Morgunblaðið - 16.12.2001, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 2001 43
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Lindarflöt - Gbæ - einb.
Vorum að fá í einkas. á þessum frábæra stað
við hraunjaðarinn og lækinn mjög fallegt
samtals 260 fm einbýli í góðu ástandi. Tvö-
faldur bílskúr. 5 herb. Arinn, gufubað.
Glæsil. staðsetning. Fallegur garður. Ákv.
sala. Verð 26,5 millj. 37689
LAUFÁS fasteignasala
Kórsalir
Erum með til sölu 2ja, 3ja og 4ra herbergja auk
penthouse íbúða á besta útsýnisstað í lyftublokk í
Salarhverfi Kópavogs. Íbuðirnar skilast fullbúnar en
án gólfefna, ásamt stæði í bílageymslu. Lánamögu-
leikar, full húsbréf + seljandi lánar allt að 85 % af
kaupverði. Áætlaður afhendingartími er í mars 2002.
Teikningar og allar nánari upplýsingar á skrif-
stofum okkar.
OPIÐ Í DAG MILLI KL. 13-15.
sími 533 4030
sími 533 1111
ÞAÐ ER undarlegt meðtímann. Hvernig hanní senn rennur okkur úrgreipum og hleðst aðokkur. Um leið og okk-
ur finnst hann sífellt líða hraðar
og hraðar og við hafa sífellt
minna af honum, er hann stöðugt
að færa okkur meira og meira af
reynslu og minningum. Við eig-
um sífellt meiri tíma að baki og
minni framundan. Og einhvern
veginn er það svo að sá tími sem
enn er ónýttur virðist miklum
mun verðmætari og eftirsókn-
arverðari en sá sem liðinn er. Þó
er hann í eðli sínu óviss og hvik-
ull, en liðni
tíminn örugg-
ur og traustur.
Leikskáld í
Ameríku sagði
mér einu sinni
að skýringin á
því að okkur
þættu árin líða
hraðar eftir
því sem þeim
fjölgaði að baki okkar væri sára-
einföld stærðfræði og lægi hrein-
lega í hlutarins eðli. Eftir því
sem árum fjölgaði í staflanum
innra með okkur, munaði hlut-
fallslega minna um hvert þeirra
sem bættist við.
Sem sagt: Þegar við erum
tveggja ára, jafngildir eitt ár
hálfri ævi okkar, en þegar við er-
um fertug, er sama eining
skroppin niður í tvö og hálft pró-
sent af pakkanum.
En þessi reikningslist um tím-
ann snýr einkum að framtíðinni,
eins og reyndar flestar hugsanir
okkar um þessa stærð. Við leið-
um sjaldnar hugann að tímanum
sem okkur hefur þegar hlotnast,
að tímanum sem fasteign, sem þó
er a.m.k. í vissum skilningi það
eina sem við eigum.
Á vorum dögum gerast breyt-
ingar hratt og því finnum við
kannski enn meira fyrir framrás
tímans en áður var. En í þessu
brambolti verða líka þeir staðir
og hlutir þeim mun mikilsverðari
sem breytast ekki og ná þannig
að minna okkur, andstutta lífs-
hlauparana, á verðmætið innra
með okkur, minningarnar.
Í hinu manngerða umhverfi
eru slíkir staðir ekki margir.
Þegar ég á leið um æskuslóðir
mínar í Hlíðunum, standa vissu-
lega öll húsin enn á sínum stað,
en þau eru ekki eins. Þau eru
öðruvísi á litinn, gluggarnir
breyttir, skólalóð Hlíðaskóla er
orðin full af byggingum.
En einn stað hef ég fundið í
gamla hverfinu sem hefur bless-
unarlega nánast ekkert breyst.
Það er smurstöðin sem nú stend-
ur við Skógarhlíð, en var áður
kennd við Hafnarfjarðarveg.
Hún er kærkomin vin í því eyði-
landi sem breyttar æskuslóðir
hljóta ávallt að verða gagnvart
augliti minninganna.
Ég kom fyrst inn í þessa
smurstöð með pabba mínum í
byrjun sjöunda ártugarins þegar
hún var ný. Þá horfði ég hug-
fanginn á grágræna fólksvagn-
inn okkar takast á loft og þaul-
vana og kvika menn í bláum
sloppum og stundum með der-
húfur með flottum merkjum, at-
hafna sig undir honum eins og
ekkert væri sjálfsagðara.
Síðar fluttum við í annað
hverfi og ég loks enn lengra burt
og kom ekki á þennan stað í ára-
raðir. En á síðasta áratug lið-
innar aldar ákvað ég að fara
þangað með bílinn.
