Morgunblaðið - 11.12.2001, Page 58
DAGBÓK
58 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Trinket, Lagarfoss,
Arnarfell og Árni Frið-
riksson koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Drangey kom í gær.
Fréttir
Bókatíðindi
2001. Númer þriðju-
dagsins 11. des. er
36431
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun í dag
kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl .9.
vinnustofa, leirkera-
smíði, kl. 10 enska kl. 11
enska og dans, kl. 13
vinnustofa – postulíns-
málning. Jólakvöldverð-
ur verður föstud. 14.
des. Miðvikud. 12. des.
verður farið í versl-
unarferð í Hagkaup,
Skeifunni, farið frá
Aflagranda kl. 10.
Skráning í afgreiðslu, s.
562 2571
Árskógar 4. Kl. 9 bók-
band og öskjugerð, kl.
13 opin smíðastofa. Opið
hús verður miðvikud.
12. des. kl. 20. Tískusýn-
ing. Jólabingó verður
föstud. 14. des. kl. 14.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
tréskurður, kl. 9–16
handavinna, kl. 10 sund,
kl. 13 leirlist, kl. 14.
dans. Jólatrés-
skemmtun verður fös-
tud. 14. des kl. 14. Jóla-
sveinnin kemur í
heimsókn. „Fjórar
klassískar“ kynna nýút-
kominn geisladisk sinn,
skráning í s. 568 5052
fyrir 13. des.
Eldri borgarar, Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið,
Hlaðhömrum, er á
þriðju-og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og
föndur. Uppl. hjá Svan-
hildi í s. 586 8014 kl. 13–
16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 10
samverustund, kl. 14 fé-
lagsvist.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarf aldraðra.
Garðabæ. Þriðjudagur
11. des.: Föndurdagur í
Kirkjuhvoli í kjall-
aranum kl. 13.30, spilað
í Holtsbúð kl. 13.30,
jólakaffi í Holtsbúð kl.
15. Miðvikud. 12. des.:
Lögreglan í Garðabæ
býður í árlega ferð. Far-
ið verður í Svartsengi.
Rútur frá Kirkjuhvoli
og Holtsbúð kl. 13.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Leikfimi í Íþróttahúsinu
við Strandgötu kl. 11.30.
Rútur fara kl. 13 frá
Hjallabraut 33, Höfn og
Hraunseli í ferð um
Svartsengi í boði lög-
reglu. Saumar og brids
kl. 13.30. Tréútskurður í
Lækjarskóla kl. 13. Á
morgun verður píla. Á
fimmtud. verður opið
hús, „Jólafundur“ kl. 14.
Jóladagskrá, jólakaffi
og happdrætti.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Þriðjud.: Skák
kl. 13, verðlaunaafhend-
ing. Alkort spilað kl.
13.30. Miðvikud.:
Göngu-Hrólfar fara í
göngu frá Ásgarði kl.
10. Söngfélag FEB, kór-
æfing kl. 17. Línudans-
kennsla kl. 19.15. Brids-
námskeið kl. 19.30.
Baldvin Tryggvason
verður til viðtals um
fjármál og leiðbeiningar
um þau mál á skrifstofu
FEB mánud. 17. des.
Panta þarf tíma. Jóla-
ferð verður farin um
Suðurnesin 17. des.
Jólaljósin skoðuð. Far-
arstjóri Sigurður Krist-
insson. Brottför frá
Glæsibæ kl. 15. Skrán-
ing hafin. Skrifstofan er
flutt að Faxafeni 12,
sama símanr. og áður.
Félagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ.
Uppl. á skrifstofu FEB
kl. 10–16, s. 588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, tréskurður,
kl. 10 leikfimi, kl. 12.40
Bónusferð, kl. 13.15
bókabíll. Opið sunnud.
kl. 14–16, blöðin og
kaffi.
Félagsstarfið, Furu-
gerði. Í kvöld kl. 18
kemur kirkjukór Lága-
fellskirkju í heimsókn
og syngur jólalög.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, boccia kl. 13.
Jólastemming á að-
ventu. Veitingar í veit-
ingabúð Gerðubergs.
Uppl. um starfsemina á
staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10–17 handa-
vinnustofa opin, kl. 9.05
og 9.50 leikfimi, kl. 9.30
glerlist, kl. 14 þriðju-
dagsganga frá Gjá-
bakka, kl. 14 boccia, kl.
