Morgunblaðið - 12.01.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.01.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isÞórður í viðræðum við Preston á Englandi / B1 Gríðarlegar kröfur gerðar til þýska landsliðsins / B4 4 SÍÐUR16 SÍÐUR Sérblöð í dag Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r12. j a n ú a r ˜ 2 0 0 2 FASTEIGNAMAT ríkisins hefur af- greitt um 1.500 af þeim 13 þúsund kærum sem bárust í fyrrahaust vegna nýrra reglna um útreikning fasteigna- og brunabótamats. Um níu þúsund kærur eru í vinnslu, en vinna hefur ekki hafist við 2.500 kær- ur enn sem komið er, að sögn Hauks Ingibergssonar, forstjóra Fast- eignamats ríkisins. Haukur sagði að samtals hefðu borist 13 þúsund athugasemdir vegna fasteigna- og brunabótamats- ins, um níu þúsund vegna brunabóta- matsins, um eitt þúsund vegna fast- eignamatsins og um þrjú þúsund vegna hvors tveggja. Búið væri að afgreiða um 1.500 athugasemdir, níu þúsund væru í vinnsluferli, sem þýddi að upplýsingaöflun væri í gangi, og vinna við 2.500 athuga- semdir hefði enn ekki hafist. Unnið væri að þessu jafnt og þétt og stefnt væri að því að ljúka meðferð á stærstum hluta athugasemdanna eða um 90% fyrir mitt sumar. Aðspurður hvort þetta væri ekki lengri tími en Fasteignamatið hefði áætlað í upphafi til þess að afgreiða athugasemdirnar sagði Haukur svo vera. Skýringin væri sú að seinustu mánuði ársins hefði starfsfólk Fast- eignamatsins þurft að leggja þessa vinnu til hliðar að hluta til vegna þess að þá væru miklar annir við inn- skráningu nýrra fasteigna sam- kvæmt tilkynningu sveitarfélag- anna, sem þyrfti að skrá í Landskrá fasteigna fyrir áramót. Haukur sagði að álagning fast- eignagjalda miðaðist við síðastgild- andi mat, þ.e.a.s. það mat sem gilt hefði áður en nýja matið hefði verið lagt á eignirnar. Þegar athugasemd- irnar hefðu fengið afgreiðslu gilti hið nýja mat síðan frá 15. september sl. árs. Sveitarfélögunum hefði verið gerð grein fyrir stöðu málsins og yrði þeim sendur á þriggja mánaða fresti listi yfir þær eignir sem at- hugaemdir hefðu verið gerðar við og búið væri að afgreiða. Það væri síðan í valdi sveitarfélaganna að ákveða hvort til endurálagningar kæmi. Nýjar reglur um fasteigna- og brunabótamat 1.500 athugasemdir af 13.000 afgreiddar MAÐURINN sem lést eftir árekstur jeppa og flutninga- bíls á sunnanverðri Holta- vörðuheiði í fyrrakvöld hét Sigurjón Pétursson, fyrrver- andi borgarfulltrúi í Reykja- vík. Sigurjón var 64 ára gamall, fæddur á Sauðárkróki 26. október 1937, sonur Ingi- bjargar Ögmundsdóttur og Péturs Laxdal Guðvarðarson- ar. Sigurjón lætur eftir sig eiginkonu, Rögnu Brynjars- dóttur, og tvo uppkomna syni. Sigurjón varð húsasmiður frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1962. Hann var kosinn borgarfulltrúi í Reykjavík fyr- ir Alþýðubandalagið árið 1970 og gegndi þeirri stöðu til 1994. Hann sat í borgarráði frá 1970 til 1990 og var forseti borgarstjórnar 1978–1982. Sigurjón átti sæti í mið- stjórn Sameiningarflokks al- þýðu-Sósíalistaflokksins og síðan Alþýðubandalagsins með hléum frá 1962, oft sem formaður. Sigurjón gegndi fjölda trúnaðarstarfa um ævina. Hann var m.a. í stjórn Tré- smiðafélags Reykjavíkur, um tíma sem varaformaður, frá 1963–1973. Í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 1978–1982. Þá átti hann sæti í Innkaupastofnun Reykjavík- ur, veitustofnana borgarinn- ar, í launamálanefnd og ýms- um öðrum nefndum. Í stjórn Landsvirkjunar 1987–1991 og í stjórn Sparisjóðs Reykjavík- ur og nágrennis 1975–1998. Sigurjón hóf störf hjá Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga árið 1996 og var þar deild- arstjóri grunnskóladeildar. Hann vann mikið að gerð kjarasamninga, m.a. við