Morgunblaðið - 10.03.2002, Blaðsíða 14
Ein snúin…
Hvernig egg á maður að kaupa til að vera viss
um að það sé ekki stropað?
BÚI Vilhjálmur Ólason er níu ára og ekki sérlega
hamingjusamur drengur, þar sem hann býr með leið-
inlegum fósturforeldrum. En kvöld eitt gerast í meira
lagi furðulegir atburðir og Búi kemst að því að hann
er í raun ekki Búi heldur Míó prins í Landinu í fjarsk-
anum! Og þegar hann loksins kemst þangað bíður
hans mikilvægt verkefni og síður en svo hættulaust!
Elsku Míó minn er ótrúlega spennandi og falleg
bók, og er því lík annari bók eftir sama frábæra rit-
höfund Astrid Lindgren, Bróðir minn Ljónshjarta.
Viltu lita myndina þar sem Míó
og besti vinur hans Jum-Jum
ríða Miramis, hestinum með
gullhófana og gullfaxið?
Þekkið þið Míó?
Prinsinn í fjarskanum
Púff!
FRÚ Svava fer daglega út í búð að kaupa allt það
sem heimtufreku tvíburarnir hennar, Hans og
Gréta, krefjast að til sé á heimilinu. Hér sést frú
Svava bæði sveitt og þreytt að bera allar vörurnar
heim úr búðinni. Ef hún hefði ekki verið svo stress-
uð að taka til fyrir bekkjarpartí tvíburanna hefði frú
Svava kannski ekki gleymt svolitlu heima – sem
leynist á einni af litlu myndunum – og þá væri hún
ekki svona sveitt. Á hvaða mynd er það?
Svar á næstu síðu.
BÍ bí bí!
Eru þetta ekki krúttlegir ungar?
Bráðum fer að líða að páskum og ekki úr vegi að
byrja að föndra. Þessa litlu bómullarunga í eggja-
skurn er auðvelt að gera. Hægt er að gera bara
einn og skreyta með eða heilt hreiður einsog hér
sést.
Það sem þú þarft:
2 gulir bómullarhnoðrar
Eggjaskurn af hálfu
eggi
Svartan föndurpappír
Appelsínugulan fönd-
urpappír
Skæri
Gatari
Lím
Það sem þú gerir:
1) Notaðu gatarann til að
gera augu úr svarta
pappírnum.
2) Klipptu út ferhyrning
úr appelsínugula
pappírnum, brjóttu
hann í miðju á ská
til að búa til gogg.
3) Límdu annan bóm-
ullarhnoðrann inn í
eggjaskurnina fínu.
Límdu hinn hnoðr-
ann ofan á, hann
verður hausinn.
4) Límdu svo augun
og gogginn á.
Er unginn þinn ekki
sætur?
Fjör að föndra
Páskaungar
Morgunblaðið/Hildur Lofts
ÞORGEIR Kristinn er 6 ára og
gengur í Vesturbæjarskóla.
Hann fer stundum í leikhús
þótt honum finnist eiginlega
skemmtilegra að fara í bíó.
Hann er búinn að sjá leikritið
Prumpuhólinn og það var gam-
an. „Það var svo fyndið þegar
Pumpuhóllinn prumpaði,“ seg-
ir Þorgeir og brosir.
„Það er tröllastrákur sem
heitir Steini og Prumpuhóllinn
er pabbi hans. Og það
var svo mikill vindur og hann
hnerraði og hnerraði svo mikið
að nefið á honum fauk af. Og
þegar hann prumpaði þá var
það ótrúlega raunverulegt.“
– Er annað furðulegt sem
gerist?
„Já, einsog þegar Steini bjó
til gítar á einni eða tveimur
sekúndum og spilaði á hann
mjög skemmtilegt lag. Og
stelpan Hulda hún spilaði lag
um Steina en söng ekkert.“
– Hver var
skemmtilegasta
persónan?
