Morgunblaðið - 21.12.2001, Síða 15

Morgunblaðið - 21.12.2001, Síða 15
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2001 15 SKIPSTJÓRA- OG STÝRIMANNAFÉLAG NORÐLENDINGA FUNDARBOÐ Félagsmenn Skipstjóra- og stýrimannafélags Norðlendinga! Munið aðalfundinn í Skipagötu 14, 4. hæð, (Fiðlaranum), föstudaginn 28. desember 2001, sem hefst kl. 14:00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Í fundarlok verður kynning Radíómiðunar hf. á nýjungum í tækjum og hugbúnaði. Stjórn Skipstjóra- og stýrimannafélags Norðlendinga BÖRN í grunnskólum hafa síðustu daga haldið svonefnd litlu jól í skól- unum og þar eru börnin í Brekku- skóla á Akureyri engin undantekn- ing. Að þessu sinni var bryddað upp á þeirri nýjung að öll börnin, um 550 talsins, hittust í Íþróttahöllinni þar sem þau gengu kringum jólatré. Jólasveinar komu í heimsókn, börnunum, einkum þeim yngri, til ómældrar ánægju, en sam- verustundinni lauk með því að öll börnin sungu saman „Heims um ból“. Morgunblaðið/Kristján Jólasveinarnir létu sig ekki vanta á jólaball Brekkuskóla. Litlu jólin í Brekkuskóla ALLS bárust 47 umsóknir um starf verkefnastjóra kynningar- og upp- lýsingamála hjá Akureyrarbæ en umsóknarfrestur rann út nýlega. Um er að ræða nýtt starf á þjón- ustusviði, sem greinilega er mikill áhugi fyrir. Umsækjendur um stöðuna eru þessir: Anna Hildur Hildibrands- dóttir, Bretlandi, Atli Freyr Sæv- arsson, Reykjavík, Árni Árnason, Bretlandi, Áslaug Magnúsdóttir, Akureyri, Ásta Ásmundsdóttir, Ak- ureyri, Björn Sigurður Lárusson, Akranesi, Einar Björn Erlingsson, Reykjavík, Eiríkur Bj. Björgvins- son, Akureyri, Eygló Þóra Harð- ardóttir, Reykjavík, Eyjólfur Kol- beinn Eyjólfsson, Reykjavík, Fjóla Stefansdóttir, Danmörku, Gestur Einar Jónasson, Akureyri, Guðrún Hulda Eyþórsdóttir, Kópavogi, Gunnvör Karlsdóttir, Akureyri, Gunnþóra Kristín Ingvadóttir, Ak- ureyri, Halldór Arinbjarnarson, Akureyri, Halldór Bachmann Reykjavík, Haraldur Ingólfsson, Akureyri, Heiðar Ingi Svansson, Kópavogi, Inga Huld Sigurðardótt- ir, Skotlandi, Ingunn Bjarnadóttir, Sauðárkróki, Jóhann Jónsson, Hrísey, Jón Halldór Guðmundsson, Garðabæ, Jón Heiðar Rúnarsson, Akureyri, Jón Heiðar Þorsteinsson, Reykjavík, Kjartan Emil Sigurðs- son, Bretlandi, Kristín Sóley Björnsdóttir, Svíþjóð, Kristján J. Kristjánsson, Akureyri, Kristrún Lind Birgisdóttir, Hafnarfirði, Magnús Gehringer Akureyri, María Rúnarsdóttir, Reykjavík, Ómar Kristinsson, Akureyri, Ottó Biering Ottósson, Akureyri, Óskar Sigurðsson, Kópavogi, Óttar Gaut- ur Erlingsson, Akureyri, Pétur Arnar Pétursson, Blönduósi, Ragn- ar Hólm Ragnarsson, Reykjavík, Sigrún Björk Jakobsdóttir, Akur- eyri, Sigrún Inga Hansen Akureyri, Sigurbjörn Rafn Úlfarsson, Bessa- staðahreppi, Sigurður Bjarki Magnússon, Bandaríkjunum, Val- dís Björk Þorsteinsdóttir, Akur- eyri, Valdís Viðarsdóttir, Akureyri, Vilhjálmur Árnason, Reykjavík, Þorbjörg Jóhannsdóttir, Akureyri, Þórhallur V. Einarsson, Akureyri, Ægir Dagsson, Akureyri. Verkefnastjóri kynningar- og upplýsingamála hjá Akureyrarbæ 47 umsóknir um stöðuna NÝVERIÐ var ýtt úr vör verkefni á frystitogurum Samherja sem geng- ur út á að hirða alla þorskhausa sem til falla við vinnsluna. Þeir eru frystir um borð og þegar í land er komið fara þeir til vinnslu í hausaþurrkun félagsins á Hjalteyri og Dalvík. Einnig hafa hausarnir verið fluttir út frosnir. Birgir Össurason, sölu- og mark- aðsstjóri Samherja, sagði menn líta á þetta sem stórt skref í þá átt að full- nýta aflann á togurunum. Þá skapist með þessu meiri vinna í hausaþurrk- uninni og aukin verðmæti. Birgir leggur áherslu á að nokkurn tíma geti tekið að þreifa sig áfram með heppilegasta fyrirkomulagið, t.d. varðandi geymslu á hausunum um borð og fleira í þeim dúr. Verulegt magn Um verulegt magn er að ræða og mikilvægt upp á framhaldið að vel takist til þannig að verkefnið reynist arðbært. Birgir sagði sjávarútvegsfyrir- tæki á borð við Samherja eiga allt undir því að auðlindin gefi sem mest af sér og að gengið sé um hana með skynsamlegum hætti. Innan Sam- herja sé jafnan kappkostað að ryðja brautina með