Morgunblaðið - 23.12.2001, Blaðsíða 36
Nútímaþjóðsaga úr
íslensku sjávarþorpi
Í faðmi hafsins
frumsýnd á
Vestfjörðum
annan í jólum
ÞAÐ kemur ekki á óvart að enginn
annar en bandaríski stórleikarinn
Robert De Nirovarð hlutskarpastur í
kosningum um 100 bestu kvik-
myndaleikara allra tíma. Þetta var
niðurstaða 13.500 notenda bresku
kvikmyndasjónvarpsstöðvarinnar
Film Four í könnun sem lauk í vik-
unni. Annar eftirlætisleikari bíó-
gesta, Al Pacino, hreppti annað
sætið. Heiðurskarlarnir Kevin Spacey og Jack
Nicholson höfnuðu síðan í þriðja og fjórða heið-
urssætinu. Karlleikarar voru yfirgnæfandi og röð-
uðu sér í 22 efstu sætin! Þá var loks komið að Jo-
die Foster að halda uppi heiðri kynsystra sinna.
De Niro á toppinn
Robert De
Niro: Efstur
af hundrað.
ÞESSI harðsnúni hópur valdi
um síðustu helgi það sem hann
taldi framúrskarandi í kvikmynda-
heiminum á árinu sem er að ljúka.
Mullholland Drive, nýjasta mynd
David Lynch, var kjörin sú besta;
Robert Altman, sem skaut upp
kollinum með Gosford Park, bún-
ingamynd frá fjórða áratugnum,
hlaut leikstjórnarverðlaunin.
Sissy Spacek og Tom Wilkinson
voru tilnefnd bestu leikararnir fyr-
ir frammistöðu sína í In the Bedroom, og virðast
eiga vísar Óskarsverðlaunatilnefningar, a.m.k. Góð-
vinur allra kvikmyndaunnenda, Steve Buscemi, var
kjörinn besti aukaleikarinn í Ghost World. Hin kín-
verska In the Mood for Love var kjörin besta er-
lenda mynd ársins. Að endingu hlaut Waking Life,
hin rómaða mynd Richards Linklater, verðlaun
sem besta teiknimyndin árið 2001.
Val samtaka gagnrýnenda
New York-borgar
David Lynch:
Mulholland
Drive sú
besta.
LEIKSTJÓRINN Steven
Soderbergh (Traffic, Ocean’s
Eleven) og leikarinn George
Clooney hafa gert nokkurra
mynda samning við stór-
veldið Warner Bros. Þessir
aðilar hafa keypt réttinn á
See No Evil: The True Story
of a Foot Soldier, minningum
spæjarans Roberts Baer.
Bókin, sem kemur út í febr-
úar, fjallar um hvernig banda-
ríska leyniþjónustan, CIA, missti tökin í lönd-
unum fyrir botni Miðjarðarhafs eftir lok kalda
stríðsins með þeim skelfilegu afleiðingum að
skæruliðahópar og öfgamenn múslima náðu að
fjölga sér og heimurinn sýpur nú seyðið af.
Soderbergh, Clooney og CIA
George Clooney:
Þeir Soderbergh
gera mynd um
ástandið í Mið-
austurlöndum.
KVIKMYNDAVERIÐ 20th
Century Fox hefur tryggt sér
sýningarhelgina 2. maí 2003
til að frumsýna framhalds-
mynd X-Men, sem heitir ein-
faldlega X-Men 2. Sem verð-
ur til þess að hin nýja mynd
Bryans Singers fær þriggja vikna forskot áður
en hinn opinberi tími sumarmyndanna hefst.
Hann er að jafnaði miðaður við Memorial Day,
sem er síðasti mánudagur í maí. Þá þegar byrja
fleiri hákarlar að svamla í miðasölupottinum;
Matrix 2, Terminator 3 og Matrix 3 kemur á
markaðinn í nóvember á því herrans ári ’03.
X-menn 2
X-Men: Allir
komu þeir aftur...
SNEMMA á
næsta ári verður
frumsýnd hér-
lendis kvikmynd
eftir stórdramanu
The Shipping
News, sem bóka-
menn bíða örugg-
lega með óþreyju.
Byggð á víðlesinni
og vel skrifaðri
Pulitzerverð-
launaðri skáldsögu E. Annie Proulx,
stjórnað af Lasse Hallström og
leikaralistinn er magnaður: Kevin
Spacey leikur Quoyle, blaðamann í
tilvistarkreppu, sem snýr aftur til
heimabæjar síns á Nýfundnalandi
ásamt dætrum sínum ungum. Það
gerist í kjölfar hræðilegra atburða
sem snerta stúlkurnar og móðir
þeirra (Cate Blanchett) var ábyrg
fyrir. Quoyle hefur ekki vegnað vel
en dálkur hans, Shipping News, sem
birtist í bæjarblaðinu, nær vinsæld-
um og ýmsir atburðir í samfélaginu
snúast honum í hag. Julianne
Moore, lafði Judi Dench, Rhys If-
ans, Pete Postlethwaite og Scott
Glenn (sem ritstjóri blaðsins) fara
með önnur helstu hlutverk í mynd-
inni, sem naut ríflegrar fjárhags-
áætlunar.
