Morgunblaðið - 11.12.2001, Síða 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LÖGREGLAN á Neskaupstað rannsakar nú
hvers vegna eldur sem verið var að mynda fyrir
kvikmyndina Hafið í leikstjórn Balthasars Kor-
máks fór úr böndunum með þeim afleiðingum að
efsta hæð gamla frystihússins gereyðilagðist í
bruna á laugardagsmorgun.
Jónas Vilhelmsson, yfirlögregluþjónn, segir að
svo virðist sem glóð hafi komist inn fyrir þakskegg
í suðurhluta byggingarinnar. Þakið er að hluta til
einangrað með svokölluðum tjörukorki og segir
Jónas að nánast ómögulegt hafi verið að ráða við
eldinn eftir að hann barst í tjörukorkinn. Þá hafi
mikið hvassviðri gert slökkviliðsmönnum erfitt
fyrir. Fyrr um nóttina var verið að kvikmynda
eldsvoða og höfðu gasleiðslur verið settar fyrir
neðan þakskeggið. Jónas segir að kvikmyndatöku-
fólkið hafi einangrað þakskeggið með gifsplötum
sem hafi verið vættar með eldtefjandi efni. Þannig
hafi átt að tryggja að eldurinn breiddist ekki út en
það hafi greinilega ekki dugað til. Aðspurður
hvort lögreglan hafi gefið leyfi til þess að eldsvoði
yrði sviðsettur segir Jónas að svo hafi ekki verið
enda sé slíkt ekki í verkahring lögreglu. Lögregl-
unni hafi þó verið tilkynnt hvað stóð til. Hann seg-
ir að fyrirtækið hafi verið með öryggismálin í góðu
lagi en slökkvilið var á staðnum meðan á tökum
stóð.
Skýrslur hafa verið teknar af þeim sem báru
ábyrgð á kvikmyndatökunum en eftir er að ræða
við slökkviliðsmenn.
„Fengu ekki leyfi
til að kveikja í húsinu“
Frystihúsið er í eigu Síldarvinnslunnar hf. en
hafði ekki verið notað sem frystihús um alllangt
skeið. Á neðri hæð hússins var sjóminjasafn Jós-
afats Hinrikssonar í geymslu, á jarðhæð var hlýra-
eldi. Ekki urðu skemmdir á munum úr sjóminja-
safninu og hlýraeldið varð heldur ekki fyrir tjóni.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnsl-
unnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að mats-
menn frá tryggingafélagi fyrirtækisins væru að
meta skemmdir og því of snemmt að segja til um
fjárhagslegt tjón. „Þetta er feikilegt tjón en þetta
hefur ekki áhrif á okkar meginstarfsemi,“ sagði
Björgólfur. Ætlunin hafi verið sú að leggja stærri
hluta hússins undir hlýraeldið en eftir sé að skoða
hvaða áhrif bruninn hafi á þær áætlanir.
Björgólfur segir að forsvarsmenn kvikmynda-
fyrirtækisins hafi tjáð sér að það væri tryggt fyrir
því tjóni sem hugsanlega yrði við kvikmyndatök-
ur. Aðspurður hvort Síldarvinnslan hafi gefið leyfi
fyrir því að eldsvoði yrði kvikmyndaður í gamla
frystihúsinu segir Björgólfur að hann hafi vitað
hvað til stóð en hafi verið fullvissaður um að ekki
hlytist af tjón. „Þeir fengu ekki leyfi til að kveikja í
húsinu, það er alveg á hreinu,“ sagði Björgólfur.
Lögregla rannsakar brunann í gamla frystihúsinu á Neskaupstað
Talið að glóð hafi kom-
ist undir þakskegg
MIKIÐ magn af sjó fór á milli þilja í
Brúarfossi í mjög slæmu veðri vest-
ur af Færeyjum sl. föstudag, en eng-
inn sjór komst í lestar skipsins og
ekki urðu neinar skemmdir, hvorki á
skipi né varningi.
