Morgunblaðið - 12.01.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.01.2002, Blaðsíða 24
ERLENT 24 LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ RÚSSAR hafa gagnrýnt Banda- ríkjastjórn harðlega fyrir áform um að geyma gamla kjarnaodda fremur en að eyða þeim. Segja þeir það grafa undan trúverðugleika sam- komulags um að taka þúsundir kjarnavopna í eigu ríkjanna úr notk- un. George W. Bush Bandaríkjafor- seti hét því á fundi með Vladímír Pútín Rússlandsforseta í nóvember sl. að skera niður birgðir Banda- ríkjamanna af langdrægum kjarna- flaugum um tvo þriðju, í 1.700 til 2.200 kjarnaodda. Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins, staðfesti á miðvikudag að Bush-stjórnin hefði í hyggju að geyma einhvern hluta þeirra kjarnaodda, sem teknir verða úr notkun samkvæmt samkomulag- inu, í stað þess að þeim verði öllum eytt. Rússar hafa brugðist ókvæða við þessum tíðindum. „Við teljum að frekari fækkun kjarnorkuvopna samkvæmt samkomulagi Rússa og Bandaríkjamanna verði að vera í fyrsta lagi gagnger – í 1.500 til 2.200 kjarnaodda, í öðru lagi sannanleg, og í þriðja lagi óafturkallanleg, svo af- vopnunin verði ekki bara á pappírn- um,“ segir í yfirlýsingu frá Alexand- er Yakovenko, talsmanni rússneska utanríkisráðuneytisins. Afvopnunarviðræður um miðjan mánuðinn Pútín hét á fundinum í nóvember svipaðri fækkun kjarnaodda og Bush, en Rússar vilja ólíkt Banda- ríkjamönnum að loforðin verði bund- in í formlega samninga. Valerí Mani- lov, varaformaður rússneska herráðsins, ítrekaði þessa afstöðu Rússa í fyrradag og sagði að einung- is alþjóðlega bindandi samningar gætu tryggt að afvopnunin færi fram samkvæmt samkomulaginu. Tilkynnt var á fimmtudag að af- vopnunarviðræður færu fram milli Rússa og Bandaríkjamanna í Wash- ington 15. og 16. þessa mánaðar. Rússneskir embættismenn sögðu að viðræðurnar myndu fyrst og fremst snúast um umfang afvopnunar, tíma- mörk og eftirlit. Rússar bregð- ast ókvæða við Moskva, Washington. AFP, AP. Bush-stjórnin hyggst geyma kjarna- odda í stað þess að eyða þeim FYLGI við upptöku evrunnar hefur aukist mikið í Danmörku að undanförnu en henni var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2000. Er þegar komin af stað umræða um nýja þjóðarat- kvæðagreiðslu en Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra telur hana þó ótímabæra að sinni. Samkvæmt skoðanakönnun, sem birt var í fyrradag, eru 57% danskra kjósenda hlynnt upp- töku evrunnar en Danmörk, Sví- þjóð og Bretland eru einu Evr- ópusambandsríkin, sem standa utan Evrópska myntbandalags- ins. Í könnuninni kváðust 34% vera andvíg gjaldmiðilsbreyt- ingu og 8% höfðu enga skoðun. Per Stig Møller, utanríkisráð- herra Danmerkur, sagði fyrr í vikunni, að ríkisstjórnin stefndi jafnvel að nýrri þjóðaratkvæða- greiðslu á næsta ári en Rasm- ussen forsætisráðherra sagði í gær, að ekki væri rétt að ræða um nýjar tímasetningar að svo komnu. Meira máli skipti að ræða um hið eiginlega innhald hugsanlegrar gjaldmiðilsbreyt- ingar. 57% Dana vilja evruna Kaupmannahöfn. AFP. en myndin er frá tyrkneska bæn- um Sivas, sem er inni í miðju landi. 22 stiga frost var á þessum slóðum í gær. MIKIÐ fannfergi og grimmd- arfrost hefur verið víða í Tyrk- landi síðustu daga og ekkert ferðaveður fyrir viðkvæmar skepnur eins og þessa kvígu, sem gægist hér út um afturgluggann á bifreiðinni. Ekki kom fram hvort kvígan var með sætisólar spenntar Reuters Kuldaboli og kvígan ANGELA Merkel, leiðtogi Kristi- lega demókrataflokksins (CDU), tilkynnti í gær að hún hefði fallist á að Edmund Stoiber, leiðtogi Kristi- lega sósíalsambandsins (CSU), systurflokks CDU í Bæjaralandi, verði kanslaraefni flokkanna tveggja í þingkosningunum í Þýskalandi í september. Merkel sagði á fundi forystumanna CDU í Magdeburg að þau Stoiber hefðu náð samkomulagi um þetta á morg- unverðarfundi í gær. Þýska sjónvarpsstöðin NTV sagði að Merkel hefði átt í við- ræðum í nokkra daga við Stoiber um hvort þeirra ætti að fara fyrir flokkunum í baráttunni við Jafn- aðarmannaflokk Gerhards Schröd- ers kanslara. Merkel hafði sóst eft- ir því að verða kanslaraefni flokkanna og sagði fyrir jól að tímabært væri að kona tæki við kanslaraembættinu. Fulltrúar CSU óskuðu eftir því á þriðjudag að CDU samþykkti að Stoiber yrði kanslaraefni flokk- anna og þótti beiðnin óvenjuleg þar