Vísir - 18.03.1980, Síða 3

Vísir - 18.03.1980, Síða 3
ÞriOjudagur 18. mars 1980 3 I fy WSK KODK KOÍtíí & , 3 j V I +& *-♦ 't* 1«7S íslenska hjúkrunarfólkið á blaðamannafundinum I gær. Jóhanna Guðlaugsdóttir er lengst til vinstri, þá Björg Viggósdóttir, Hildur Nielsen og Kristin Ingóifsdóttir, allar hjúkrunarfræðingar, þá Siguröur Sigurðsson, læknir hópsins og lengst til hægri er ólafur Mixa læknir. ... . ... Visismynd: JA „FÆRUM AFTUR EF OKKUR RVRIST ÞAfl” seglr íslenska hlúkrunarlólklð sem er nýkomlð irá Thailandi Fimm af tslendingunum sex, sem fóru til Thailands á vegum Rauða krossins í desember komu heim aftur á laugardag- inn. Þar með er að mestu lokið beinni þátttöku Rauða kross ts- lands i hjálparaögerðum gagn- vart flóttaf ólki i Suö-austur Asíu. 1 islenska hópnum var einn læknir, fjórir hjúkrunar- fræðingar og svo fararstjórinn, Jóhannes Reykdal, sem verður i Thailandi einn mánuð til við- bótar. „Okkur likaði mjög vel i Thailandi og við færum hiklaust aftur ef okkur byðist það”, sagði Kristin Ingólfsdóttir, einn hjúkrunarfræðinganna i hópn- um á blaðamannafundi sem haldinn var i gær. „Starfið var að visu erfitt, sérstaklega vegna hitans, en það er örugglega helmingi er- fiðara að vinna i svona miklum hita en hér heima”. Sigurður Sigurðsson, læknir, sagöi að hjálparstarfið væri komið i nokkuð gott horf, miðað við aðstæður, skipulag allt betra en var og samstarf milli hjálparaðila mun meira. „Það voru um það bil fimm hundruð manns sem fengu mat i okkar búðum daglega og viö hlúðum að 350-400 sjúklingum á dag. Allt voru þetta sjúklingar sem fóru heim á kvöldin, pvi það var ekkert sjúkrahús á staðnum”, sagði Sigurður. Eitt sinn var gerð árás á búðirnar, þar sem Islending- arnir störfuöu og sagði Hildur Nielsen, hjúkrunarfræðingur frá þeim atburði. „Það var 4. janúar, við vorum nýbyrjuö að vinna. Viö heyrö- um Skothriðen hana höfðum við heyrt svo oft áður að við höföum ekki miklar áhyggjur. Svo skyndilega færðist skothrfðin nær og farið var að beita stór- skotaliði, þannig að við vorum þegar i stað færð úr búðunum. Jóhannes Reykdal var mun nær skothriðinni og munaði minnstu, að illa færi fyrir hon- um. Búöunum var svo lokað i nokkra daga á eftir, en við urð- um ekki fyrir sliku ónæði aft- ur”. Hildur sagöi, að Hvitu Kmerarnir, sem stjórna búðun- um, hafi sagt að þar hafi Rauðir Kmerar Pol Pots verið á ferö- inni. Rauða kross Islands hafa bor- ist þakkarskeyti fyrir framlag félagsins og starfsliðsins en is- lenska starfsfólkiö var talið hafa staðið sig sérlega vel, ver- ið ósérhlifið og sýnt mikla starfsgleði. Islendingarnir fóru utan þann 6. desember og voru þvi rúma þrjá mánuði I ferðinni. —ATA I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I Hætta fast- eignasaiar aö augiýsa í Mogga? „Við höfum stungið saman nefjum um það nokkrir fasteigna- salar hvað beri að gera vegna þess að Mogginn hirðir allan okk- ar ágóða, má segja. En ég hef ekki heyrt um það að fasteigna- salar hyggist gefa út sérstakt blaö en það má vera að einhverjir hafi rættum það”, sagði Jón Guð- mundsson fasteignasali hjá Eignamiöluninni i samtali við VIsi. I Helgarpóstinum á föstudaginn var frá þvi skýrt að vegna gifur- legs auglýsingaverðs hafi fasteignasalar rætt um að hætta að auglýsa i Morgunblaðinu og gefa þess I stað út sérstakt aug- lýsingablað sem dreift verði ókeypis i öll hús á höfuðborgar- svæðinu. „Viö vorum að reikna það saman að gamni um daginn að Morgunblaðiö fær á þessu ári um það bil hálfan milljarð frá fast- eignasölum, þetta er það há tala að það ber að athuga hvað hægt er aö gera”, sagði Jón, „og við mun- um athuga okkar gang, sérstak- lega I framhaldi af deilu kvik- myndahúsaeigenda við Morgun- blaöið. En þvi miöur eru samtök fasteignasala ekki sérlega sterk þvi þótt góð samvinna sé milli sumra skrifstofanna eru menn vanari þvi að klóra augun hver úr öðrum”. —IJ Fyrirlestrar um skoska grasafræði Skoskur prófessor i grasafræði viö háskólann i Aberdeen, dr. C.H. Gimingham, mun