Morgunblaðið - 21.12.2001, Side 4

Morgunblaðið - 21.12.2001, Side 4
Fjármálaráðu- neytið, Ríkisbók- hald og Ríkiskaup FULLTRÚAR fjármálaráðu- neytisins, Ríkisbókhalds og Ríkiskaupa áttu fund saman í gær til að fjalla um álit kæru- nefndar útboðsmála um fram- kvæmd útboðs á nýjum fjár- hagskerfum fyrir ríkissjóð og stofnanir hans sl. sumar. Fjár- málaráðuneytið var verkkaupi, Ríkisbókhald hafði umsjón með útboðinu og Ríkiskaup framkvæmdi útboðið. Kæru- nefndin komst að þeirri niður- stöðu að Ríkiskaup hafi bakað sér skaðabótaskyldu gagnvart Nýherja hf., sem kærði útboð- ið, og nokkrir vankantar verið á framkvæmd útboðsins. Rík- iskaup tóku lægsta tilboði upp á 800 milljónir, sem kom frá Skýrr, og var það 360 milljón- um kr. lægra en frá Nýherja. Baldur Guðlaugsson, ráðu- neytisstjóri í fjármálaráðu- neytinu, sagði við Morgunblað- ið að á fundinum í gær hefði komið fram að menn væru ósammála úrskurði kæru- nefndar og forsendum hans. Eftir væri að taka ákvarðanir um frekari viðbrögð og lög- fræðingar ráðuneytisins myndu fara rækilega yfir álit kærunefndarinnar og rök- stuðning fyrir úrskurðinum, sem reyndar er ekki talinn bindandi að því er skaðabóta- skylduna varðar. Kærunefnd útboðsmála, sem starfar sjálfstætt og er æðsta úrskurðarvald á stjórn- sýslustigi, heyrði áður undir fjármálaráðherra. Úrskurðum hennar er ekki hægt að áfrýja nema að fara með málið til dómstóla. Baldur sagði engar ákvarðanir liggja fyrir. Hagstæðasta boði tekið Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa, sagðist í samtali við Morgunblaðið vera ósáttur við niðurstöðu kærunefndar- innar, hún hefði komið sér á óvart. Ríkiskaup hefðu að hans mati ekki vanrækt útboðs- skyldu sína og hagstæðasta til- boðinu hefði verið tekið. „Það var talsverður munur á tilboðunum, enda segir nefndin það vafa undirorpið að hag- stæðasta boðinu hafi verið tek- ið. Þar er ekki talað um neina vissu, sem er sérkennileg framsetning,“ sagði Júlíus. Ósammála niðurstöðu kæru- nefndar FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Opið til 22.00 www.kringlan.is upplýsingasími 588 7788 skrifstofusími 568 9200 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S K R I 16 21 2 12 /2 00 1 Jólasveinn dagsins kemur kl. 17.00 GUÐRÚN Olga Stefánsdóttir og Ey- þór Örn Jónsson útskrifuðust með láði frá Menntaskólanum við Hamrahlíð í gær. Þau Guðrún og Eyþór hlutu sömu lokaeinkunn, 9,5, og eru dúxar skólans. Framúrskar- andi námsárangur er ekki það eina sem sker þau úr útskriftarhópnum heldur eru þau bæði að útskrifast eftir þriggja og hálfs árs nám, eða einni önn fyrir áætlaða útskrift. Guðrún Olga sem er rétt orðin 18 ára var yngsti nýstúdentinn sem út- skrifaður var í gær. Hún braut- skráðist með fjölda aukaeininga og hefði í raun getað lokið námi við skólann síðast liðið vor, en ákvað að vera önn lengur þar sem henni þótti „hálfundarlegt að vera bara sautján ára útskrifuð úr menntaskóla og skemmtilegra að taka aðeins fleiri valáfanga,“ eins og hún segir sjálf. Spurð hver sé lykillinn að svo góð- um námsárangri vill hún sem minnst segja en svarar svo af hóg- værð að það skipti máli að vera sam- viskusamur og duglegur og sýna náminu áhuga. Guðrún Olga hefur auk námsins verið í forystusveit félagslífs skól- ans, sat í nemendastjórn og hefur sungið með skólakórnum. Utan menntaskólans hefur hún lagt stund á blokkflautuleik í tónlistarskóla Reykjavíkur, „og svo er ég líka með kærasta“. Þrátt fyrir tímafreka tónlistar- iðkun og kærastann hefur henni sóst námið framúrskarandi vel og útskrifaðist af tveimur brautum, bæði af náttúrufræði- og eðl- isfræðibraut með töluvert af um- frameiningum. Raungreinar liggja vel við Guðrúnu og hlaut hún við- urkenningu fyrir góðan árangur í stærðfræði í útskriftarathöfninni og verðlaun fyrir framúrskarandi ár- angur í náttúrufræði. Íslensk tunga er henni líka ástfólgin og fékk hún þriðju verðlaun sín fyrir góðan ár- angur í íslensku. Guðrún Olga segist stefna á raungreinanám í framtíð- inni en enn sé ekki fullákveðið hvaða fag verði fyrir valinu. Sundkappi og björgunar- sveitarmaður Eyþór, sem útskrifaðist af eðl- isfræðibraut, hlaut einnig verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í stærðfræði og efnafræði. Við út- skriftina minntist rektor skólans, Lárus H. Bjarnason, á raun- greinaeinkunnir Eyþórs, en í gegn- um alla skólagönguna hafa ein- tómar tíur sést í raungreinum á