Vísir - 24.03.1980, Blaðsíða 1
Mánudagur 24. mars 1980, 70. tbl. 70. árg.
Jakob Magnússon með stórar hugmyndir á sviði kvlkmyndagerðar:
HYGGST GERA SðNGVAMYND
UM LÍF» í GAMLA TÍVOLÍ
Kostnaður talinn nálgast 200 mllllónír króna
Áætlanir eru nú uppi unt aö
gera hér á landi næsta sumar
mikla söngva- og tönlistarkvik-
mynd þar sem koma munu viö
sögu Hestir máttarstólpar ís-
lenskrar popptdnlistar, en um-
gjörÖ myndarinnar mun verða
skemmtigarourinn Tivoli, sem
starfræktur var hér á árum á&-
ur i Vatnsmýrinni I Reykjavik.
Kostnaöur mun áætla&ur milli
150 og 200 milljónir króna.
Þa6 er hinn kunni tónlistar-
maöur, Jakob Magniisson, sem
er frumkvöðull þessarar kvik-
myndageröar, en hann er nú bu-
settur i Los Angeles i Banda-
rikjunum þar sem hann stundar
lagasmiö og tdnlistarflutning
samkvæmt samningi við banda-
riskt hljómplötufyrirtæki.
Jakob er meðal þeirra, sem
sótt hafa um styrk frá Kvik-
myndasjóði, en sjdðsstjórnin
hefur ekki tekið afstöðu til um-
sóknar hans fremur en annarra
umsækjenda, sem voru nokkuð
á þriðja tug.
Meginhugmyndin á bak við
gerö kvikmyndarinnar grund-
vallast á efni hljómplötu, sem
Stuðmenn gerðu og Steinar hf.
gáfú út á árinu 1976 og bar heitið
Tivoli. Þar var endurvakin
stemmning gamla Tivolis i
Vatnsmýrinni fléttaö saman við
dálitilli þjóðfélagsádeilu. Er
platan kom ut.uröu mörg lag-
anna á henni mjög vinsæl og má
I þvi sambandi nefna „Herra
Reykjavík", „Bldlagið", og
„Söng fjallkonunnar".
Samkvæmt heimildum Visis
mun Jakob hafa I hyggju að
flytja hingað til lands ýmis
skemmtitæki eins og þau, sem
voru hér á meðan Tivoli var og
hét, til notkunar við myndatök-
una. Auk þess mun þurfa miklar
framkvæmdir vegna hennar til
þess að hægt verði að endur-
vekja gömlu tivolistemmning-
una.
Gert er ráö fyrir að Tivolí-
kvikmyndin verði um einnar og
hálfrar klukkustundar löng
breiðtjaldsmynd i litum og
gömlu „Stuðmennirnir" muni
fara þar með aöalhlutverkin. I
hljómsveitinni voru á sinum
tima auk Jakobs Magnússonar
þeir Egill Ólafsson, Sigurður
Bjóla, Þórður Arnason, Tómas
Tómasson og Valgeir Guðjóns-
son.
Þessa dagana mun unnið að
gerð kvikmyndahandrits fyrir
Tivoll-myndina og ef allt gengur
að dskum varðandi fjárútvegun
og undirbúning myndatökunnar
mun áætlað að hefja upptökur I
Reykjavík I júlimánu&i, sam-
kvæmt heimildum Vfsis.
ii'
Pi
Skapar
grundvöll
- segir Frlðrlk
„Ef þessi fjárveiting nær fram
a& ganga skapast grundvöllur til
þess a& hægt ver&i að flytja skrif-
stofu FIDE til Islands frá
Amsterdam", sagöi Friörik
Ólafsson f vi&tali vi& Visi.
Forsætisrá&herra hefur lagt til
vi& fjárveitingarnefnd a& forseti
FIDE fái 19.2 milljóna fjárveit-
ingu á þessu ári.
„Það þýðir ekki að flytja skrif-
stofuna hingað I ekki neitt.
Peningarnir yrðu notaðir til að
reka skrifstofu FIDE á íslandi og
með tímanum verður e.t.v. hægt
að færa út kviarnar og færa meira
og meira af starfsemi FIDE til
Islands", sagði Friðrik. -ATA
Llkfundur
Karlmannslfk fannst I fjörunni
við Skúlagötu síðdegis á laugar-
daginn. Talið er að líkið sé af
Baldri Baldurssyni, sem hvarf
örfáum dögum fyrir jól og ekkert
hefur spurst til siðan. —SG
Vorblf&an um helgina freistaöi margra tií útiveru á höfuöborgarsvæöinu. Skl&alöndin voru morandi af fólki og sundlaugarnar yfirfullar. Þetta
unga fólk var i miklum vorhug á grasflötinni vi& Laugardalslaugarnar og lék vi& hvern sinn fingur. Vfsismynd: Gunnar V. Andrésson.
Milljarða-
hðll ríkis-
fjölmiðla
Slá
neðanmálsgreln
unr nýja
úivaroshúsio
ms.9
Endurreisn
hafin
enir
brunann
á
Akureyri
Siá bls. 23
Sex sfður
íþróttlr
helgar-
innar
Sjá bis. 14.15.
16.17.18.19