Og það var líkt og tíminn hefði
ákveðið að sleppa því að líða
þarna. Kunnuglegt andlit gægð-
ist út um gluggann á bílskúrs-
hurðinni, sem síðan opnaðist og
maður sem ég hafði síðast séð
áratugum fyrr, og var auðvitað í
bláum sloppi, benti mér að aka
inn.
Inni virtist allt að mestu
óbreytt frá því upp úr sextíu,
altént rímaði það við myndirnar
í minningunni. Nákvæmlega
sömu kunnuglegu starfsmenn-
irnir tóku jafn óhikað og fyrr til
við olíuskiptin. Það var að vísu
kominn vottur af nýjum og
virðulegri háralit undir derhúf-
unum, líkt og hjá viðskiptavin-
inum. En taktföst dæluhljóðin,
lyktin og afslappað andrúmið
var óbreytt. Kyrrð, ró og fum-
leysi staðar þar sem menn vita
nákvæmlega hvað þeir eru að
gera.
Þegar svo nótan var útfyllt
setti starfsmaðurinn papp-
írsspjald undir handarjaðarinn
til að bía hana ekki út með olíu-
svertu. Úthugsað smáatriði sem
ég hef ekki séð annars staðar en
mundi vel eftir.
Auðvitað þekki ég ekki þessa
góðu menn á smurstöðinni,
nema rétt rúmlega í sjón, en ég
lít engu að síður á þá sem vini
mína. Það er þeim að þakka að
ég get annað slagið stigið skref
til baka út úr amstri og ónæði
dagsins og notið hluta þess tíma,
sem ella virðist hafa svo afar
takmarkað gildi, hins liðna,
örugga, óbreytanlega. Þess tíma
þegar heimurinn var fullur af
óorðnum ævintýrum og allt fólk
sem átti heima í honum, var þar
enn.
Ef þú, lesandi góður, vilt gefa
sjálfum þér dálitla jólagjöf sem
kostar ekkert og er bæði holl
fyrir þig og bílinn þinn, leitaðu
þá uppi þína eigin smurstöð
æskunnar og njóttu tímans sem
þú hélst að væri ekki lengur til.
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir
Sveinbjörn I.
Baldvinsson
tundra
@vortex.is
Smurstöð
sem jólagjöf
Hraðsveitakeppni Brids-
félags Fjarðabyggðar
Lokið er tveggja kvölda hrað-
sveitakeppni og varð lokastaðan
þessi fyrra kvöldið:
1. sveit. Vigfús Vigfússon, Heimir Ásgeirs-
son, Oddur Hannesson og Svavar Björnsson
617 stig
2. sveit. Þorbergur Hauksson, Árni Guð-
mundsson, Jóhann Þorsteinsson og Kristján
Kristjánsson 596 stig
3. sveit. Sigurður Hólm Freysson, Þórir Að-
alsteinsson, Jón Einar Jóhannsson og Pétur
Sigurðsson 568 stig
Seinna kvöld
1. sveit. Þorbergur Hauksson, Árni Guð-
mundsson, Ásgeir Metúsalemsson og Krist-
ján Kristjánsson 638 stig
2.–3. sveit. Atli Jóhannesson, Bjarni Krist-
jánsson, Búi Birgisson og Jóhann Búason
552 stig
2.–3. sveit. Sigurður Hólm Freysson, Þórir
Aðalsteinsson, Jón Einar Jóhannsson og
Pétur Sigurðsson 552 stig
Samtals
1. sveit. Þorbergur, Árni, Kristján, Jóhann
og Ásgeir 1.234 stig
2. sveit. Vigfús, Jóhanna, Heimir, Oddur og
Svavar 1.156 stig
3. sveit. Sigurður, Þórir, Jón Einar og Pétur
1.120 stig
18. des. verður spilaður kon-
fekttvímenningur.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Gullsmárabrids
Eldri borgarar spiluðu tvímenn-
ing á 10 borðum í Gullsmára 13
fimmtudaginn 13. desember sl. Miðl-
ungur 168. Efst vóru:
NS:
Bragi Salomonss. og Hannes Alfonss. 205
Haukur Bjarnas. og Hinrik Láruss. 195
Kristinn Guðmundss. og Karl Gunnarss. 192
AV:
Þórhildur Magnúsd. og Helga Helgad. 199
Kristja. Halldórsd. og Eggert Kristinss. 194
Jóhann Egilss. og Einar Karlss. 182
– Síðasti spiladagur fyrir jól
mánudagur 17. desember. Jólakaffi.
Fyrsti spiladagur á nýju ári mánu-
dagur 7. janúar 2002.
M O N S O O N
M A K E U P
litir sem lífga
Ungbarnafatnaður
Komdu í bæinn og skoðaðu úrvalið og
verðið. Allt fyrir mömmu.
Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136.