Morgunblaðið - 11.12.2001, Page 39

Morgunblaðið - 11.12.2001, Page 39
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 39 SÍÐUSTU ár hefur átt sér stað athyglisverð en hljóðlát uppbygging á þróunarstarfi á lands- byggðinni. Starfsemin er á vegum þróunar- félaga sem yfirleitt ganga undir nafninu at- vinnuþróunarfélög en í raun vinna félögin að al- mennri framþróun nær allra samfélagsþátta á þeim landsvæðum sem þau starfa. Hjá þessum félögum starfa nú um 30 sérfræðingar sem hafa háskólamenntun á yfir 12 mismun- andi fagsviðum auk þess sem félögin kaupa að sérfræðiþjónustu á ýmsum sviðum. Félögin hafa tengsl sín á milli og mynda þannig öflugt þekkingar- samfélag sem líta má á sem stærstu sérhæfðu stofnun á sínu sviði hér á landi. Samstarf félaganna við sveitar- félög, fyrirtæki, ýmsar rannsókna-, tækni- og menntastofnanir er að öllu jöfnu mikið og þau sækja í auknum mæli þekkingu til erlendra aðila og efna til samstarfs við þá. Þróunar- starf er í eðli sínu langtímaverkefni og árangur þess kemur fram hægt og sígandi en felur engu að síður í sér örugga framþróun þar sem það er stundað. Félögin hafa flest starfað í núverandi mynd frá árinu 1997 og á þeim tíma hefur byggst upp hjá þeim afar hagnýt reynsla og sérhæfð þekk- ing á þeim samfélögum sem þau starfa í. Árangurinn hefur verið að koma í ljós með afgerandi hætti á síð- ustu misserum en er þó af ýmsum ástæðum ekki mjög sýnilegur í þjóð- félaginu. Það má meðal annars rekja til þess að félögin vinna mikið með þeim hætti að virkja aðra aðila innan samfélagsins til að koma á umbótum og verkefni þeirra byggja á samstarfi fremur en einokun verkefna. Með þessu móti margfalda félögin eigin af- kastagetu og stuðla um leið að því að gera samfélagið virkt á varanlegan hátt. Það er margt áhugavert í þeirri þróun sem orðið hefur í rekstri félag- anna á síðustu árum og þar á meðal að með eflingu þeirra hefur verið sannað að hægt er að reka á landsbyggðinni þróunarstarf sem er sambærilegt því besta sem þekkist. Er þá sama hvort sem horft er til Evrópu eða Ameríku, enda fyrirmyndir sóttar í báðar heimsálfurnar sem hafa þróunarstarf af þessu tagi meðal forgangsverk- efna. Vitanlega er starfið hér smærra í sniðum en vel skipulagt, hagkvæmt í rekstri og árangursríkt. Félögin eru einnig sönnun þess að auðveldlega er hægt að flytja sérhæfða þekkingar- starfsemi út fyrir borgarsamfélagið og að það getur verið bæði hagkvæm- ara og árangursríkara en sú fjarþjón- usta sem búið hefur verið við á lands- byggðinni í áratugi. Grunnurinn að árangri félaganna liggur í því að lögð hefur verið af rík forræðishyggja í þróunarstarfi á landsbyggðinni og um leið heima- mönnum falið frumkvæði og ábyrgð á því þróunarstarfi sem að heimabyggð þeirra lýtur. Félögin fá, rétt eins og fjölmargar aðrar opinberar stofnanir, fjárhagslegan stuðning en jafnframt frelsi til at- hafna á eigin forsend- um. Það sýnir sig með afgerandi hætti að stuðningur og frelsi af þessu tagi magnar upp krafta og áhuga heima- manna á því að axla ábyrgð á eigin velferð og ná árangri á eigin forsendum. Viðfangs- efnin og starfsumhverfi allt verður áhugaverð- ara og dregur til sín vel menntað og kraftmikið starfsfólk sem leggur metnað sinn í að vinna að framþróun og nýta sóknarfæri sem víðsvegar eru fyrir hendi á landsbyggðinni. Ástæða er til að benda þingmönn- um, sveitarstjórnarmönnum og öðr- um sem málefnið varðar á að kynna sér vel starfsemi atvinnuþróunar- félaganna. Yfirlit yfir heimasíður þeirra er á http://www.leit.is undir stofnanir. Heimasíða Þróunarstofu Austurlands sem höfundur vinnur hjá er á slóðinni http://www.austur.is og einnig má benda á