Morgunblaðið - 11.12.2001, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 11.12.2001, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 35 sem þarna er. Vigfús fór þá niður og náði í kröku með spotta í sem við vorum með í bátnum. Hann reyndi að krækja í land, en bergið var að- eins örfáa metra frá bátnum. Sæ- björn bað mig að vera rólegur en fór sjálfur niður til að hjálpa Fúsa. Fljótlega eftir að hann fór niður kom mikið brot yfir skipið sem losaði það frá aftur. Þeir komu þá til baka og aftur fyrir brú og komu sér fyrir þar. Mikill sjór gekk stöðugt yfir skipið svo að það var ógerlegt fyrir þá að komast upp á brúarþak aftur.“ Einn eftir „Aftur tók við bið eftir björgun. Við kölluðumst á öðru hverju. Skip- stjórinn sagði mér að vera rólegur og hanga þarna. Hann sagði að þyrl- an væri á leiðinni. Ég er ekki með á hreinu hvað tím- anum leið, en ég tel að það hafi verið um 15-20 mínútum áður en ég sá ljós á bjargbrúninni frá björgunarmönn- um, sem það kom mikil alda yfir skipið og færði það alveg í kaf. Ég fór sjálfur alveg á bólakaf og slóst með höfuðið í og hálfvankaðist. Þeg- ar fjaraði út aftur kallaði ég í strák- ana og spurði hvort það væri ekki allt í lagi, en ég fékk ekkert svar.“ Eyþór sagði að hann hefði reynt að halda í þá von að þeir væru enn á lífi. Hann sagði að þó að það hefði verið mikið áfall fyrir sig að heyra ekkert lengur í félögum sínum hefði hann ekki verið á því að gefast upp. Sjálfsbjargarviðleitnin og þrjóskan væru sterk öfl. „Þegar ég var orðinn einn eftir hugsaði ég til strands dráttarbátsins Goðans í Vöðlavík árið 1994. Ég hugsaði með mér að fyrst hægt var að bjarga skipverjum sem biðu lengi á brúarþakinu eftir björgun þá hlyti að vera hægt að gera það aftur.“ Eyþór sagðist líka hafa hugsað sterkt til móður sinnar, en faðir Ey- þórs lést í fyrra. Hann sagðist líka hafa hugsað til konu sinnar og barna, en Elínrós, eiginkona Ey- þórs, var í Reykjavík með yngstu dóttur þeirra sem var í aðgerð á spít- ala. „Það var léttir að sjá ljós björg- unarmanna á bjargbrúninni. Þeir kölluðu til mín því að þeir voru að- eins nokkra metra frá mér. Ég losaði aðra höndina til að losa hettuna svo að ég gæti heyrt í þeim. Sjórinn gekk hins vegar stöðugt yfir mig. Mér varð fljótlega kalt á höfðinu og gallinn fylltist af sjó. Ég setti því hettuna á mig aftur og fylgdist með strákunum á bjargbrúninni. Ég var búinn að gera mér grein fyrir að það yrði aldrei hægt að bjarga mér úr landi. Báturinn var á það mikilli ferð að það var ekki hægt. Jafnvel þó að þeir gætu komið spotta til mín myndi mér ekki takast að ná taki á honum því að ef ég sleppti tak- inu á bátnum yrði ég kominn útbyrð- is áður en ég vissi af.“ Hættuleg björgun „Eina von mín var því að mér yrði bjargað með aðstoð þyrlu. Það var því uppörvandi þegar ég sá þyrluna koma. Hún flaug fyrst yfir mig með fullum kösturum. Síðan flaug hún burt. Ég verð að viðurkenna að þá þyrmdi yfir mig. Ég vissi auðvitað að björgun úr lofti var mjög tvísýn. Við vorum undir þverhníptu bjargi, bát- urinn var á stöðugri ferð og við slík- ar aðstæður hlaut að vera mjög erf- itt að hífa menn upp. Það leið hins vegar ekki á löngu þar til þyrlan kom aftur yfir til mín og þá sá ég að það var maður á leið niður til mín. Ég hafði stórar áhyggj- ur af honum því ég sá ekki hvernig hann ætti að geta lent hjá mér. Hann hékk í smástund yfir mér, en síðan var eins og hann dytti niður á þakið til