Morgunblaðið - 10.03.2002, Qupperneq 11
gefa hugmyndir um stærð viðfangsefnisins
má nefna að kostnaðurinn við tökurnar og
uppihaldið hérlendis hleypur á um 30 millj-
ónum króna á dag og segja má að annars kon-
ar vertíð standi yfir hjá heimamönnum í Höfn
og nágrannasveitum en þeir eru vanastir.
Tökur hófust 25. febrúar og er áætlað að þeim
ljúki 16. mars nk. Heildarkostnaðurinn verð-
ur því yfir 300 milljónir kr. Það er þó aðeins
lítið brot af heildarkostnaði við myndina sem
er áætlaður um 100 milljónir dollara, eða um
og yfir tíu milljarðar ísl. króna. En James
Bond-myndirnar eru líka gullkista fyrir fram-
leiðendurna. Síðustu þrjár myndir, þ.e.
Goldeneye (’95), Tomorrow Never Dies (’97)
og The World is Not Enough (’99), hafa skilað
í aðsóknartekjur yfir einum milljarði dollara,
eða sem svarar yfir 100 milljörðum ísl. króna.
Reiknað er með að aðsóknartekjur af mynd-
inni sem nú er verið að gera verði um 350
milljónir dollara, eða yfir 35 milljarða ÍSK.
Málmlakk blandað gulli
Það bar vel í veiði þegar Morgunblaðið fór á
tökustað. Enginn fékk þó að fara út á ísinn
fyrr en hann hafði klæðst flotgalla og úti á
ísnum eru fjórir kafarar ávallt til taks ef ísinn
skyldi gefa sig. Verið var að taka upp atriði
þar sem óþokkinn eltir Bond á spegilsléttum
ísnum á lóninu með risavaxna, bláleita ísjaka í
bakgrunni.
Það ríkir ávallt nokkur eftirvænting um á
hvers konar bíl Bond sýnir listir sínar. Að
þessu sinni eru það stoltir fulltrúar breskrar
bílaframleiðslu sem fá ómælda kynningu í nýj-
ustu Bond-myndinni. Farkostur óþokkans er
Mikil nákvæmnisvinna var að raða upp sprengjum í ísinn.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 B 11