Brúarfoss kom til Immingham í
Englandi síðdegis í gær, um 20 tím-
um á eftir áætlun. Höskuldur Ólafs-
son, framkvæmdastjóri rekstrar-
sviðs Eimskips, segir að svo virðist
sem á annað hundrað tonn af sjó hafi
farið í gegnum óþétt op og í lokað
rými en sjór hafi ekki komist í lestar
skipsins. Hann segir að það hafi ver-
ið metið svo að skipið hafi ekki verið í
verulegri hættu en engu að síður hafi
verið talin ástæða til að sigla til Fær-
eyja í öryggisskyni og dæla sjónum
þar úr skipinu. Því hafi orðið töf á
ferðinni.
Farmurinn er fyrst og fremst
frosinn og ferskur fiskur í gámum,
og vegna seinkunarinnar, fer ferski
fiskurinn degi seinna á markað en
ella eða í dag.
Enginn sjór
í lestum
Brúarfoss
ÞAÐ varð uppi fótur og fit á heim-
ili einu í Þorlákshöfn þegar mink-
ur skaust undan húspallinum til að
verða viðstaddur er heimilisfað-
irinn setti jólaljósin upp í tré einu í
garðinum. Minkurinn reyndist
meira en lítið til í að láta mynda
sig í bak og fyrir en myndatöku-
maðurinn, Ragnar Jespersen,
sagði að ekki hefði enn tekist að
fanga hann í búr þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir. Ragnar, sem í eina
tíð var sjálfur í minkarækt, taldi
líklegt að hér væri á ferðinni dýr
sem sloppið hefði einhvers staðar
úr búri en ekki er þó vitað til að
minkabú sé starfrækt í grenndinni.
Sagði Ragnar minka alla jafna
fólgrimm dýr. Þessi uppákoma
væri því alveg einstök. „Ég minnist
þess ekki að hafa umgengist mink
með þessum hætti nema sem búra-
dýr,“ sagði hann. Gat hann sér
þess til að ef til vill hefðu það verið
jólaljósin eða hangikjötið í pott-
inum sem heilluðu hinn óboðna
gest.
Minkur gerði sig heimakominn við hús í Þorlákshöfn
Hangikjöt-
ið heillaði
Ljósmynd/Ragnar Jespersen
EINAR Þorsteinsson, forstjóri Ís-
landspósts, segir að fyrirtækið hafi
gripið til ýmissa ráðstafana til að
tryggja að erfiðleikarnir í böggla-
dreifingu á höfuðborgarsvæðinu um
síðustu jól endurtaki sig ekki.
„Stóru mistökin sem við gerðum
var að hafa pósthúsin lokuð á Þorláks-
messu,“ sagði Einar. Að þessu sinni
verður opið á Þorláksmessu og fyrir
hádegi á aðfangadag en að auki verða
pósthúsin opin síðustu tvær helgar
fyrir jól. Þá verður pósti dreift fram á
hádegi á aðfangadag.
Einar segir að í raun hafi allt annað
en böggladreifing á höfuðborgar-
svæðinu um síðustu jól gengið vel.
Fyrirtækið hafi á hinn bóginn van-
metið þörfina fyrir því að hafa póst-
húsin opin síðustu dagana fyrir jól svo
fólk gæti vitjað böggla þar.
Í fyrra tók Íslandspóstur að aka
bögglum heim til viðtakanda og
fylgdu því nokkrir byrjunarörðug-
leikar. Einar segir að á þessu ári hafi
vinnulag á póstdreifingarmiðstöðinni
verið endurskoðað. Auk þess hafi 500
m² viðbygging verið reist við stöðina.
Um síðustu jól voru nokkur brögð
að því að matvæli sem fólk sendi í
pósti skemmdust vegna tafa við dreif-
ingu. Einar segir að Íslandspóstur
hafi kannað málið rækilega og hefði
niðurstaðan verið sú að fyrirtækinu
væri ekki heimilt að flytja ferska mat-
vöru sem þyrfti kælingu. Til þess að
öruggt sé að pósturinn komist til skila
til Norðurlandanna þarf að póstleggja
eigi síðar en 14. desember.