einkunnaspjaldinu utan einu sinni því í fyrsta efnafræðiáfanganum fékk hann 9 „og ákvað að taka mig á eftir það,“ segir Eyþór aðspurður um árangurinn. Hann þakkar góðri skipulagningu námsárangur sinn og segist í raun aldrei hafa lært með háar einkunnir að markmiði heldur hafi fróðleiksfýsnin ráðið för. „Ég hef yfirleitt bara lært fyrir sjálfan mig, til þess að kunna en ekkert ver- ið að spá í tölurnar,“ segir Egill. Líkt og Guðrún Olga er Egill stór- tækur utan veggja skólans þar sem hann æfði sund af kappi. „Já, ég hef nú haft sitthvað fleira að gera en læra og nú er ég kominn á kaf í björgunarsveitarstarf,“ segir Egill. Aðspurður um framtíðaráætlanir segist hann enn ekki hafa tekið ákvörðun um hvaða nám verði fyrir valinu en hann hyggst hefja há- skólanám næsta haust. Morgunblaðið/Sverrir Guðrún Olga Stefánsdóttir og Eyþór Örn Jónsson eru dúxar Menntaskólans við Hamrahlíð. Framúr- skarandi námsár- angur ný- stúdenta Dúxar Mennta- skólans við Hamrahlíð SAMBANDI íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambandi Íslands tókst ekki í gær að leysa ágreining sem risið hefur um forsendur kjara- samnings tónlistarskólakennara. Engu að síður hefur í dag verið boð- aður fundur í launanefndinni þar sem kjarasamningurinn verður tek- inn til umfjöllunar. Hugsanlega verða greidd atkvæði um hann á fundinum. Tónlistarskólakennarar sam- þykktu um miðjan desember kjara- samning sem þeir gerðu við launa- nefnd sveitarfélaganna eftir mánaðarlangt verkfall. Launanefnd- in hefur hins vegar ekki enn greitt atkvæði um samninginn og verkfall- inu hefur formlega ekki verið aflýst, en því var frestað til 4. janúar. Eftir að launanefndinni barst vitneskja um að lögmaður KÍ hefði unnið greinargerð um forsendur kjarasamnings grunnskólakennara, þar sem segir að einstaklingsbundin ráðningarkjör verði ekki afnumin með gerð kjarasamnings, ákvað hún að fresta afgreiðslu samningsins. Nefndin taldi að með greinargerð lögmannsins hefði skapast það mik- ill vafi um hvort ákvæði kjarasamn- ingsins, um að allar viðbótar- greiðslur féllu niður með nýja samningnum, að ekki væri forsvar- anlegt að samþykkja hann að óat- huguðu máli. Sigurður Óli Kolbeinsson, lög- fræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga, sagði í gær að ekki hefði tekist að leysa málið þrátt fyr- ir ítarlega yfirlegu. Hins vegar hefði málið verið leyst gagnvart tónlistar- skólakennurum á Akureyri og Akra- nesi, en þeir sömdu sér. Tónlistar- skólakennarar á Akureyri gætu valið um að halda sínum viðbótar- kjörum að viðbættri almennri pró- sentuhækkun eða að taka laun eftir nýju launakerfi í samræmi við ákvæði kjarasamningsins. Hann sagði að Félag tónlistarskólakenn- ara hefði hafnað þessari leið. Ágreiningur um forsendur samnings tónlistarskólakennara óleystur Fundur boðaður í launa- nefnd sveitarfélaga TUTTUGU og eins árs maður, sem losnar úr gæsluvarðhaldi í dag, hefur játað að hafa stjakað við manni sem féll í kjölfarið fram af svölum á ann- arri hæð fjölbýlishúss við Yrsufell aðfaranótt sunnudags. Maðurinn höfuðkúpubrotnaði við fallið og var um tíma haldið sofandi í öndunarvél. Vafi leikur á því hvort um ásetning eða óviljaverknað hafi verið að ræða en vitni að atburðinum hafa staðfest að komið hafi til átaka milli mann- anna á svölunum sem lauk með fyrr- greindum hætti. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu hefur maðurinn játað að hafa, eftir nokkrar stympingar, stjakað við manninum sem féll í kjölfarið fram af svölunum. Maðurinn segist á hinn bóginn ekki hafa ætlað að hrinda honum fram af svölunum. Tveir menn handteknir Íbúar í húsinu höfðu tilkynnt lög- reglu um háreysti en þegar lögreglu bar að hafði maðurinn fallið af svöl- unum og lá á steinsteyptri stétt, um 4–5 metra fyrir neðan svalirnar. Hörður Jóhannesson yfirlögreglu- þjónn sagði ekki tímabært að svara því hvort maðurinn yrði kærður fyrir að hafa hrint manninum viljandi eða fyrir gáleysi. Maðurinn, sem losnar úr haldi í dag, var handtekinn á sunnudag ásamt manni um þrítugt sem var sleppt að loknum yfirheyrslum. Lög- reglan fór fram á gæsluvarðhald fram til 28. desember nk. en dómurin taldi féllst einungis á gæsluvarðhald til 21. desember á grundvelli rann- sóknarhagsmuna. Óvíst að um ásetning hafi verið að ræða Játar að hafa stjakað við manni sem féll fram af svölum íbúðar við Yrsufell

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.