Morgunblaðið - 11.12.2001, Side 41
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 41
VARÐANDI þau
nauðgunarmál er
komu upp í kjölfar
verslunarmannahelg-
arinnar langar mig að
segja nokkur orð. Því
miður virðist sem alla
virðingu skorti og
mannkærleika í því
hvernig tekið er á
þessum málum. Af öll-
um þeim kynferðisof-
beldismálum er upp
koma, virðist sem hátt
í 100% af þeim ofbeld-
ismönnum sem þessa
glæpi fremja sleppi við
að bera ábyrgð á
verknaði sínum. Það eru til laga-
bókstafir er kveða svo á, að nauðg-
un sé alvarlegur glæpur og að hægt
sé að dæma fólk í margra ára fang-
elsi fyrir, en eitthvað veldur því að
sú er einfaldlega ekki raunin. Lang-
flest þessara mála kafna strax í
fæðingu og koma langfæst til kasta
dómsstóla. Af þessu mætti draga þá
ályktun að kynferðislegt ofbeldi sé
ekki alvarlegur glæpur, og af
hverju þá að hafa þessi máttvana
lög fyrst kynferðislegt ofbeldi virð-
ast bara vera allt í lagi? Við ættum
ef til vill að leyfa kynferðislegt of-
beldi, það virðist hvort eð er vera
óopinberlega leyft og samþykkt af
réttarkerfi okkar. Þær fáu sálir sem
tala máli fórnarlamba í þessum mál-
um, t.d. hinar „sínöldrandi“ Stíga-
mótakonur sem gera ekkert annað
en að sverta mannorð mótshaldara
útihátíða og minna okkur á hinn
ljóta veruleika er við búum við,
ættu nú bara að halda sér saman.
Við þurfum að opna augu okkar fyr-
ir því að það eru ekki konurnar sem
nauðgað er sem eru fórnarlömbin,
heldur við karlmennirnir sem verð-
um fyrir því að þessar konur birtast
allt í einu málaðar og í stuttum pils-
um, háum hælum og aðskornum
bolum, ögrandi og sexí og eru að
biðja um þetta. Hvernig í ósköp-
unum eigum við að standast þetta?
Svo erum við kærðir og einhver
Stígamótakona treður því inní haus-
inn á konunni að þetta hafi verið
nauðgun?! Það þýðir ekki endalaust
að kenna okkur karlmönnum um!
Einn félagi minn lét bókstaflega,
ofangreind orð falla um að við karl-
menn værum fórnarlömbin og þar
með, að við karlmenn værum heila-
lausir hálfvitar sem mættum ekki
sjá kynþokkafulla konu, þá yrðum
við að hoppa á hana og draga tól
okkar út. Það er samt alveg merki-
legt, að lítið af nauðgunum virðist
eiga sér stað í sundlaugunum þar
sem konur spígspora um, ótrúlega
léttklæddar og sexí.
Já, ég er dapur er ég skrifa þessi
orð, sem foreldri ungs drengs, sem
fær að læra frá samfélaginu að
nauðgun og sifjaspell séu í lagi,
ávísanafals og skattsvik eru marg-
falt alvarlegri brot, s.s.: peningar
skipta meira máli en sálir. Hvað
þarf til, að við opnum augu okkar,
að barn háttsetts stjórnmálamanns
verði fórnarlamb, að barnaklám
verði til sölu í blaðarekkanum í
næstu matvöruverslun, eða að
haldnar verði keppnir í
hópnauðgunum á
útihátíðum í beinni út-
sendingu í sjónvarp-
inu? Jú, þetta eru
öfgafull dæmi en það
virðist þurfa mikið til
að við vöknum úr
þessu meðvitundar-
leysi. En, það er ekki
of seint.
Hvar er náungakær-
leikurinn? Er okkur
orðið gjörsamlega
sama um náungann?
Eru viðhorf okkar orð-
in svo menguð af ein-
staklingshyggju að
okkur er sama um allt nema bara
það sem við kemur beint okkur
sjálfum? Er ekki tilvalið að fara að
sinna sjálfum okkur svolítið betur,
t.d. með því að láta þessi mál okkur
varða og sætta okkur ekki við nú-
verandi meðvitundarleysi og sið-
ferðisbrest réttarkerfisins? Og
hvernig væri að gefa kynferðisaf-
brotamönnum tækifæri á að bæta
ráð sitt með því að hjálpa þeim að
axla ábyrgð gerða sinna, iðrast og
horfast í augu við glæp sinn með því
að láta þá svara til saka og jafnvel
dæma þá í meðferð? Er ekki tilvalið
að sýna sjálfum okkur og öðrum þá
væntumþykju og virðingu að koma
vel fram við náungann og láta hann
okkur máli skipta? Er ekki kominn
tími til að ala börnin okkar upp í
mannkærleika og sýna þeim þá
virðingu að kenna þeim muninn á
réttu og röngu? Eða erum við ekki
lengur til þess hæf? Það er allavega
eitthvað að, þegar þjóðfélag okkar
virðist samþykkja, að misnotkun á
fólki sé allt í lagi og viðhorfið „Þetta
er nú ekki svo slæmt“ sé allsráð-
andi, að sáluhjálpurum sé bókstaf-
lega úthýst á útihátíðum svo óorð
komist ekki á viðkomandi mótshald-
ara eða sveitarfélag, s.s.: allt í lagi
að fórna nokkrum sálum til að halda
öllu sléttu og felldu á yfirborðinu.
