Morgunblaðið - 12.01.2002, Page 36

Morgunblaðið - 12.01.2002, Page 36
UMRÆÐAN 36 LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ TILEFNI þessara skrifa er grein Soffíu Auðar Birgisdóttur í Lesbók Morgunblaðsins 29. des- ember sl. og reyndar önnur skrif sama eðlis sem birst hafa í Morg- unblaðinu og hún vísar til. Öll skrifin einkennast af vanmati á þeim auði sem íslenskt leikhúslíf á í þeim fjölda áhorfenda sem kemur í leikhúsin á ári hverju. Leikhúsin eru að þeirra mati að lítillækka sig með því að sýna fákunnandi skríl léttmeti til þess að hafa fyrir salti í grautinn. Að mati Soffíu er leikhús „sam- félag listamanna sem stefnt er saman í þeim tilgangi að miðla vinnu sinni, sýn og hugsjón til hins stærra samfélags“. Til hvaða sam- félags? Því er ekki svarað. Í grófum dráttum má skipta leikhúsáhorfendum í fjóra hópa. Sá fyrsti er hlutfallslega lítill hóp- ur sérfræðinga og leikhúsfólks. Þessi hópur hefur lesið fræðin, séð mikinn fjölda leiksýninga um víða veröld og telur sig þess umkominn að hafa vit fyrir öllum hinum. Hópur númer tvö er allstór fjöldi fólks sem kaupir fasta miða í ann- að hvort stóru leikhúsanna eða bæði. Þessi hópur er ómetanlegur fyrir leikhúsin. Hann lætur sig hafa það að fara að sjá allar sýn- ingar sem í boði eru, oft með hálf- um huga þó. Með þessum hópi er leikhúsunum tryggð aðsókn að 6– 10 sýningum á hverju verki sem leikhúsið sýnir. Þriðji hópurinn er fólk sem fer endrum og sinnum í leikhús og vill þá gera sér glaðan dag, nennir e.t.v. ekki að sjá nein „vandamálaleikrit“. Oft er um að ræða vinnustaðahópa sem safna í sjóð eða að fyrirtækin styrkja leik- húsferð starfsmanna sinna. Það er þessi hópur sem fræðingarnir tala um með mestri fyrirlitningu. Þennan hóp er líka auðvelt að flæma burt úr íslensku leikhúsi með „metnaðarfullu leikhússtarfi“. Fjórði áhorfendahópurinn eru svo börnin. Sem betur fer hafa bæði leikhúsin lagt sig fram um að þjóna þessum hópi með vönduðum sýningum á barnaleikritum. Ekki ber heldur að vanmeta þann þroska sem börn fá við að fara með foreldrum sínum á farsa og aðra gamanleiki sem sýndir eru fræðingunum til ama og vandlæt- ingar. „Vondar bækur þurfa alls ekki að vera til að fyrirlíta. Þær geta verið fólkinu eins og tröppur til æðri bókmennta. Köllun leirskáld- anna er oftast vanmetin, hún hefur einatt verið hin sama og mosans í íslenzku hraununum. Samhengið í bókmenntunum er ávöxtur af verkum þeirra höfunda, sem gleymdust,“ segir Tómas Guð- mundsson í samtalsbók Matthíasar Johannessens. Þessi orð eiga víða við. Aðgangurinn að hinum æðri listum liggur í gegnum léttmetið. Leikhúsin eiga miklar skyldur við sína áhorfendur, alla hópana. Þess vegna er þeim nauðsynlegt að bjóða fjölbreytt leikritaval. Þau verða að sýna klassísk verk, ís- lensk verk og það sem nýjast er og hæst ber hjá nágrannaþjóðum okkar. Einnig söngleiki og barna- leikrit. Þannig þroskast áhorf- endahópurinn og fær víðara sjón- svið. Ég hef auðvitað margt við leikritaval leikhúsanna að athuga og er alls ekki á því að „allt sé í sómanum“ á þeim vettvangi. En þar hef ég aðrar áherslur en þeir sem viðrað hafa skoðanir sínar undanfarið. Ég hefði til dæmis viljað sjá meira af leikritum Shakespeares óbrengluð af hendi meistarans. Það er skiljanlegt að enskir leikstjórar vilji sýna áhorf- endum, sem gerþekkja leiksýning- ar Shakespeares, nýja túlkun á verkunum. En við sem erum e.t.v. að sjá þessi meistaraverk í fyrsta sinni