Morgunblaðið - 12.01.2002, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 12.01.2002, Qupperneq 18
Morgunblaðið/Kristján Lísa Guðmundsdóttir var í gegningum í hesthúsi sínu í Breiðholti á Ak- ureyri í gær og ætlaði svo í útreiðartúr að þeim loknum. Lísu líst vel á væntanlega sameiningu Léttis og Funa. NÝTT hestamannafélag verður stofnað í næsta mánuði gangi sam- þykktir stjórna hestamannafélag- anna Léttis á Akureyri og Funa í Eyjafjarðarsveit um sameiningu félaganna eftir. Bæði félögin hafa boðað til aðalfunda á Hrafnagili laugardaginn 9. febrúar, þar sem fyrir liggja tillögur um að slíta fé- lögunum og stofna nýtt hesta- mannafélag. Sigfús Helgason, formaður Létt- is, sagði að félagsmönnum hefðu verið kynntar hugmyndir stjórnar félaganna og af þeim viðbrögðum sem fengist hafa telur hann aðeins formsatriði að ganga frá samein- ingunni. Sigfús sagði nýtt sam- einað hestamannafélag standa mun styrkari fótum en félögin tvö, bæði félagslega og fjárhagslega, og auk þess vera betur í stakk búið til að vinna að hagsmunamálum hestamanna. Sigfús sagði að nafnið Eyfirð- ingur væri ofarlega í hugum manna á hið nýja sameinaða félag og þá ekki síst vegna staðsetning- arinnar og mun stjórnin leggja það nafn til. Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu verður skipuð starfsstjórn fyrsta árið, undir forystu Sigfúsar. Allt of margir hestamenn utan félaganna Félagsmenn í sameinuðu félagi verða rúmlega 500 og verður þarna til eitt stærsta hestamanna- félag landsins. Sigfús sagði þó nauðsynlegt að ná til þeirra hesta- manna á svæðinu sem ekki eru í fé- lögunum tveimur. „Því miður eru allt of margir hestamenn á svæð- inu utan félaganna en með sterku sameinuðu félagi vona ég að fleiri vilji vera með okkur. Nú förum líka að setja skarpari skil á milli þess að vera í félaginu og ekki. Við erum hagsmunafélag og reynum að vinna fyrir alla hestamenn. Menn eiga því að taka þátt í sam- kostnaði með okkur og mér finnst það reyndar siðferðislega skylda þeirra. Framundan eru kosningar til sveitarstjórna og við eigum að óma þar sem ein rödd á framboðin og ætlum okkur að gera það.“ Stjórnir Léttis og Funa hafa haldið sameiginlega fundi frá því snemma í haust, „og mér finnst fé- lögin þegar vera orðin eitt“, sagði Sigfús. Sveitarfélögin veittu félögunum fjárstyrki Í kjölfar viljayfirlýsinga stjórna félaganna í haust um sameiningu samþykktu bæjarráð Akureyrar og sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar að styrkja félögin um samtals 800 þúsund krónur vegna Melgerð- ismela. Rekstur Melgerðismela hefur reynst félögunum þungur en fyrir Landsmót hestamannafélaga árið 1998 var ráðist þar í fram- kvæmdir fyrir um 45 milljónir króna. Félögin urðu illa úti fyrir landsmótið, m.a. vegna hrossapest- ar og slæms veðurs, og því varð stórtap á mótinu. Staðan núna er aftur á móti mun bjartari. Hesta- menn hafa lengi unnið að því að ráðast í byggingu reiðhallar á Ak- ureyri og þeir vonast til að sá draumur verði að veruleika áður en langt um líður. Hestamannafélagið Eyfirðingur verður til Hestamannafélögin Léttir á Akureyri og Funi í Eyjafjarðarsveit sameinast AUÐUR Aðal- bjarnadóttir frjáls- íþróttakona var kjör- inn íþróttamaður Dalvíkurbyggðar nú nýlega. Auður gat ekki verið viðstödd afhendingu viðurkenningar þar sem hún var að að keppa, en á því móti gerði hún sér lítið fyrir og bætti árangur sinn í kúluvarpi og setti Ís- landsmet, kastaði 12,51 metra. Auður átti gott keppnisár í fyrra, varð Íslandsmeistari í kúlu- varpi bæði innanhúss og utan