Morgunblaðið - 14.03.2002, Side 1

Morgunblaðið - 14.03.2002, Side 1
61. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 14. MARS 2002 STUÐNINGSMENN Roberts Mug- abes, forseta Zimbabve, fagna end- urkjöri hans í Harare, höfuðborg Zimbabve, í gær. Skv. kjörtölum yf- irvalda fékk Mugabe 56,2% greiddra atkvæða en keppinautur hans um forsetastólinn, Morgan Tsvangirai, 41,9%. Tsvangirai sagði hins vegar að kosningasvik hefðu verið viðhöfð og hafnaði hann þess- um úrslitum. Þá sögðu eftirlits- nefndir, sem fylgdust með fram- kvæmd kosninganna, þær ekki hafa verið frjálsar og lýðræðislegar. Umdeildum sigri fagnað Reuters Þrír féllu í aðgerðum Ísraelshers á heimastjórnarsvæðum Palestínu- manna, þar af einn liðsmanna líf- varðasveita Yassers Arafats, leiðtoga Palestínumanna. Ísraelskir hermenn skutu einnig til bana ítalskan frétta- ljósmyndara í Ramallah og þá skutu palestínskir byssumenn ísraelskan hermann til bana í sömu borg. Hernaðaraðgerðir Ísraela undan- farna tvo daga eru þær mestu í 20 ár, eða frá innrásinni í Líbanon 1982. Ekki mun ríkja einhugur um þær innan ríkisstjórnar Ariels Sharons forsætisráðherra en fullyrt var í gær að Binyamin Ben-Eliezer, varnar- málaráðherra og leiðtogi Verka- mannaflokksins, hefði hótað afsögn ef Ísraelsher yrði ekki kallaður frá yfirráðasvæðum Palestínumanna. Skref í rétta átt Í ályktun öryggisráðsins, sem lögð var fram af Bandaríkjamönnum, er hvatt til þess að Ísraelsmenn og Pal- estínumenn búi „í friðsemd í ríkjum innan viðurkenndra landamæra“. „Þessi ályktun er mikilvæg og í fyrsta sinn eru aðildarríki öryggis- ráðsins sammála um að stofna skuli sjálfstætt palestínskt ríki,“ sagði Na- bil Abu Rudeina, ráðgjafi Arafats. „Ályktunin er skref í rétta átt,“ sagði Saeb Erekat, aðalsamningamaður Palestínumanna. Hann sagði hins vegar útilokað að árangur yrði af för sáttasemjarans Anthonys Zinnis til Miðausturlanda á meðan Ísraelar sætu um Ramallah. Shimon Peres, utanríkisráðherra Ísraels, kaus að tjá sig ekki um þann hluta ályktunar SÞ, þar sem nefnt er sjálfstætt palestínskt ríki, en fagnaði því að lögð væri áhersla á það að binda bæri enda á öll hryðjuverk í heimshlutanum, sem og allt fram- ferði sem æst gæti til ofbeldis. Ályktun öryggis- ráðs SÞ fagnað Ekkert lát á aðgerðum Ísraelshers á yfirráðasvæðum Palestínumanna Jerúsalem, Brussel, London, Berlín. AFP. PALESTÍNUMENN fögnuðu í gær ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna frá því á þriðjudagskvöld en þar léði ráðið í fyrsta sinn máls á stofnun sjálfstæðs palestínsks ríkis. Ófriðaraldan í Miðausturlöndum hélt hins vegar áfram í gær þrátt fyrir að öryggisráðið hefði hvatt báða aðila til að leggja allt kapp á að binda þegar enda á „öll ofbeldisverk, ögrun og eyðileggingu“.  Þeir munu/24 ROGER, hálfbróðir Bills Clintons, nýtti sér náðunarvald forsetans í auðgunarskyni. Þessi er niðurstaða þingnefndar sem rannsakaði málið. Á lokadögum sínum í embætti Bandaríkjaforseta náðaði Bill Clinton fjölda fólks og komu marg- ar náðanirnar mjög á óvart. Er tal- að um „náðanahneykslið“ vestra í þessu viðfangi því fullyrt hefur ver- ið að greitt hafi verið fyrir þær í einhverjum tilfellum. Því hefur Bill Clinton neitað. Nú hefur svonefnd „umbóta- nefnd“ fulltrúadeildar