sem kanslarinn hefur oftast komið úr röðum CDU þegar flokkarnir hafa verið við stjórnvölinn. For- ystumenn CSU í Bæjaralandi sögðu að Stoiber væri sigurstrang- legri en Merkel, sem hefur ekki tekist að vinna almenning á sitt band. Merkel og Stoiber áttu að koma saman síðar í mánuðinum til að ákveða hvort þeirra yrði kanslara- efni en ákveðið var að flýta ákvörð- uninni til að koma í veg fyrir að deilan skyggði á ársþing CDU sem hófst í Magdeburg í gær. Schröder er miklu vinsælli en Stoiber og Merkel Skoðanakönnun, sem birt var í gær, bendir til þess að CDU og CSU fengju ívið meira fylgi en Jafnaðarmannaflokkurinn ef kosn- ingarnar yrðu haldnar nú. Er þetta í fyrsta sinn í tvö ár sem hægri- flokkarnir mælast með meira fylgi en stjórnarflokkurinn. 39% aðspurðra sögðust ætla að kjósa CDU eða CSU og 38% Jafn- aðarmannaflokkinn. Fylgi Frjálsra demókrata (FDP) var 8%, Flokks lýðræðislegs sósíalisma 7% og Græningja aðeins 5%. Könnunin bendir til þess að Jafnaðarmannaflokkurinn og Græningjar missi þingmeirihluta sinn og að Schröder þurfi að snúa sér til Frjálsra demókrata til að halda völdunum. Hugsanlegt er að Græningjar fái ekkert þingsæti því til þess þarf kjörfylgi hans að vera að minnsta kosti 5%. Infratest Dimap framkvæmdi könnunina, sem var birt í dag- blaðinu Der Tagesspiegel. 1.300 manns voru í úrtakinu. Könnunin leiddi ennfremur í ljós að Schröder er miklu vinsælli en Stoiber og Merkel. 58% aðspurðra sögðust myndu kjósa Schröder ef kanslarinn væri kjörinn í almenn- um kosningum, 39% studdu Stoib- er og 32% Merkel. Meðal stuðningsmanna CDU og CSU var fylgi Stoibers 76% og Merkels 60%. Stoiber verður kansl- araefni CDU og CSU Berlín. AFP. Reuters Edmund Stoiber, leiðtogi CSU. Angela Merkel, leiðtogi CDU, á fundi flokksins í Magdeburg. Flokkarnir eru nú með meira fylgi en jafnaðarmenn í fyrsta sinn í tvö ár TALSMAÐUR Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins (IMF), Thomas Dawson, sagði í gær að sjóðurinn myndi fram- vegis verða sveigjanlegri í skilyrðum sínum og taka með í reikninginn raunverulegar pólitískar aðstæður í þeim ríkjum sem sjóðurinn veitir lán. Lét Dawson þessi orð falla í kjölfar gagnrýni á sjóðinn þess efnis, að skil- yrði hans væru afdráttarlaus og gerðu illt verra í stað þess að bæta ástandið hjá þeim þjóðum sem þyrftu á aðstoð hans að halda. Dawson er framkvæmdastjóri ytri samskipta sjóðsins. Hann vísaði til föðurhúsanna þeim fullyrðingum að sjóðurinn hefði ekkert lært af fjár- málakreppunni í Asíu 1997–1998, og ætti sök á kreppunni sem nú ríkir í Argentínu. Aðgerðirnar verði áhrifaríkari Dawson sagði í ræðu hjá Banda- ríska verslunarráðinu í Singapúr að verið væri að reyna að forgangsraða málum hjá sjóðnum og „vinna með ríkisstjórnum til þess að fá betri til- finningu fyrir því hvernig stjórnmála- ástandið er í raun og veru.“ Mark- miðið sé að aðgerðir sjóðsins verði áhrifaríkari. IMF tók þátt í að skipuleggja margra milljarða dollara fjárhagsað- stoð til ríkja sem urðu illa fyrir barðinu á fjármálakreppunni í Asíu. En sjóðurinn var gagnrýndur fyrir að setja of afdráttarlaus skilyrði um end- urskipulagningu og aðhald gegn því að aðstoð yrði veitt, og fyrir að fara út fyrir valdsvið sitt og valda þeim ríkj- um, er í hlut áttu, meiri erfiðleikum. Dawson viðurkenndi að Asíu- kreppan hefði kennt sjóðnum mikil- vægar lexíur, m.a. um nauðsyn þess að slaka á skilyrðum og vera sveigj- anlegri. Hægt væri að ná meiri sveigj- anleika með því að veita lengri frest fyrir umbætur. En hann sagði enn- fremur að breyttum aðferðum kynnu að fylgja vandkvæði, því þær tækju ekki á spurningum um gegnsæi í að- gerðum stjórnvalda og um spillingu. Dawson sagði um málefni Argent- ínu að aðgerðir þær sem ráðamenn þar í landi hefðu gripið til, t.d. að tengja gengi pesóans við gengi doll- arans, stefna að hallalausum fjárlög- um og gæta aðhalds, hefðu verið ákveðnar af Argentínumönnum sjálf- um, en ekki að kröfu IMF. „Sjóðurinn gaf Domingo Cavallo aldrei neinar fyrirskipanir,“ sagði Dawson, og skírskotaði þar til fyrr- verandi fjármálaráðherra Argentínu, er sagði af sér í síðasta mánuði. Sveigjanlegri skilyrði Singapore. AFP. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hyggst taka meira tillit til pólitískra aðstæðna í ríkjum sem fá aðstoð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.