nýjungar og framþró- un innan sjávarútvegsins og sé litið á þetta verkefni sem lið í því. Birgir sagði einnig að fleiri fyrir- tæki væru með svipuð verkefni í gangi. Þetta kemur fram á heima- síðu Samherja. Verkefni á frystitogurum Samherja ýtt úr vör Togarar komi með alla þorskhausa að landi FÉLAGSMÁLARÁÐ Akureyrar hefur veitt Kvennasambandi Ak- ureyrar viðurkenningarvott fyrir fórnfúst starf í þágu þeirra sem minna mega sín. Oktavía Jóhannesdóttir, formað- ur félagsmálaráðs, sagði að sú hefð hefði skapast að ráðið veitti fé- lagasamtökum eða einstaklingum viðurkenningu fyrir gott starf að félagsmálum og að þessu sinni hefði verið ákveðið að veita Kvenna- sambandi Akureyrar viðurkenn- inguna. „Okkur þykir mikið til þess koma hvað þið eruð reiðubúnar að leggja mikið á ykkur fyrir bæj- arfélagið og íbúa þess,“ sagði Okt- avía við kvenfélagskonur, sem hún sagði brautryðjendur í mann- úðarmálum og líknarstarfi. Morgunblaðið/Kristján Oktavía Jóhannesdóttir, formaður félagsmálaráðs, t.v., ásamt fulltrúum Kvennasambands Akureyrar, Halldóru Stefánsdóttur, Guðrúnu Sigurð- ardóttur og Þórunni Sigurbjörnsdóttur. Kvennasambandið fær viðurkenningu GUNNAR Ragnars fyrrverandi for- stjóri Útgerðarfélags Akureyringa hf. hefur verið ráðinn fjármálastjóri Íþróttabandalags Akureyrar. Gunn- ar var í hópi 6 umsækjenda. Gunnar þekkir vel innviði ÍBA en hann var formaður bandalagsins í fimm ár, fram til ársins 1994. Markmiðið með ráðningu fjár- málastjóra ÍBA er m.a. að auka eft- irlit með fjármálum íþróttafélaganna á Akureyri og veita þeim fjárhags- lega ráðgjöf vegna reksturs alls starfs íþróttahreyfingarinnar í bæn- um. Eins og fram hefur komið hafa stóru íþróttafélögin í bænum, KA, Þór og Golfklúbbur Akureyrar, átt í fjárhagsvandræðum og þurfti bær- inn að koma þar að málum. Fjármálastjóri ÍBA Gunnar Ragn- ars ráðinn STUTT helgistund verður í Akur- eyrarkirkju kl. 11 að morgni Þor- káksmessu. Sigrún Arna Arngríms- dóttir messósópran syngur Sekvensíu úr Þorlákstíðum og stendur fyrir almennum söng. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið. Akureyrarkirkja Helgistund á Þorláksmessu STJÓRN Norðurorku samþykkti á fundi sínum í vikunni að leggja til við bæjarstjórn Akureyrar, að hún taki afstöðu til þess að Norðurorku verði breytt í hlutafélag. Jafnframt var forstjóra fyrirtækisins falið að hefja nú þegar vinnu að væntanlegri breytingu á rekstrarformi fyrirtæk- isins og er stefnt að því að ljúka þeirri vinnu innan þriggja mánaða. Norðurorka varð til við samein- ingu Rafveitu Akureyrar og Hita- og vatnsveitu Akureyrar. Þá samþykkti stjórn Norðurorku tillögu forstjóra um að honum verði falið ásamt for- manni stjórnar að ræða við Sigurð J. Sigurðsson forseta bæjarstjórnar Akureyrar um starf deildarstjóra fjármáladeildar Norðurorku en Sig- urður var einn 27 umsækjenda um stöðuna. Fjárhagsáætlun Norðurorku fyrir næsta ár var einnig lögð fram og samþykkt í stjórn fyrirtækisins í vik- unni. Þar kemur m.a. fram að rekstr- artekjur eru áætlaðar rúmar 1.200 milljónir króna og rekstrargjöld rúmar 1.150 milljónir króna. Norðurorku verði breytt í hlutafélag NÚ á aðventunni kom níræð kona í heimsókn til prófastsins í Laufási og færði Laufáskirkju að gjöf 50 nýjar sálmabækur. Andvirði þessarar gjaf- ar er um 100 þúsund krónur. Þessi gafmilda kona heitir Bryn- hildur Björnsdóttir, frá Pálsgerði í Grýtubakkahreppi, nú til heimilis í Norðurgötu 34 á Akureyri. Brynhildur hefur alltaf borið hlýj- an hug til Laufáskirkju, sem var hennar sóknarkirkja í bernsku. Brynhildur varð níræð 22. júlí sl. og býr ein og sér um sig sjálf. Hún missti mann sinn, Ingjald Pétursson, árið 1961. Gjöf Brynhildar til Laufáskirkju er minningargjöf um foreldra hennar, hjónin Björn Árnason (1882–1967) og Guðrúnu Sumarrós Sölvadóttur (1878–1963). Björn og kona hans tóku við búi í Pálsgerði árið 1909 og bjuggu þar í 24 ár. Þau eignuðust fimm börn. Björn var organisti í Laufáskirkju um ára- bil og var einnig lengi í sóknarnefnd. Laufáskirkju færðar sálmabækur að gjöf♦ ♦ ♦
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.