eigum að eiga þess kost að sjá þau í sinni upprunalegu mynd, eins og hægt er. Ég undirritaður hef fyllt hóp númer tvö í fjölda mörg ár og hef verið áhugasamur leikhúsgestur frá því að ég komst til vits og þroska. Ég vil reyna að mæla fyrir munn þessa hóps, sem lítið lætur í sér heyra en á virkilega skilið að á hann sé hlustað. Í mínum huga er það ótvírætt að leikhúsið er fyrst og fremst fyrir áhorfend- ur. Soffía Auður segir það skoðun ýmissa að „íslenskt leikhús sé á hraðleið til fjandans – fyrir fullu húsi.“ Ég fullyrði, að þá fyrst væri íslenskt leikhús á hraðleið til fjandans ef þessir spekingar fengju næga fjármuni til þess að setja upp sýningar án þess að þurfa að hafa áhyggjur af að- göngumiðasölu. Engir áhorfendur – ekkert leikhús. Soffía Auður virðist telja að ekki sé mokað nógu fé í íslenska leik- ritahöfunda. Tækifærin hafa þeir svo sannarlega fengið. Ég efast um að í nokkru sambærilegu ná- grannalandi sé jafn mikið sýnt af verkum sömdum á móðurmáli þeirrar þjóðar. Það er einnig stókostlegt að jafn margir skuli leggja á sig að skrifa leikrit á Íslandi eins og kemur fram í þeg- ar efnt er til leikrita- samkeppni. Að vísu ekki öll nógu fram- bærileg, en ólíklegt er að þau yrðu mikið betri þó að ausið væri í skáldin peningum. Við erum fámenn þjóð og við getum ekki búist við að eiga alltaf snillinga en þeir rísa upp í fyllingu tímans. Ekki var aus- ið peningum í Jökul Jakobsson en hann blómstraði samt. Ekki má skilja orð mín svo að ég sé á móti því að hlúð sé að ís- lenskri leikritagerð. Ég er einung- is að segja að peningaskorti er oft um kennt ef afraksturinn er ekki nógu góður. Við eigum eftir að eignast fleiri frambærileg leikrita- skáld og leikrit sem slá í gegn, ef við höldum áfram að bera gæfu til að halda áhorfendahópi leikhús- anna svo stórum að það jafngildi því að hálf þjóðin fari í leikhús einu sinni á ári. Allt í sómanum? Gunnar Már HaukssonLeikhús Peningaskorti er oft um kennt, segir Gunnar Már Hauksson, ef afraksturinn er ekki nógu góður. Höfundur er bankamaður. FYRIR tveimur ár- um benti Röskva, sam- tök félagshyggjufólks við Háskólann, á að stúdentar við Háskóla Íslands væru ekki tryggðir við vinnu sína og veruleg óvissa væri um réttarstöðu þeirra. Röskva lagði til starfs- hóp sem vann að mál- inu innan Háskólans og að frumkvæði Röskvu fékk heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra samþykkt í ríkis- stjórn að stúdentar við Háskóla Íslands í heil- brigðis- og raunvísindagreinum verði tryggðir samkvæmt almannatrygg- ingalögum. Tveggja ára baráttu Röskvu lýkur með sigri. Óljós réttarstaða Við Háskóla Íslands stunda nem- endur margvíslegt verknám, auk verklegra tíma og rannsókna. Við þetta nám eru stúdentar oft undir kringumstæðum þar sem lítið má út af bregða til að þeir slasist og bíði lík- amlegt tjón. Í gegnum árin hefur verið á reiki hvernig tryggingum þessara stúdenta er háttað og hvaða réttarstöðu nemendur hafi ef eitt- hvað kemur upp á. Stúdentar Há- skóla Íslands virtust t.d. ekki njóta sama réttar og iðnnemar, sem eru sérstaklega slysatryggðir skv. al- mannatryggingalögum. Ljóst þótti að þetta ástand var óþolandi fyrir viðkomandi stúdenta og því tók Röskva upp málið. Undirrituð lagði fram í háskóla- ráði 12. október 2000 að skipaður yrði starfshópur sem fjalli um örygg- ismál stúdenta, þ.