og setti Ís- landsmet í greininni. Hún stóð fremst ís- lenskra frjálsíþróttamanna í flokki 21 til 22 ára eftir sumarið í kúluvarpi og spjótkasti og átti annað besta afrekið í sleggju- kasti. Íþrótta- og æskulýðsráð Dalvík- urbyggðar útnefnir íþróttamann ársins, en áður hefur hvert félag tilnefnt sinn íþróttamann. Þeir sem tilnefndir voru að þessu sinni voru Björgvin Björgvinsson, skíði, Dóra Kristinsdóttir, golf, Hermann Albertsson, knatt- spyrna, Pétur Skarphéðinsson, körfubolti, Sveinbjörg Kristjana Helgadóttir, blak, Sveinn Elías Jónsson, frjálsar og knattspyrna hjá Reyni, Þorgerður Jóhanna Sveinbjarnardóttir, sund, Stefán Friðgeirsson, hestamaður. Auður íþróttamaður Dalvíkurbyggðar Dalvíkurbyggð Auður Aðalbjarnardóttir íþróttamaður. Morgunblaðið/Guðmundur Jónatanss. Leiftur orðið gjaldþrota ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Leiftur í Ólafsfirði var úrskurðað gjaldþrota í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gærmorgun að kröfu sýlsumanns- ins í Ólafsfirði. Skuldir félagsins við embættið nema 6,4 milljónum króna, en nokkuð er á reiki hverjar heildarskuldir félagsins eru. Inga Þöll Þórgnýsdóttir lögfræðingur hefur verið skipuð skiptastjóri. Umræða hefur verið í bæjar- stjórn Ólafsfjarðar þess eðlis hvort og þá hvernig Ólafsfjarðarbær komi að þessu máli. Að höfðu sam- ráði við sérfróða menn taldi meiri- hluti bæjarstjórnar rétt að tryggja ákveðna fjármuni þannig að íþróttafélagið Leiftur geti látið á það reyna hvort því tekst að ná fram nauðasamningum við lánar- drottna sína. Á bæjarstjórnarfundi í vikunni var samþykkt tillaga bæjarstjóra á þá leið að Ólafsfjarðarbær standi að tryggingu fjárhæðar fyrir íþrótta- félagið Leiftur vegna nauðasamn- inga, allt að 14,2 milljónir. Með þessum hætti er verið að standa við fyrri skuldbindingu Ólafsfjarðar- bæjar, frá 1998, en ekki verið að efna til frekari eða nýrra skuldbind- inga. Með þessari samþykkt er grunnurinn lagður að því að nauða- samningaleiðin verði fær og þar með framtíð íþróttafélagsins Leift- urs tryggð. Það skal tekið fram að þessi upphæð, 14,2 milljónir, kemur ekki til viðbótar við eldri skuldbind- ingar, og eykur því ekki skuldir bæjarins, eins og margir hafa túlk- að, heldur dugar þessi upphæð til að borga allar skuldir bæjarins sem tengjast k-deild. Ólafsfjarðarbær kaupi eignir Leifturs Guðbjörn Arngrímsson, oddviti minnihlutans, lagði fram tillögu á fundinum sem kom til viðbótar við tillögu Ásgeirs, en hún var þess efn- is að gerður yrði samningur milli íþróttafélagsins Leifturs og Ólafs- fjarðarbæjar um kaup Ólafsfjarðar- bæjar á öllum eignum Leifturs og deildum, fyrir þá upphæð sem nefnd er í tillögu Ásgeirs og notuð verður til nauðasamninganna. Einnig að gerður verði samningur við öll íþróttafélög sem fá styrk hjá Ólafsfjarðarbæ þar sem fram komi styrkupphæð, vegna hvers styrkur er veittur og að ekki verði um frek- ari styrki að ræða en þar komi fram. Loks að gerður verði samn- ingur til a.m.k. 3–5 ára um rekstur íþróttasvæða í eigu bæjarins við viðkomandi íþróttafélög. Samning- urinn kveði á um ákveðna upphæð sem greidd verður félögunum ár- lega en félögin sjái um framkvæmd- ir og mannahald, að undanskildum umsjónarmanni íþróttasvæða. Við atkvæðagreiðslu var tillaga Ásgeirs Loga samþykkt með fjór- um atkvæðum en tveir greiddu at- kvæði á móti. Ólafsfjarðarbær tryggir 14,2 milljónir vegna nauðasamninga Leifturs AKUREYRI 18 LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ MEISTARINN.IS VERIÐ er að hanna nýjan duftgarð sem verður