Morgunblaðið - 11.12.2001, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
62% jákvæð
í garð sér-
framboðs
eldri borgara
TÆP sextíu og tvö prósent lands-
manna eru jákvæð gagnvart hugs-
anlegu framboði eldri borgara í
næstu bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningum ef marka má nýja könn-
un PricewaterhouseCoopers sem
gerð var fyrir Félag eldri borgara í
Reykjavík. Konur eru ívið jákvæðari
í garð sérframboðs, eða um 71,6% á
móti 52,3% hjá körlum. Þá er fylgið
áberandi minnst meðal bænda, eða
um 30%, en 78,3% ósérhæfðs starfs-
fólks eru jákvæð í garð sérframboðs
og 75,8% starfsfólks í sjávarútvegi.
Könnunin var gerð í september og
var úrtakið 800 manns á aldrinum
18–89 ára. Svarhlutfall í þeim spurn-
ingum, sem lagðar voru fyrir, var að
jafnaði um 600 manns.
Einnig var spurt um viðhorf fólks
gagnvart baráttu samtaka eldri
borgara fyrir bættum lífskjörum og
voru 93,5% aðspurðra jákvæð í henn-
ar garð, en aðeins 2,6% neikvæð.
Rúm 60% þeirra sem svöruðu höfðu
tekið eftir baráttu eldri borgara fyrir
bættum lífskjörum á síðustu sex
mánuðunum en könnunin gaf til
kynna að þar væri einkum um eldra
fólk að ræða, yngra fólk var líklegra
til að segjast ekki hafa tekið eftir
baráttu þeirra.
SÍMINN og Íslenska sjónvarps-
félagið, sem rekur m.a. SkjáEinn,
hafa undirritað samning um dreif-
ingu á sjónvarpsmerki SkjásEins
um allt land eftir ljósleiðara, auk
þess sem SkjárEinn fær aðstöðu fyr-
ir senda og loftnet í húsnæði Símans.
Samkvæmt samningnum verður
dreifikerfið byggt upp í þremur
áföngum. Fyrsta áfanga á að ljúka í
næstu viku og geta þá sjónvarps-
áhorfendur séð dagskrá SkjásEins í
Vestmannaeyjum, á Höfn, Egils-
stöðum, Húsavík, Reyðarfirði og
Borgarnesi. Á næstu vikum er síðan
gert ráð fyrir að Stykkishólmur,
Ólafsvík, Búðardalur, Sauðárkrókur,
Seyðisfjörður, Ólafsfjörður, Eski-
fjörður, Neskaupstaður, Djúpivog-
ur, Vík og Hvolsvöllur bætist í hóp-
inn.
Með samningnum ætlar Íslenska
sjónvarpsfélagið að tryggja aðgang
landsbyggðarinnar að SkjáEinum á
næstu árum og er reiknað með að
stærstu þéttbýlisstaðirnir nái út-
sendingum fyrir jól, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá Skjá-
Einum. Fyrir undirritun samnings-
ins náði SkjárEinn til Akureyrar,
Selfoss, Hveragerðis, Ísafjarðar,
Siglufjarðar, Suðurnesja og höfuð-
borgarsvæðisins.
Í fréttatilkynningu segir að dreif-
ingin fari fram með nýrri og öflugri
tækni en áður hafi þekkst. Tæknin
útheimtir minni bandvídd en áður
hefur tíðkast og mun vera sambæri-
leg þeirri tækni sem notuð verður
fyrir stafrænt sjónvarp. Þá felur
þessi nýja tækni í sér aukin mynd-
gæði og stöðugra merki.
Síminn og SkjárEinn semja um dreifingu með ljósleiðara
Sex þéttbýlisstaðir
bætast við fyrir jól
Morgunblaðið/Golli
Heiðrún Jónsdóttir, forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála Sím-
ans, og Árni Þ. Vigfússon, sjónvarpsstjóri SkjásEins, skoða samninginn.
EYÞÓR Arnalds, stjórnarformaður
Títans hf. og forstjóri Íslandssíma,
segir að ekki standi til að höfða mál
gegn Landssímanum hf. í kjölfar
ákvörðunar samkeppnisráðs um að
sekta Landssímann um 40 milljónir
vegna þess að Landssíminn hafi mis-
notað markaðsráðandi stöðu sína í
samningi við Hafnarfjarðarbæ.