grunnskóla- og tónlistarkenn- ara. Hann var á heimleið af kynningarfundi á Blönduósi um nýgerða samninga við tón- listarkennara þegar árekstur- inn varð. Sigurjón Pétursson Lést í um- ferðarslysi á Holta- vörðuheiði flugs hf., að lögð hafi verið áhersla á að afla fé- laginu meiri verkefna með leiguflugi eftir samdrátt í áætlunarflugi. Notuð verður ein 757- þota Flugleiða í verkefnið en ráðgert hafði verið að henni yrði skilað til eigenda um mitt árið. Verður leigusamningurinn þess í stað fram- lengdur. Hin tvö leiguflugsverkefnin eru samningur um flug fyrir bandaríska ferðaskrifstofu, GWV, milli Boston og sex áfangastaða í Karíbahafinu. Hófst það 20. desember og stendur fram í maí og er ein 757-þota Flugleiða höfð í Boston vegna NÝSTOFNAÐ dótturfyrirtæki Flugleiða sem nefnist Flugleiðir – Leiguflug hf. og danska ferðaskrifstofan Krone Rejser hafa samið um tveggja ára leiguflugsverkefni sem hefst 22. mars. Verður flogið milli Danmerkur og Mið- jarðarhafslanda. Tryggir grunnflugið Flugleið- um 1,5 milljarða króna á samningstímanum en gert er ráð fyrir að verkefni muni aukast þegar á samningstímann líður. Þetta er þriðji stóri samningur Flugleiða um leiguflugsverkefni í vetur og segir Sigþór Ein- arsson, framkvæmdastjóri Flugleiða – Leigu- þessa verkefnis. Einnig sinna Flugleiðir – Leiguflug hf. nú flugi fyrir ferðaskrifstofu í Kanada milli Montreal og Karíbahafsins með þotunni sem er í Boston. Þegar síðastnefndu verkefnunum tveimur lýkur í vor segir Sigþór hugsanlegt að þotan verði í verkefnum í Bret- landi sem standi næsta sumar. Samningum er þó ekki lokið þar um. Íslenskar áhafnir eru á vélunum í þessum leiguflugsverkefnum og segir Sigþór þetta góða búbót í reksturinn. Þau muni líklega leiða til þess að fá verði sumarfólk til starfa fyrr en ella. Flugleiðir – Leiguflug hf., dótturfyrirtæki Flugleiða, gerir nýjan samning Tveggja ára verkefni fyr- ir danska ferðaskrifstofu MIKIL flóð hafa verið í Ölfusá síð- ustu tvo daga. Í gær óttuðust menn að áin hefði leitað undir árbakkann Selfossmegin og fóru bormenn frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða að ánni og boruðu tvær könn- unarholur, sem leiddu í ljós að áin hafði ekki farið undir bakkann. Til stendur að leggja sniðræsi með- fram bökkum árinnar og var farið af stað með könnunarboranirnar til að fyrirbyggja það síðar meir að grafið yrði niður á sand þegar ræs- ið verður lagt. Eftir helgina verða árbakkarnir kannaðir áfram. Þar sem farvegurinn er dýpstur neðan kirkjunnar er dýpið um 22–24 m. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Borað við Ölfusárbrú FÓLKSBÍLL og jeppi óku á hross undir Hafnarfjalli í gærkvöldi og lá við stórslysi að sögn lögreglunnar í Borgarnesi en betur fór en á horfðist og slösuðust farþegar bifreiðanna ekki alvarlega að því er talið var. Skotið var upp flugeldum á sumarbú- staðasvæðinu við Ölver og við það fældust hross sem voru í girðingu skammt frá Hafnaránni og sluppu að minnsta kosti þrjú hross út úr girð- ingunni og æddu út á þjóðveginn. Bæði hrossin drápust Tveir bílar áttu leið um, annar á norðurleið en hinn á suðurleið. Jeppabifreiðin, sem var á norðurleið, ók á eitt hrossanna en fólksbíllinn, sem var á suðurleið, reyndi að sveigja frá dauða hrossinu sem lá á veginum en lenti þá á öðru hrossi og fór síðan heila veltu og endaði utan vegar. Báðir bílarnir eru stór- skemmdir ef ekki ónýtir. Fjórir far- þegar voru í fólksbílnum og voru þeir allir fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi en talið var að um minni háttar meiðsl hefði verið að ræða. Tveir far- þegar voru í jeppanum og sluppu þeir báðir ómeiddir. Ekið á tvö hross undir Hafnarfjalli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.