„Prumpu-
hóllinn, en
hann talaði
bara trölla-
steinamál,
og það er
mús sem út-
skýrir fyrir
Steina hvað
hann er að
segja.“
– Eitthvað að
lokum?
„Þetta er
skemmtilegt
leikrit.“
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Á
sd
ís
Þorgeir
Kristinn
Blöndal
Krakkarýni: Prumpuhóllinn
Tröllasteinamál og
skemmtileg tónlist
HÚN Hulda er nýflutt út í sveit með foreldrum sínum og Halla bróður. Henni
líst lítið á sveitina, þar er bara náttúrufýla og stingandi gras. Henni fannst
miklu skemmtilegra að búa í borginni.
Svo fara þau systkinin í feluleik og þá rammvillist Hulda í náttúrunni. Og
viti menn! Hulda hittir tröllastrákinn Steina og kynnist þar með pabba hans
Prumpuhólnum sjálfum og mörgum ótrúlega skemmtilegum furðuverum
náttúrunnar.
Hér átt þú að tengja ýmis orð við annaðhvort sveit eða borg – eftir því
hvar þér finnast þau betur eiga heima – og lausnin kemur í næsta blaði.
Prumpuhóllinn í Möguleikhúsinu
Morgunblaðið/Sverrir
Hvað ætli Steini sé að sýna Huldu?
Furðuverur náttúrunnar
Símaklefi
náttúrufýla
hverastrýta
dótabúð
tölvuleikjastaður
tröllastrákar
tún
strætó
hellir
belja á beit
götuskilti
hundasúrugrautur
leggur og skel
Kringlan
bíó
Ís og snjór,
ís og snjór,
ekkert nema
ís og snjór.
Þannig mætti kannski helst lýsa því hvern-
ig umhorfs var á Íslandi og víðar á seinustu
ísöld. Eða var kannski ekkert Ísland til fyrir
18 þúsund árum þegar þykkur ísskjöldur lá
yfir þriðjungi jarðarinnar, yfir allri Norður-
Evrópu, allt suður til Lundúna? Jú, Ísland er
nú eldra en það.
Menn veiða furðudýr
En það hefur ekki verið mikið stuð að búa
hér þá, allt á kafi í ís og snjó og hvergi arða að
borða. En þegar ísaldarjökullinn bráðnaði síð-
an, hækkaði yfirborð sjávar og víða komu í
ljós fallegir dalir sem jökullinn hafði búið til.
Kannski býrð þú í þannig firði?
Vísindamönnum þykir ekki ólíklegt að önn-
ur ísöld muni bresta á í framtíðinni – en ekki
alveg á næstu dögum.
Það var einmitt á þessu tímabili sem mað-
urinn kemur fram – líkast til í Afríku – og
dreifði sér fljótt um lönd heimsins. Og á norð-
urhveli jarðar voru menn að veiða
loðfíla, loðnashyrninga og sverð-
ketti. (Hvernig ætli grillaður loð-
nashyrningur sé á bragðið?
Namm!?) En þau dýr dóu víst
út fyrir alla vegana 10 þúsund
árum eða svo…
Gáfuleg ísaldardýr
lifna við
Heyrst hefur þó að þau muni lifna við á
næstunni í nýrri teiknimynd sem frumsýnd
verður á Íslandi 22. mars nk.
Þar segir frá þessum gáfulegu ísaldardýr-
um sem þú sérð hér saman komin. En þau
munu þurfa að koma litlu mennsku barni aft-
ur í hendur föður síns og það getur verið
hættulegt þegar ísöld er yfirvofandi. Og af út-
liti dýranna að dæma, mun nú eitthvað ganga
á!
Sjá: www.iceagemovie.com
Yfirvofandi ísöld?
Vinirnir þurfa að takast á við ótal hættur sem leynast alls staðar á ísöld.
Letidýr, loðfíll,
sverðköttur og
sverðíkorni (?)
gerast bestu vinir.
Svar: Páskaegg