Morgunblaðið - 11.12.2001, Síða 26
ERLENT
26 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BARÁTTAN við að hrekja mörg
hundruð liðsmenn hryðjuverkasam-
taka Osama bin Ladens, al-Qaeda, út
úr djúpum hellum í Hvítufjöllum í
Norðaustur-Afganistan verður erfið,
tímafrek og sóðaleg, segir liðsforingi
andstæðinga talibana og al-Qaeda á
svæðinu, Haji Mohammed Zaman.
„Staðsetningin er ákaflega erfið,“
sagði hann. „Þetta er svo djúpt inni í
fjöllunum.“
Talið er, að bin Laden sé í felum
einhversstaðar í Tora Bora-hellun-
um, sem eru grafnir allt að 300
metra inn í fjallshlíð, og með honum
hátt í tvö þúsund fylgismenn hans.
Zaman sagðist vera „100 prósent
viss“ um að bin Laden hefðist enn við
í hellunum. Bandarískir embættis-
menn ítreka aftur á móti að ekki sé
vitað hvar nákvæmlega bin Laden sé
niður kominn.
Yfirlýsingar Zamans um helgina
voru ekki í samræmi við fyrri full-
yrðingar andstæðinga talibana um
að al-Qaeda-liðarnir yrðu flæmdir út
á skömmum tíma. Bardagar við Tora
Bora hafa nú staðið í um viku, án
þess að mikill árangur sé sýnilegur.
Smám saman er að koma í ljós
hversu flókið mál þessi barátta er.
Loftárásirnar
nauðsynlegar
Síðastliðinn sunnudagsmorgun
gerðist það í annað sinn á átta dög-
um að bandarískar herflugvélar
vörpuðu sprengjum á búðir and-
stæðinga talibana og felldu þrjá og
særðu aðra þrjá, að því er Zaman
greindi frá. Hugarangur hans var
augljóst. „Við höfum talað við þá oft-
ar en einu sinni,“ sagði hann, „og
sagt: Ef þið ætlið að skjóta á eitthvað
þá verðið þið að gera ykkur grein
fyrir hvar moujahedeen-liðarnir eru
og hvar al-Qaeda eru. Eru þetta
kjúklingar eða fólk?“
Eftir árásina hörfuðu hermenn-
irnir frá búðunum, sem Zaman sagði
hafa verið á hernaðarlega mikil-
vægri hæð. En hann viðurkenndi að
hermenn sínir myndu ekki geta náð
Tora Bora á sitt vald án loftárásanna
sem dunið hafa á hellunum í rúmar
þrjár vikur. „Við þurfum loftárásirn-
ar,“ sagði hann.
Til þess að reyna að umkringja
hellana kvaðst Zaman hafa sent 100
hermenn upp í fjöllin eins nálægt
pakistönsku landamærunum og
mögulegt væri. Miklir haustsnjóar
hafa fyllt fjallaskörðin þar sem eru
leiðir inn og út úr Afganistan – en
stanslausar loftárásirnar gætu hafa
orðið til þess að einhverjir al-Qaeda-
liðar hafi engu að síður reynt að
komast yfir landamærin.
Annars staðar í Afganistan var
reynt um helgina að koma á stöð-
ugleika eftir að talibanahreyfingin
yfirgaf vöggu sína og síðasta vígi,
borgina Kandahar í suðurhluta
landsins, sl. föstudag. Hamid Karzai,
leiðtoga Pastúnaþjóðflokksins og
forseta nýskipaðrar bráðabirgða-
stjórnar landsins, virtist hafa tekist
að koma á sáttum milli tveggja liðs-
foringja, sem voru keppinautar.
Vakti þetta von um að friður kæmist
á í Kandahar, að minnsta kosti.
