Morgunblaðið - 11.12.2001, Page 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 21
KOMDU BÍLNUM
Í HÁTÍÐARSKAP
PLASTIKOTE
úðalakk í miklu úrvali
t.d. gull-, kopar- og
silfurlakk.
25% afsláttur
CRAFTSMAN
hágæðaverkfærasett,
144 hlutir
Verð áður
Tilboðsverð
30.941 kr.
23.590 kr.
DRAPER verkfærasett, 52 hlutir
Verð áður Tilboðsverð
18.964 kr. 12.990 kr.
Verð áður Tilboðsverð
13.627 kr. 8.990 kr.
Verð áður Tilboðsverð
13.160 kr. 6.990 kr.
HELLA
HELLA ljóskastari
Tilboðin gilda til 31. des.
á meðan birgðir endast.
Einnig 25% afsláttur
af GSM fylgihlutum
METABO
höggborvél 560W
Verð áður Tilboðsverð
14.091 kr. 8.990 kr.
DRAPER
handkastarar 6V,
2 stærðir
Verð áður Tilboðsverð
5.799 kr. 3.990 kr.
Verð áður Tilboðsverð
6.601 kr. 4.990 kr.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Uppbygging er þegar hafin í
Skarðaborg, en fyrir utan að byggja
upp stóru fjárhúsin þarf að endur-
nýja að öllu leyti þakið á eldri hús-
unum.
Þá þarf að laga hlöðuna við þriðju
fjárhúsin auk þess sem tvö hesta-
skjól skemmdust.
Í rokinu fóru járnplöturnar víða
og var mikið verk að tína þær upp á
heiðinni enda hafa plötur fundist allt
að tíu kílómetra frá bænum. Allar
byggingarnar voru foktryggðar.
BYGGÐASTOFNUN hefur ráðið at-
vinnuráðgjafa til Vesturbyggðar og
Tálknafjarðarhrepps. Til starfsins
hefur verið ráðinn Jón Örn Pálsson
sjávarútvegsfræðingur og mun hann
vinna í samstarfi við sveitarfélögin,
opinberar stofnanir og félagasamtök
að eflingu atvinnu og búsetuþátta á
svæðinu. Jafnframt mun hann veita
einstaklingum og fyrirtækjum ráð-
gjöf við stofnun og rekstur fyrir-
tækja og er þá sérstök áhersla lögð á
nýsköpunarverkefni.
Nú þegar er starfandi ráðgjafi frá
atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða á
Patreksfirði og mun tilkoma starfs-
manns Byggðastofnunar óneitan-
lega styrkja starf AtVest á svæðinu.
Jón Örn hefur aðsetur í Ólafshúsi á
Patreksfirði frá miðvikudegi til
föstudags og á sveitarskrifstofu
Tálknafjarðarhrepps mánudaga og
þriðjudaga. Viðvera á Bíldudal er
samkvæmt nánara samkomulagi.
Atvinnuráðgjafi
til Vesturbyggðar
Patreksfjörður
LANDGRÆÐSLA ríkisins efndi
á fimmtudaginn til móttöku í
Gunnarsholti fyrir fulltrúa
nokkurra fyrirtækja í Þorláks-
höfn. Tilefnið var að sýna þeim
þakklætisvott fyrir þátttöku í
uppgræðslu lands við Þorláks-
höfn.
Kynnt var starfsemi Land-
græðslunnar, m.a. fór Guðjón
Magnússon, sviðsstjóri al-
mannatengsla, yfir sögu upp-
græðslunnar í Þorlákshöfn í
máli og myndum. Langt er síð-
an hafist var handa við verk-
efnið en þarna var á árum áður
sandmelur og gríðarlegt sand-
fok yfir þorpið. Sagði Sveinn
Runólfsson landgræðslustjóri
að ýmsum aðferðum hefði verið
beitt við uppgræðsluna, m.a.
lúpínuræktun og landgræðslu-
flugi með áburð og grasfræ. Á
undanförnum árum hafa birki-
plöntur verið gróðursettar í
skjóli lúpínunnar og virðast
þær ætla að dafna vel.
Á þessu ári tóku sex fyr-
irtæki í Þorlákshöfn þátt í átaki
til landgræðslustarfanna en þau
eru Auðbjörg hf., Frostfiskur
hf., Hafnarnes hf., Hitaveita
Þorlákshafnar og Orkuveita
Reykjavíkur, Humarvinnslan
Portland ehf. og Þormóður
Rammi-Sæberg hf. Sveinn land-
græðslustjóri færði fulltrúum
þessara fyrirtækja fagra gripi
sem voru hannaðir og smíðaðir
hjá Eik – listiðju, Miðhúsum við
Egilsstaði.
Góðir gestir hjá Landgræðslunni
Hella
Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir
Fulltrúar fyrirtækjanna sex frá Þorlákshöfn ásamt Sveini Runólfssyni landgræðslustjóra.