Morgunblaðið - 11.12.2001, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Til sölu BMW 330i AT
nýskráður 29.06, 2001
Leðurinnrétting, 17¨ álfelgur,
sjálfskiptur, ekinn 7.000 km.
Ásett verð 4.290,000.
Athuga skipti á ódýrari.
Opnunartímar: Mánud. - föstud.
kl. 10-18 og laugard. kl. 12-16.
Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is
Netfang: bilathing@hekla.is
ENN er ósamið í þremur kjaradeil-
um hjá embætti Ríkissáttasemjara.
Ekki sér enn fyrir endann á kjara-
deilu flugumferðarstjóra og ríkisins
en næsti sáttafundur er boðaður á
morgun, miðvikudag. Þá er ósamið í
kjaradeilu sjúkraliðafélagsins og
viðsemjenda vegna sjúkraliða sem
starfa hjá SÁÁ á Vogi og í deilu fé-
lagsráðgjafa og sálfræðinga við
Reykjanesbæ.
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari
gerir sér þó góðar vonir um að takast
muni að ná samningum í þessum
deilum fyrir áramót og ljúka þar með
þeirri löngu viðræðulotu sem staðið
hefur yfir undanfarin tæp tvö ár
vegna samninga á almennum vinnu-
markaði og hjá hinu opinbera.
Gífurlegar annir hafa verið hjá
embætti ríkissáttasemjara allt frá
því að samningar urðu fyrst lausir á
almennum vinnumarkaði um miðjan
febrúar árið 2000 og skipta samn-
ingafundir þúsundum. Svo mikið
hefur annríkið raunar verið að ekki
hefur enn gefist tóm til að halda opn-
unarhátíð til að kynna mönnum hin
nýju húsakynni ríkissáttasemjara að
Höfðaborg við Borgartún 21 frá því
að embættið flutti þar inn fyrir
tveimur árum eða í febrúar árið
2000. ,,Síðastliðin tvö ár hafa verið
ótrúlega ströng,“ segir Þórir.
Ríkissáttasemjari vonar að takist
að ljúka samningum fyrir áramót
Ekki ennþá tóm
til opnunarhátíðar
LEIT að skipverjanum sem saknað
er af Ófeigi II VE 325, sem fórst
undan Vík í Mýrdal aðfaranótt mið-
vikudagsins 5. desember sl., heldur
áfram.
Um helgina gengu björgunar-
sveitir fjörur frá Vík í Mýrdal austur
að Skaftá og frá Sólheimasandi aust-
ur að Blautukvísl. Leitarmenn fóru
fótgangandi og á jeppum. Einnig var
flogið yfir leitarsvæðið, allt austur að
Ingólfshöfða. Veður var gott til leit-
ar, ágætt skyggni og hægur vindur.
Í tilkynningu frá Slysavarnafélag-
inu Landsbjörg kemur fram að leit-
arsvæðið á Skaftársandi er mjög erf-
itt yfirferðar og einna helst sé að
leita úr lofti.
Leit haldið áfram að
skipverjanum af Ófeigi
YFIRDÝRALÆKNI hefur borist
óformleg fyrirspurn um mögu-
leika á innflutningi á rjúpum fyrir
jólin en vegna lítils framboðs á
rjúpu og hás verðs frá veiðimönn-
um virðist stefna í skort á þessu
góðgæti sem mörgum finnst
ómissandi yfir hátíðarnar. Yfir-
dýralæknir telur, að óathuguðu
máli, að ef flutt væri inn frá t.d.
Grænlandi væri mögulegt að af-
greiða slíka umsókn fyrir jól.
Ekki mikið af dýra-
sjúkdómum í Grænlandi
Halldór Runólfsson yfirdýra-
læknir segir að ekki hafi komið
formleg umsókn um innflutning á
rjúpum en hins vegar hafi starfs-
manni hans borist óformlegt sím-
tal þar sem spurst var fyrir um
hvort talinn væri möguleiki á að
flytja inn rjúpur. Voru nefnd lönd
eins og Grænland, Noregur, Sví-
þjóð og Finnland í því sambandi.