vefina http:// www.east-iceland.is, http:// www.east.is og http://www.fna.is sem einnig tengjast þróunarstarfi á Aust- urlandi. Nýr þekkingar- búskapur á landsbyggðinni Gunnar Vignisson Þekking Félögin hafa tengsl sín á milli og mynda þannig öflugt þekkingarsam- félag, segir Gunnar Vignisson, sem líta má á sem stærstu sérhæfðu stofnun á sínu sviði hér á landi. Höfundur er forstöðumaður viðskiptasviðs Þróunarstofu Austurlands. VEGNA greinar sem leikritaskáldið Birgir Sigurðsson rit- ar í Morgunblaðið 6. desember sl., þar sem hann ásakar Árna Hjartarson, jarðfræð- ing hjá Orkustofnun, um rangfærslur og húsbóndahollustu vegna ummæla sem sögð eru höfð eftir Árna á heimasíðu Norðlingaöldu og einnig í frétt í Morg- unblaðinu 25. nóvem- ber sl., vill undirritað- ur koma eftirfarandi á framfæri. Ekkert hefur komið fram á heimasíðu Norðlingaöldu um að fyrirhugað lón við Norðlingaöldu geti dregið úr uppblæstri við gamla farveg Þúfuverskvíslar en greint var frá helstu niðurstöðum rann- sókna Árna Hjartarsonar á áhrif- um fyrirhugaðrar Norðlingaöldu- veitu á vatnafar í Þjórsárverum á síðunni hinn 23. nóvember sl. Rannsóknin er unnin fyrir verkefn- isstjórn um mat á umhverfisáhrif- um Norðlingaölduveitu og var texti blaðamanns heimasíðunnar unninn upp úr greinargerð Árna Hjartar- sonar og yfirlesinn af honum og verkefnisstjóra umhverfismatsins áður en hann var birtur á heimasíð- unni. Þótti umsjónarmanni fréttavefs Morgunblaðsins umrædd frétt það athyglisverð að óskað var eftir að fá texta hennar sendan til frekri úrvinnslu. Var undir- rituðum ljúft og skylt að verða við þeirri bón en varð það á að senda frá sér rangt texta- skjal til Morgunblaðs- ins, þ.e. uppkast að umræddri frétt á heimasíðu Norðlinga- öldu þar sem fram kom að fyrirhugað lón gæti dregið úr upp- blæstri í gömlum ár- farvegi en sú setning var felld út í lokaút- gáfu fréttarinnar, eins og hún birtist á heima- síðunni. M.ö.o. rétt frétt fór inn á heima- síðu Norðlingaöldu 23. nóvember sl. en ekki til Morgunblaðsins. Strax og frétt um málið birtist á mbl.is var hún leiðrétt en því miður slæddist umrædd villa inn í frétt Morgunblaðsins af málinu 25. nóv- ember sl. Eftirá að hyggja voru það mistök að óska ekki eftir leiðréttingu strax og fréttin birtist í Morgunblaðinu 25. nóvember en nú, þegar við blas- ir hvernig leikritaskáldið grípur þessa villu á lofti til að reyna að koma höggi á jarðfræðinginn, er mér bæði ljúft og skylt að koma þessu á framfæri. Semsagt, það voru mannleg mistök sem urðu til þess að rangar upplýsingar, að hluta til, fóru til Morgunblaðsins. Er blaðið beðið velvirðingar á þessu sem og Árni Hjartarson. Um orðfæri og dylgjur rithöf- undarins í umræddri grein vegna fréttaflutnings á heimasíðu Norð- lingaölduveitu, sem og alla fram- setningu hans á málinu í umræddri grein, ætla ég ekki að hafa nein orð, slík vinnubrögð dæma sig sjálf. Ég vil hins vegar árétta hér þá yfirlýstu stefnu verkefnisstjórn- ar mats á umhverfisáhrifum Norð- lingaölduveitu að heimasíðan á að þjóna því hlutverki að koma á framfæri til almennings og fjöl- miðla upplýsingum um matsvinn- una og annað sem að verkefninu snýr. Er kappkostað að þær upp- lýsingar séu réttar og áreiðanlegar hvort sem þær eru jákvæðar eða neikvæðar fyrir verkefnið. Til varnar jarðfræðingi Orkustofnunar Árni Þórður Jónsson Norðlingaalda Leikritaskáldið grípur þessa villu á lofti, segir Árni Þórður Jónsson, til að reyna að koma höggi á jarðfræðinginn. Höfundur er ráðgjafi hjá Athygli ehf. og umsjónarmaður heimasíðu Norðlingaölduveitu. M O N S O O N M A K E U P litir sem lífga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.