„Þetta var ekki skaðabótamál heldur
spurning um grundvallaratriði,“
segir hann um kröfu Títans um að
samkeppnisráð tæki á viðkomandi
máli varðandi umræddan samning.
Eins og greint var frá hefur sam-
keppnisráð komist að þeirri niður-
stöðu að í samningi sem Landssím-
inn hf. gerði við Hafnarfjarðarbæ
um síma- og gagnaflutningsþjónustu
felist alvarlegt brot á samkeppnis-
lögum. Með samningnum hafi fyr-
irtækið misnotað markaðsráðandi
stöðu sína og hefur samkeppnisráð
gert fyrirtækinu að greiða 40 millj-
ónir króna í sekt til ríkissjóðs vegna
brotsins.
Fjarskiptafélagið Títan hf. lýsti
yfir áhuga á verkefninu og sendi
bæjaryfirvöldum tilboð en þau
ákváðu að taka tilboði Landssímans.
Títan er dótturfyrirtæki Íslands-
síma en Eyþór Arnalds segir að
reksturinn hafi verið sameinaður og
öllum viðskiptum sé sinnt af starfs-
fólki Íslandssíma. Hann segir það
ánægjuefni að samkeppnisráð hafi
tekið á málinu og með þeim hætti
sem raun ber vitni, því mjög skýrt sé
kveðið á um brotið og upphæð sekt-
arinnar segi sitt. Landssíminn hafi
lengi verið á gráu svæði og fótað sig
með þeim hætti inn á samkeppnis-
umhverfið. Íslandssími hafi haft
nokkrar áhyggjur af því að þarna
væri verið að fara á svig við lög og
því sé mjög ánægjulegt að tekið
skuli á lögbrotunum með þessum
hætti. Það sé mjög jákvætt.
Hann segir að Íslandssími hafi
talið að fleiri mál hafi verið á gráu
svæði og þau verði skoðuð mjög al-
varlega í ljósi þess hvað samkeppn-
isráð hafi tekið fast á umræddu máli.
Eyþór Arnalds segir að nýtt útboð
verði opnað hjá Hafnarfjarðarbæ í
byrjun janúar og bendir á að þar
sem Íslandssími hafi haft tækifæri
til að standa að útboðum á jafnræð-
isgrundvelli, eins og t.d. hjá Ríkis-
kaupum, hafi fyrirtækið komið mjög
sterkt út. Í því sambandi nefnir
hann að Íslandssími hafi fengið rík-
isspítalana í símaviðskipti til sjö ára
og Íslandspóst, bæði varðandi
gagnaflutninga um allt land og síma-
viðskipti. Svipaða sögu megi segja
varðandi þau sveitarfélög sem hafi
leitað til beggja fyrirtækjanna en Ís-
landssími hafi fengið Reykjavíkur-
borg, Garðabæ og Seltjarnarnes
sem viðskiptavini. Útboð séu í bí-
gerð hjá fleiri aðilum en í Hafnar-
firði hafi dótturfyrirtækið Títan att
kappi við Landssímann og þá hafi
þetta mál komið upp. „Við töldum að
þarna væri verið að brjóta lög með
einum eða öðrum hætti og það er
grundvallaratriðið,“ segir Eyþór
Arnalds. Hann segir að ekki standi
til að höfða skaðabótamál gegn
Landssímanum. „Ég held að það
yrði miklu ánægjulegra að ná Hafn-
arfjarðarbæ í viðskipti en við útilok-
um ekkert.“
Ekki verður höfðað
mál gegn Símanum
Forstjóri Íslandssíma um niðurstöðu samkeppnisráðs
ATVINNUMENNIRNIR Karen
Björk Björgvinsdóttir og Adam
Reeve, sem keppa fyrir Íslands
hönd, unnu til gullverðlauna á
opna ástralska meistaramótinu í
standard-dönsum sem haldið var í
Melbourne í Ástralíu nýlega.
Adam og Karen unnu núverandi
áströlsku meistarana. Adam sem
er Ástrali hefur alltaf keppt fyrir
hönd síns lands þar til fyrir þrem-
ur árum að hann hóf að dansa við
Karen, en Adam á m.a. marga
eldri Ástralíumeistaratitla að baki.
