Morgunblaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 18
SUÐURNES 18 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ AÐSTÆÐUR voru afar slæmar þegar áhöfn Sikorsky „Pave Hawk“ björgunarþyrlu varnarliðsins vann að björgun Eyþórs Garðarssonar af Svanborgu SH eftir að báturinn strandaði við Snæfellsnes á föstu- dagskvöld. Báturinn valt mikið við klettavegginn og gerði það björgun- armanninum sem seig niður á brúar- þakið erfitt fyrir. Þyrlan var rétt yfir klettunum og gengu öldurnar yfir framhluta hennar og flugmennirnir sáu útundan sér að belgir og aðrir lausir hlutir úr bátnum þeyttust upp. Þegar leitað var eftir aðstoð björgunarsveitar varnarliðsins var hífandi rok á Keflavíkurflugvelli. Javier Casanova flugstjóri segir að allar þyrlur sveitarinnar hafi verið inni í flugskýli og erfitt að ná þeim út vegna vindáraunar á hurðir skýlis- ins. Með sérstökum tilfæringum hafi tekist að koma þyrlunni út í skjóli við skýlið og fylla hana af eldsneyti. Jay Lane sigmaður segir að þeir hafi fengið upplýsingar um að fjórir menn væru í háska og því hafi verið nauðsynlegt að taka með aukabún- að. Þyrlan komst í lofið þegar aðeins lægði og hélt yfir Faxaflóa í áttina til strandstaðar Svanborgar vestan við Snæfellsnes. Sáu einn mann veifa Á leiðinni reyndi áhöfnin að afla nánari upplýsinga um verkefnið, meðal annars með aðstoð áhafnar þyrlu Landhelgisgæslunnar. Cas- anova segist hafa talið að þeir ættu að aðstoða þyrlu Landhelgisgæsl- unnar við leitina en síðan verið sagt að hefja sjálfir leit. Þeir fengu stað- setningu bátsins. Casanova segir að þeir hafi séð vitann á utanverðu Snæfellsnesi og áttað sig á því að veður og skyggni væri skárra við Snæfellsnes. Síðan hafi þeir séð sterk ljós björgunarsveitarmanna og gert sér grein fyrir að þar færi leitin fram. Þeir hafi raunar orðið að biðja björgunarsveitarmenn um að beina ljósunum frá þyrlunni og að strand- aða skipinu. Það hafi orðið til þess að þeir fundu bátinn strax. Jay Lane segir að þeir hafi séð einn skipverja veifa þegar þeir flugu yfir bátinn. Þeir hafi byrjað á því að finna heppilegustu leiðina til að síga niður, án þess að sigmaðurinn lenti í vandræðum á leiðinni eða þegar hann kæmi niður í skipið. Segir Lane að flugvélstjórinn hafi síðan slakað sér niður á nákvæmlega þann stað, á brúarþakið þar sem Eyþór Garðarsson hafði haldið sér föstum í langan tíma. Lane segist hafa haft upplýsingar um að þrír menn væru á skipinu en skipverjinn hafi strax sagt að hann væri einn eftir. Segist Lane hafa ímyndað sér að aðrir hefðu náð að bjarga hinum mönn- unum. Sjór gekk yfir þyrluna Aðstæður voru gríðarlega erfiðar þegar Lane var í flaki bátsins að festa björgunarbeltið á Eyþór og krækja í vírinn úr þyrlunni. Skipið valt til og frá og mennirnir með. Í at- ganginum flæktist vírinn og þurfti Lane að leysa úr því. Raunar skemmdist vírinn svo ekki hefði ver- ið hægt að nota hann til að hífa upp fleiri menn, slík voru átökin. En Lane var með Eyþór í fanginu og beið eftir lagi til að láta hífa þá upp. Gekk það vel. Lane segist ekki hafa hugmynd um hvað hann var lengi í flaki báts- ins. Honum hafi fundist tíminn standa í stað, líkt og þegar menn lenda í bílslysi. Hann getur þess þó að Darren Bradley, flugvélstjórinn sem sá um að slaka honum niður og hífa upp, hafi getið sér þess til að hann hafi verið 5–10 mínútur utan þyrlunnar. Flugmennirnir þurftu að halda þyrlunni sem stöðugastri á meðan sigmaðurinn var að athafna sig um borð í skipinu. Það var erfitt því þyrlan var rétt fyrir ofan bjarg- brúnina, í hvössum vindi auk þess sem sælöðrið gekk yfir nef þyrlunn- ar. Þá sá áhöfnin að belgir og aðrir lausir munir úr bátnum þeyttust upp með klettaveggnum svo að þyrlan gat verið í hættu. Vildi komast heim Eyþór var skilinn eftir á bjarg- brúninni hjá björgunarsveitarmönn- unum og fór með þeim til Ólafsvíkur. Lane segir að Eyþór hafi verið kald- ur og blautur en sagst vera heill. Hann segist hafa spurt hann að því hvort hann vildi ekki að þeir færu með hann á spítala en hann hafi vilj- að komast heim. Björgunarsveitarmenn héldu að enn væri maður um borð í Svan- borgu og vildu að þyrluáhöfnin næði í hann, að sögn Scott Bilyen björg- unarmanns. Það stemmdi ekki við orð skipverjans sem þeir höfðu bjargað. Eigi að síður reyndu þeir að rannsaka flakið eins og þeir gátu úr lofti, með hitamyndavél og öðrum tækjum, á meðan farið var yfir upp- lýsingarnar. Þeir fundu engin merki um að þar væri maður á lífi. Svo komu skilaboð frá Eyþóri um að hann hefði