Morgunblaðið - 11.12.2001, Page 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Læknirinn kemur heim
þegar yður hentar
Tímapantanir frá kl. 8-20 • Sími 821 5369
Fast verð vitjunar er kr. 3.900
Einkaþjónusta heimilislæknis
Guðmundur Pálsson
sérfræðingur í heimilislækningum
ÞAÐ glömpuðu ófá augu á
Austurvelli á sunnudag þeg-
ar jólaljósin voru tendruð á
Óslóartrénu en þetta var í
50. sinn sem vinaborg
Reykjavíkur, Ósló, færir
borgarbúum tré að gjöf fyrir
jólin.
Það var Elísabet Lind
Mattíasdóttir, átta ára, sem
kveikti ljósin en hún er af ís-
lenskum og norskum ættum.
Tónlistarflutningur var í
höndum Lúðrasveitar
Reykjavíkur, Dómkórsins,
Borgardætra og skátakórs-
ins, að ógleymdum jólasvein-
unum og hyski þeirra sem
einhverra hluta vegna hafði
villst niður í byggðir nokkr-
um dögum fyrir áætlaðan
komutíma.
Fjöldi fólks var sam-
ankominn í miðbænum til að
upplifa stemmninguna, kíkja
á jólasveinana, hlusta á jóla-
lög og ekki síst að sjá glitr-
andi dýrðina þegar ljósin
voru kveikt á tólf metra háu
trénu. Er næsta víst að ein-
hverjir hafa fengið jólafiðr-
ing í magann enda er það
fyrir marga ómissandi hluti
af jólaundirbúningnum að
koma við á Austurvelli þenn-
an árvissa dag sem jólatré
borgarinnar skrýðist jóla-
búningnum.
Morgunblaðið/Golli
Það var vissara að hjúfra sig upp að pabba þegar jólasveinarnir birtust því þeir geta verið pínulítið hræðilegir á stundum.
Morgunblaðið/Golli
Það vantaði ekkert upp á athyglina hjá smáfólkinu þegar
hópur rauð- og hvítklæddra bræðra birtist á sviðinu.
Morgunblaðið/Golli
Þessir karlar tóku for-
skot á sæluna og komu á
Austurvöll á sunnudag.
Óslóartréð í
jólabúninginn
Miðborg
GERA má ráð fyrir að end-
urbætur á Geysishúsinu
muni kosta vel á þriðja
hundrað milljóna króna, að
sögn framkvæmdastjóra
Minjaverndar. Ekkert hef-
ur verið ákveðið með fram-
tíðarnýtingu hússins.
Morgunblaðið greindi frá
því á laugardag að Hitt hús-
ið, menningar- og upplýs-
ingamiðstöð ungs fólks,
þyrfti að flytja úr Geysis-
húsinu hinn 1. október á
næsta ári samkvæmt samn-
ingi sem Reykjavíkurborg
og Minjavernd hf. gerðu
með sér í fyrra.
Að sögn Þorsteins Bergs-
sonar, framkvæmdastjóra
Minjaverndar, er ákvörðun-
ar um framtíð hússins að
vænta snemma á næsta ári.
„Menn eru rétt byrjaðir að
setjast niður og velta fyrir
sér hvernig framtíðarafnot-
um hússins verður hagað og
hvernig menn vilja standa
að endurgerð þess. En það
hefur ekki verið tekin nein
ákvörðun um hvað verður
ofan á. Þegar upp er staðið
munum við að sjálfsögðu
gera þetta hús glansandi
þannig að það muni sóma
sér vel og verði ekki síðra
útlits en Ísafoldarhúsið er í
dag.“
Vilja lifandi hús með
ríkulegt starf
Hann telur ósennilegt að
húsið muni hýsa safnastarf-
semi af einhverju tagi. „Það
hefur a.m.k. ekki verið mik-
ið í umræðunni. Það er fyr-
irliggjandi að núverandi af-
notasamningur rennur út á
næsta ári og það er ekkert
útilokað að Hitt húsið verði
áfram í húsinu að hluta. Við
viljum helst hafa þetta lif-
andi hús með ríkulegt starf
og á jákvæðum forsend-
um.“
Fyrir liggur að talsverð-
ar endurbætur þarf að gera
á húsinu. „Geysishúsið er í
heild sinni 1.500 fermetrar
eða nálægt því. Það þarf að
gera ansi mikið við það til
þess að það svari þörfum
nútímans og þeim sjónar-
miðum sem við viljum hafa
hvað útlitið snertir því hús-
inu var breytt geysimikið á
sínum tíma. Það má fast-
lega gera ráð fyrir að kostn-
aður við endurbætur húss-
ins verði vel á þriðja
hundrað milljóna,“ segir
Þorsteinn.
