Morgunblaðið - 02.12.2001, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 02.12.2001, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. LÍKNARFÉLÖG og samtök veittu í desember í fyrra aðstoð við einstak- linga og fjölskyldur með kaupum á matvælum fyrir nærri 20 milljónir króna. Við þessa upphæð má bæta verðmæti varnings sem líknarsam- tökum er jafnan gefinn og nemur nokkrum milljónum króna. Reikna má með að nokkuð á þriðja þúsund heimila hafi notið aðstoðar í ein- hverri mynd. Jónas Þ. Þórisson, framkvæmda- stjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, seg- ir þörfina fyrir aðstoð ekki minni í ár. Markar hann það af mikilli aukningu eftir aðstoð sem hann segir að orðið hafi í október og nóvember. Undir það taka fleiri talsmenn líknarsam- taka. Jónas segir flesta vera lág- tekjufólk og öryrkja, fólk sem á í vandræðum með að framfleyta sér og sínum. Hann segir það stefnu Hjálparstarfsins að leggja meiri vinnu í ráðgjöf til handa þessum hópi þar sem mál séu oft flókin og úrlausn þeirra krefjist oft mikillar vinnu. Hjálparstarf kirkjunnar afgreiddi á síðasta starfsári 1.641 umsókn og kom liðlega helmingur þeirra í des- ember. Fyrir jólin nú sem endranær taka Hjálparstarfið og Reykjavíkur- deild Rauða krossins höndum saman við veitingu einstaklingsaðstoðar fyrir jólin. Á vegum Mæðrastyrksnefndar í Reykjavík fengu um þúsund heimili aðstoð í fyrra, flestir í desember. Telur Ásgerður J. Flosadóttir, for- maður nefndarinnar, að svipaður fjöldi muni leita aðstoðar í ár. Hún segir einstaklinga sem fjölskyldur leita aðstoðar og fyrir utan öryrkja, sem er langstærsti hópurinn, séu meðal skjólstæðinga margir sem misst hafi atvinnu sína. Keyptir voru matarmiðar í fyrra fyrir um 5 millj- ónir króna en nefndin nýtur einnig umtalsverðrar aðstoðar fjölmargra fyrirtækja sem gefa varning. Jólapottar Hjálpræðis- hersins settir út Hjálpræðisherinn veitir einnig að- stoð þeim sem minna mega sín bæði á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Er verið að setja út jólapottana um þessar mundir. Í Reykjavík leituðu um 200 heimili aðstoðar í fyrra og var útlagður kostnaður vegna kaupa á matarúttektum nálægt einni millj- ón króna. Við þá upphæð bætist verðmæti matargjafa fyrirtækja. Jóna Berta Jónsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar á Akureyri, sagði að um 200 heimili hefðu fengið aðstoð hjá nefndinni fyrir síðustu jól. Hún reiknaði með að þörfin yrði síst minni nú enda hefðu margir misst vinnuna undanfarið. Nefndin starfar allt árið og keypti nefndin matvæli fyrir um 700 þúsund krónur í fyrra auk þess sem kaupmenn hefðu gefið og sagði hún þá jafnan rausnarlega. Fyrir utan líknarsamtökin veita sveitarfélögin félagslega aðstoð. Í vikunni samþykkti félagsmálaráð Reykjavíkur að veittur yrði svo- nefndur jólastyrkur, 14.313 krónur, þeim sem njóta einungis lágmarks- bóta, sem eru rúmlega 63 þúsund krónur fyrir einstakling. Borgarráð á eftir að afgreiða málið. Lára Björnsdóttir, félagsmála- stjóri í Reykjavík, segir 160 heimili hafa fengið slíkan styrk í fyrra en í ár verði þau 202. Hún segir um 2.600 heimili hafa fengið aðstoð í ár. Fjöld- inn var um 7% meiri eftir fyrstu 10 mánuði ársins en á sama tíma í fyrra og hækkun útgjalda hin sama. Jólaaðstoð undirbúin til þeirra sem minna mega sín Aukin þörf fyrir að- stoð síðustu vikur KONA um fertugt lést í hörðum árekstri tveggja bifreiða á Reykja- nesbraut laust eftir klukkan hálf- fimm í fyrrinótt. Ríflega klukku- stund tók að ná ökumanni hinnar bifreiðarinnar, konu um fimmtugt, út úr bílnum, sem var sjö manna leigubifreið. Hún var flutt á Land- spítala – háskólasjúkrahús en var