Þótt talibanar hafi látið í veðri
vaka að þeir ætluðu ekki að láta
borgina í hendur Karzai kom hann
þangað á laugardaginn og hóf þegar í
stað að koma á viðræðum milli ætt-
bálkaöldunga í því skyni að bera
klæði á vopnin milli tveggja ættbálka
sem báðir voru að reyna að ná völd-
um í borginni.
Samkvæmt samkomulaginu sem
Karzai hafði milligöngu um tekur
Gul Agha Shirzai aftur við embætti
héraðsstjóra í Kandahar-héraði, sem
hann gegndi áður en talibanar tóku
völdin 1994. Múllanum Naquibullah,
sem uppgjafarsáttmáli talibana
gerði ráð fyrir að yrði æðsti maður í
borgarstjórninni, var boðin staða
hershöfðingja. Naquibullah sagði að
hann myndi ekki taka við stöðunni
sjálfur, en útnefna mann úr ættbálki
sínum.
Viðræðurnar fóru a.m.k. að ein-
hverju leyti fram í fyrrverandi bú-
stað múllans Mohammeds Omars,
leiðtoga talibana, en enn er óljóst
hvar hann er niður kominn. Í Wash-
ington sögðu Dick Cheney varafor-
seti, Paul Wolfowitz aðstoðarvarnar-
málaráðherra og Richard Myers,
forseti bandaríska herráðsins, allir
að eftir því sem næst yrði komist
væru bæði Omar og bin Laden
ennþá í Afganistan.
Bandaríkin munu
krefjast framsals
Cheney sagði að Bandaríkjamenn
myndu krefjast þess að fá lögsögu
yfir bæði Omar og bin Laden ef afg-
anskir hermenn, eða einhverjir aðrir
bandamenn Bandaríkjamanna,
tækju þá til fanga. Cheney var
spurður: Ef annar þeirra næst lif-
andi, munum við þá krefjast þess að
hann verði framseldur til banda-
rískra yfirvalda? Cheney svaraði:
„Já.“ Hann var spurður: Enginn al-
þjóðadómstóll? Aftur svaraði Chen-
ey með einu orði: „Nei.“
Cheney sagði að hernaðaraðgerð-
um Bandaríkjamanna í Afganistan
myndi ljúka um leið og bin Laden,
Omar og aðrir forsprakkar al-Qaeda
og talibanahreyfingarinnar hefðu
verið felldir eða handteknir. Cheney
sagði þó að Bandaríkjamenn myndu
veita fjárhagsaðstoð til nýrra stjórn-
valda í Afganistan og ef til vill veita
aþjóðlegu friðargæsluliði tæknilega
aðstoð.
Baráttan um Tora
Bora verður „tíma-
frek og sóðaleg“
Karzai tekst að
koma á sam-
komulagi um
valdaskiptingu
í Kandahar
Tora Bora, Jalalabad. The Los Angeles Times, The Washington Post.
AP
Afganskir mujahedeen-liðar, sem berjast gegn talibönum og al-Qaeda, horfa yfir dal í Hvítufjöllum fullan af
reyk eftir að bandarískar herflugvélar vörpuðu sprengjum.
#$
%& ()&
* +,- &-# /#'0 " +-,"0"
'&
-"# " 1 0"'02#,"0 "#-" "'0 -# , 3#& +"'# " + ' -"0
# #0&0 0'"4 . 5-"0 "" 0 - ""'
'3#& &-# -% &# &" !"-.1""0 5#
!!
6 ( # ,"0&"0
5"0" 50
60 0 5 '0
' 0 ( * (7%897/
%0 0:
%!"6 3:
&-
% 8" "#"$%&"$
'
#
(
((
'#
)
/#'0 " '
."- . 0 "'
.-"0'& -.1""0 0
&
*
! ;'" "#-< . = * 7- # >
0 &"0 5' "
+ (
"(
,
-
(
"(
.*
( &
*
!!/
!
!
!
Afganskir liðsforingjar orðnir heldur svartsýnir á skjótan sigur á al-Qaeda í Hvítufjöllum
www.isb.is
Ger›u jóla