Bögglar berist fyrir 17. des.
Síðasti öruggi póstlagningardagur-
inn fyrir böggla innanlands er 17. des-
ember en fyrir bréf og kort dugir að
póstleggja 21. desember. Einar hvet-
ur þó fólk eindregið til að póstleggja
með fyrra fallinu. Um 400 starfsmenn
verða ráðnir tímabundið fyrir jólin.
„Við trúum því reyndar núna að
með þessum undirbúningi og þeim
góða anda sem er hjá okkur innan
Póstsins núna, að okkur auðnist að
halda gleðileg jól þetta árið eins og
aðrir landsmenn,“ segir Einar.
Pósthúsin opin
fram að hádegi
á aðfangadag
Forstjóri Íslandspósts segir
fyrirtækið vel undirbúið fyrir jólin
FASTEIGNASALAR leita nú að
kaupanda að Perlunni í Öskjuhlíð en
sem kunnugt er var samþykkt í borg-
arstjórn á dögunum að Orkuveita
Reykjavíkur kannaði möguleika á
sölu Perlunnar, þ.e. þeim hluta er
snýr að veitinga- og fundaaðstöðu.
Vatnstankarnir eru þar undanskildir.
Sex fasteignasölum var falið verkið.
Meðal þeirra fasteignasala er Ís-
lensk auðlind hf. Kristinn Kjartans-
son sölustjóri staðfesti í samtali við
Morgunblaðið að nokkrir aðilar
sýndu því mikinn áhuga að kaupa,
jafnt innlendir sem erlendir. Þannig
hefði einn erlendur fjárfestir sett sig í
samband og lýst yfir áhuga á að
kaupa Perluna með það að markmiði
að breyta henni í spilavíti.
„Menn hafa komið fram með ýmsar
hugmyndir um notkun Perlunnar. Ef
breyta ætti Perlunni í spilavíti þyrfti
fyrst að koma til breyting á landslög-
um því slíkur rekstur er ekki heim-
ilaður í dag. En við finnum miklar
væntingar og okkar viðskiptavinir
koma til með að gera formlegt tilboð.
Spurningin er bara hvenær það ger-
ist. Þetta er stórt og ögrandi verk-
efni,“ sagði Kristinn. Aðspurður um
mögulegt söluverð sagðist hann hafa
heyrt tölur allt frá hálfum milljarði og
upp í 2 milljarða króna. Fasteignamat
Perlunnar er 1,8 milljarðar.
Einn hættur við tilboð
Finnbogi Kristjánsson hjá Fast-
eignasölunni Frón er einnig með
Perlusöluna á sínu borði. Hann hafði
áður upplýst að vera með hóp áhuga-
samra kaupenda, innlendra og er-
lendra, en Finnbogi sagði við Morg-
unblaðið í gær að sami hópur væri
hættur við að gera tilboð. Ýmsir
rekstrarliðir hefðu þótt of kostnaðar-
samir, t.d. fasteignagjöld upp á 32
milljónir á ári. Finnbogi sagði að
mönnum þætti fasteignamatið heldur
hátt og sömuleiðis væri eignaskipta-
samningur ekki ennþá fyrir hendi.
„Þessi hópur ákvað að doka við,
enda eru ýmsir kostir aðrir í boði á
fasteignamarkaðnum sem taldir eru
betri,“ sagði Finnbogi, sem kominn er
með innlendan fjárfesti í dyragætt-
ina, sem sýnir Perlunni mikinn áhuga
sem veitingahúsi.
Alfreð Þorsteinsson, stjórnarfor-
maður Orkuveitunnar, sagði við
Morgunblaðið að ekkert formlegt til-
boð hefði borist í Perluna ennþá og
reiknaði hann ekki með að línur færu
að skýrast fyrr en eftir áramót.
Erlendur fjárfestir vill
breyta Perlunni í spilavíti