á m. hvernig trygg- ingum þeirra er háttað í því fjöl- breytta verk- og rannsóknarnámi sem fram fer á vegum deilda Háskólans. Hópurinn var skipaður strax í nóvember og í honum sátu bæði fulltrúar frá Háskólanum og stúd- entum. Starfshópurinn skilaði af sér tillögum í október sl. þar sem m.a. var lagt til að háskóla- yfirvöld færu þess á leit við heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra að hann tryggi stúdentum í verklegu námi sambærilegar slysatryggingar og iðnnemar njóta skv. almannatryggingalögum. Fundað með ráðherra Áður en starfshópurinn skilaði af sér tillögum, hafði undirrituð ásamt Þorvarði Tjörva Ólafssyni, formanni Stúdentaráðs, þegar fundað með heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra, Jóni Kristjánssyni, um málið og farið fram á að stúdentar yrðu tryggðir skv. almannatryggingalög- um. Ráðherra tók vel í erindið og úr varð að hann fór með málið fyrir rík- isstjórn í desember og var samþykkt þar að stúdentar í heilbrigðisgrein- um og raunvísindagreinum yrðu tryggðir skv. almannatryggingalög- um. Mikill áfangi vannst þegar Jón Kristjánsson heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra varð við óskum fulltrúa Röskvu og tryggði réttar- stöðu stúdenta í heilbrigðis- og raun- vísindagreinum. Ber einnig að þakka þeim starfshópi sem vann að tillögum að úrbótum í öryggis- og trygginga- málum stúdenta við Háskólann. Undirrituð er afar ánægð með að hafa lagt til á sínum tíma þessar úr- bætur á réttarstöðu stúdentanna og fylgt málinu eftir til enda. Undirrituð fyrir hönd Röskvu, skorar því hér að lokum á Alþingi að samþykkja tillögu Jóns Kristjánssonar heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, en með henni verður réttarstaða stúdent- anna tryggð. Röskva kom tryggingamálum stúdenta í höfn Dagný Jónsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Stúdentaráðs og situr í háskólaráði fyrir Röskvu. HÍ Tveggja ára baráttu Röskvu í trygginga- málum stúdenta, segir Dagný Jónsdóttir, lýkur með sigri. FLESTUM Íslend- ingum er ljóst að ástand þorskstofnsins og nánustu ættingja hans á miðunum er ekki gott. Hafrann- sóknastofnun telur nú veiðistofn þorsks vera undir 600 þús. tonnum en hann var langtím- um saman á milli 1 og 1,5 millj. áður fyrr og aflabrögð meira en helmingi betri. Margir telja jafnvel að hrun sé framundan. Þegar leitað er skýringa á þessum ólestri eru þær ekki augljósar, en vísbendingar má sjá og eru þær alvarlegar. Menn verða seint alveg sammála um hvað gera skuli. Til að nálgast kjarna þessa máls er gott að skoða ástandið á Kanadamiðum og hvað hefur gerst þar en veiðar hafa verið bannaðar í næstum tíu ár. Kanadaklípan Þorskveiðar við austurströnd Kanada gáfu af sér 400–700 þús. tonna afla á ári áður fyrr og voru miðin talin ein þau gjöfulustu. Nú hafa veiðarnar verið bannaðar. Ef gögn eru skoðuð kemur í ljós, að svo virðist sem vísindamenn þar hafi ekki gefið viðhlítandi svör og flestir hafa talað um ofveiði. Sú skýring er ekki nógu góð, því þorskurinn sem veiddist á árunum 1990–91, rétt fyrir bannið, var mjósleginn og lítill miðað við aldur og ástand lifrar slæmt. Segja má að hver árgangur hafi þá verið um þremur árum á eftir jafnöldrum sínum á sömu miðum 11 árum áður (’79–’80), en þá var þorskurinn í há- marki um sinn að þyngd. Lífmassi veiðistofns var um 700 þús. tonn ár- in ’79–’80 en aðeins um 300 þús. tonn ’90–’91, en á rúmu ári hrundi þá stofninn niður í um 50 þús. tonn og veiðum var því í raun sjálfhætt. Ef næringarþörf þorsks miðað við þessi tvö tímabil er áætluð út