. fjarlægð frá okkur og beygði frá, en þegar ég leit við 10 sek. seinna var
hraunið komið i slóðina”, sagði Eysteinn Tryggvason, jarðfræðingur i sam-
tali við blaðamann Visis i Reynihlið i morgun.
Eysteinn var við mælingar norður við Þeistareykjabungu i gærdag þegar
umbrotin byr juðu og komst hann s annarlega i ná vigi við glóandi hraunið.
Með honum var Halldór ólafsson og voru þeir á sitthvorum vélsleðanum.
„Við sáum þegar nyrsti hluti
sprungunnar opnaðist og mun
þaö hafa verið um kl. 16.43,”
sagði Eysteinn. „Svartur
reykjamökkur steig upp í um
kllómetra fjarlægð frá okkur.
Siðan komu rauöar slettur og
sprungan lengdist. Við ókum i
átt að þessu og var ég nokkuð á
undan. Er ég var aö beygja fyrir
hól var það sem hraunsprungan
kom eins og æðandi á móti mér
Slmamynd trá Mývatnssvelt i morgun
Ljósmvndari VIsis fór flugleiðis yfir gossvæðiö I morgun , og tók þá þessa mynd af eldstöðvunum.
Vfsismynd: GVA
og giska ég á að hraði hennar
hafi verið um 40 kilómetrar á
klukkustund.” sagði Eysteinn
Tryggvason.
Eysteinn sveigði þegar af leiö
og kom sér undan, fyrir hólinn,
en hraunsprungan hélt áfram.
Þeir félagar fóru suöur fyrir
stöðvarnar og siöan noröur með
þeim og sagöi Eysteinn aö
sprungurnar væru lengri en i
september 1977.
Stærsta hrauniö væri við
Gjástykkjabungu, eöa vestur af
Sandhnjúk. Hraunsprungan var
4-5 km. að lengd og náði lengra
norður en var I siöasta gosi.
SG/GS
„Krafia er alliaf
óútrelknanleg”
,,Það kom okkur á ó-
vart hvað þetta skeði
snöggt núna, en það má
lika segja, að það hafi
komið okkur á óvart
hvað þetta skeði hægt
siðast, svo Krafla er
alltaf óútreiknanleg”,
sagði Axei Björnsson,
jarðeðlisfræðingur i
samtali við Visi i
Reykjahllð i morgun.
Axel sagði, að eldvirkni i gos-
stöövunum virtist hafa hætt um
kl. 22 i gærkvöldi. Er Vlsismenn
fluguþar yfir lausteftir kl. 22:30
steig gufumökkur upp I um
15000 feta hæð, en glóandi
hraunbráöin var mjög fögur
sjón I myrkrinu. Axel sagði, að
svo virtist, sem meira hraun
hefði komiö upp nú en siðast, en
hraunávæðið væri þó allavega
minna en ferkilómetri aö um-
máli.
Ekki er eins mikið um nýjar
sprungumyndanir I Leirhnjúk
og var 1977. Axel sagöi allt
benda til þess, að land við Leir-
hnjúk hefðisigiöum a.m.k. lm I
umbrotunum I gær, en það gæti
veriö meira og sigið væri veru-
legt. Landris var ekki komið I
eins mikla hæð núna og þegar
siðustu umbrot voru og kvaðst
Axel ekki hafa átt von á hrinu
fyrr en eftir nokkrar vikur. Hins
vegar væri hegöan gossins nær
sú sama og 1977 og greinilegt
kvikuhlaup til suðurs djúpt i
jörðu.
SG/GS