16.20 og kl. 17.15 kín-
versk leikfimi. Jólahlað-
borð verður fimmtud. 13
des. og hefst með borð-
haldi kl. 12. Hugleiðingu
á aðventu flytur sr. Æg-
ir Sigurgeirsson, hópur
nemenda frá Suzuki-
skólanum flytur tónlist-
aratriði. Tilkynnið þátt-
töku í s. 554 3400 eða
554 6611 fyrir kl. 17
miðvikud. 12. des.
Gullsmári, Gullsmára
13. Postulínsmálun kl.
9.15, jóga kl. 9.05,
handavinnustofan opin
kl. 13–16, spænska. Að-
ventukaffi verður mið-
vikud. 12. des. kl. 14.
Einsöng syngja Anna
Margrét Óskarsdóttir
og Árni Gunnars við
undirleik Bjarna Þ. Jón-
atanssonar. Hátíð-
arhlaðborð. Föstud. 14.
des. verður jólahlað-
borð. Á dagskrá verður
borðhald, hátíðarávarp,
Sigurður Skagfjörð
syngur við undirleik
Jónasar Ingimund-
arsonar, Arngrímur og
Ingibjörg sjá um dans-
músík. Þátttöku þarf að
skrá fyrir kl. 16
fimmtud. 13. des., s.
564 5260.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
leikfimi, kl. 9.45 banka-
þjónusta, kl. 13 handa-
vinna, kl. 13.30 bæna-
stund.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, kl. 9
glerskuður og trémálun,
kl. 10 boccia, kl. 12.15
verslunarferð í Bónus,
kl. 13 myndlist.
Háteigskirkja, eldri
borgarar. Á morgun,
miðvikudag, fyrirbæna-
stund kl. 11, súpa í Setr-
inu kl. 12, spil kl. 13.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 tréskurður og op-
in vinnustofa, kl. 10
boccia.
Litlu jólin verða haldin
miðvikud.12. des. kl.
13.30. Jólahugvekja, sr.
Kristín Pálsdóttir, Kátir
karlar syngja, jólasaga,
kaffihlaðborð. Tilkynnið
þátttöku í s. 568 6960.
Spil falla niður mið-
vikud. 12. des.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
16 bútasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 11
leikfimi. kl. 13 spilað.
Nýtt námskeið í leir-
mótun hefst eftir ára-
mót. Kennt verður á
fimmtud. frá kl. 17–20.
Ath. Takmarkaður
fjöldi, skráning í s.
562 7077
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi,
kl. 11 boccia, kl. 13
handmennt og körfu-
gerð, kl. 14 félagsvist.
Spiluð verður félagsvist
fimmtud. 13. des. kl. 20.
Eldri borgarar í Graf-
arvogi. Miðvikud. 12.
des. kl. 10 verður
aðventufundur í Mið-
garði, Langarima 21.
Gestur fundarins, Einar
Már Guðmundsson rit-
höfundur, les úr verkum
sínum. Tónlistaratriði
og jólakaffi. Allir eldri
borgarar í Grafarvogi
velkomnir. Uppl. gefur
Þráinn Hafsteinsson í
Miðgarði, s. 5454 500.
Reykjavíkurdeild SÍBS
verður með aðventu-
kaffi í Múlalundi, vinnu-
stofu SÍBS, Hátúni 10c,
í dag kl 17.
Kvenfélag Kópavogs.
Jólafundurinn verður
fimmtud. 13. des. kl.
20.30 í Hamraborg 10.
Gestur fundarins Ingi-
leif Malmberg.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids kl. 19.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa saln-
um.
Öldungaráð Hauka.
Jólafundurinn er 12.
des. á Ásvöllum kl. 20.
Sinawik, Jólafundur
verður í Sunnusal Hót-
els Sögu í kvöld kl. 20.
Hallgrímskirkja, eldri
borgarar, opið hús á
morgun kl. 14–16. Í
umsjá sr. Maríu Ágústs-
dóttur. Bílferð fyrir þá
sem þess óska. Uppl. s.
510 1034.
Í dag er þriðjudagur 11. desember,
345. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
En Drottinn bauð fiskinum að spúa
Jónasi upp á þurrt land.
(Jónas 2, 11.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 djúpsjávarfiskur, 8
hestar, 9 hefja upp, 10
spil, 11 gremjast, 13
magran, 15 skraut, 18
hreyfir fram og aftur, 21
fugl, 22 reiðmann, 23
kvarssteinn, 24 náðar.
LÓÐRÉTT:
2 heldur, 3 blóma, 4 í
vondu skapi, 5 hrósar, 6
óns, 7 forboð, 12 tangi, 14
fiskur, 15 poka, 16
streitu, 17 ólifnaður, 18
stallurinn, 19 hugleys-
ingi, 20 sefar.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 dramb, 4 ákúra, 7 aftur, 8 uglan, 9 gár, 11 tuða,
13 otur, 14 skarf, 15 þekk,17 tæpt, 20 aða, 22 féleg, 23
fótum, 24 rausa, 25 syrpa.
