Morgunblaðið - 23.12.2001, Blaðsíða 34
Jólagáta...
– Hvaða leik vilja allir ungir sem aldnir taka þátt í?
– Kærleiknum.
ÉG SJÁLF heitir ný plata söng-
stelpunnar Jóhönnu Guðrúnar,
sem gaf út diskinn 9 fyrir ári.
Og það er ekki að spyrja að
því, diskurinn hefur nú selst í
meira en 5 þúsund eintökum og
Jóhanna Guðrún hefur tekið við
gullplötu fyrir það. En fyrri plat-
an hennar seldist í meira en 10
þúsund eintökum.
Fjögur frumsamin lög
„Þessi plata er svolítið svipuð
plötunni í fyrra en alls ekki eins.
Við María Björk völdum lögin
saman og svo eru fjögur fram-
samin lög eftir Einar Bárðarson,
Magnús Þór Sigmundsson og
Þorvald Bjarna Þorvaldsson.
Þetta eru mjög góð lög, og mér
finnst spennandi að syngja lög
sem voru samin fyrir mig.“
– Fannst þér erfiðara að
syngja þau en lög sem þú hafðir
þegar heyrt?
„Nei, eiginlega ekki. En ég
þarf samt að pæla í hvernig ég
syng lagið, en það er ekkert erf-
iðara að læra þau.“
Vön að fá athygli
– Hefurðu verið að syngja
mikið undanfarið?
„Já, ég syng mest lög af nýju
plötunni og kannski einhver jóla-
lög yfir jólin. Ég kem mest fram í
Kringlunni og Smáralind, ég
syng svo á Lions-hátíð eins og ég
hef gert síðan ég var lítil. Afi
minn er í Lions. Ég tek svo þátt í
tónleikum til styrktar krabba-
meinssjúkum börnum 30. des-
ember.“
– Hvernig gengur að höndla
frægðina?
„Bara vel,“ segir Jóhanna
Guðrún og ypptir öxlum kæru-
leysislega. „Ég er ekki neitt að
æsa mig yfir þessu. Ég er bara…
ég sjálf!“ segir hún og hlær að
orðaleiknum.
– Koma krakkar að tala við þig
úti á götu?
„Já, það gerist stundum. Þá
reynir maður bara að vera al-
mennilegur.“
– Það er ekkert erfitt að fá
stöðuga athygli?
„Nei, nei, mér er alveg sama,
ég er ekkert að spá í það. Ég hef
alltaf fengið mikla athygli. Þegar
ég var lítil var ég alltaf að syngja
á böllum og í afmælum. Þannig
að ég er orðin vön því.“
Jóhanna Guðrún er búin að
kaupa sér hljómborð og ætlar að
prófa að semja lög sjálf.
– Hefuðu lært á píanó?
„Ég lærði einu sinni á píanó,
en ég er að spá í að byrja aftur að
læra, svo ég geti farið að semja
lög.“
– Stefnirðu á að vera með eitt
lag eftir þig á næstu plötu?
„Ég veit það nú ekki. Maður
veit ekkert hversu flott þetta
verður hjá manni. Kannski er ég
ekkert góð í þessu. Ég hugsa að
það verði ekki lag eftir mig á
næstu plötu.“
– Eitthvað að lokum?
„Gleðileg jól, allir!“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jóhanna Guðrún er ánægð með nýja diskinn sinn.
ÞAÐ er fallega gert af jólasveinunum að
fara með litlu systur sína á sleða. En það
er svoddan gassagangur í strákunum að
stelpuskottið flýgur af sleðanum á
fleygiferð og fer að hágráta. En af hvað
sleða datt hún? Getur þú rakið slóðina?
Lausn á næstu síðu.
Sleðaferð
1) Hvað heitir minnsti jólaveinninn?
2) Hvað heitir pabbi jólasveinanna?
3) Hvert fara þeir sem ekki fá ný jólaföt?
4) Hvaða jólasveinn kemur á aðfangadag?
5) Hvaða kæsta fisk borða flestir bara á Þorláks-
messu?
6) Hvaða tveir drykkir mynda jólaöl?
7) Hvaðan af landinu er laufabrauðið upprunnið?
8) Hvar fæddist Jesús?
9) Hvað fékk Jesús í gjöf frá vitringunum?
10) Við hvað starfaði uppeldisfaðir Jesú?
11) Klukkan hvað hefjast jól á aðfangadag?
12) Hvenær er seinasti dagur jóla?
13) Hvenær eru álfabrennur haldnar?