Ekki vitað
um nýtingu
Geysishússins
Miðborg
Morgunblaðið/Golli
MENNINGARMÁLANEFND
Reykjavíkur hefur samþykkt að
gamla ÍR-húsið, sem stóð á Landa-
kotstúni, verði flutt á Árbæjarsafn
og endurbyggt þar við torgið nyrst á
safnsvæðinu. Vill nefndin að húsið
verði notað sem sýningarhús fyrir
sýningar um leiki barna, íþróttir og
tómstundastarf í borginni.
Í samþykkt nefndarinnar kemur
fram að þetta er lagt til í kjölfar þess
að í ágúst í fyrra óskaði borgarráð
eftir því að menningarmálanefnd, í
samráði við Minjavernd, fyndi hús-
inu hlutverk og staðsetningu til
frambúðar. Þá var óskað eftir því að
nefndin leitaði leiða til að fjármagna
framkvæmdir þar að lútandi.
Nefndin gerir ráð fyrir að haft
verði samráð við íþróttafélög og ÍTR
um þær sýningar sem í húsinu yrðu.
Áætlaður kostnaður við flutning
hússins og gerð sökkuls er 7,7 millj-
ónir og yrðu viðgerðir og endurbæt-
ur á húsinu unnar á safninu á næstu
árum innan fjárveitinga þess.
Var byggt árið 1897
Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur,
formanns menningarmálanefndar,
varð þetta niðurstaða nefndarinnar
eftir ítarlega könnun á möguleikum.
„Við teljum að með því að fara með
húsið í Árbæjarsafn sé það leið til að
varðveita það auk þess sem við get-
um nýtt það til að gera skil íþróttum,
leik barna og tómstundum í borg-
inni. Það er nýbúið að gera samning
við leikskólana um að Árbæjarsafn
sinni þeim þætti og láti ekki allt
gleymast sem heitir leikir og leik-
föng. Eins vitum við að íþróttirnar
eiga sér mikla og merka sögu í borg-
inni og tómstundastarf almennt.“
Húsið var reist sem kaþólsk kirkja
árið 1897 og stóð við Túngötu,
nokkru neðar en Kristskirkja er nú,
að því er kemur fram í bókinni
Reykjavík, sögustaður við sund eftir
Pál Líndal. Eftir vígslu Kristskirkju
árið 1929 var húsið flutt vestur fyrir
gamla prestsetrið í Landakoti. ÍR
fékk svo afnot af húsinu og var það
notað sem íþróttahús eftir það. Nú
stendur það hins vegar á tunnum á
hafnarbakkanum við Faxagarð og
bíður þess að ákveðið verði um afdrif
þess.
Guðrún segir að framtíð hússins,
sem er í eigu borgarinnar, sé mik-
ilvæg, ekki síst fyrir kaþólska og
íþróttahreyfinguna sem vilji sjá hús-
ið komast í örugga höfn. Nú geti það
ekki beðið öllu lengur á hafnarbakk-
anum og hún sé hrædd um að verði
ekkert að gert sé hætta á að það fari
á frekari þvæling.
ÍR-húsið á Árbæjarsafn
Morgunblaðið/Golli
Gamla ÍR-húsið bíður flutnings við Faxagarð en nú eru uppi hugmyndir
um að flytja það á Árbæjarsafn.
Stendur á tunn-
um við höfnina á
Faxagarði
Landakotstún