Morgunblaðið - 11.12.2001, Síða 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
22 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSK LEIRLIST
Rauðarárstíg 14,
sími 551 0400
Kringlunni,
sími 568 0400
Smáralind,
535 0400
www.myndlist.is
— Guðrún Jónasardóttir —
SAMTÖK iðnaðarins mótmæla harð-
lega því sem þau kalla bolabrögð
Vegagerðarinnar gagnvart jarð-
vinnuverktökum í tengslum við útboð
á Vestfjarðavegi milli Múla og Vatt-
arness í Austur-Barðastrandarsýslu.
Samtökin kærðu útboðið, sem Vega-
gerðin auglýsti 19. nóvember síðast-
liðinn, til kærunefndar útboðsmála,
og kröfðust þess að það yrði ógilt og
nýtt útboð með breyttum útboðs-
gögnum auglýst. Kærunefndin hafn-
aði kröfu samtakanna síðastliðinn
föstudag.
Samtök iðnaðarins efndu til blaða-
mannafundar í gær í tilefni af höfnun
kærunefndar útboðsmála. Vilmundur
Jósefsson, formaður samtakanna,
sagði þar að kærunefndin hefði því
miður ekki frekar en fyrri daginn séð
ástæðu til þess að taka í taumana
vegna útboðs Vegagerðarinnar, enda
fengi nefndin ekki séð að útboðið
bryti gegn lögum um opinber inn-
kaup. Hann sagði það kunna að vera
rétta niðurstöðu. „Vitað er að verk-
efnastaða jarðvinnuverktaka er bág-
borin um þessar mundir,“ sagði Vil-
mundur. „Þetta útboð ber þess glöggt
vitni að Vegagerðin hyggst notfæra
sér þetta erfiða ástand með afar ógeð-
felldum hætti og neyða verktaka til að
bjóða í þetta verkefni á forsendum
sem eru alls óboðlegar.“
Fáheyrðir skilmálar
Vilmundur sagði að meginástæða
þess að Samtök iðnaðarins hefðu
kært útboð Vegagerðarinnar væri
það ákvæði í útboðsgögnum að engar
verðbætur yrðu greiddar fyrstu 24
mánuði verktímans. Að þeim tíma
liðnum yrðu hins vegar greiddar
verðbætur. Hann sagði óþarft að
minna á að spár fagaðila um verð-
lagsþróun innan ársins hefðu reynst
ótraustar að undanförnu, en sam-
kvæmt útboðinu sé jarðvinnuverktök-
um ætlað að spá fyrir um þessa þróun
tvö til þrjú ár fram í tímann. Þetta
væru fáheyrðir skilmálar en þó væri
ekki öll sagan sögð, því verktökum
væri að auki ætlað að lána Vegagerð-
inni hluta verksins vaxtalaust. Ekki
væri fyrir fram vitað um skiptingu
verksins á milli ára og væri því ekki
unnt að segja fyrir um hver lánsfjár-
hæðin raunverulega yrði.
Erfitt að standa við samninga
Fram kom í máli Vilmundar að
verktakar hefðu átt í verulegum erf-
iðleikum með að standa við gerða
verksamninga því kostnaður í þessari
grein hefði hækkað mun meira en
vísitölur neysluverðs og bygginga-
kostnaður segði til um. Það væri al-
rangt sem Vegagerðin hefði haldið
fram að hrina verðhækkana á þessu
sviði væri liðin hjá. Þá væri óvissa um
það hvort launalið gildandi kjara-
samninga yrði sagt upp.
Vilmundur sagði að þrátt fyrir ger-
breyttar verðlagsforsendur hefði
Vegagerðin ríghaldið í þá reglu að
verðbæta ekki verksamninga sem
væru til skemmri tíma en tveggja ára.
Útboð með þessum hætti
endurtaki sig ekki
Ólafur Helgi Árnason, lögmaður
Samtaka iðnaðarins, sagði á blaða-
mannafundinum í gær að niðurstaða
kærunefndar útboðsmála væri end-
anleg og því mundu samtökin ekkert
frekar aðhafast í þessu máli.
Sveinn Hannesson, framkvæmda-
stjóri samtakanna, sagði að þótt þau
gerðu ekkert frekar í þessu máli þá
vildu þau engu að síður vekja athygli
á útboðsforsendum sem væru ber-
sýnilega ósanngjarnar og óeðlilegar.
Tilgangurinn væri að reyna að koma í
veg fyrir að útboð með þeim hætti
sem Vegagerðin hefði staðið fyrir
endurtæki sig og að reglum um þessi
mál yrði breytt.
Samtök iðnaðarins mótmæla vinnubrögðum Vegagerðarinnar
Notfærir sér erfitt ástand
hjá jarðvinnuverktökum
Morgunblaðið/Þorkell
Frá blaðamannafundi forsvarsmanna Samtaka iðnaðarins í gær. Talið frá
vinstri: Árni Jóhannsson hagfræðingur, Ólafur Helgi Árnason lögmaður,
Eiður Haraldsson, formaður Félags jarðvinnuverktaka, Vilmundur Jós-
efsson, formaður samtakanna, og Sveinn Hannesson framkvæmdastjóri.
ATVINNA mbl.is
FYRIRKOMULAG á útboðum
Vegagerðarinnar hefur reynst vel,
að sögn Helga Hallgrímssonar,
vegamálastjóra. Hann segir að eftir
að stöðugleiki hafi komist á hér á
landi á fyrri hluta tíunda áratugar
síðustu aldar, hafi Vegagerðin hætt
að verðbæta verk sem framkvæma
ætti á tiltölulega skömmum tíma.
Hann segist ekki vilja munnhöggv-
ast við forsvarsmenn Samtaka iðn-
aðarins, en þeir gagnrýndu vinnu-
brögð Vegagerðarinnar í tengslum
við útboð á Vestfjarðavegi milli Múla
og Vattarness, á blaðamannafundi
sem samtökin boðuðu til í gær.
Helgi segir að almennt hafi verið
talið að vísitölutengingar séu verð-
bólguhvetjandi. Vegagerðin sé að
fara eftir þeirri almennu stefnu sem
verið hafi í þjóðfélaginu að draga úr
slíkum tengingum. Hún hafi þó bætt
verktökum að verulegu leyti upp
hækkun á olíuverði á síðasta ári, þó
svo að slíkt hafi ekki verið skylt sam-
kvæmt samningum. Sama hafi verið
gert á þessu ári.
Helgi segir að Samtök iðnaðarins
hafi óskað eftir því við Vegagerðina
að vísitölutengingar vegna útboða
yrðu teknar upp að nýju. Því hafi
verið hafnað meðal annars vegna
þess að það að verðbólgan sé frekar
á niðurleið.
Varðandi þá fullyrðingu Samtaka
iðnaðarins að Vegagerðin sé að
skylda verktaka til að lána henni
hluta verksins vaxtalaust segir Helgi
að það sé mistúlkun. Vegagerðin
setji þök á greiðslur sem stjórnist af
fjárveitingum stofnunarinnar. Vel sé
hægt að reka viðkomandi verk innan
þeirra marka. Ef verktakarnir telji
hins vegar hagstætt að fara hraðar í
verk þá sé þeim það heimilt.
Útboðsfyrirkomulag hefur reynst vel
Vegamálastjóri um gagnrýni Samtaka iðnaðarins