14) Hvar í Biblíunni er jólaguðspjallið er hefst svona:
En það bar til um þessar mundir...?
Gleðileg jól!
1) Stúfur. 2) Leppalúði. 3) Í jólaköttinn. 4) Kertasníkir. 5) Skötu.
6) Malt og appelsín. 7) Norðurlandi. 8) Í fjárhúsi í Betlehem.
9) Gull, reykelsi og mirru. 10) Hann var smiður. 11) Kl. 18. 12)
6. janúar. 13) Á þrettándanum, þann 6. janúar. 14) Í 2. kafla
Lúkasarguðspjalls.
Hvað veist þú?
Jólaspurn-
ingar – fyrir
jólakrakka
LÁKI og mamma sitja inni í eld-
húsi, og eru að fá sér jólasmákök-
ur og kaffisopa. Láki er reyndar
að drekka mjólk en stelst til að fá
sér sopa af kaffinu hennar
mömmu þegar hún sér ekki til.
„Mamma, pæld’íðí ef fullt af
fólki í öllum heiminum myndi
halda upp á afmælið mitt, næstum
2000 árum eftir að ég væri dáinn,“
segir Láki hugsi.
„Ég efast nú um að það verði,“
segir mamma og brosir að Láka.
„Ég gæti nú kannski orðið
næsti Messías!“ svarar hann
móðgaður.
„Ég efast nú um það,“ segir
mamma aftur og minnir hann á að
Jesús hefði áreiðanlega aldrei tal-
að með fullan munninn einsog
Láki var einmitt að gera.
„Ókei, ókei. En af hverju að
kalla þetta jól? Hvað þýðir eigin-
lega jól?“
„Jól? Það er eldgamalt orð held
ég. Já, alveg rétt, jól er miklu
eldra orð en jólin.“
„Eru jólin eldri en jólin?
Mamma! Ert’ ekki í lagi?“
„Jú! Sko, áður en kristnin kom
til var hátíð haldin á þessum tíma
árs og kölluð jól. Þetta var ein-
hverskonar sólrisuhátíð, en stysti
sólardagurinn er að mig minnir
21. desember.“
„Í alvöru?“ spyr Láki hissa.
„Já, og svo voru jólin teygð
fram í janúar svo enginn færi að
blóta að heiðnum sið, eins og van-
inn var á þeim tíma árs.“
„Þannig að ásatrúarmenn
héldu líka jól …,“ Láki hikar og
hnyklar brýnnar. „… eða þannig.
Þetta er soldið flókið.“
„Já, jólin voru helguð þeim guði
sem skóp ljósið. Jól þýðir víst
óljós.“
„Er það? Sjáðu, hversu lítið ljós
er einmitt úti núna,“ segir Láki
klóki og fær sér sopa af kaffi þeg-
ar mamma lítur út um gluggann.
„Já,“ segir mamma hugsi.
„Fyrst þreif fólk allt hjá sér, allt
átti að vera sem nýtt, það gaf
hvert öðru gjafir og hélt svo veislu
þar sem það át svín, og heiðraði
þannig Gullinbursta, göltinn hans
Freys.“
„Það er nú bara næstum alveg
eins og kristin jól!“ segir Láki, dá-
lítið hneykslaður.
„Já,“ segir mamma, „það er
satt. En það var engin Þorláks-
messa þá,“ segir mamma og
blikkar Láka sinn.
„Nei, ekki fyrr en ég, Þorlákur
Magnússon, fæddist,“ segir Láki
montinn og ber sér á bringu.
„Þú ert kannski Þorlákur elsk-
an mín, en þú ert sko enginn dýr-
lingur,“ segir mamma og dæsir.
„Má ég ráða hvað verður í mat-
inn á messunni minni?“ spyr Láki
og lítur mömmu bænaraugum.
„Ég efast nú um það,“ segir
mamma og stendur upp og stynur
um leið. Láki stelst í kaffið hennar
sem er orðið kalt.
„Og þó, aldrei að vita,“ segir
mamma og snýr sér að Láka sem
er að gretta sig yfir kaffisopanum.
Láki brosir vandræðalega.
„Nei, annars, kaffikarl. Þú færð
skötu. Vel kæsta skötu vinur
minn,“ segir mamma sigri hrós-
andi.
„Alltaf jafn heppinn!“ tuðar
Láki fúll.
Saga jólanna
Eru jólin eldri
en jólin?
Morgunblaðið/Jim Smart
Það er nóg að gera við að árita nýja diskinn.
„Ég er…
bara ég sjálf!“
Jóhanna Guðrún er með nýjan disk fyrir jólin