ekki talin í lífshættu. Konurnar voru einar í bílum sínum. Reykjanesbraut var lokuð í um fimm klukkustundir vegna slyssins og var umferð þess í stað beint um Vatnsleysustrandarveg. Að sögn lögreglunnar í Keflavík varð slysið skammt suður af Kúa- gerði, 3–400 metrum sunnan við gatnamót við Vatnsleysustrandar- veg. Hinn 30. nóvember í fyrra fór- ust þrír í bílslysi á næstum því sama stað. Tilkynning um slysið barst klukkan 4.40. Tækjabílar frá Brunavörnum Suðurnesja og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins fóru á staðinn auk sjúkrabíla og lög- reglu. Tildrög slyssins eru óljós en hálka og snjór voru á Reykjanes- braut þegar slysið varð. Konan sem lést var á leið í átt til Keflavíkur. Báðir bílarnir eru gjörónýtir. Kona lést í árekstri ALLS hefur 422,8 milljónum króna verið lýst í þrotabú Íslenskrar miðl- unar hf., ÍM, en félagið var tekið til gjaldþrotaskipta að ósk stjórnar þess í ágúst sl. og var skiptafundur haldinn á dögunum. Litlar eignir fundust í búinu, að sögn Ásgeirs Magnússonar hrl. sem skipaður var skiptastjóri búsins. Stærstu kröfuhafar í bú ÍM eru Sparisjóður Hafnarfjarðar, SPH, með tæplega 188 milljónir króna, eða tæp 45% heildarkrafna, og Aco- Tæknival með 79 milljónir króna, eða tæp 19% heildarkrafna. Þetta eru jafnframt stærstu eigendur fé- lagsins, ásamt Kaupfélagi Árnesinga og Ísoport, sem er í eigu Hafliða Þórssonar. Lýstar veðkröfur í búið námu alls tæplega 25,1 milljón króna en þar af námu kröfur aðalveðhafans, SPH, 15,5 milljónum króna. SPH leysti sem hæstbjóðandi til sín fasteign ÍM sem seld var á uppboði í október fyr- ir 5 milljónir króna en áhvílandi veð- skuldir SPH á eigninni námu alls 62,5 milljónum króna. Lýstar forgangskröfur námu 31,5 milljónum og er þar um að ræða laun og launatengd gjöld, þar af eru sam- þykktar forgangskröfur 29,1 milljón. Að sögn skiptastjóra er viðbúið að Ábyrgðasjóður launa greiði launa- kröfur starfsmanna að mestu leyti. Almennar lýstar kröfur nema 366,3 milljónum króna. Ekki var tek- in afstaða til almennra krafna þar sem ekkert bendir til þess að til greiðslu geti komið upp í þær kröfur. Þegar til gjaldþrots ÍM kom höfðu nær allar eignir félagsins verið seld- ar til markaðsfyrirtækisins CRM- markaðslausna, sem er í eigu nokk- urra stærstu hluthafa ÍM. Hagnaður af þeirri sölu var notaður til greiðslu launa starfsmanna og var því ekki til ráðstöfunar við skiptin, að sögn skiptastjóra. Kröfur nema 423 milljónum í þrotabú Íslenskrar miðlunar Tæp 45% krafna eru frá SPH ♦ ♦ ♦ Flugeldasprengingar vöktu íbúa í austurbæ Kópavogs og víðar í fyrri- nótt þeim til lítillar ánægju. Lögreglan fékk tilkynningu um sprengingarnar laust fyrir fimm og fann skömmu síðar kassa undan skoteldum við Smiðjuveg 2. Íbúi í nágrenninu taldi a.m.k. fjörutíu sprengingar en um var að ræða svo- kallaða skottertu. Ekki náðist í skottið á þeim sem stóð fyrir spreng- ingunum en hans eða þeirra er leitað. Flugeldar um miðja nótt MJÖG mikil jólastemmning var í miðbæ Reykjavíkur í gær, fjöldi manns í bænum og verslunarmenn við Laugaveg voru á einu máli um að jólamánuðurinn gæti ekki byrjað betur. Þeir höfðu á orði að veðrið hefði leikið við vegfarendur og gaman hefði verið að sjá heilu fjöl- skyldurnar saman í verslunarferð eða gönguferð í bænum. Jólatónlist og jólaljós hefðu fallið vel að ný- föllnum snjónum og sett skemmti- legan svip á umhverfið og ekki hefði skemmt fyrir að verslun hefði verið góð. Í kirkjum landsins eru víða hátíðarsamkomur í dag, fyrsta sunnudag í aðventu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jólastemmning á Laugavegi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.