Morgunblaðið - 28.02.2002, Qupperneq 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2002 19
hreinlætistæki
Sími 525 3000 • www.husa.is
á Heimilisdögum Húsasmi›junnar.
Innanhússmálning 10 ltr, gljástig 07
Ver› á›ur 6.990 kr.
Ver› nú 4.990 kr.í miklu úrvali, einnig úrval af
Harry Potter veggborðum.
Ver› frá 300 kr.
10-40%
Heimilisdagar
gólfefni
málning
ljós
JOTA PROFF
Veggfóðursborðar
10-40%
afsláttur
Í ÞÓRSHAFNARHREPPI hefur verið fólksfækkun síð-
ustu árin eins og víðast hvar á landsbyggðinni. Á síð-
asta ári var þó reynt að snúa vörn í sókn en óvenju
margar barnsfæðingar voru þá í hreppnum því tólf
börn bættust við íbúatöluna; fjórir drengir og átta
stúlkur. Þeir koma því til með að búa við kvennaríki.
Árið 2000 fæddust aðeins fimm börn í hreppnum svo
barnsfæðingum fjölgaði um því næst 140 prósent. Ef
þessi þróun heldur áfram verður blessað barnalán í
Þórshafnarhreppi og bjart framundan.
Barnabomba á síðasta ári
Þórshöfn
ÓSK Grímseyinga rættist. Vestan-
vindurinn gekk niður þannig að ferj-
an okkar Sæfari og Twin Otter Flug-
félags Íslands komust heilu höldnu
til Grímseyjar færandi gesti, veislu-
stjóra og hljómsveit á hið árlega
þorrablót Kvenfélagsins Baugs.
Salurinn í Múla var þéttsetinn,
lagt var á borð fyrir 90 manns og
matarborðið svignaði undan þorra-
krásum. Grímseyingar eru um 100
talsins svo þetta telst með eindæm-
um góð mæting.
Hera Björk Þórhallsdóttir söng-
kona á Dalvík sá um veislustjórn
með ívafi þorrablótsnefndar sem í ár
var skipuð þeim Áslaugu Helgu Al-
freðsdóttur, Guðrúnu Ingu Hannes-
dóttur, Stellu Gunnarsdóttur og Þor-
gerði Einarsdóttur.
Sigrún Þorláksdóttir formaður
Baugs flutti hinn ómissandi þorra-
annál, þar sem stiklað var á stórum
skondnum viðburðum í lífi Grímsey-
inga þetta síðasta ár og lesnar aug-
lýsingar frá íbúum.
Að borðhaldi loknu var salurinn
rýmdur og dans stiginn við frábæra
tóna hljómsveitarinnar Sweety frá
Dalvík, langt fram eftir nóttu.
Þorrablótin eru það skemmtikvöld
sem flestir úr landi reyna að taka
þátt í með eyjarbúum. Milli 30 og 40
gestir komu í þetta sinn og hækkuðu
tölu veislugesta úr 50–60 upp í 80–90
sem er glæsileg þátttaka.
Þorri eyjaskeggja
sótti þorrablótið
Grímsey
Morgunblaðið/Helga Mattína
Grímseyingar og gestir þeirra skemmtu sér á árlegu þorrablóti sínu.
NEMENDUR í 2., 3. og 4. bekk
Laugagerðisskóla unnu Brunahan-
ann sem er farandgripur veittur til
eins árs í senn. Verðlaunin fengu
nemendurnir fyrir að vera prúðir
og til fyrirmyndar þegar Bjarni
Þorsteinsson, slökkiviliðsstjóri í
Borgarnesi, kynnti þeim eldvarnir.
Á myndinni má sjá börnin með
Brunahanann og viðurkenning-
arskjalið sem var afhent í byrjun
febrúar.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Nemendur með Brunahanann og viðurkenningarskjalið.
Nemendur fengu
„Brunahanann“
Eyja- og Miklaholtshreppur