verið einn eftir þegar þyrlan kom. Sex menn voru í áhöfn þyrlunnar í björgunarleiðangrinum. Auk Javier Casanova flugstjóra og björgunar- mannanna Jay Lane og Scott Bilyen, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, voru það þeir Michael Garner flug- maður, Darren Bradley flugvélstjóri og Jeremy Miller varðbergsmaður. Björgunin á Snæfellsnesi er sú fyrsta sem Javier Casanova flug- stjóri og félagar hans taka þátt í. Alls komu um 50 starfsmenn varn- arliðsins að þessu verkefni, að koma vélinni af stað, annast fjarskipti og fleira. Casanova vildi láta þess getið að hann mæti mikils aðstoð starfs- fólks björgunarsveitarinnar við að koma þyrlunni af stað. Einnig hjálp áhafnar þyrlu Landhelgisgæslunnar sem hann sagði að hefði hjálpað til við samskipti og veitt áhöfn aukið öryggi. Slæmar aðstæður þegar áhöfn björgunarþyrlu varnarliðsins bjargaði sjómanni við Snæfellsnes Tíminn virtist standa í stað Morgunblaðið/RAX Þrír af sex mönnum sem voru í áhöfn björgunarþyrlunnar síðastliðið föstudagskvöld, f.v. Scott Bilyen björg- unarmaður, Jay Lane björgunarmaður sem seig eftir skipverja Svanborgar SH og Javier Casanova flugstjóri. Keflavíkurflugvöllur EYÞÓR Garðarsson er 300. mað- urinn sem björgunarsveit varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli bjargar en hún hefur starfað í rétt þrjátíu ár. Björgunarsveit varnarliðsins hefur starfað hér á landi frá því í október 1971. Þá tóku Sikorsky HH-3E „Jolly Green Giant“ þyrl- ur við björgunarstarfsemi á veg- um varnarliðsins. Áður höfðu ýmsar sveitir annast björg- unarstörfin. Mikil breyting varð í leitar- og björgunarstörfum hér við land með tilkomu nýju þyrln- anna enda voru þær stærri og öflugri en þær sem fyrir voru. Þjónustusvæði sveitarinnar tak- markaðist þar með ekki lengur við Keflavíkurflugvöll og næsta nágrenni hans. Aðalhlutverk sveitarinnar er að bjarga herflugmönnum á vígvelli, að því er fram kemur í grein sem Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins, ritaði í Morg- unblaðið fyrr á þessu ári. Sinna þeir afar stóru svæði á Atlants- hafi. Varnarliðið sjálft hefur ekki mikið þurft að nota þessa þjón- ustu en hún er ávallt til reiðu fyrir hvern sem er og kraftar björgunarsveitarinnar samræmd- ir íslenskum björgunaraðilum. Færri útköll en áður Á þessum þrjátíu árum hafa liðsmenn björgunarsveitarinnar bjargað 300 mannslífum, þar af 171 íslensku, auk þess að aðstoða við sjúkraflutninga, leiðbeina flugvélum í erfiðleikum og veita ýmsa aðra aðstoð. Ekki liggja fyrir tölur um fjölda þeirra sem forverar núverandi björg- unarsveitar björguðu allt frá því á fimmta áratug aldarinnar. Með tilkomu björgunarþyrlu- sveitar Landhelgisgæslunnar og bættum tækjakosti hefur útköll- um björgunarsveitar varnarliðs- ins fækkað stórlega. Eru nú fá slík tilvik á ári en það er einkum þegar vegalengdir eru meiri en svo að þyrlur Landhelgisgæsl- unnar geti sinnt útkalli að til kasta varnarliðsins kemur. Björgunarsveit varnarliðsins var gerð að sjálfstæðri flugsveit árið 1988 og nefnist nú 56th Air Rescue Squadron. Sveitin fékk nýjar Sikorsky HH-60G „Pave Hawk“-þyrlur árið 1990 og rekur nú fimm slíkar. Þær eru mun öfl- ugri og hraðfleygari en eldri þyrlur varnarliðsins og búnar hitamyndavél og ratsjá. Í björg- unarsveitinni eru 115 menn, þar af 15 flugmenn. Hafa bjargað 300 manns- lífum á síðustu 30 árum SAMNINGAR eru á lokastigi um kaup Olíufélagsins hf., ESSO, á Að- alstöðinni ehf. í Keflavík. Stefnt er að yfirtöku Olíufélagsins á fyrirtækinu um áramót. Starfsfólkið áfram Aðalstöðin ehf. var stofnuð 1948 af leigubílstjórum. Fyrirtækið er nú í eigu 13 hluthafa. Aðalstöðin er leigu- bílastöð og rekur einnig bensín- og ol- íuafgreiðslu fyrir ESSO, þvottastöð, smurstöð og söluturn, auk þess sem á lóð þess við Hafnargötuna í Keflavík er dekkjaverkstæði sem leigt er út. Að sögn Margrétar Ágústsdóttur framkvæmdastjóra munu eigenda- skiptin ekki hafa neinar breytingar í för með sér fyrst í stað. Hjá fyrirtæk- inu vinna 40 manns, ekki allir í fullu starfi, auk þess sem 26 leigubílstjórar tengjast því. Allt starfsfólkið mun halda áfram. Margrét sagði þó að tím- inn yrði að leiða það í ljós hvort nýir eigendur teldu síðar ástæðu til að gera breytingar. Hún verður fram- kvæmdastjóri áfram. Olíufélagið hefur verið að taka sjálft yfir bensínafgreiðslur sínar. Að sögn Margrétar eru aðeins þrír út- sölustaðir eftir í eigu annarra og er Aðalstöðin ein þeirra. Olíufélagið kaup- ir Aðalstöðina Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.