Segir Halldór að beina þyrfti
slíkri umsókn til landbúnaðar-
ráðuneytisins sem síðan færi
fram á umsögn yfirdýralæknis.
„Við skoðum sjúkdómsástand í
viðkomandi landi og förum yfir
það hvort það sé einhver hætta á
innflutningi.“
Hann segir það fara eftir því
um hvaða land er að ræða hversu
langan tíma slíkt ferli tæki. „Ég
held að í þessu tilfelli, t.d. varð-
andi Grænland, yrðum við nokk-
uð fljótir að svara því þeir eru
ekki með mikið af dýrasjúkdóm-
um.“
En eru líkur á að þetta hæfist
fyrir jól ef umsóknarferlið færi
núna í gang? „Já, ég myndi halda
það svona að óathuguðu máli,“
segir Halldór. „Ef þetta væri frá
Grænlandi til dæmis, þá værum
við nokkuð fljótir að afgreiða það
en gætum þurft lengri tíma á
eitthvað annað.“
Stefnir í skort á rjúpu
fyrir jólin
Nokkurrar óánægju gætir
meðal kaupmanna vegna verð-
lagningar á rjúpu frá veiðimönn-
um og segja þeir stefna í skort á
rjúpum fyrir jólin ef fram fer sem
horfir. Björn Sævarsson, deildar-
stjóri hjá Nóatúni segir að versl-
unin sé að fá mun minna af fugli
en áður. „Menn eiga rjúpur en
þær eru bara svo dýrar hjá þeim
að ég get ekki keypt þær. Við átt-
um 3.000 rjúpur en þær eru bún-
ar. Þær voru á 998 krónur ham-
flettar en nú eru skotveiði-
mennirnir að bjóða þær á 1.000
krónur lágmark. Við bara kaup-
um þetta ekki.“
Hann segir að útsöluverð yrði
þá að vera um 1.400 krónur út úr
búðinni. Þó sé til í því að fólk sé
tilbúið til að kaupa rjúpurnar á
þessu verði en aðrir skipti líklega
yfir í hreindýr í staðinn.
Telur verð veiðimanna
vera algjört rán
Árni Ingvarsson, kaupmaður í
Nýkaupi, segir að eitthvað sé til
af rjúpum í versluninni en fram-
boðið sé lítið. „Svo virðist sem
veiðimenn hafi verið að tala sig
saman um að láta þetta ekki frá
sér nema á ákveðnu verði sem að
okkar mati er algjört rán. Síðasta
tilboð sem ég fékk var rjúpa á
1.200 krónur. Það er ekki hægt að
bjóða fólki upp á það því það þarf
tvær rjúpur á mann í matinn.“
Rjúpan sem Nýkaup hefur ver-
ið að selja hefur komið héðan og
þaðan af landinu, þó aðallega af
Norðausturlandi að sögn Árna en
allt stefni í skort í verslunum fyr-
ir jólin.
Spurst fyrir um
innflutning á rjúpu
Veiðimenn
verðleggja
rjúpuna hátt til
kaupmanna
STRIK.IS birti frétt um að með níu
smellum væri hægt að komast af
heimasíðu lögreglunnar hér í gegnun
heimasíðu dönsku lögreglunnar og
yfir á danskt tenglasafn, þar sem allt
væri vaðandi í klámi. Á Stöð tvö var
einnig fjallað um þetta mál í gær-
kvöldi og var sú frétt byggð á frétt-
inni á Strik.is. Sem kunnugt er tókst
fréttamönnum RÚV í sumar að rekja
sig beint af grein á Strik.is yfir í hart
klám og fór ríkislögreglustjóri fram á
lögreglurannsókn í málinu.
