Vísir - 28.03.1980, Blaðsíða 1
^ídö-
Föstudagur 28. mars 1980, 74. tbl. 70. árg.
Um 90 fórust begar Alexander Klelland hvolfdl:
ísiendingarnir voru
í landi pegar slysið varð
„Ég var meðal þeirra 25 sem
sátu i kvikmyndasalnum þegar
-neyðarbjallan hringdi", segir
éinn af þeimsem komu til Stav-
anger i þyrlu i morgun eftir
slysið á oliuborpallinum
Alexander Kielland, en þar fór-
ust sennilega um 90 manns.
„Ég veit ekki hversu margir
það voru sem komust út, en
sjálfur náði ég i björgunarvesti
og komst um borö f björgunar-
bát nokkrum sekúndum áöur en
pallurinn snerist".
Tuttugu og sex ára gamall
Björgvinjarbúi sagöi i morgun:
„Þegar okkur tókst ekki að
leysa björgunarbátinn fylltist
fólk örvœntingu. Slðan valt
báturinn sem ég loksins komstí
og hinir 25 félagar mlnir, sem
voru um borö, hurfu I öldurnar.
Asamt þremur öðrum komst ég
upp á pall sem flaut í sjónum og
okkur var siöan bjargað af
þyrlu".
„Þetta er harmleikur og þetta
er einn versti dagur sem ég hef
upplifað", sagði Odvar Nordli,
forsætisráðherra Noregs, i
morgun.
Hann, ásamt tveimur öörum
ráðherrum, hélt strax eftir sér-
stakan rikisstjórnarfund I
morgun, til björgunarmið-
stöövarinnar á Sola-flugvellin-
um.
Klukkan tiu I morgun var búiö
að finna 133, sem lifaö höfðu af
slysið, 23 lik eru fundin, en 69 er
ennþá saknað. Af þeim sem
lifðu af slysið eru nokkrir alvar-
lega slasaðir. Slysið gerðist
klukkan 17.35 I gærkvöldi og
eftir þvi sem Vlsir kemst næst
var enginn íslendingur við störf
á viðkomandi borpalli.
A pallinum voru 225 manns og
sátu flestir þeirra að kvöldverði
þegar ein af hinum fimm uppi-
stöðum pallsins brotnaði. Það
liðu aðeins átta minútur frá þvi
að það skeði og þangað til pall-
urinn var kominn á hvolf.
Enginn þeirra sérfræðinga,
sem norskir fjölmiðlar höfðu
samband við I morgun, kunni
skýringar á orsökum þess. að
uppistaöan brotnaði. Sam-
kvæmt öllum útreikningum átti
slikt ekki að geta skeð.
Alexander Kielland, en svo
hét pallurinn sem brotnaöi, átti
einungis eftir að vera eina viku I
Noröursjónum, en þá átti nýr
pallur að taka við hans hlut-
verki.
Einn tslendingur starfafti á
oliuborpallinum. Heitir hann
Arni Þórðarson og er rafvirkja-
meistari. Hann hafði hins vegar
farið I fri s.l. mánudag og var
þvi ekki á pallinum þegar
óhappið vildi til. Annar
tslendingur, Erlingur Hallsson
rafvirkjameistari, starfaði sem
lausamaður við sama borpall og
átti hann að vera að vinna á
pallinum, en vegna þess að efni
vantaði á pallinum var hann
ekki sendur þangað út.
JEG.-OSLO/PM/HR
SJá bls. 5 og slmamynd á bakslðu
Ragnar Arnalds á neinni línu Vísis I gær:
Viöbótarskattur á
atvlnnufyrirtæki?
„Ef áætlanir um tekjuskatt af atvinnurekstrinum
reynast vera of lágar, þegar álagningu er lokið,
verður óhjákvæmilegt að leggja viðbótarskatt á at-
vinnurekstur", sagði Ragnar Arnalds, f jármálaráð-
herrari gærkvöldi.
Ragnar sagði, að áætlað væri
aö tekjuskattur af atvinnurekstri
yrði 17 milljaröar króna. Ef áætl-
unin reyndist röng.. og þarna
munaði til dæmis um einum
milljarði sem tekjuskattur yrði
lægri, þá yrði aö koma til hækkun.
Hins vegar taldi ráðherrann
litla sem enga hættu á að hækka
þyrfti tekjuskatt einstaklinga
eftirá, enda væri áætlun um upp-
hæð hans byggð á úrtaki úr fram-
tölum og þvi væri ekki rennt blint
Isjóinnþareinsog með áætlunina
á fyrirtækin.
—SG
vissir hópar ðryrkja
munu fá nensínstyrki
Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra, svarar spurningum á rltstjórn
VIsis I gær. Nánar seglr frá spurningum og svörum á bls. 14 og 19 i
blaðinu I dag. Visismynd: JA
Rtkisstjórnin hefur á prjónun-
um að greiða sérstaka bensfn-
styrki til ðryrkja, sem nauðsyn-
lega þurfa á bfl að halda. Gert er
ráð fyrir að heildarupphæð þessa
styrks geti numið 35 — 40 milrjón-
um króna á þessu ári.
Þessar upplýsingar komu fram
hjá Ragnari Arnalds fjármála-
ráðherra á beinni línu VIsis I
gærkvöldi, er ráðherrann svaraði
fyrirspurn frá Ragnari Jónssyni
um hvort rfkisstjórnin ætlaði að
létta benslnhækkunum af öryrkj-
um.
Ráöherra sagði, aö þessi styrk-
ur yrði bundinn við ákveðna hópa
öryrkja og Tryggingastofnun
rlkisins myndi annast úthlutun
styrksins. Ráðgert er að halda á-
fram að veita ákveðnum hópum
öryrkja, og þá einkum hreyfi-
hömluðum benslnstyrki á næsta
ári. —SG.
Söluskattur af fsienskum kvlkmyndum rennl f Kvikmyndaslóð:
Gæti numiO 80-90 milljónum
„Það kemur vel til greina að
setja upp þá reglu, þegar inn-
lendar kvikmyndir eiga I hlut,
að fella niður söluskatt, ef um
tap er að ræða, en veröihagnað-
ur, þá renni söluskatturinn f
Kvikmyndasjóð", sagöi Ragnar
Arnalds á beinni llnu Visis f
gærkvöldi, þegar hann var
spurður um, hvort rikið ætlaði
að innheimta söluskatt af inn-
lendri kvikmyndagerð.
Það kom fram hjá Glsla
Gestssyni kvikmyndagerðar-
manni, sem spurði ráðherrann
um þetta atriöi, að af þeim
þrem leiknu myndum, sem
gerðar voru á siðasta sumri hér
á landi, geti söluskatturinn faríð
upp i 80 til 90 milljónir króna.
Styrkir til þessara kvikmynda
úr Kvikmyndasjóði námu alls 19
milljónum króna.
,,Ég held, að fslensk kvik-
myndagerð hljóti að verða með-
höndluðmeðsérstökum hætti og
þaö höfum viö raunar gert. Viö
höfum samþykkt, að söluskatt-
ur verði greiddur með vlxli og
aö hann verði ekki innheimtur
ef um tap er að ræða á kvik-
myndagerðinni. Þetta sama á
t.d. við um Listahatiö. Sé um
hagnað að ræða, þá tel ég að það
komi sterklega til greina að
söluskatturinn renni I Kvik-
myndasjóð", sagði Ragnar Arn-
alds.
-KP.