Morgunblaðið - 11.12.2001, Síða 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
brautir &
gluggatjöld
Faxafeni 14, sími 525 8200
Rúmfatnaður og rúmteppi
á góðu verði
Nei, hæstvirtur ráðherra, nú dugar ekki lengur hnífur, ég verð að fá sög,
það er ekki eftir svo mikið sem smátuttla til að skera.
UPPBYGGING sporvagnakerfis á
höfuðborgarsvæðinu er áhugaverð-
ur kostur til almenningssam-
gangna, að mati Skúla Bjarnason-
ar, hrl. og stjórnarformanns
Strætó bs.
Fram kemur í viðtali við Skúla,
sem birtist í Skiptimiðanum, blaði
sem gefið er út af Strætó bs., að
kannaðir hafa verið kostir þess að
byggja upp sporvagnakerfi á höf-
uðborgarsvæðinu en í haust fóru
Skúli og Pétur Fenger, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Strætó bs., til
Frakklands til að kynna sér nýj-
ungar í þessum efnum.
Heildarstofnkostnaður léttlesta-
kerfis miðað við upplýsingar frá
Frakklandi er talinn geta numið
allt að 1,5 milljörðum kr. á hvern
kílómetra.
„Nauðsynlegt er að huga strax
að framtíðinni því uppbygging al-
menningssamgangna tengist náið
skipulagsmálum höfuðborgarsvæð-
isins. Nú er verið að ganga frá að-
alskipulagi svæðisins til ársins
2024, en þá er gert ráð fyrir að íbú-
ar verði orðnir 228.000. Huga þarf
að breytingum í tíma og skoða
hugsanlegar leiðir sporvagna, því
annars er hætta á að þessi mögu-
leiki verði útilokaður. Kerfið yrði
þannig að það myndi liggja eftir
endilöngu höfuðborgarsvæðinu og
strætisvagnar myndu sinna þjón-
ustunni í hverfunum með því að
„fæða“ þessar meginflutningslín-
ur,“ segir Skúli í viðtalinu.
Fram kemur að rætt hefur verið
um að fyrsta línan í sporvagnakerf-
inu gæti legið milli Ánanausta og
Norðlingaholts. Það er 13,3 km leið
úr Ánanaustum í miðborg, þaðan
að Landspítala, Kringlu, Borgar-
spítala, Lundi í Kópavogi, Smár-
anum, Breiðholti, Vatnsenda og
loks í Norðlingaholt. Síðar mætti
bæta línu við milli Vatnsmýrar,
Úlfarsfells og Mosfellsbæjar og
loks þeirri þriðju í gegnum Kópa-
vog, Garðabæ og í Hafnarfjörð.
Kostir sporvagna-
kerfis kannaðir
Skúli Bjarnason, stjórnarformaður Strætó bs.
Heildarkostnaður
fyrir hvern kílómetra
1.500 milljónir
Fótbolta- og innkaupaferðir til Þýskalands
Allt að styrkj-
ast og þéttast
NÝLEGA var stadd-ur hér á landiþýskur ferða-
málafrömuður að nafni
Knut Haenschke, yfirmað-
ur Norðurlandadeildar
þýska ferðamálaráðsins.
Erindi hans var að hitta
forráðamenn Flugleiða og
koma á nýjum helgarferð-
um til þýskra stórborga,
blöndu af menningar-,
verslunar- og knatt-
spyrnuferðum. Kynning á
ferðunum var hafin í haust,
en framvindan meira og
minna lögð í salt í kjölfarið
á voðaatburðunum í
Bandaríkjunum 11. sept-
ember síðast liðinn. En nú
skal reynt á nýjan leik.
Morgunblaðið ræddi við
Knut á dögunum, rétt áður en
hann lauk erindum sínum hér á
landi og hélt utan á ný.
– Hver ert þú, Knut?
„Ég er þýskur ferðamálamað-
ur, 57 ára gamall og Íslandsvinur.
Síðasta lendingin mín í Keflavík
var sú 51 á ferlinum. Það er alltaf
jafngaman að koma til Íslands og
ég á orðið marga góða vini hérna.
Ég ferðast gífurlega mikið og er á
stöðugum þönum. Eiginkona mín
segir að það sé líklegasta skýring-
in á því hvað hjónabandið er gott!
En svona grínlaust þá hef ég átt
mikið og gott samstarf við Flug-
leiðir í gegn um árin og hef unnið
mikið fyrir þær í Þýskalandi, hef
t.d. verið sölustjóri fyrirtækins í
Frankfurt. Núna ætlum við í sam-
einingu að bjóða borgarferðir til
Þýskalands þar sem fólk getur
blandað saman verslunarferðum,
menningarupplifun og heimsókn-
um á fræga knattspyrnuvelli. Ég
þarf að sýna fram á, að verðið sé
hagstætt og inni í pakkanum sé
meira heldur en keppinautar eru
að bjóða annars staðar.“
– Þú veist að enska knattspyrn-
an nýtur mikillar hylli hér á landi.
