Morgunblaðið - 22.02.2002, Blaðsíða 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2002 53
úlpur húfur vettlingar pollagallar jakkar
skór flíspeysur flísbuxur sokkar treflar
teppi kuldagallar vinnugallar hanskar
lambhúshettur ennisbönd göngubuxur
úlpur húfur vettlingar pollagallar jakkar
skór flíspeysur flísbuxur sokkar treflar
teppi kuldagallar vinnugallar hanskar
lambhúshettur ennisbönd göngubuxur
úlpur húfur vettlingar pollagallar jakkar
skór flíspeysur flísbuxur sokkar treflar
teppi kuldagallar vinnugallar hanskar
lambhúshettur ennisbönd göngubuxur
úlpur húfur vettlingar pollagallar jakkar
skór flíspeysur flísbuxur sokkar treflar
teppi kuldagallar vinnugallar hanskar
Rýmingarsala!
Faxafeni 12
– vestanmegin
Útivistarfatnaður
Vinnufatnaður
Opið: Virka daga 13 - 18 / Laugardag 10 - 14 / Sunnudag 13 - 17
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
•
0
5
5
3
3
•
s
ia
.i
s
Allt ð
70%
afs áttur!
Meðan á útsölunni stendur verður:
20% afsláttur af kuldagöllum
15% kynningarafsláttur af
nýjum barna kuldagöllum
í öllum verslunum okkar.
ÚRSLIT Íslandsmeistarakeppni
Tónabæjar fyrir unglinga í frjáls-
um dönsum fer fram í íþróttahúsi
Fram í dag, föstudaginn 22. febr-
úar kl. 18.
Keppendur á aldrinum 13 – 17
ára allstaðar af landinu munu
berjast um Íslandsmeistaratitilinn
í frjálsum dönsum.
Um 150 keppendur munu keppa
í hóp- og einstaklingsdansi.
Þetta er í 21. skipti sem keppn-
in er haldin og er það Fé-
lagsmiðstöðin Tónabær sem
stendur að henni.
Íslandsmeistarakeppnin í frí-
stæl fyrir 10 – 12 ára verður síð-
an laugardaginn 23. febrúar í
íþróttahúsi Fram kl. 12, segir í
fréttatilkynningu.
Vinningshafar í frístæl-danskeppninni árið 2001.
Um 150 unglingar
í danskeppni
OPIÐ prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins til að velja framboðs-
lista flokksins fyrir komandi
sveitarstjórnarkosningar á
Akranesi verður á morgun,
laugardaginn 23. febrúar, kl.
10–19 og fer fram á Kirkju-
braut 17 (Ásgarði). Prófkjörið
er opið öllum atkvæðisbærum
Akurnesingum sem undirrita
stuðningsyfirlýsingu við Sjálf-
stæðisflokkinn. Auk þess mega
taka þátt þeir félagar í Þór,
FUS Akranesi, sem skráðir
hafa verið félagar fyrir síðustu
áramót, þótt þeir hafi ekki náð
kosningaaldri enn. Kynningar-
fundur frambjóðenda verður í
dag, föstudaginn 22. febrúar,
kl. 20 í Sjálfstæðissalnum.
Tólf manns gefa kost á sér og
eru þau: Gunnar Sigurðsson
framkvæmdastjóri og Jón
Gunnlaugsson umdæmisstjóri,
sem eru nú tveir af þremur
bæjarfulltrúum á Akranesi,
Sævar Haukdal framkvæmda-
stjóri, Guðrún Elsa Gunnars-
dóttir iðnrekstrarfræðingur,
Sæmundur Víglundsson bygg-
ingartæknifræðingur, Guð-
mundur Egill Ragnarsson veit-
ingamaður, Eydís Aðalbjörns-
dóttir landfræðingur, Hallveig
Skúladóttir hjúkrunarfræðing-
ur, Ingþór Þórhallsson pípu-
lagningarmaður, Kristjana
Guðjónsdóttir nemi, Lárus Ár-
sælsson verkfræðingur og
Þórður Þ. Þórðarson bifreiða-
stjóri.
Um kvöldið verður síðan
kosningavaka í Sjálfstæðissaln-
um frá kl. 21.
Opið
prófkjör á
Akranesi
MARGMIÐLUNARSKÓLINN
býður upp á opna fyrirlestra alla
föstudaga sem eru ókeypis og ætl-
aðir öllum. Fyrirlestrarnir fara fram
í „Salnum“ Faxafeni 10, 2. hæð og
eru kl. 12.15.
Í dag, föstudaginn 22. febrúar,
mun Guðbjörg Gissurardóttir, graf-
ískur hönnuður, verða með fyrirlest-
ur um samsetningu lita, forma, let-
urs og áferðar í hönnun þar sem
stöðugt er verið að senda út tilfinn-
ingaleg skilaboð, ákveðna vöru,
þjónustu eða fyrirtæki.
Sjónrænt tungumál er það sem
hjartað les eftir að hugurinn er orð-
inn hljóður.
Nánari upplýsingar er hægt að fá í
netfanginu; fyrirlestrar@mms.is,
segir í fréttatilkynningu.
Sjónrænt
tungumál