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri segir að þessi fréttaflutn-
ingur sé afar sérkennilegur að sínu
mati. Þá þyki sér undarlegt að frétta-
stofa Stöðvar tvö skuli ekki óska eftir
skýringum hjá ríkislögreglustjóra
áður en hún sendir út fréttina. „Mér
þykir þetta ekki góð blaðamennska.
Mér sýnist Strik.is viðhafa sérkenni-
legar starfsaðferðir í þessu máli og
ég velti því fyrir mér hvað búi að
baki. Ég bendi sérstaklega á í þessu
sambandi að tölvudeild embættisins
sendi Strik.is athugasemd strax í
gær vegna þessarar fréttar þeirra og
óskaði birtingar en þeir sáu ekki
ástæðu til að birta þær upplýsingar
sem við höfðum aflað hjá dönsku rík-
islögreglunni, að minnsta kosti ekki
enn sem komið er.“
Danska lögreglan hafði
ekki hugmynd um málið
Aðspurður segir Haraldur að haft
hafi verið samband við danska rík-
islögreglustjóraembættið og þær
upplýsingar fengist að danski ríkis-
lögreglustjórinn sé með einhvers
konar samstarfssamning við dansk-
an fjölmiðil, TV3. Danski fjömiðillinn
sé hins vegar með tengingu inn á
klámsíður. Það sé því fjölmiðill sem
er að dreifa klámefninu án þess að
danska lögreglan hafi haft hugmynd
um eða samþykkt slíkt.
„Hjá danska ríkislögreglustjóra-
embættinu var okkur tjáð að þeir
hefðu ekki haft hugmynd um að TV3
hefði komið upp tengingu inn á klám-
síður, þannig að þetta kom þeim al-
veg í opna skjöldu og tengillinn ef-
laust síðar til kominn. Þarna er það
að gerast að danskur fjölmiðill er að
dreifa klámi með svipuðum hætti og
Strik.is, að því er virðist.“ Haraldur
segir að á heimasíðu íslensku lög-
reglunnar séu skírskotanir til heima-
síðna fjölmargra lögregluliða um all-
an heim, s.s. Interpol og Europol, „en
ríkislögreglustjóraembættið getur
engan veginn borið ábyrgð á því
hvernig heimasíður þessara erlendu
aðila líta út, svo ekki sé talað um þeg-
ar samstarfssamningur er misnotað-
ur eins og virðist hafa gerst í Dan-
mörku samkvæmt upplýsingum sem
við höfum, s.s. frá Interpol og dönsku
lögreglunni.
Raunar sýnist mér að menn þurfi
að vera alveg sérstaklega áhuga-
samir um efni sem þetta til þess að
geta þefað það uppi með þessum
hætti“.
Strik.is segir að hægt sé að nálgast klám á heimasíðu lögreglunnar
Heimasíða danska ríkis-
lögreglustjórans misnotuð
ÖKUMAÐUR og farþegi fólksbíls
voru fluttir á slysadeild Landspítala
– háskólasjúkrahúss í Fossvogi eftir
árekstur við flutningabíl á gatna-
mótum Suðurlandsbrautar og Faxa-
fens um þrjúleytið í gær. Beita varð
klippum til að ná þeim út úr bílnum.
Ekki var um alvarleg meiðsl að
ræða og fékk fólkið að fara heim af
slysadeild að lokinni skoðun. Þá
voru þrír fullorðnir og eitt ungbarn
flutt á slysadeild eftir harðan
árekstur á brúnni yfir Reykjanes-
braut við Mjóddina í gærmorgun.
Að sögn lögreglunnar í Kópavogi er
grunur um að annarri bifreiðinni
hafi verið ekið gegn rauðu ljósi.
Meiðsli voru ekki talin alvarleg en
slökkvilið þurfti að beita klippum til
að ná öðrum ökumanninum út.
Flutt á
slysadeild
eftir
árekstra
Morgunblaðið/Sverrir