„Já, já, ég geri mér grein fyrir
því að það er ekki verið að ráðast á
garðinn þar sem hann er lægstur.
Enska knattspyrnan á sér langa
hefð á Íslandi eins og svo víða ann-
ars staðar. Ég veit líka að þýska
knattspyrnan er sýnd í íslenska
ríkissjónvarpinu og þar geta
menn séð að ef þeir eru að velta
gæðum fyrir sér, þá er ekki síður
gott til fanga á þýskum knatt-
spyrnuvöllum. Við getum boðið
gestum upp á að fylgjast með
frægum liðum á borð við Bayern
München, Borussia Dortmund,
Hamburger SV, Stuttgart og
Köln. Við erum líka svo heppnir
að geta boðið upp á fjóra farar-
stjóra sem eru allir íslenskir og
eru fyrrverandi atvinnuknatt-
spyrnumenn með þýskum úrvals-
deildarliðum, en það eru þeir Atli
Eðvaldsson landsliðsþjálfari, Ás-
geir Sigurvinsson sem varð þýsk-
ur meistari með Stuttgart, Lárus
Guðmundsson og Pétur Ormslev.
Menn koma ekki að tómum kof-
unum hjá þeim félögum þegar
málefni þýskrar knatt-
spyrnu eru annars veg-
ar.“
– En þetta eru ekki
eingöngu knattspyrnu-
ferðir eða hvað …?
„Nei, reyndar eru ferðirnar
kynntar sem helgarferðir á leiki í
Kaiserslautern, München og í
Stuttgart, en í öllum tilvikum er-
um við með dagskrá sem fólk get-
ur notið, sýnishorn af þýskri
menningu eru þar innifalin, einnig
bjór- og vínsmökkunarferðir til
heimsfrægra framleiðenda og svo
er ekki leiðinlegt að versla í
Þýskalandi. Við vonum að þannig
höfði það til para að fara í svona
ferð, frúin verslar og bóndinn fer
á völlinn … eða öfugt!
– Þið reynduð þetta áður, hvað
fær þig til að halda að það gangi
upp núna?
„Jú, núna eru snúnir tímar. Við
vorum tilbúnir með pakkann í
haust, en þá urðu hinir skelfilegu
atburðir í Bandaríkjunum og öll
þekkjum við hvaða stefnu ferða-
þjónustan og flugfélög fóru í kjöl-
farið. Þá er mér ljóst að efnahags-
lífið á Íslandi er fremur brothætt
nú um stundir samanber gjald-
þrotið hjá einni stærstu ferða-
skrifstofu ykkar. Eigi að síður tel
ég að allt sé að styrkjast og þétt-
ast á ný og alltaf er fólk að líta í
kring um sig eftir skemmtilegum
og nýstárlegum valkostum, sér-
staklega þeim sem eru á hag-
stæðu verði.“
– Þetta eru nú samt dýrari ferð-
ir samkvæmt verðskrá heldur en
sambærilegar ferðir til Englands.
„Jú, rétt er það, ef þú skoðar
bara krónutöluna. En ef skoðað er
hvað er innifalið í verðinu þá
myndi ég fullyrða að við séum vel
samkeppnisfærir og rúmlega
það.“
– Sýndu landsmenn þessum
ferðum áhuga þegar þið byrjuðuð
að kynna þær í haust?
„Já, það var talsvert spurt um
þær og þegar við þurftum að fella
ferðirnar niður var nokkur hópur
sem lét flytja bókanir sínar inn á
veturinn og ætlar með okkur eftir
áramótin í staðinn. Ég
myndi segja að miðað
við hversu óheppin við
vorum með tímasetn-
ingu á þessum pakka
þá sé alveg magnað
hverjar undirtektirnar hafa verið.
Ég þakka það hvað Þýskaland og
þýsk knattspyrna eru vel kynnt á
Íslandi og hve traust það er að
geta teflt fram fjórmenningunum
sem ég nefndi áðan. Þetta eru allt
traustir og öruggir strákar og fólk
þekkir þá og veit það. Ég hef fulla
trú á því að þessar ferðir gangi
upp og að ferðaþjónustan sem slík
taki einnig við sér á næstunni.“
Knut Haenschke
Knut Haenschke er Þjóðverji,
fæddur 23. apríl 1944. Fæðing-
arborgin hét áður Reichenback,
en finnst nú aðeins undir pólsku
nafni, enda tilheyrir hún nú Pól-
landi. Knut er forstöðumaður
Norðurlandaskrifstofu þýska
ferðamálaráðsins og hefur haft
þann starfa um langt árabil, eða
allar götur síðan 1986. Aðalstarfi
hans er að greiða fyrir og koma
á ferðum til Þýskalands frá
Norðurlöndunum og Eystrasalts-
ríkjunum. Aðsetur hefur hann í
Kaupmannahöfn, en hefur áður
starfað í Amsterdam og New
York.
… hvað
innifalið er
í verðinu