Morgunblaðið - 12.03.2002, Qupperneq 1
2002 ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
SIGURSÆL SYSTKINI ÚR INNBÆNUM Á AKUREYRI / B2
APEiður Smári Guðjohnsen og
samherjar hans hjá Chelsea
fögnuðu fjórum mörkum og
sigri á Tottenham í ensku
bikarkeppninni, 4:0. Eiður
Smári skoraði tvö mörk og
hefur skorað 21 mark fyrir
Lundúnaliðið í vetur. Chels-
ea mætir Fulham í undanúr-
slitum. Umsögn um bikar-
leiki er á B5.
KNATTSPYRNUSAMBAND
Íslands hefur samið við Ung-
verja að þeir komi til Íslands í
september með a-landslið sitt
og ungmennalið, skipað leik-
mönnum undir 21 árs. A-
landsliðin leika á Laugardals-
vellinum laugardaginn 7.
september, en ungmennaliðið
eigast við daginn áður.
Ísland og Ungverjaland
hafa mæst sex sinnum í gegn-
um tíðina og hefur hvor þjóð
unnið þrjá leiki.
Ungverjar
koma til
Íslands
Mikil ánægja ríkir í herbúðumCiudad Real með samninginn
við Ólaf sem á að öllu óbreyttu að
taka gildi sumarið 2003 og er til fjög-
urra ára.
Veslin Vujovic, sem var m.a. leik-
maður júgóslavneska landsliðsins
þegar það varð heimsmeistari 1986
og síðar landsliðsþjálfari Júgóslava,
er þjálfari Ciudad Real um þessar
mundir. Hann segir það verða gríð-
arlegan feng fyrir félagið að fá Ólaf
til liðs við sig. „Að fá Ólaf til liðsins
eru einar bestu fréttir sem hægt er
að hugsa sér þegar haft er í huga að
hann er ein besta örvhenta skyttan í
heiminum í dag. Ólafur er góður í
vörn og sókn og ber boltann upp í
hraðaupphlaupum. Hann er stór-
kostlegur leikmaður sem er mjög
fjölhæfur og þá hæfileika hans þurf-
um við að nýta okkur til þess að hann
geti gert gæfumuninn og gert liðið að
spænskum meisturum.“
Talant Duishebaev, aðalleikstjórn-
arandi Ciudad, er einnig í sjöunda
himni vegan væntanlegs liðsstyrks.
„Ólafur er einn besti leikmaður
heims í sinni stöðu. Hann er frábær
leikmaður sem hefur sýnt að hann
getur gert gæfumuninn. Með samn-
ingnum við Ólaf hefur liðið enn verið
styrkt því á meistaraliði þarf ávallt að
gera nokkrar breytingar,“ sagði Du-
ishebaev sem oft hefur verið valinn
besti handknattleiksmaður heims.
Ciudad vonast eftir
Ólafi til Spánar í vor
FORRÁÐAMENN spænska félagsins Ciudad Real, sem Ólafur Stef-
ánsson gerði samning við um helgina gera sér vonir um að geta
keypt hann undan samningi við Magdeburg í vor eða sumar, þ.e. ári
fyrr en nýundirritaður samningur Ólafs við félagið tekur gildi. Dom-
ingo Díaz de Mera, forseti Ciudad Real segir að þetta velti allt á
gengi Magdeburg á næstu vikum. „Ef Magdeburg vinur Evrópubik-
arinn verður mun auðveldara að ganga frá kaupunum því þá muni
það hafa náð markmiði sínu og þægilegra verður að semja við for-
ráðamenn Magdeburg,“ segir de Mera í frétt Europa Press.
■ Menningin á Spáni.../ B12
Ólafur Stefánsson