Morgunblaðið - 22.02.2002, Qupperneq 8
AUÐLESIÐ EFNI
8 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
EKKI eru líkur á að
Landssíminn verði seldur á
þessu kjörtímabili, sagði
Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra síðastliðinn
fimmtudag. Ríkisstjórnin
hefur unnið að sölu Símans
frá því í sumar.
Töluverðar deilur hafa verið
um Landssímann
síðastliðnar vikur. Hafa menn
meðal annars gagnrýnt
starfsloka-saming Þórarins V.
Þórarinssonar, fyrrverandi
forstjóra Símans. Þórarinn
var ráðinn til fimm ára 1999
þótt vitað væri að selja ætti
fyrirtækið. Friðrik Pálsson,
stjórnar-formaður
Landssímans, segir
samningin hafa verið gerðan
vegna fyrirheita sem
samgönguráðherra hafi veitt
Þórarni.
Greiðslur sem Friðrik hlaut
frá Símanum fyrir
ráðgjafarstörf sín hafa einnig
verið gagnrýndar. Komið
hefur fram að Friðrik fékk
greiddar rúmlega fimm
milljónir króna fyrir vinnu sína.
Öðrum stjórnar-meðlimum var
ekki kunnugt um greiðslurnar.
Þeir sendu frá sér yfirlýsingu
vegna málsins á mánudag.
Þar segir að greiðslurnar séu
sanngjarnar. Óeðlilegt sé þó
að stjórnin hafi ekki vitað af
þeim.
Tveir hafa sagt sig úr stjórn
Símans vegna málsins. Það
eru þau Flosi Eiríksson, sem
ekki stóð að yfirlýsingunni, og
Sigrún Benediktsdóttir. Hún
telur alla stjórnarmenn eiga
að segja af sér vegna málsins
þar sem stjórnin njóti ekki
lengur trúnaðar.
Tveir segja sig úr stjórn Símans
Sölu Lands-
símans frestað
HÁTT á fjórða hundrað manns
fórust þegar eldur kom upp í
lest í Egyptalandi í
gærmorgun. Atburðurinn átti
sér stað í nágrenni við
borgina Al Ayatt.
Lestin var troðfull af fólki
sem var á heimleið eftir að
hafa tekið þátt í trúarhátíð
múslima. „Ég sá mæður
vefja örmunum um börn sín.
Þær reyndu síðan að kasta
sér út um gluggann með þau
til að bjarga þeim frá
ægilegum dauðdaga í
bálinu,“ sagði
aðstoðar-lestarstjórinn.
Mikil skelfing greip um sig
meðal farþeganna þegar
eldurinn uppgötvaðist. Sáust
sumir hlaupa í logandi
klæðum milli klefa í leit að
útgönguleið.
Brunnin lík fundust í
lestinni. Voru sum þeirra við
rimla sem voru fyrir mörgum
gluggum lestarklefanna.
Yfirmaður björgunar-aðgerða
sagði að farþegarnir hefðu
verið fastir í brennandi
fangelsi. Rimlar og dyr sem
erfitt var að opna hefðu gert
mörgum ókleift að sleppa út.
Ekki er vitað hvað olli
slysinu. Atef Ebeid,
forsætisráðherra
Egyptalands, sagði þó á
miðvikudag að kviknað hefði í
eldunartæki eins farþega.
Lögregla taldi hins vegar að
skammhlaup eða sprenging í
gashylki hefði valdið
eldinum.
Er þetta eitt
mannskæðasta lestarslys
sem orðið hefur.
Eldsvoði í egypskri lest veldur miklu manntjóni
AP
Björgunarmenn að störfum í lestinni.
373 fórust í lestarslysi
Bush í ræðu sinni.
Bush sagði ennfremur að
Bandaríkjamenn ætluðu að
draga úr spennu milli kóresku
ríkjanna. En forsetinn hefur
verið sakaður um að auka á
spennuna með því að segja
Norður-Kóreu hluta af „öxli
hins illa“. Átti óeirða-lögreglan
í Suður-Kóreu á miðvikudag í
átökum við hóp manna sem
mótmæltu heimsókn Bush.
Bush á ferð um Asíu
AP
Heimsókn Bush til Suður-Kóreu mótmælt.
GEORGE W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, er þessa
dagana á ferð um Japan,
Suður-Kóreu og Kína.
Forsetinn hefur þegar lokið
heimsókn sinni til
Suður-Kóreu og Japans.
Ávarpaði hann meðal annars
japanska þingið. „Velgengni
þessa heimshluta skiptir
sköpum fyrir heiminn. Ég er
sannfærður um að 21. öldin
verður öld
Kyrrahafs-svæðisins,“ sagði Netfang: auefni@mbl.is
RÚMLEGA fimmtugur maður
var myrtur á leið heim úr vinnu
aðfaranótt mánudags á
Víðimel í Reykjavík. Hann hét
Bragi Óskarsson.
Vinnufélagar Braga skildu við
hann við Melatorg um nóttina.
Þaðan ætlaði hann að fara
fótgangandi heim. Vegfarandi
gekk fram á lík hans snemma
um morguninn.
Lögregla lokaði Víðimel
samstundis og tilkynnt var um
morðið. Hún stóð fyrir
umfangs-mikilli leit sem leiddi
til handtöku á Þór
Sigurðssyni, 23 ára gömlum
manni. Hann hefur þegar
játað á sig verknaðinn.
Að sögn lögreglu var
árásar-maðurinn á heimleið
eftir innbrot þegar atburðurinn
átti sér stað. Hann hafði
brotist inn í Hjólbarða-viðgerð
Vesturbæjar og var vopnaður
sveðju, slaghamri og kjötexi.
Talið er að eitthvert þessara
vopna hafi banað Braga. Ekki
er þó ljóst hvert þeirra Þór
notaði. Þá er ekki ljóst hvort
mennirnir skiptust á orðum
eða hvort Þór barði Braga
fyrirvaralaust.
Lögregla segir allt benda til
að tilviljun hafa ráðið árásinni.
Ekkert bendi til að Bragi hafi
þekkt árásarmann sinn. Talið
er að Þór hafi verið undir
áhrifum fíkniefna.
Morgunblaðið/Júlíus
Lögregla rannsakar morðstað.
Maður myrtur á Víðimel
HAUKAR urðu um helgina
bikar-meistarar í
hand-knattleik karla. Sigraði
liðið Fram með 30 mörkum
gegn 20. Er þetta annað
árið í röð sem Haukar verða
bikar-meistarar.
Einnig var leikið til úrslita
í bikarmeistara-keppni
kvenna um helgina. Fór ÍBV
þar með sigur af hólmi í leik
gegn Gróttu/KR. Unnu þær
leikin með 22 mörkum gegn
16.
Haukar og ÍBV meistarar