frá vissum forsendum má sjá að æt- isþörfin seinni árin var ekki minni eða jafnvel meiri en hún var á þeim fyrri því fiskur- inn var þá þremur ár- um á eftir jafnöldrum sínum. Þetta þýðir í raun að fiskurinn verður að dvelja þrem- ur árum lengur í sjó til að ná sama veiðiþunga og áður. Allan þennan tíma þarf fiskurinn sína næringu þótt hann vaxi lítið. Með öðrum orðum má ætla, að fiskurinn hafi „sóað æti“ svæðisins til við- halds sjálfum sér í stað þess að vaxa. Eiginlega geta aðeins tvær ástæður verið fyrir þessum mismun á milli tímabila. Í fyrsta lagi gæti æti hafa hrunið eða að fiskurinn sé orðinn hægvaxta. Þar sem ekki liggja fyrir upplýsingar um breyt- ingar á hitastigs- og ætisforsendum árin 11 á milli tímabilanna er næst að ætla að fiskurinn sé orðinn hæg- vaxta af erfðafræðilegum ástæðum. Með langvarandi veiðum með stærðarveljandi veiðarfærum hefur stofninn verið að breytast þannig að hlutfall hraðvaxta fiska hefur sí- fellt versnað. Fiskeldismenn vita að allir fiskhópar hafa mismunandi hraðvaxta einstaklinga. Ef þeir stærstu eru stöðugt sigtaðir frá verða smám saman hægar vaxandi einstaklingar eftir. Þetta er nánast þróunarkenning Darwins. Allir bændur skilja þennan samanburð. Hægvaxta dýr þurfa miklu meira æti til að ná tiltekinni stærð en hraðvaxta dýr. Er heima best? Margt bendir til þess að hið sama sé nú að gerast á Íslandsmiðum. Veiðistofninn er aðeins talinn þola 150 þús. tonna afla. Ef allt væri með felldu ættu fiskar nú að vera stórir vegna þess að álagið á vist- kerfið er meira en helmingi minna en áður var. En svo er ekki. Það virðist nú sem allur veiðistofninn sé að meðaltali um einu ári eldri til að ná þeirri veiðistærð kynslóða sem var þegar afli var 400 þús. tonn. Gróft áætlað gæti þetta bent til þess að ætisþörfin á Íslandsmiðum sé nú svipuð og áður var þegar afli var meira en tvöfaldur. Þegar ein- stakir árgangar í veiðinni eru skoð- aðir virðist fiskur yfir 9 ára aldri vera að mestu horfinn; líklegt er að einmitt afkomendur stórra fiska sýni mikinn vaxtarhraða þótt það sé ekki endilega víst. Miðað við ástandið á Kanadamiðum gætum við verið í svipuðum sporum og þeir voru ’87–’88 og því fáeinum árum fyrir hrun. Þessi tilhugsun er alveg skelfileg. Ef rétt er verður nú að friða hrygningarsvæði til þess að stuðla að því að sá stórfiskur, sem enn er eftir lifandi, geti tímgast. Síðan þarf í auknum mæli að stunda veiðar með veiðarfærum sem eru ekki stærðarveljandi. Enn- fremur væri rökrétt að friða heil hafsvæði til að gefa umræddri þró- un svigrúm til að eiga sér stað und- ir eftirliti. Í ljósi þessa birtast skoðanir og kenningar um grisjun í öðru ljósi en verið hefur. Miðað við að ástandið nú sé á miðjum „Kanadakúrs“ kæmi engin grisjun að gagni í því skyni að endurreisa afurðasemi miðanna. Grisjunin myndi fækka einstaklingum og flýta fyrir hruni. Ef aftur á móti ástand á miðum er erfðafræðilega í góðu lagi með hraðvaxandi stofnum, sem ná ekki eðlilegum vexti vegna ofsetningar, kæmi grisjun næstum örugglega að gagni, en vaxtarþörf og nýlegur vöxtur eru stærðir sem unnt er að mæla. Þannig má sjá að grisjun getur átt við um vissar aðstæður en ekki aðrar. Eru miðin geld? Jónas Bjarnason Fiskveiðistefna Miðað við að ástandið nú sé á miðjum „Kanadakúrs“, segir Jónas Bjarnason, kæmi engin grisjun að gagni í því skyni að endurreisa afurðasemi miðanna. Höfundur er efnaverkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.