Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ KAUPÞING hf. mun ekki fara út í hefðbundin bankaviðskipti þó að samþykkt hafi verið á hluthafafundi á fimmtudag að breyta samþykkt- um fyrirtækisins á þann veg að fá viðskiptabankaleyfi. Nafn félagsins eftir breytingu er Kaupþing banki hf. og mun það starfa samkvæmt lögum um viðskiptabanka og spari- sjóði. „Það er ekki hugmyndin að fara út í hefðbundin bankaviðskipti, það er smásöluviðskipti, en við- skiptabankaleyfið býður upp á það að taka á móti innlánsfé,“ segir Sig- urður Einarsson, forstjóri Kaup- þings. „Það hefur þó ekki endanlega verið ákveðið hvernig við snúum okkur í þeim efnum. Við rekum einnig Sparisjóð Kaupþings og hann getur í rauninni haft alla þá starfsemi sem hefðbundinn banki hefur. Samþykktin hefur það fyrst og fremst í för með sér að nú get- um við sinnt núverandi viðskipta- vinum okkar betur, þeir geta haft sín innlánsviðskipti hjá okkur ef þeir kjósa það. Við getum þjónustað fyrirtæki mun betur en hingað til, til dæmis með gjaldeyrisviðskipti. Það hefur verið frekar erfitt fyrir okkur að keppa á þeim vettvangi þar sem fyrirtækin hafa ekki getað haft reikninga hjá okkur, en með þessari samþykkt kemur það til með að breytast.“ Kaupþing hyggst ekki stunda hefðbundin bankaviðskipti Viðskiptavinir geta haft innláns- viðskipti sín þar kjósi þeir það ELDUR kom upp á þriðju hæð í fjölbýlishúsi við Heiðarholt í Keflavík í gærmorgun en tilkynnt var um eldinn til lögreglunnar í Keflavík laust fyrir klukkan sjö. Tvennt var í íbúðinni er eldsins varð vart. Eftir að hafa freistað þess að slökkva eldinn, sem kom líklegast upp í svefnherbergi íbúðarinnar, flúðu þau út á svalir. Slökkviliðsmönnum tókst að kom- ast inn í íbúðina og fylgja fólkinu út, en mikill reykur og hiti var í íbúðinni er slökkvilið kom á vett- vang. Íbúarnir voru fluttir á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja til læknisskoðunar, en voru útskrif- aðir þaðan stuttu síðar. Að sögn lögreglu kom eldurinn líklegast upp í svefnherbergi og grunur leikur á að eldsupptök megi rekja til logandi kertis. Íbú- arnir voru í öðru herbergi er þeir urðu eldsins varir. Búið var að reykræsta íbúðina fyrir hádegi í gær og að sögn lög- reglu er íbúðin mikið skemmd sökum reyks. Þá barst töluverður reykur fram í sameign hússins. Eldur kom upp í íbúð í fjölbýlishúsi í Keflavík snemma í gærmorgun Íbúar flúðu út á svalir NOKKUÐ hefur verið tilkynnt um bruna vegna kertaskreytinga nú í desember. Heldur hefur dregið úr brunum af þessum sökum frá því í fyrra en samt urðu þeir nokkrir nú um jólahátíðina. Að sögn Einars Guðmundssonar, forvarnarfulltrúa hjá Sjóvá-Almenn- um, virðist eitthvað hafa farið úr böndunum á jóladag, því félaginu bárust tilkynningar um tíu kerta- bruna þann daginn. Hann segir að ástæða sé til að minna fólk á að fara varlega og fylgj- ast vel með öllum skreytingum sem kveikt er á. Varkárni er ekki síður þörf nú fyrir áramótin þegar tími flugelda og blysa gengur í garð. „Það eru til efni sem hægt er að sprauta á skreytingar til að draga úr íkveiki- hættu. Þá skal varast að setja kerti nálægt gardínum eða öðru sem rekist getur utan í kertin,“ bendir Einar á og hvetur jafnframt fólk til að fara ekki frá logandi kertum. Hann minn- ir einnig á að nauðsynlegt sé að kanna hvort reykskynjarar séu í lagi og yfirfara slökkvitækin reglulega. Tíu kerta- brunar urðu á jóladag Í DESEMBER afgreiddi Hjálp- arstarf kirkjunnar 836 umsóknir um mataraðstoð, þar