Morgunblaðið - 09.01.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.01.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 11 MICHAEL Flavin, forstjóri Medi- Chem, sagðist á símafundi með greiningaraðilum og fjárfestum, vegna samnings um samruna MediChem og deCODE, vera mjög ánægður með að samrun- ann, sem hann sagði að væri hlut- höfum beggja félaganna án efa í hag. Hann sagði starfsemi de- Code falla mjög vel að starfsemi MediChem, enda hafi deCode þegar sýnt að fyrirtækið búi yfir mikilli þekkingu á sviði erfða- fræðirannsókna- og uppgötvana. MediChem leggi hins vegar til skapandi vísindamenn, sérhæfða þekkingu og einstaka rannsókn- araðstöðu til að þróa áfram rann- sóknir og uppgötvanir deCode og þannig auka verðmæti þeirra. Flavin sagði að frá því að Medi- Chem var stofnað árið 1987 hafi fyrirtækið verið leiðandi í lyfjaþróun fyrir líftækniiðnaðinn. Fyrirtækið hafi náð forskoti í efnafræðiþekkingu á þessi sviði og byggt upp samstarf við leið- andi lyfjafyrirtæki í heiminum. Á undanförnum árum hafi verið lögði meiri áhersla á að nýta erfðafræðiþekkingu til þróunar á nýjum lyfjum. „Með samrunanum við deCode teljum við að við get- um enn frekar eflt það starf sem við höfum þegar unnið og búið til fyrirtæki sem getur á áhrifaríkan hátt þróað framleiðslu nýrra lyfja og gert meiri verðmæti úr sam- eiginlegum uppgötvunum okkar.“ Vegna þess hve starfsemi fyrirtækjanna félli vel saman sagðist Flavin telja að samruna- ferlið ætti eftir að ganga vel fyrir sig. „Þannig getum við haldið áfram að þjónusta við- skiptavini okkar en um leið unnið að þeim markmiðum sem sett hafa verið.“ Var stofnað árið 1987 MediChem var stofnað árið 1987 af Michael Flavin, núverandi forstjóra, í Chicago í Bandaríkj- unum. Það hefur m.a. unnið mjög að þróun lyfja gegn HIV-veirunni og árið 1994 kynntu vísindamenn MediChem lyfið Calandolide A sem unnið er úr náttúrulegum af- urðum sem finnast í regnskógum Malasíu. Það sama ár hófst sam- starf við lyfjarisann Pfizer sem var fyrsti stóri viðskiptavinur MediChem. Árið 1996 sótti Medi- Chem um rannsóknarleyfi á Col- anolide A og stofnaði sérstakt fyrirtæki um þróun lyfsins með stjórnvöldum í Malasíu og er nú þegar byrjað að prófa lyfið á mönnum. Höfuðstöðvar MediChem, bandaríska lyfjaþróunarfyrirtækisins sem deCODE hefur keypt. Samruninn er hluthöfum í hag Michael Flavin, forstjóri MediChem ÍBÚAR á Íslandi voru 286.275 1. desember síðastliðinn samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands. Skiptingin á milli kynjanna var nánast jöfn, en þó voru karlar ívið fleiri en konur eða 143.302 og kon- ur voru 142.973. 67 ára og eldri voru 29.647 og fimm ára og yngri 25.349. Samantekt Hagstofunnar miðast við póstnúmer og samkvæmt henni er fjölmennasta póstnúmerið 112 í Reykjavík, þ.e.a.s. Grafarvogur, en þar voru 17.559 íbúar 1. desember síðastliðinn, þar af 5.559 undir 15 ára aldri. Næstfjölmennasta póst- númerið í Reykjavík er síðan 105, þ.e.a.s. Laugarnes, Hlíðar o.fl., en þar bjuggu 1. desember síðast lið- inn 15.274. Þar á eftir kemur 101, þ.e. miðbærinn, Þingholtin o.fl., en þar býr 14.601. Póstnúmerin 108 og 109 eru svo hvort um sig með rúmlega tólf þúsund íbúa, sem er annars vegar Bústaðahverfið og hins vegar Bakkar og Sel í Breið- holti. 10 búa í Flatey Ef litið er út fyrir Reykjavík er fjölmennasta póstnúmerið 200 í Kópavogi þar sem bjuggu 16.660 manns 1. desember síðastliðinn. Litlu færri eru í póstnúmerinu 220 í Hafnarfirði eða 16.084. Fæstir íbúar eru hins vegar í póstnúmeri 345 sem er Flatey á Breiðafirði, en þar búa 10 manns. Næstfæstir eru í 522, sem er Kjör- vogur á Ströndum, en þar búa 11 manns, og í 524 á Norðfirði á Ströndum, þar sem búa 15, og í 715, sem er Mjóifjörður á Austur- landi með 31 íbúa. Íbúar á Íslandi 1. desember Grafarvogur fjölmennastur UM 2.820 börn fæddust á fæðing- ardeild Landspítalans árið 2001 sem er svipað og undanfarin ár. Að sögn Margrétar Hallgríms- son, sviðsstjóra á kvennasviði Landspítala – háskólasjúkrahúss, fæddust örlítið fleiri börn árið 2000 eða 2.980. Hins vegar voru þau rúmlega 2.700 talsins árið á undan, þ.e. 1999. „Árið 2001 var svona meðalár. Á svona lítilli deild verða kannski ör- litlar sveiflur en maður sér að þetta er það sem koma skal, plús mínus eitt til tvö hundruð börn,“ segir Margrét. Rúmlega 2.800 börn fædd á Landspítala í fyrra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.