Lóðrétt: 1 dragt, 2 amtið, 3 borg, 4 áður, 5 útlit, 6 annir,
10 ánauð, 12 ask, 13 oft, 15 þófar, 16 keldu, 18 æstar, 19
tomma, 20 agga, 21 afls.
Orlof
blaðburðarfólks
DV og Dagur byrjuðu að
borga orlof ofan á blað-
burðarlaunin um mitt árið
2000. Efling stéttarfélag
fékk það í gegn.
Ég vil benda þeim sem
hafa verið að bera út þessi
blöð undanfarin ár að leita
að launaseðlunum. Ef þið
finnið þá ekki fáið þá afrit
af þeim á afgreiðslu DV.
Farið síðan með þetta til
Eflingar og félagið mun
innheimta orlofslaunin
ykkar með dráttarvöxtum,
ykkur að kostnaðarlausu.
Það er nauðsynlegt fyrir
alla launþega að geyma
launaseðla og fylgjast með
því að afdregnum gjöldum
sé skilað.
Þeim sem eiga inni laun
fyrir Fréttablaðið og Sjón-
varpshandbókina bendi ég
á að hafa samband við Efl-
ingu.
Það eru ekki nema rúm 3
ár síðan blöðin öll byrjuðu
að borga í lífeyrissjóð. Sum
skiluðu aldrei afdreginni
greiðslu í sjóð.
Það eru ekki nema örfá
ár síðan Morgunblaðið kom
hlutunum í nokkuð gott
horf fyrir áhrif Eflingar og
umboðsmanns barna.
Stéttarfélag er nauðsyn-
legt til að fylgjast með því
að lögum um réttindi sé
framfylgt og starfskjör og
aðbúnaður séu með eðlileg-
um hætti.
Ég hvet alla blaðbera til
að ganga í Eflingu.
Pétur Þorleifsson,
blaðberi.
Óskipulagður
snjóruðningur
ÉG er fatlaður og þarf á því
að halda að fara um götur
borgarinnar þegar snjóar
sem aðra daga. Á undan-
förnum dögum hef ég séð
litlar ýtur koma og ryðja
gangstéttarnar en hálftíma
til klukkutíma síðar koma
stórvirkar vélar og ryðja
göturnar og þá yfir gang-
stéttarnar sem nýbúið er að
ryðja. Það er eins og snjó-
ruðningur sé ekkert skipu-
lagður.
Ólafur.
Dýrahald
Títla er týnd
TÍTLA er smávaxin læða
sem týndist 7. júlí sl. í Þing-
holtunum. Hún er óvenju-
leg á litinn, svört með ljós-
um yrjum, hálf hakan er
ljós en hálf svört. Hún er
eyrnamerkt með tölunni 56
en er ólarlaus. Þeir sem
geta gefið uppl. hringi í
síma 695 9482 eða 695 4835.
Fundarlaun.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
MÁLGAGN KennarasambandsÍslands, Skólavarðan, kemur á
heimili Víkverja og oftar en ekki má
finna í blaðinu athyglisverðar grein-
ar um skólamál af ýmsu tagi. Svo var
einnig í blaðinu sem nýlega barst inn
um bréfalúguna og sérstaka athygli
Víkverja vakti grein eftir Erling Jó-
hannsson, doktor í íþróttafræðum og
forstöðumann íþróttafræðaseturs
KHÍ á Laugarvatni, en hann ásamt
fleiri fræðimönnum er að undirbúa
stóra rannsókn á líkamsástandi níu
og tíu ára barna á Íslandi.
x x x
Í GREIN sinni bendir Erlingur áþá staðreynd að offita er afleið-
ing misvægis í orkubúskap líkam-
ans, þ.e. við borðum einfaldlega um-
fram það sem við höfum not fyrir.
Þannig sé hægt að skilgreina vanda-
málið út frá minnst tveimur sjónar-
hornum. Í fyrsta lagi að við borðum
of mikið og í öðru lagi að við hreyfum
okkur ekki nægilega í samræmi við
neyslu. Erlingur bendir á að einnig
megi ætla að það skipti miklu máli
hvað við borðum, hvenær og hversu
oft, en fllestir séu þó á því að allir
þessir þættir skipti máli og samspil
þeirra sé helsta ástæða eða orsök of-
fitu.