flytja tvö erindi I húsnæöi Liffræöistofnun- ar Háskóla Islands að Grensás- vegi 12 (stofa G-6) i vikunni, og er öllum heimill aðgangur. Fyrri fyrirlesturinn fjallar um „Man and nature in Scotland” og veröur haldinn þriöjudaginn 18. mars en sá siðari „The Scottish Highlands and their flora”, verður á fimmtudagskvöldið. Báöir fyrirlestrarnir hefjast kl. 20.30. Alþjóðasamtökin Amnesty International hafa valið eftir- talda þrjá samviskufanga „Fanga marsmánaöar 1980”. Ismael Weinberger Weisz frá Uruguay er 51 árs blaðamaður, afplánar 8 ára fangelsisdóm, uppkveðinn af herdómstóli í ágúst 1979. Þá hafði sakborn- ingur setið i fangelsi í 3 ár, þar af 10 mánuði I einangrun og sætt pyntingum, bæði likamslemstr- an og lyfjagjöfum, sem ollu ranghugmyndum og ofskynjun- um. Sakargiftir voru „árásir á stjórnskipun rikisins” og „aðild að undirróðurssamtökum”, þ.e. kommúnistaflokki Uruguay, sem var bannaður eftir valda- töku hersins 1973. Weinberger Weisz var i 17 ár blaðamaður við blaðið E1 Popular og skrifaði þar mest um verka- lýösmál. Hann var formaöur blaðamannasamtakanna i Uru- guay. Fulltrúar sendiráða tsraels og Austurrikis i Uru- guay hafa heimsótt hann I fang- elsiö og reynt aö afla honum leyfis til að flytjast til ísraels sem hugur hans stendur til. Amnesty biður um aö skrifuð veröi kurteisleg bréf, þar sem þess sé fariö á leit, aö honum verði sleppt. Skrifa ber til: EXMO SR. PRESIDENTE DE LA REPUBLICA Dr. Aparicio Méndez Casa de Gobierno Montevideo, Uruguay eða Sr. Presidente del Supremo Tri- bunal Militar Cnel Dr. Federico Silva Ledesma SAMVISKU* FANGAR Canelones 2331 Montevideo, Uruguay Gheorghe Brasoveanu frá Rúmeniu er sextugur hag- fræðingur. Hann var settur f geðsjúkrahús i mars 1979 eftir að hafa stuölað að stofnun óopinbers verkalýösfélags og gagnrýnt samskipti rikis og kirkju í Rúmeniu. Handtöku hans bar aö meö þeim hætti, að kona hans var kölluð fyrir og talin á að skrifa undir yfir- lýsingu um að hann væri geð- veikur, á þeirri forsendu, aö þá yrði hann eingöngu hafður i sjúkrahúsi i skamman tima, en ella dæmdur til langvarandi fangavistar. Ekki er vitað hvar Braso- veano er nú geymdur, en siðast fréttist af honum I Jilava fangelsissjúkrahúsinu, þar sem allmargir stjórnarandstæðing- ar hafa verið I haldi á undan- förnum árum. Aö mati Amnesty Inter- national er engin ástæða til að ætla að Brasoveano sé geðveik- ur og er óskaö eftir að hann verði látinn laus. Skrifa ber til: Mr. Grigoras Justin, Minister of Justice Bulevard Gheorghe-Dej 33 7000 Bucurésti SR Romenia Saudi Daraj frá Súdan er 45 ára verkalýðsleiötogi og fyrrum félagi I súdanska kommúnista- flokknum, sem var — eins og aörir stjórnmálaflokkar i Súdan, bannaður árið 1969, þeg- ar herinn tók völd. Saudi Daraj hefur setið I fangelsi i 9 ár án þess að koma fyrir rétt. Honum var aö visu sleppt um tima 1978, en fangelsaöur aftur I ágúst 1979. Saudi Daraj er i svonefndu Kober fangelsi i Khartoum ásamt rúmlega hundrað öðrum pólitiskum föngum. Ekki þykir aðbúnaður þar viðunandi né læknismeðferð fanganna, en nokkrum föngum hefur þó veriö sleppt þaöan af heilsufars- ástæðum, þar á meðal fyrrver- andi mánaðarfanga Amnesty International, Gasim Amin aö nafni1. Óskað er eftir að skrifuð veröi kurteisleg tilmæli um að Saudi Daraj veröi látinn laus til: Field Marshal Jaafar Mo- hammed Numeiri, President of the Democratic Republic of the Sudan, Presidential Palace, Khartoum, Sudan. Frekari upplýsingar gefnar f sima 43135. HARSKERINN Skúlagötu 54, sími 28141 RAKARASTOFAN Dalbraut 1. slmi 86312 HARSNYRTISTOFAN PAPILLA Laugavegi 24 sími 17144 Hári5 þarfnast umhirðu! Í^ÍJÍ Tfskuklippingar fyrir alla fjölskyIduna, einnig permanent, Henna djúpnæringakúrar og litanir. Við leggjurri sérstaka áherslu á djúp- næringakúrana. Þeir eru nauðsyn fyrir hár sem permanent hefur verið sett í og það er ótrúlegt hvað þeir geta gert fyrir slitið og þurrt hár. Henna hárnærineakúrunum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.