af 41 á Ak- ureyri. Til viðmiðunar voru af- greiddar 873 umsóknir í desem- ber í fyrra, segir í fréttatilkynn- ingu frá stofnuninni. Fleiri sóttu hins vegar um í október og nóvember á þessu ári en sömu mánuði í fyrra. Samtals voru 1.078 umsóknir af- greiddar á síðasta fjórðungi árs- ins 2001 en voru 1.066 á sama tímabili á síðasta ári. Af þeim sem sóttu um mat- araðstoð í desember voru 379 öryrkjar og þeir því hlutfalls- lega flestir umsækjenda. Næst- fjölmennasti hópurinn var ein- stæðar mæður. Gera má ráð fyrir að 2–3 einstaklingar njóti góðs af hverjum matarpakka, en afgreitt er eftir fjölskyldustærð umsækjanda. Um tuttugu sjálfboðaliðar að- stoðuðu við úthlutunina fyrir þessi jól. Mörg fyrirtæki og samtök lögðu Hjálparstarfinu lið með matargjöfum og ýmiss konar aðstoð. Desemberaðstoð- in var veitt í samvinnu við Reykjavíkurdeild Rauða kross- ins. Hjálparstarf kirkj- unnar fékk 836 um- sóknir í desember Öryrkjar í meirihluti ÞAU Beta Guðrún Hannesdóttir og Þórir Þorsteinsson létu af störfum hjá Morgunblaðinu á árinu eftir farsæl störf hjá blaðinu um langt skeið. Þórir hóf störf hjá Morgun- blaðinu árið 1959 í húsakynnum blaðsins við Aðalstræti og starfaði fyrstu 15 árin við setningu. Síðustu 26 árin vann Þórir á hönnunar- og útlitsdeild blaðsins og gekk í Blaða- mannafélag Íslands árið 1975. Að sögn Þóris er þessi langi starfs- aldur hjá Morgunblaðinu engin til- viljun því árin 42 hafi verið góð í alla staði og ánægjulegt að vinna með því góða starfsfólki sem jafnan hafi helgað blaðinu krafta sína. Í sama streng tekur Beta, en hún hóf störf hjá mötuneyti Morgun- blaðsins vorið 1981 og hefur starf- að þar samfellt í tuttugu ár, fyrstu árin í litlu kaffistofunni við Aðal- stræti og síðar í stærra mötuneyti í húsnæði blaðsins við Kringluna. Beta segir þennan tíma hafa verið mjög ánægjulegan og starfsmenn blaðsins hafi jafnan verið kurteisir og ljúfir þegar þeir sækja mat sinn og kaffibrauð. Morgunblaðið þakkar þeim Betu og Þóri löng og farsæl störf í þágu blaðsins. Láta af störfum við Morgunblaðið Morgunblaðið/Kristinn Þórir Þorsteinsson á ritstjórnarskrifstofu blaðsins. Morgunblaðið/Kristinn Beta Guðrún að störfum á síðasta vinnudegi sínum. Morgunblaðið/Hilmar Bragi Miklar skemmdir urðu í svefnherbergi íbúðarinnar í brunanum. GEIR H. Haarde fjármálaráð- herra segir að sjálfsagt sé að hafa augun ávallt opin fyrir grisjun op- inberra nefnda en telur að hér á landi hafi ekki verið komið á fót miklu af óþarfa nefndum og ráð- um. Í Morgunblaðinu í gær var greint frá því að danska ríkis- stjórnin hygðist leggja niður meira en 50 nefndir, ráð og vinnuhópa og spara með því á annan tug millj- arða íslenskra króna. Geir H. Haarde segir að hugmynd Dana sé afskaplega góð, en bætir við að op- inberar nefndir hér á landi séu ýmist lögbundnar og starfi á grundvelli laga að ákveðnum föst- um verkefnum eða um sé að ræða tímabundna vinnuhópa eða starfs- nefndir sem skili sínu verki og séu síðan lögð niður. Haft var eftir Thor Pedersen, fjármálaráðherra Dana, að sumt væri „út í hött“ og nefndi hann sérstaklega þróunarsjóð menning- armálaráðuneytisins. Geir H. Haarde segist ekki kannast við slíka sjóði hjá okkur og mjög ólík- legt sé að hér séu óþarfa nefndir en sé það tilfellið sé sjálfsagt að leggja þær niður. Hins vegar efist hann um að með því megi spara einhverja milljarða. Aðhald með nefndum sjálfsagt Geir H. Haarde fjármálaráðherra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.