Morgunblaðið - 16.01.2002, Síða 25

Morgunblaðið - 16.01.2002, Síða 25
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2002 25 Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina í janúar til Kanaríeyja á hreint ótrúlegu verði. Beint flug til Kanarí þann 31. janúar þar sem þú nýtur 25 stiga hita og veðurblíðu og getur fagnað nýju ári á þessum vinsælasta vetraráfangastað Evrópu við frábærar aðstæður. Þú bókar ferðina núna og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför, hringjum við í þig og látum þig vita hvar þú gistir, og á meðan á dvölinni stendur nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann. Verð kr. 39.905 Verð fyrir manninn, m.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, flug, gisting og skattar. 31. janúar, vikuferð. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 49.950 Verð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð, gisting, skattar. 31. janúar, vikuferð. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Síðustu sætin í janúar Aðrar ferðir 7. feb. – uppselt 14. feb. – uppselt 21. feb. – 8 sæti 28. feb. – 18 sæti Stökktu til Kanarí 31. janúar í viku frá kr. 39.905 FRÉTTIR eru sagðar af því, að héraðsdómstóll hafi dæmt mann í 12 ára fangelsi fyrir að hafa við komu til Íslands haft svonefndar E-töflur í fórum sínum. Þetta er hæsta refsing sem lög heimila í fíkniefnamálum. Í forsendum dómsins er m.a. sagt, að engu máli skipti, þó að leggja verði til grund- vallar, að maðurinn hafi tekið að sér að flytja þessi fíkniefni fyrir aðra. Allt að einu beri að beita há- marksrefsingu laga. Nokkrum vikum fyrr fréttum við, að Hæstiréttur hefði dæmt mann í 4½ árs fangelsi fyrir hrotta- legt nauðgunarbrot gegn ungri stúlku. Brotið var svo viðbjóðslegt, að ýmsir fjölmiðlar treystu sér ekki til að skýra frá atvikunum, sem lýst var í dómnum. Á Íslandi eru menn að jafnaði dæmdir í 16 ára fangelsi fyrir morð af yfirlögðu ráði. Hvernig er hægt að dæma mann til 12 ára fangelsisvistar fyrir flutn- ing á töflum milli landa, sem ætl- aðar eru til sölu, þegar refsingar fyrir gróf ofbeldisverk gegn lífi manna og limum eru ákveðnar með þeim hætti sem dæmin sanna? Við okkur blasir refsiframkvæmd í fíkniefnamálum sem einkennist af hreinu ofstæki, sem er drifið áfram af pólitískum rétttrúnaði. Nú skal „senda skilaboð út í samfélagið“ um fíkniefnabrotin. Kannast menn við orðalagið? Ráðherrar, alþingis- menn og dómarar taka höndum saman um að bera út þessi skila- boð. Ofstækið er svo algert, að há- marksrefsingunni er beitt á „burð- ardýrið“. Þeir eiga enga viðbót eftir, þegar „höfuðpaurinn“ næst. Niðurstaðan er sú, að ekkert skynsamlegt samhengi er lengur á milli refsinga mismunandi brota. Nú er t.d. orðinn sáralítill munur á refsingum fyrir fíkniefnabrot og morð. Sá sem stendur fyrir fíkni- efnasölu og verður hræddur um að annar segi frá, tekur ekki mikla áhættu með því að beita hinni „endanlegu lausn“ á uppljóstrar- ann. Það grátlegasta af öllu er svo það, að þeim verður ekkert ágengt. Neyslan eykst ár frá ári, þó að kostnaðurinn við löggæsluna sé aukinn og refsingarnar þyngdar. Og fíklarnir eru dæmdir út úr sam- félaginu. Þeir eru meðhöndlaðir eins og glæpamenn en ekki sjúk- lingar, sem þeir þó í reynd eru. Undirheimaveröldin þrífst eins og púkinn á fjósbitanum. Að loknu góðu dagsverki fá þeir sér svo í glas saman, ráðherrarnir, þing- mennirnir og dómararnir. Áfengið er nefnilega löglegt fíkniefni. Ofstæki sem engu skilar Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Ofstækið er svo al- gert, segir Jón Steinar Gunnlaugsson að há- marksrefsingunni er beitt á „burðardýrið“. Nærir og mýkir NÆRINGAROLÍA Mikið úrval af brjóstahöldurum verð frá kr. 700 Mömmubrjósta- haldarar kr. 1900 Úrval af náttfatnaði fyrir börn og fullorðna Nýbýlavegi 12, sími 554 4433

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.