Þóttu þau dansa mjög vel og ástr-
alska sjónvarpið tók upp keppnina
sem sjónvarpað verður um alla
Ástralíu á jóladag. Adam og Kar-
en hafa undanfarnar vikur verið í
Ástralíu að kenna og undirbúa sig
fyrir þessa keppni. Alls kepptu 48
pör í flokki atvinnumanna.
Unnu gull-
verðlaun
LÖGREGLAN í Hafnarfirði var
kvödd að gistiheimili í bænum á
sunnudagsmorgun. Þar voru sex
ungmenni um tvítugt handtekin en
þau eru grunuð um neyslu fíkniefna.
Hald var lagt á lítilræði af efnum og
tæki til neyslu þeirra.
Um helgina var brotist inn í tvo
vörugáma og sófa stolið úr öðrum
þeirra. Málin eru í rannsókn.
Grunur um
fíkniefnaneyslu
á gistiheimiliÚRSKURÐARNEFND skipulags-
og byggingamála telur að umdeild
stækkun á byggingarreit fyrir hús
Kára Stefánssonar, forstjóra ÍE, við
Skeljatanga 9 hafi ekki verið óeðli-
leg. Hefur úrskurðarnefndin því
hafnað kröfum íbúa í nágrenni lóð-
arinnar, sem kröfðust ógildingar
ákvarðana borgaryfirvalda um deili-
skipulagsbreytingar vegna lóðar
Kára.
Grunnflötur hússins er 535 fm eft-
ir að byggingarreiturinn var stækk-
aður um 11 m til suðurs og 8 m til
austurs. Töldu kærendur reitinn of
stóran þar sem stærð fyrirhugaðrar
byggingar væri ekki í samræmi við
það sem gert gert væri ráð fyrir í
skilmálum og samræmdist ekki nær-
liggjandi húsum.
Úrskurðarnefndin taldi að breyt-
ingin sem gerð var á byggingarreitn-
um væri minni háttar og því hafi ver-
ið heimilt að fara með málið eftir
undanþáguheimild 2. mgr. 26. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/
1997 svo sem gert var.
Þrjár kærur sem bárust úrskurð-
arnefndinni fjölluðu um deiliskipu-
lagsbreytingar á lóðinni og hefur nú
verið tekin afstaða til þeirra. Fjórða
kæran barst hins vegar vegna útgáfu
byggingarleyfis á lóðinni og mun
málinu í heild sinni því ekki ljúka
fyrr en í næstu viku þegar vænst er
úrskurðar nefndarinnar í því máli.
Úrskurðað vegna lóðar Kára Stefánssonar
Stækkun byggingar-
reits ekki talin óeðlileg
MAÐUR sem starfaði sem
dyravörður á skemmtistaðnum
Sportkaffi við Þingholtsstræti
hefur verið dæmdur í sjö mán-
aða skilorðsbundið fangelsi fyrir
líkamsárás en hann tók mann
hálstaki fyrir utan skemmtistað-
inn í desember í fyrra. Hann
sneri manninn niður og hélt
honum föstu taki þar til maður-
inn missti meðvitund.
Skýrslur vitna um aðdrag-
andann voru að mestu leyti sam-
hljóða. Héraðsdómi þótti sannað
að maðurinn hefði lent í ýfingum
við annan mann fyrir utan
skemmtistaðinn umrætt kvöld.
Réttmætt hafi verið af dyra-
vörðum að hafa afskipti af
mönnunum og hindra að til
átaka kæmi.
Á hinn bóginn hefði dyravörð-
urinn farið langt út fyrir það
sem aðstæður kölluðu á þegar
hann tók manninn hálstaki og
hélt honum niðri þar til hann
missti meðvitund. Dómurinn
taldi alþekkt að hálstak gæti
valdið verulegu heilsutjóni og
jafnvel dauða manns og að dyra-
vörðurinn hefði mátt gera sér
grein fyrir hættunni.
Dyravörðurinn var því sak-
felldur fyrir sérstaklega hættu-
lega líkamsárás og dæmdur í sjö
mánaða fangelsi, skilorðsbundið
til þriggja ára. Að auki var hon-
um gert að greiða manninum
100.000 krónur í miskabætur
auk málskostnaðar.
Jón Finnbjörnsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn.
Dyravörður
sakfelldur
fyrir lík-
amsárás