Skipafréttir
með stórstjörnum
Kevin Spacey:
Blaðamaður í
tilvistarkreppu.
UM þessar mundir eru verð-
launaveitingar gagnrýnenda að
byrja að skjóta upp kollinum,
þær gefa jafnan nokkrar ábend-
ingar um verðandi Óskarstil-
nefningar. Kvikmyndagagnrýn-
endur kvikmyndaborgarinnar
Los Angeles tilkynntu um
helgina val sitt fyrir bestu afrekin á yfirstandandi
ári. Besta mynd ársins 2001 var kjörin In the Bedro-
om, fyrsta mynd leikstjórans Todds Field. Aðal-
leikkona myndarinnar, Sissy Spacek, var jafnframt
kjörin besta leikkonan. Hún og Tom Wilkinson (The
Full Monty) leika sorgbitin hjón eftir að sonur þeirra
er myrtur. David Lynch var kjörinn besti leikstjórinn
fyrir Mullholland Drive og Denzel Washington
besti leikarinn fyrir Training Day. Bestu leikararnir í
aukahlutverkum oru að áliti hópsins þau Jim
Broadbent (Moulin Rouge og Iris) og Kate Winslet
(Iris). Verðlaunin verða afhent 22. janúar.
Dómur gagnrýnenda
Tom Wilkinson og
Sissy Spacek í In
the Bedroom:
Sonarmorð.
UM ÞESSA mynd er lítiðvitað, enda Ísland fyrstalandið sem frumsýnir
fyrirbrigðið á almennum sýn-
ingum. Mér skilst að hún fari
beint á kapalstöðvarnar vestra.
Aðalástæðan fyrir því er
vafalaust leikhópurinn, sem er
hálfgerður haugamatur, ef mið-
að er við almennt mat á aðdrátt-
arafli hans, getu og vinsældum.
Það flögraði að manni sjálfs-
meðaumkun á leiðinni í Laug-
arásinn. Charlie Sheen? Út-
brunnin kóknös og
pabbadrengur, margbúinn að
brenna allar brýr að baki sér í
kvikmyndaheimi alvörunnar.
Dagar Platoon og Wall Street
löngu horfnir undir gúmmilaði á
borð við The Chase, Major
League 1 og 2, o.s.frv. Rosanna
Arquette? Átti einn versta leik
veraldarsögunnar í The Big
Blue, alvondri mynd Bessons, og
hefur samkvæmt eðlilegum lög-
málum framboðs og eft-
irspurnar tæpast sést síðan.
Denise Richards? Snoppufríðasti
undirmálsmaður leiklistarsög-
unnar, sem ofaná ófelanlegan
hæfileikaskort var fórnarlamb
nautheimskulegustu ráðningar í
kvikmyndum síðustu áratuga er
hún fékk hlutverk sprenglærðs
ofvita og vísindamanns í nýjustu
Bondklisjunni, The World is Not
Enough. Það hvarflar ekki að
heilvita manni að hræra slíka
naglasúpu saman.
Þvílíkar hugsanir flugu um
kollinn fyrir sýninguna. Þá gerð-
ist kraftaverkið. Reyndar hafði
ég uppgötvað einn ljósan punkt í
sögu Good Advice, sem er leik-
stjórinn Steve Rash. Fyrir margt
löngu galdraði hann fram The
Buddy Holly Story (’78), eft-
irminnilega gott byrjandaverk,
þar sem Gary Busey söng af hjart-
ans lyst That’ll Be the Day,
Peggy Sue, Oh Boy, og fleiri
Holly-standarda, af frábærri
kúnst í titilhlutverki einnar
bestu myndar sinnar tegundar.
Rash var ljósið í níðþungu
skammdegismyrkrinu og vænt-
ingaleysinu.
Skemmst er frá að segja að
fyrrgreindur hópur fer á kostum
og enginn er betri en fröken
Richards, enda leikur hún stúlku
sem er bimbó daginn út og inn...,
hlutverkið klæðskerasniðið að
snilligáfunni.