„Það er ekkert launungarmál að í
nútímaþjóðfélagi okkar þar sem
stress og óhófleg neysla ráða oft
ríkjum er ekki alltaf hugsað um hvað
borðað er, hvað sé hollt o.s.frv. Vitað
er að matseðill hjá ungu fólki nú á
dögum einkennist oft af tilbúnum
skyndiréttum („fast food“), feitum
mjólkurvörum að ógleymdu sælgæti
og gosdrykkjum. Erlendar rann-
sóknir sýna þetta en nýlegar rann-
sóknir á fæðumynstri íslenskra
barna hafa ekki verið gerðar. Litlar
líkur eru á að þessu sé öðruvísi farið
hér en í nágrannalöndum okkar,“
segir Erlingur. Hann bendir á að
tíðni ofþyngdar og offitu sé sam-
bærileg hjá íslenskum börnum og
börnum í öðrum löndum en ofþyngd
og offita meðal barna og unglinga
geti haft alvarlegar afleiðingar.
Áhættuþættir og fylgisjúkdómar
séu margir og þótt flestir þeirra
komi fyrst og fremst í ljós hjá full-
orðnu fólki þá sýni rannsóknir að
þessara einkenna hefur orðið vart
hjá börnum og unglingum, t.d.
breyting á blóðþrýstingi, blóðfitu og
kólesteróli. Erlingur getur þess að
hjúkrunarfræðingur sem hefur
starfað við skólahjúkrun í 25 ár í
stórum skóla úti á landi hafi sagt sér
frá því að mjög feitum börnum hafi
fjölgað mikið í hennar skóla á und-
anförnum árum. Þar séu dæmi um
börn sem eru 49 kílóum þyngri en
áætluð kjörþyngd segi til um. Þau
séu oft mjög illa á sig komin og eigi í
miklum vandræðum bæði líkamlega
og ekki síður félagslega. Sum þeirra
eigi í miklum erfiðleikum með að
ganga rólega nokkur hundruð
metra. Þegar þau séu komin á ung-
lingastig hætti þau að vilja mæta í
íþróttatíma, meðal annars vegna
þess að þau vilji ekki að hinir krakk-
arnir sjái hvernig þau líta út. Þessir
krakkar eigi við mikil vandamál að
stríða, þau einangrist mjög oft og
verði þannig útundan.
Erlingur segir að ef ekki verði
gripið til fyrirbyggjandi aðgerða séu
miklar líkur á að offita meðal barna
og fullorðinna á Íslandi aukist tals-
vert á næstunni. Þykir Víkverja ljóst
eftir lestur greinarinnar að taka
verður á þessu vandamáli hið fyrsta.
FYRIR 50 árum flutti
flugher Bandaríkjanna í
fyrsta skipti ratsjárbúnað
til Íslands. Honum var
komið fyrir á Keflavík-
urflugvelli og á næstu
þremur árum var þremur
ratsjárstöðvum til við-
bótar komið upp á Íslandi.
Við teljum að alls hafi
um 10.000 bandarískir
hermenn starfað í þessum
stöðvum meðan þær voru
starfræktar. Tveimur var
lokað um 1961, stöðinni á
Höfn var haldið opinni til
1989 og nokkrum árum
síðar tóku Íslendingar við
rekstri stöðvarinnar í
Keflavík. Við, sem þarna
störfuðum, hyggjumst nú
koma saman í tilefni þess-
ara tímamóta. Við viljum
að sem flestir taki þátt og
bjóðum því öllum þeim
borgaralegu starfs-
mönnum, sem þarna
störfuðu, að taka þátt í
þeim hátíðarhöldum er
við áformum. Bandarísk-
um og íslenskum borg-
aralegum starfsmönnum,
sem störfuðu í ratsjár-
stöðvunum fjórum, er því
boðin þátttaka.
Við viljum heyra frá
öllum þeim Íslendingum,
sem störfuðu í ratsjár-
stöðvunum. Hið sama
gildir um þá Bandaríkja-
menn, sem kunna að búa
á Íslandi. Við þurfum að
fá að vita hvenær viðkom-
andi starfaði þar og í
hvaða stöð og óskum eftir
heimilisfangi viðkomandi,
símanúmerum og tölvu-
póstföngum.
Ég vil biðja þá Íslend-
inga, sem falla undir
þessa skilgreiningu, að
hafa samband við mig.
Hér fara á eftir viðeig-
andi upplýsingar:
Tölvupóstur:kathy-
lowell@earthlink.net.
Sími minn í Jacksonville í
Florída er 904-620-9635
og heimilisfangið 6172
Chambore Court, Jack-
sonville FL 32256.
Virðingarfyllst,
Lowell Woodworth.
Til starfsmanna ratsjárstöðva