Morgunblaðið - 11.12.2001, Qupperneq 16
AKUREYRI
16 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TALNINGA-
VOGIR
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
Léttu þér vinnuna
í talningunni!
Auðveld í notkun
Vog á fínu verði
Hafðu samband eða
skoðaðu www.eltak.is
Sjómannafélag Eyjafjarðar
Fundarboð
Aðalfundur Sjómannafélags Eyjafjarðar verður haldinn í Skipagötu
14, 4. hæð, (Alþýðuhúsinu), fimmtudaginn 27. desember 2001 og
hefst kl. 11.00 f.h.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands Íslands,
verður gestur fundarins.
Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar
HALLDÓR Jónsson, forstjóri
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri, segir fjárlög, sem afgreidd
hafa verið á Alþingi fyrir næsta ár,
áhyggjuefni fyrir starfsemi FSA.
Ársfundur FSA var haldinn í gær
og fór Halldór yfir starfsemina á
liðnu ári en vék síðan að horfum
fyrir næsta ár.
Gert er ráð fyrir flötum niður-
skurði sem nemur 1% eða 25 millj-
ónum króna og þá sagði Halldór að
verðlagshækkanir sem ekki voru
bættar á yfirstandandi ári flyttust
óbættar til næsta árs og virkuðu því
í reynd eins og flatur niðurskurður.
Fjárveiting til nýbyggingar FSA
er minnkuð úr 35 milljónum í 10
milljónir. Halldór sagði þá lækkun
ekki í neinu samræmi við samkomu-
lag sem gert var í desember á síð-
asta ári um framkvæmdir við suð-
urálmu sjúkrahússins og
samkomulag um flýtifjármögnun
við Íslenska erfðagreiningu. Sam-
komulagið gerði ráð fyrir að fjár-
veitingar til nýbyggingar yrðu
a.m.k. jafnháar á næstu árum og
verið hefði undanfarin ár.
Halldór nefndi einnig að við loka-
afgreiðslu fjárlaga hefði verið sam-
þykkt fjárveiting, 8,8 milljónir
vegna bakvakta læknis í tengslum
við sjúkraflug frá Akureyri.
Þjónustan mun flytjast
til Reykjavíkur
„Það er því ljóst að fjárveitingar
næsta árs lækka að raungildi ef
ekki tekst að finna leiðir til að
styrkja reksturinn og tryggja
áframhaldandi uppbyggingu þjón-
ustunnar,“ sagði Halldór og benti á
að FSA væri langstærst sjúkrahúsa
utan Reykjavíkur og væri ætlað
mikilvægt hlutverk í heilbrigðis-
þjónustu á Norður-og Austurlandi
og á sumum svæðum á landsvísu.
Það væri sérgreinasjúkrahús og
varasjúkrahús landsins alls. „Það er
því nauðsynlegt að fjárveitingar til
sjúkrahússins séu í samræmi við þá
starfsemi og þá þjónustu sem
sjúkrahúsinu er ætlað að veita á
hverjum tíma,“ sagði Halldór og
benti á að FSA þyrfti að gera ráð
fyrir aukinni starfsemi á næsta ári.
„Við hljótum að velta fyrir okkur
hvað gerist ef þjónustan sem óskað
er eftir er ekki veitt á FSA. Svarið
við því er einfalt: Þjónustan er og
verður í boði í Reykjavík, innan og/
eða utan veggja sjúkrahúsa þar. Við
hljótum að leita allra leiða til þess
að gera það kleift að sú þjónusta
sem mögulegt er að veita á FSA
verði þar í boði og okkur verði gert
kleift fjárhagslega að standa fyrir
henni,“ sagði Halldór.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra sagðist vel skilja að menn
hefðu áhyggjur af fjárhag sjúkra-
hússins, en straumhvörf hefðu orðið
í ríkisfjármálum og ekki úr eins
miklu fé að spila og áður. Benti
hann á að fjármagn hefði verið auk-
ið vegna liðskiptiaðgerða á árinu og
80 milljónum króna bætt við á
næsta ári. Þá hefði einnig komið
meira fé vegna sjúkraflugsins, en
það styrkti sjúkrahúsið enn í sessi
sem miðstöð sjúkraflugs á landinu.