í Kirkjugarðinum á Ak- ureyri við Þórunnarstræti. Slíkur garður hefur ekki verið til staðar á Akureyri fram til þessa, en að sögn Smára Sigurðssonar framkvæmda- stjóra Kirkjugarða Akureyrar er tímabært að bjóða upp á slíkan garð nú. Smári sagði að um væri að ræða sérstakan reit fyrir duftker, en fram til þessa hafa slík ker verið sett í legstæði ættingja eða þá að þurft hefur að nota heilan legstað fyrir kerin þannig að þau tækju óþarflega mikið pláss í garðinum. „Við erum að láta hanna fyrir okkur lítinn og fallegan reit, hlýleg- an duftgarð á milli gamla og nýja svæðisins í kirkjugarðinum,“ sagði Smári. Kirkjugarðurinn við Þórunnar- stræti er 140 ára gamall og er áætl- að að hann verði fullnýttur eftir um 20 til 25 ár. Smári sagði að spáð væri að jarðarförum myndi á næstu 50 árum fjölga um 100% frá því sem nú er og væri þá m.a. miðað við töl- ur Hagstofunnar um fjölda fólks í hverjum árgangi. Smári sagði að um 99% af greft- unum í Kirkjugörðum Akureyrar væru með hefðbundnu sniði og því einungis 1% í formi duftkera. Hlut- fallið á höfuðborgarsvæðinu væri hins vegar 12-14%. „Með því að hafa þennan reit til staðar bjóðum við fólki upp á val og vonum auðvitað að fleiri muni nýta sér þennan kost í framtíðinni,“ sagði Smári. „Reiturinn verður lítill til að byrja með, 20-30 legstæði í fyrsta áfanga, en hann er teiknaður stærri og það verða töluverðir möguleikar á stækkun.“ Gert er ráð fyrir að hönnunar- vinnu verði lokið næsta vor og í sumar verði unnið við hellulagnir og gróðursetningu. Smári sagði að þá tæki við kynning á þessum mögu- leika og að stefnt væri að því að taka reitinn í notkun sumarið 2003. Kirkjugarðar Akureyrar við Þórunnarstræti Verið að hanna nýjan duftgarð ATVINNULAUSUM á Akureyri hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu mánuði. Í lok desember sl. voru 277 manns á atvinnuleysisskrá í bænum, samkvæmt upplýsingum frá Svæð- isvinnumiðlun Norðurlands eystra, 162 karlar og 115 konur. Þetta er jafnframt mesta atvinnuleysi í einum mánuði á síðasta ári. Í lok desember árið 2000 voru 155 manns á atvinnuleysisskrá á Akur- eyri, 78 karlar og 77 konur, eða 162 færri en í lok síðasta mánaðar. Í lok janúar á síðasta ári voru 184 á atvinnuleysisskrá á Akureyri og fjölgaði atvinnulausum næstu tvo mánuði þar á eftir. Næstu fimm fækkaði hins vegar umtalsvert á at- vinnuleysisskránni. Í lok apríl voru atvinnulaustir 204, 114 karlar og 90 konur, en í lok ágúst voru þeir 113, 46 karlar og 67 konur. Frá þeim tíma hefur atvinnulausum svo fjölgað aft- ur fram til síðustu áramóta. Nú um áramótin voru 497 manns á atvinnuleysisskrá á Norðurlandi eystra, 261 karl og 236 konur. Í lok desember 2000 voru 323 á skrá, 146 karlar og 177 konur. Enn fjölgar atvinnu- lausum Aldraðir og öryrkjar Fasteignaskattur lækkaður verði lækkaður um allt að 21.500 krónur af hverri íbúð sem nýtt er til eigin nota. Jafn- framt er lagt til að fasteigna- skattur af eigin íbúðum örorku- lífeyrisþega verði lækkaður um sömu upphæð, þ.e. hjá einstak- lingum með allt að 1,3 milljónir í árstekjur og hjónum eða fólki í sambúð með tæplega 1,8 millj- ónir í tekjur. TILLAGA um lækkun fast- eignaskatts hjá öldruðum og ör- orkulífeyrisþegum var lögð fram í bæjarráði í vikunni og verður tekin til afgreiðslu á fundi bæj- arstjórnar á þriðjudag við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun fyr- ir 2002. Lagt er til að fasteignaskatt- ur af eigin íbúðum þeirra sem verða 70 ára og eldri á þessu ári

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.