Morgunblaðið - 19.02.2002, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.02.2002, Blaðsíða 12
Vistvænt heimilishald kynnt í áhaldahúsinu í gærkvöldi FJÖLSKYLDUM í Garðabæ gefst nú kostur á að taka upp umhverf- isvænni heimilishætti en áður þar sem Garðabær gerðist nýlega aðili að verkefninu „Vistvernd í verki“ sem er á vegum Landverndar. Verkefnið var kynnt á fundi í Áhaldahúsi Garðabæjar í gær. „Við erum að fá fjölskyldur í Garðabæ til þess að taka upp vist- vænna heimilishald sem vonandi leiðir til þess að sorp heimilanna minnki svo eitthvað sé nefnt,“ segir Sigurður Hafliðason, sem stjórnar verkefninu í Garðabæ. „Garðabær er tíunda sveitarfélagið sem tekur þátt í verkefninu og við vonumst auðvitað til að Garðbæingar taki vel í þetta.“ Verkefnið gengur út á að þátt- tökufjölskyldur gera breytingar á heimilishaldi sínu sem að sögn Sig- urðar taka sérstaklega til fimm þátta. Fjölskyldurnar eru hvattar til að flokka sorp meira en áður, minnka rafmagns- og vatnsnotkun með einföldum aðgerðum, huga að samgöngumáta með sparnað á elds- neyti í huga og haga innkaupum á sem umhverfisvænstan hátt. „Auk þess veldur þetta því að fólkið er meðvitaðra um hvað er hægt að gera betur,“ segir Sigurður. „Lítil skref til að byrja með sem verða kannski að einhverju stóru seinna meir.“ Neysla skoðuð í byrjun og lok verkefnisins Í lok verkefnisins er árangurinn skoðaður hjá þeim fjölskyldum sem taka þátt. Í upphafi, áður en heim- ilisvenjum er breytt, athuga fjöl- skyldurnar hvernig heimilishald þeirra kemur út á einni viku varð- andi þá fimm flokka sem áhersla er lögð á í verkefninu. Meðal annars Lítil skref sem verða að einhverju stóru Morgunblaðið/Ásdís Umhverfisvænt heimilishald var kynnt á fundi í áhaldahúsi bæjarins. er sorpið vigtað, lesið er á raf- magns- og hitamæla og notkunin könnuð, farið er yfir bensíneyðslu og innkaup. Síðan innleiða fjöl- skyldurnar breytingar á heimilis- haldinu og í lok tímabilsins, eftir 8– 10, vikur er þetta endurtekið og niðurstöður bornar saman við byrj- un tímabilsins. Sigurður segir fimm til átta fjöl- skyldur mynda hóp sem hittist vikulega á því tímabili sem verk- efnið stendur yfir. Hópurinn og fjölskyldurnar njóta síðan leiðsagn- ar leiðbeinanda. „Leiðbeinandinn er með hópnum þegar hann kemur fyrst saman og þegar hann hættir en annars er hann í símasambandi við fjölskyldurnar. Hann er eins konar stuðningsaðili þar sem hug- myndin er að hópurinn sé eins sjálf- stæður og mögulegt er. Fjölskyld- urnar hittist heima hjá hver annarri og fara í gegn um þetta saman. Þannig kemur stuðningur frá hópnum auk þess sem það koma fram hugmyndir um hvar hægt er að spara.“ „Svolítið eins og trúboðastarf“ Verkefninu er fyrst og fremst beint að fólki sem hefur áhuga á að taka þátt í því. „Þetta er svolítið eins og trúboðastarf,“ segir Sigurð- ur og hlær. „Við erum ekki að neyða neinn í þetta heldur spinnst þetta vonandi hægt og rólega í kringum þær fjölskyldur sem byrja þannig að fleiri og fleiri verði með.“ Þær fjölskyldur sem taka þátt fá kynningarefni þar sem farið er í gegnum hverju má áorka með um- hverfisvænu heimilishaldi, hvernig menn setja sér raunhæf markmið, hvernig flokkun á sorpi fer fram og svo mætti lengi telja. Sigurður seg- ir að þegar hafi fjórar fjölskyldur skráð sig til þátttöku í verkefninu fyrir kynningarfundinn í gærkvöldi en áhugasamar fjölskyldur geta snúið sér til bæjarskrifstofa Garða- bæjar. Garðabær HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ REKTOR Menntaskólans í Reykja- vík segir fyrsta skrefið hafa verið tekið í átt að framkvæmdum við upp- byggingu skólahúsnæðisins með um- mælum borgarstjóra um að borgin hygðist taka þátt í kostnaði við upp- bygginguna. Rektor segir ekkert standa í vegi fyrir því að hefja fram- kvæmdir um leið og fjármagn berst. Á fundi í Menntaskólanum við Hamrahlíð í síðustu viku sagði Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri að hún væri tilbúin að beita sér fyrir því að borgin legði fram fé til endurbóta á Menntaskólanum í Reykjavík. Yngi Pétursson, rektor MR, fagn- ar þessum ummælum borgarstjóra. „Þetta er í rauninni fyrsta skrefið. Það hefur staðið á því að finna grundvöll fyrir samningum milli rík- is og Reykjavíkurborgar um að borgin kæmi að þessum bygginga- framkvæmdum skólans. Afstaða rík- isins hefur verið sú að það verði ekki farið í framkvæmdir fyrr en Reykja- víkurborg kæmi að þessu þannig að þetta er í rauninni fyrsti vísirinn að því.“ Ný aðalbygging skólans Hann segir að endurbæturnar fel- ist í almennri uppbyggingu á skóla- reitnum. „Það fór fram hugmynda- samkeppni um nýtingu á reitnum vorið 1995 og þar unnu þau Helgi Hjálmarsson og Lena Helgadóttir fyrstu verðlaun. Það er unnið út frá þeirra hugmyndum og nú er vinna við deiliskipulag fyrir þennan reit í fullum gangi.“ Meðal þess sem tillögurnar gera ráð fyrir er að gamla hús KFUM og K víki og í staðinn rísi upp ný að- albygging skólans. „Þegar Davíð S. Jónsson gaf okkur Þingholtsstræti 18 var farið í framkvæmdir við þetta nýja raungreinahús sem nú er risið en síðan voru allar framkvæmdir stoppaðar,“ segir Yngvi. „En um leið og samkomulagið er komið milli Reykjavíkurborgar og ríkisins og fjármagnið berst þá held ég að það standi ekkert í vegi fyrir því að hefj- ast handa á ný.“ Borgarstjóri lýsir yfir vilja til að borgin taki þátt í kostnaði við uppbyggingu MR Framkvæmdir hefjist um leið og fjármagn berst Morgunblaðið/Ásdís Nú hillir undir að hægt verði að hefja uppbyggingu við Menntaskólann í Reykjavík þar sem borgarstjóri hefur lýst yfir vilja til þess að borgin taki þátt í kostnaði við framkvæmdirnar. Miðborg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.