Aðstandendur Eldborgarhátíðar-
innar voru þeir einu sem öxluðu þá
ábyrgð að biðja Stígamót og Neyð-
armóttöku vegna nauðgunarmála að
vera til taks á svæðinu, fórnarlömb-
um kynferðisofbeldis til hjálpar.
Einhverjir mótshaldarar gátu aft-
urámóti státað af „nauðganafrírri“
útihátíð þar sem enginn var til taks
fyrir þau fórnarlömb er þar var
nauðgað og engin „neikvæð“ fjöl-
miðlaumræða í kjölfarið. En stað-
reyndin er aftur á móti sú að 21 mál
er nú þegar komið upp eftir þessa
einu helgi, 14 á Eldborg, 3 í Vest-
mannaeyjum, 1 á Akureyri, 1 í
Galtalæk, 1 á Eskifirði, 1 á Skaga-
strönd og hafa aldrei jafnmargir
leitað sér aðstoðar vegna nauðgun-
ar eða grófrar tilraunar til nauðg-
unar eins og nú.
Það er vonandi ekki til sú mann-
eskja er horfir á lítið barn sitt og
veltir því fyrir sér hvort það eigi
einhverntíma eftir að verða fórn-
arlamb kynferðislegs ofbeldis. Ég
veit allavega að enginn óskar
nokkru barni þess. En óneitanlega
erum við að bjóða upp á það er við
samþykkjum að við þessum glæp er
nánast engin refsing og að skilaboð
samfélagsins til ungs fólks (þá sér-
staklega karlmanna) er, að nauðgun
og sifjaspell eru ekki refsiverð at-
hæfi. Einnig er hreint ótrúlegt að
ríkjandi viðhorf sé, að konur eigi að
passa sig að vera ekki „glannalega“
klæddar og drukknar og „bjóða
hættunni heim“. Þá er ég ekki að
meina að það viðhorf sé niðrandi
fyrir konur, heldur þvílík niðurlæg-
ing fyrir karlmenn! Eru karlmenn
heilalausir „tillar“ sem ráfa stjórn-
lausir um göturnar og bíða eftir
næsta skrokk til að djöflast á?!
Þannig vil ég ekki að litið sé á mig
og efast um að nokkur karlmaður
óski þess.
Ég get engan veginn sætt mig við
að búa við þetta ástand sem ríkir í
réttarkerfi okkar. Þetta skiptir mig
einfaldlega of miklu máli. Þú kæri
lesandi skiptir mig máli og átt betra
skilið, en að ef barn þitt eða þú
verðir fórnarlamb séu hátt í 100%
líkur á að lítið sem ekkert verði
gert í málunum, allavega ekki af
hálfu íslensks „réttarkerfis“. Munt
þú sætta þig við það? Ef ekki, láttu
þá í þér heyra!
Er í lagi að nauðga?
Halldór K. Lárusson
Nauðganir
Ég get engan veginn
sætt mig við, segir Hall-
dór K. Lárusson, að búa
við þetta ástand sem
ríkir í réttarkerfi okkar.
Höfundur er tónlistarmaður og
foreldri.
84
7
/ T
A
K
T
IK
úti í garði
allt árið
Útiarinn
á sólpallinn
Við vorum
að fá þessa
vinsælu
útiarna
frá Mexikó
aftur
ATH.
Þeir sem voru á
biðlista vinsamlegast
hafið samband
sem fyrst
Verð kr.
15
GOODYEAR JEPPADEKK
31x10,5R15
32x11,5R15
33x12,5R15
35x12,5R15
245/75R16
265/75R16
31x10,5R15
32x11,5R15
33x12,5R15
35x12,5R15
Wrangler MT/R 20.500 kr.
Wrangler MT/R 22.500 kr.
Wrangler MT/R 24.500 kr.
Wrangler MT/R 27.000 kr.
Wrangler AT/S 19.500 kr.
Wrangler AT/S 21.500kr.
Wrangler AT/S 22.500 kr.
Wrangler AT/S 25.500 kr.
Wrangler AT/S 20.500 kr.
Wrangler AT/S 21.800 kr.
L a u g a v e g u r 1 7 0 - 1 7 4 • S í m i 5 9 0 5 0 0 0 • H j ó l b a r ð a d e i l d 5 9 0 5 0 6 0 • H e i m a s í ð a w w w. h e k l a . i s • N e t f a n g h e k l a @ h e k l a . i s
Umboðsmenn um land allt
Bankastræti 3, 551 3635
mat; eau de parfum
japanski dömuilmurinn hannaður af MASAKÏ MATSUSHÏMA
Mörkinni 3, sími 588 0640G
læ
si
le
ga
r
gj
af
av
ör
ur
Bjórglös
kr. 1.750
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-14.