Morgunblaðið - 18.12.2001, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.12.2001, Qupperneq 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Opið til 22.00 www.kringlan.is upplýsingasími 588 7788 skrifstofusími 568 9200 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S K R I 16 21 2 12 /2 00 1 Jólasveinn dagsins kemur kl. 17.00 Í DAG eru 50 ár liðin frá því að Haraldur Sveinsson, stjórnarfor- maður Árvakurs hf., útgáfufélags Morgunblaðsins, tók fyrst sæti í stjórn félagsins 18. desember 1951. Hann varð formaður stjórnar útgáfufélagsins árið 1955 og gegndi því starfi til 1968 er hann varð framkvæmdastjóri Morgun- blaðsins. Því starfi gegndi hann til ársins 1995 en þá tók hann á ný við stjórnarformennsku í Árvakri hf. Á þessum 50 árum hefur Har- aldur setið nánast alla fundi út- gáfufélagsins, ýmist sem stjórnar- formaður eða framkvæmdastjóri. Um störf Haraldar Sveinssonar í þágu Morgunblaðsins er fjallað í forystugrein blaðsins í dag. Í hálfa öld í for- ystu Árvakurs Haraldur Sveinsson „ÉG var alveg búinn að vera þegar mér tókst að grípa í bjarghring- inn. Það er miklu erfiðara en mað- ur ímyndar sér að lenda svona í sjónum,“ segir Ásberg Þor- steinsson, sjómaður á síldar- bátnum Elliða, en hann lenti út- byrðis þegar báturinn var á leið til veiða fyrir hádegi á laugardag. Farið var með Ásberg í land og kvaðst hann hafa jafnað sig nokk- uð af eftirköstunum um helgina. Elliði er yfir 700 tonna bátur og sagðist Ásberg hafa verið að vinna ásamt fleiri skipverjum við að koma nýjum trollpoka á tromlu. Var honum hrúgað í skutrennuna og segir Ásberg að ætlunin hafi verið að slaka pokanum út og spóla honum síðan inn á tromluna. Veður var þokkalegt en nokkur alda. „Ég er í rennunni og stekk á eftir spotta sem var að renna út þegar trollpokinn hendist á mig og fleygir mér útbyrðis eins og fiðri,“ segir Ásberg og kveðst heppinn að hafa ekki rekist í gálgann. „Ég fór á bólakaf en reyndi að ná í trollið til að hífa mig upp en það gekk ekki fyrr en eftir nokkr- ar tilraunir að ná í endann á troll- pokanum þar sem ég var þungur, í úlpu og stígvélum. Ég gat hangið í pokanum og sá þá björgunar- hringinn með ljósi nokkuð frá mér og náði að synda að honum. Þá var ég alveg búinn og rétt náði að grípa bjarghringinn og sá þá hvar Rúnar Þór Gunnarsson, annar stýrimaður, var kominn í flotbún- ing og á leiðinni til mín. Það var mikill léttir. Það munar líka miklu að hafa ljós á bjarghringnum, þá er auðveldara að koma auga á hann í öldunum og synda að hon- um.“ Ásberg segir að Sveinn Ísaksson skipstjóri hafi sýnt snör viðbrögð þegar hann snýr skipinu strax og ýtir því með hliðarskrúfum að þeim tveimur til að ná þeim um borð. Hann kveðst ekki gera sér grein fyrir hversu lengi hann var í sjónum en segir það hafa verið erfitt. „Það fer bara allur tíminn í að berjast við að halda sér á floti.“ Þegar um borð kom drifu mat- sveinn og vélstjóri Ásberg úr föt- unum og í heita sturtu og kvaðst hann hafa ælt og kúgast í fyrst- unni þar sem hann hefði gleypt svo mikinn sjó. Ákveðið var að sigla í land og koma honum á sjúkrahúsið til skoðunar. Fékk hann að fara heim síðar um dag- inn og taldi hann sig vera orðinn ágætan en um kvöldið og nóttina hafi honum fyrst verið ískalt og síðan í svitakófi. Hafði hann jafnað sig nokkurn veginn í fyrradag. Ásberg kveðst ætla aftur á sjó- inn. Elliði er enn á veiðum og sagði hann óvíst hvort annar túr næðist fyrir hátíðar. Sjómanni bjargað eftir að hann