Nýr tengigangur frá hjúkrunar-
deildinni Seli og að sjúkrahúsinu
var formlega tekinn í notkun á árs-
fundinum í gær og fékk heilbrigð-
isráðherra þá tækifæri til að klippa
á sinn fyrsta borða. Frumraun hans
í þeim efnum tókst vel. Fram-
kvæmdir við ganginn hófust á síð-
asta ári og var þeim að mestu lokið í
ágúst. Tengigangurinn er 27 metra
langur. Heildarkostnaður við gang-
inn og nauðsynlegar húsnæðis-
breytingar nema 31,7 milljónum
króna, en þar af er kostnaður við
lyftu 7 milljónir króna. Framlög
Framkvæmdasjóðs aldraðra vegna
verkefnisins nema um 16 milljónum
króna og er þess vænst að sjóðurinn
muni að mestu greiða kostnað við
ganginn.
Forstjóri FSA á ársfundi spítalans
Niðurskurð-
urinn veldur
áhyggjum
Morgunblaðið/Kristján
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, opnar nýjan tengi-
gang milli hjúkrunardeildar Sels og FSA með því að klippa á borða á
miðjum ganginum. Hjá honum stendur Halldór Jónsson, forstjóri FSA.
SEX umsóknir bárust um starf fjár-
málastjóra Íþróttabandalags Akur-
eyrar en ráðið verður í stöðuna frá
og með næstu mánaðamótum.
Einn umsækjenda óskaði nafn-
leyndar er aðrir umsækjendur eru;
Annetta Mönster, Akureyri, Áslaug
Magnúsdóttir, Akureyri, Gunnar
Ragnars, Akureyri, Tómas Ibsen,
Ísafirði, og Valdemar Valdemarsson,
Akureyri.
Að sögn Þrastar Guðjónssonar,
formanns ÍBA, er stefnt að því að
ráða í stöðuna fyrir næstu helgi.
Sex umsækj-
endur
um stöðuna
Fjármálastjóri ÍBA
DEILDIR Rauða kross Íslands á
Norðurlandi eru nú að safna hann-
yrðaefnum sem send verða til
Rauða krossins í Lesótó. Þar
munu konur á vegum Rauða kross-
ins vinna ýmsan varning úr hrá-
efninu til styrktar heilsugæslu-
stöðvum félagsins þar.
Þessi árlega hannyrðasöfnun,
sem nú fer fram í fimmta sinn, er
liður í vinadeildasamstarfi Rauða
kross deilda á Norðurlandi við
Rauða krossinn í Lesótó.
Fyrirhugað er að safna góðum
efnum og efnisafgöngum notuðum
og ónotuðum, svo sem gluggatjöld-
um, garnaafgöngum, tölum, prjón-
um, nálum og öðru sem hægt er að
nýta við hannyrðir.
Í Lesótó munu konur búa til
ýmsar söluvörur úr efnunum. Kon-
urnar hafa nokkrar tekjur af sinni
vinnu til framfærslu fjölskyldna
sinna en að meginhluta fer ágóð-
inn til reksturs heilsugæslustöðva
sem deildir á Norðurlandi hafa
stutt á undanförnum árum og
þjóna samtals um 20 þúsund
manns á svæði þar sem annars er
enga læknisþjónustu að fá. Í stöðv-
unum er mest áhersla lögð á fyr-
irbyggjandi aðgerðir eins og bólu-
setningar, mæðraskoðun og
ungbarnaeftirlit.
Þeir sem vilja gefa hannyrðaefni
eru beðnir að snúa sér til svæð-
isskrifstofa Rauða kross Íslands á
Norðurlandi.