Slíkar myndir stinga af og til
upp kollinum. Ein sú minn-
isstæða er The Day When the
Fish Came Out. Hennar var beð-
ið með mikilli eftirvæntingu,
enda næsta verk gríska leik-
stjórans Michaels Cacoyannis eftir
klassíkina Zorba, sem er í há-
vegum höfð á þessu heimili. Því
miður brást Cacoyannis bogalistin
að flestra dómi. Fyrsta myndin
hans með stjörnuskara og skít-
nógum Hollywoodseðlum kolféll
um allan heim. Að því kom að
Dagurinn sem fiskurinn birtist
var sýnd í Nýja bíói höfuðborg-
arinnar og ég mættur á fyrstu
sýningu. Viti menn, sá sem þess-
ar línur skrifar skemmti sér kon-
unglega yfir, að flestra dómi,
ómarkvissri og gloppóttri ádeilu
á sofandahátt mannskepnunnar
gagnvart kjarnorkuvánni.
Myndin var einfaldlega drep-
fyndin á milli þess sem hún rann
útí góbíauðnir leiðinda og lág-
kúru mislukkaðrar ádeilu/satíru,
með Candice Bergen, af öllum kon-
um, í forustuhlutverkinu. Þess á
milli gneistaði hún af skopi, með
Sam Wanamaker, Colin Blakely og
ekki síst Tom Courteney, fjall-
hressa í ótrúlega fyndnum atrið-
um sem menn verða að sjá með
eigin augum til að trúa mér.
Vandinn er sá að myndin er illfá-
anleg, sem bendir ótvírætt til
þess að fáir aðrir hafi fundið
gimsteinana í sorpinu …
Sjaldgæfar sælustundir
Sjaldgæfustu sælustundir gagnrýn-
andans veita myndir sem koma
honum á óvart, skemmtilega á
óvart. Þær upplifði undirritaður
síðast á Good Advice, ósköp fyr-
irferðarlítilli gamanmynd sem
skaust nánast hljóðlaust í heiminn.
Good Advice: Kom þægilega á
óvart þegar einskis var von.
SJÓNARHORN
Sæbjörn Valdimarsson
„TÖKURNAR hér í Hamborg
hafa gengið rosalega vel, alveg
snurðulaust, nema hvað Keith
Carradine rifbeinsbrotnaði í einni
slagsmálasenunni,“ segir Friðrik
Þór Friðriksson, leikstjóri bíó-
myndarinnar Fálka, í samtali við
Morgunblaðið. „Þetta gerðist í at-
riði sem við tókum á einni búll-
unni hérna. Þar verða átök milli
Símons, sem hann leikur, og
nokkurra glæpona. Svona getur
farið þegar leikarar eins og Keith
vilja leika áhættuatriðin sjálfir en
ekki nota staðgengla. En hann er
harður af sér og engar tafir hafa
hlotist af.“
Fyrri hluti Fálka, sem Friðrik
Þór og Einar Kárason skrifa
handrit að, gerist á Íslandi og fóru
þær tökur fram í haust. Sá hluti sem
gerist í Þýskalandi hefur verið
kvikmyndaður nú í desember og átti
tökum að ljúka um helgina. „Fólk er
komið með heimþrá,“ segir Friðrik
Þór, sem að mestu notar íslenskt töku-
lið, auk norska tökumannsins Haralds
Pålgaard, „og við rétt náum heim til
Íslands áður en jólin ganga í garð.“
Annað aðalhlutverkið á móti
bandaríska leikaranum Keith Car-
radine, stúlkuna Dúu, leikur Margrét
Vilhjálmsdóttir. Stefnt er að frum-
sýningu í ágúst á næsta ári.
Þegar Morgunblaðið ræddi við
leikstjórann fyrir helgina stóðu tökur
yfir á vændishúsi í Hamborg en „eig-
andi þess var prestur í 13 ár“.
Meðframleiðandinn og leikstjórinn: Peter Rom-
mel, þýskur meðframleiðandi að mörgum
myndum Friðriks Þórs, ræðir við leikstjórann á
tökustað.
Fálki á Herbertstrasse: Margrét og Carradine arka með fálka-
búrið innanum drottningar næturinnar á gleðigötunni frægu í
Hamborg, þar sem leyfi fékkst með erfiðismunum til að kvik-
mynda.
Skerst í odda: Keith Carradine ræðst til atlögu við glæpagengi í Ham-
borg með fálkabúrið í annarri hendi, en í við tökur á þessu atriði rif-
beinsbrotnaði leikarinn.
Tökum lokið á Fálkum í Hamborg
Carradine rifbeinsbrotn-
aði í slagsmálaatriðinu
Gantast í tökuhléi: Margrét Vil-
hjálmsdóttir les í lófa Keiths Car-
radines en ekki er vitað hvort
hún sá gengi myndarinnar fyrir.
ENN hefur frumsýningu jólamynd-
ar verið frestað, því sænska myndin
Jalla! Jalla! verður ekki sýnd fyrr
en eftir áramót, eða 11. janúar.
Áður var sýningum á íslensku bíó-
myndinni Regínu frestað til 4. jan-
úar.
Og Jalla!
Jalla! frestað