mín. Um leið og hann lendir kem- ur alda og tekur hann, en við náðum einhvern veginn að grípa hvor í ann- an. Ég var með lappirnar skorðaðar. Hann var mjög rólegur og róaði mig niður. Þegar hann fór að setja lykkj- una utan um mig kom aftur brot á okkur og henti okkur yfir á mitt þak. Ég fór hálfur útbyrðis, en hann náði einhvern veginn að halda mér. Síðan reið annað brot yfir og kastaði okkur til baka. Þá náði ég handfestu í rekk- verkinu. Vírinn var hins vegar orð- inn flæktur, en sigmaðurinn náði fljótlega að greiða úr honum. Hann setti lykkjuna á mig aftur en herti hana ekkert að. Ég greip bara um hana og síðan vorum við hífðir upp á bjargbrúnina.“ Eyþór vildi ekki að þyrlan flygi með hann á sjúkrahús. „Ég vildi engan tíma missa því að ég vildi að þyrlan héldi áfram að leita að þeim sem saknað var.“ Gekk niður á veg Um klukkutíma gangur var frá standstað niður á veg. Þá leið fór Ey- þór fótgangandi ásamt björgunar- mönnum. Hann viðurkenndi að hann hefði verið orðinn mjög þreyttur undir lokin. „Tveir björgunarmenn studdu mig á leiðinni. Þegar ég kom inn í bílinn var ég orðinn örmagna, en mér hlýnaði fljótt á göngunni.“ Eyþór var um þrjá klukkutíma á brúarþaki Svanborgar. Allan þann tíma hélt hann sér föstum meðan sjórinn gekk yfir hann og báturinn barðist til og frá. „Ég skil satt að segja ekki hvernig mér tókst að halda mér allan þennan tíma. Þegar á leið var ég meira og minna á kafi, súpandi sjó og ælandi sjó. Báturinn var að brotna undan mér. Stefnið var meira og minna hnoðað í burtu. Gálginn aftur á var farinn í burtu.“ Ekkert sást af skipinu þegar birti daginn eftir. „Ég tel að björguninni á mér megi líkja við kraftaverk. Sigmaður björgunarþyrlu varnarliðsins setti sig í lífshættu við björgunina. Þó að hann hafi verið bundinn í taug þyrl- unnar hefði hann getað lamist utan í. Auk þess flæktist línan.“ Eyþór hefur aldrei áður lent í svipaðri lífsreynslu. Garðar, faðir hans, Hafsteinn, elsti bróðir hans, og tengdafaðir Eyþórs lentu hins vegar í lífsháska þegar togarinn Krossnes frá Grundarfirði fórst á Halamiðum í febrúar 1992. Þrír menn fórust í slysinu en níu björguðust. Garðar Gunnarsson faðir Eyþórs bjargaðist þar sem hann var einn á reki, fót- brotinn og hálfklæddur í björgunar- galla. Eyþór vildi koma á framfæri þökkum til allra björgunarmanna sem aðstoðuðu við björgunina og leitað hafa að þeim sem saknað er. Hann sagðist einnig vilja koma inni- legum samúðarkveðjum til aðstand- enda skipsfélaga sinna. ist þegar Svanborg fórst segir þakklæti og samúð vera sér efst í huga k Morgunblaðið/RAX Eyþór Garðarsson í faðmi fjölskyldunnar. F.v.: Agnes Sif 13 ára, Elínrós M. Jónsdóttir, eiginkona Eyþórs, Marinó Ingi 10 ára og María Rún 5 ára. paði skip- ra í björg- jafnframt u og sendi upp n a með það r langt frá t. t ankerin ru um 400 m ítrekað það tókst in og eftir tlega upp þannig að r en alveg a út björg- x í burtu, ð að halda all utan í stjóri við rðsmegin. var mjög st hann í skipstjóri upp á brú- ngað upp ýrimaður fyrir. Ég ð mastrið na á mér. öð þannig í land. ftir björg- var ekki naði sífellt var á ofs- afa barist nn skorð- í lítilli vík egol@mbl.is Morgunblaðið/RAX rðarssyni. Að baki Lane er Javier Casanova, flugstjóri þyrlu Varnarliðsins. María Rún Eyþórsdóttir var með pabba sínum í myndverinu og sýndi ljósmyndara þennan pening sem bjargvættir föður hennar gáfu henni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.