Sjálfboðaliðar Rauða
krossins á Norðurlandi
Safna hann-
yrðaefnum
fyrir Lesótó
STJÓRN Kísiliðjunnar hefur
styrkt Björgunarsveitina Stefán í
Mývatnssveit með 150 þúsund
króna fjárframlagi næstu þrjú ár-
in.
Gunnar Örn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Kísiliðjunnar, af-
henti Jóni Óskari Ferdinandssyni,
formanni Stefáns, staðfesting-
arbréf og fyrsta ársstyrkinn við
athöfn í húsi Björgunarsveit-
arinnar í vikunni, en um leið
færði Gunnar Örn Björg-
unarsveitinni þakkir fyrir mik-
ilvæg störf þeirra í samfélags
þágu.
Stefnir í metár
Gunnar Örn gat þess að rekstur
Kísiliðjunnar gengur nú afar vel,
þannig stefnir í metár framleiðslu
á kísilgúr og verður þá farið fram
úr framleiðslumeti frá 1987. Þetta
tengist hagstæðu útflutningsverði
vegna lækkaðs gengis krónunnar.
Verulegt áhyggjuefni er á hinn
bóginn mikil hækkun flutnings-
gjalda hjá Eimskipafélaginu, sem
snertir harklega alla flutninga til
og frá dreifbýlinu. Á haustdögum
bauð stjórn Kísiliðjunnar öllum
starfsmönnum ásamt mökum
þeirra í helgarferð til Edinborg-
ar. Var farið í tveim hópum þann-
ig að starfsemin raskaðist ekki af
þessum sökum. Við verksmiðjuna
starfa 45 til 50 manns og er hún
langstærsti vinnustaður í Mý-
vatnssveit Björgunarsveitin Stef-
án hefur starfað í Mývatnssveit
síðan um 1965 og haft með hönd-
um björgunarþjónustu á víðlendu
landssvæði. Félagar í sveitinni
eru 48 og þar af eru 32 virkir fé-
lagar. Útköll á árinu 2.000 voru
milli 70 og 80 talsins. Sveitin á
ýmsa góða að, en aðalbakhjarl
hennar í gegnum tíðina er Slysa-
varnadeildin Hringur sem ætíð
hefur stutt duglega við starfsem-
ina með fjáröflunum, ekki síst í
jólamánuðinum. Kísiliðjan hf. hef-
ur einnig alla tíð reynst
björgunarsveitinni haukur í horni
og stutt við starfsemina með
rausnarlegum fjárframlögum.
Fær styrk
frá Kísil-
iðjunni
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Jón Óskar Ferdinandsson og Gunnar Örn Gunnarsson við bifreiðina.
Björgunarsveitin Stefán í Mývatnssveit
ÁRNI Þór Freysteinsson hefur
verið ráðinn innkaupastjóri Akur-
eyrarbæjar, en um er að ræða nýtt
starf hjá bænum. Innkaupastjóri
hefur yfirumsjón með útboðum
bæjarins og innkaupum á rekstrar-
vörum. Innkaupastjóri heyrir undir
fjármálasvið bæjarins. Þá hefur
Jónas Vigfússon verkfræðingur
hefur verið ráðinn verkefnastjóri á
gatna- og holræsasviði Akureyrar-
bæjar, en það heyrir undir tækni-
og umferðarsvið bæjarins. Jónas
kemur til starfa innan tíðar. Hann
tekur við af Ólafi H. Baldvinssyni.
Nýr inn-
kaupastjóri
Akureyrarbær
AÐVENTUSAMVERA eldri borg-
ara verður í Glerárkirkju á fimmtu-
dag 13. desember kl. 15.
Gestur í þessari samveru verður
séra Pétur Þórarinsson prófastur.
Félagar úr kór Glerárkirkju
syngja undir stjórn Hjartar Stein-
bergssonar. Að venju verður helgi-
stund í upphafi samverunnar. Boðið
verður upp á veitingar
Glerárkirkja
Aðventusamvera
eldri borgara
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r