féll útbyrðis af Elliða Morgunblaðið/JG Ásberg Þorsteinsson, skipverji á Elliða, komst í hann krappan þegar hann féll útbyrðis að morgni laugardags. „Var alveg búinn að vera“ LÖGREGLAN í Reykjavík rannsakar nú tildrög alvarlegs slyss sem varð við fjölbýlishús í Yrsufelli aðfaranótt sunnu- dags þegar karlmaður höfuð- kúpubrotnaði við fall fram af svölum annarrar hæðar húss- ins. Fallið var 4–5 metrar og var maðurinn fluttur á Land- spítalann í Fossvogi þar sem hann lá tengdur við öndunar- vél á gjörgæsludeild um helg- ina, en hefur nú verið útskrif- aður þaðan. Lögreglu var tilkynnt um hávaða í stigagangi hússins skömmu fyrir klukkan tvö og var maðurinn fallinn fram af svölunum þegar lögreglu bar að. Að sögn lögreglunnar er málið rannsakað með hliðsjón af því að hugsanlega hafi átt sér stað refsiverður verknaður með því að manninum hafi ver- ið hrint fram af svölunum. Ver- ið er að yfirheyra vitni að at- burðinum og afla frekari gagna til að fá gleggri mynd af at- burðarásinni. Lögreglan hefur enn ekki tekið skýrslu af hin- um slasaða. Höfuð- kúpubrotn- aði við fall fram af svölum JÓLABÖLL eru árviss viðburður sem jafnan gleður yngstu kynslóð- ina og á mánudag, níu nóttum fyrir jól, voru börnin í leikskólanum Seljaborg í Reykjavík í hátíðar- skapi á jólaballi. Þar var auðvitað gengið í kringum jólatréð og eng- inn lá á liði sínu við að syngja jóla- söngvana. Þá var jafnmikilvægt að sýna með látbragði að „uppi á stól stendur mín kanna“. Morgunblaðið/Ásdís „Uppi á stól stendur…“ SKIPULAGÐRI leit hefur verið hætt á Snæfellsnesi að sjómönnun- um tveimur sem saknað er eftir að Svanborg SH fórst við Öndverðar- nes fyrir rúmri viku. Eftirgrennslan verður þó haldið áfram eftir aðstæð- um. Á fundi svæðisstjórnar með lög- reglu í Björgunarstöðinni Líkn á Hellissandi á sunnudag var farið yfir aðgerðirnar og mat lagt á árangur. Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg segir að miðað við ríkjandi veðráttu reki lítið eða ekk- ert á fjörur á Snæfellsnesi og því hafi skipulagðri leit verið hætt. Svæðisstjórn hættir störfum að sinni en ströndinni hefur verið skipt á björgunarsveitir. Þá verður flogið yfir svæðið þegar veður leyfir. Áfram verður fylgst með fjörum á Rauðasandi og Barðaströnd. Svæð- isstjórn verður í viðbragðsstöðu og kölluð út ef einhverjar vísbendingar koma fram. Þá er formlegri leit að skipverj- unum sem saknað er af Ófeigi VE lokið. Björgunarsveitir frá Álftaveri, Kirkjubæjarklaustri og Vík í Mýrdal leituðu á laugardag og sunnudag frá Skaftárósum að Reynisfjalli. Einnig var leitað úr lofti frá Holtsósi undir Eyjafjöllum austur að Skaftárósum. Þrjátíu björgunarsveitarmenn á fjórum jeppum og tveimur fjórhjól- um tóku þátt í leitinni. Bændur á svæðinu verða hins vegar beðnir að vera með eftirgrennslan á fjörum. Skipulagðri leit hætt á Snæ- fellsnesi TALIÐ er nær öruggt að kveikt hafi verið í leikskólanum Kirkjubóli við Kirkjulund í Garðabæ á sunnudagskvöld. Af hálfu lögreglu er kapp lagt á að finna þann eða þá sem voru að verki. Eldurinn kom upp í lofttúðu bak við leikskólabygginguna á tíunda tímanum á sunnudags- kvöld og uppgötvaðist er starfsmaður leikskólans átti leið hjá. Slökkvilið höfuðborg- arsvæðisins var kvatt á vett- vang og réð niðurlögum elds- ins. Nokkrar skemmdir hlutust af eldsvoðanum og var leikskól- inn lokaður í gær vegna þrifa og loftræstingar. Sterkur grunur um íkveikju í leikskóla
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.