Bandaríkja- þings skilað af sér skýrslu um mál- ið sem henni var falið að rannsaka. Niðurstaða nefndarinnar er sú að Clinton forseti hafi hvatt hálfbróð- ur sinn til að nýta sér ættarnafnið í auðgunarskyni. Það hafi Roger Clinton gert með því að tala máli allt að 13 manna, sem óskað höfðu eftir náðun af hendi forsetans. Fyrir þessa milligöngu hafi Roger Clinton þegið hundruð þúsunda dollara. Roger Clinton hefur viðurkennt að hafa þegið fé fyrir að tala máli manna við bróður sinn. En þær upplýsingar sem fram koma í skýrslunni leiða í ljós mun víðtæk- ari „starfsemi“ en hálfbróðirinn hefur hingað til viðurkennt. „Clinton forseti hvatti Roger Clinton til að nýta sér samband þeirra. Í upphafi seinna kjörtíma- bilsins sagði Clinton forseti Roger Clinton að nýta sér tengsl við rík- isstjórnina í fjárhags- legum tilgangi,“ segir þar orðrétt. Í skýrslunni kemur ennfremur fram að forsetinn fyrrverandi og ríkisstjórn hans hafi í mörgum tilfell- um látið hjá líða að kanna sögu og bak- grunn þeirra sem fóru fram á náðun forset- ans. Clinton og menn tengdir forsetaemb- ættinu hafi leyft að þrífast kerfi sem gerði ættmennum forsetans auðvelt að hagnast á ná- lægðinni við hann, m.a. með því að fara fram á náðanir eða aðra greiða fyrir dæmda sakamenn. Höfundar skýrslunnar fullyrða ekki að glæpsamlega hafi verið að málum staðið á síðustu dögum Clintons í embætti. Þeir fara hins vegar nærri því að fullyrða að lög hafi verið brotin og segja frekari rannsókna þörf. Nýtti sér náðunar- vald forsetans Los Angeles Times. Rannsókn þingnefndar leiðir í ljós að hálfbróðir Bills Clintons hagn- aðist vel á nálægðinni við forsetann Roger Clinton LÍKLEGT er talið, að yfirvöld á Cook-eyjum í Kyrrahafi muni fallast á þá ósk nýsjá- lensks líftæknifyrirtækis, að það fái að reyna nýja meðferð við sykursýki á íbúum eyjanna. Hefur hún verið bönnuð víða á Vesturlöndum. Tilraunin felst í því að flytja frumur úr grísum í fólk. Þar eiga þær að halda áfram að framleiða insúlín og lækna þá, sem þjást af sykursýki. Í mörgum vestrænum ríkjum hafa tilraunir af þessu tagi verið bannaðar vegna ótta við, að svínaveirur geti borist í fólk með frumunum. Af þeirri sömu ástæðu var líftæknifyr- irtækinu meinað að gera til- raunina á Nýja-Sjálandi. Var skýrt frá þessu á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC, í gær. Lofað hluta af hugsanlegum hagnaði Í rökstuðningi nýsjálenska heilbrigðisráðuneytisins fyrir banninu segir, að fyrirtækið, Diatranz, hafi hvorki getað sýnt fram á, að frumuflutning- urinn hafi virkað í tilraunadýr- um, né sett fram viðeigandi áætlun um upplýsingagjöf og samráð við það fólk, sem hugs- anlega fengi grísafrumurnar. Þá hafa alþjóðasamtök lækna og vísindamanna á þessu sviði sakað Diatranz um að reyna að sniðganga eðlilegar öryggis- kröfur með því að gera tilraun- ina á Cook-eyjum. Sagt er, að fyrirtækið hafi heitið yfirvöld- um á eyjunum hluta í vænt- anlegum hagnaði, gangi til- raunin vel. Grísa- frumur græddar í menn RÉTTARHÖLDUNUM í máli Rahmis Sahindals, sem ákærður var í Svíþjóð fyrir morð á dóttur sinni, Fadime, var frestað í gær vegna nýrra upplýsinga sem komu fram í málinu. Sænska útvarpsstöð- in Radio Uppland sagði að ástæða frestunarinnar væri sú að bróðir Fadime hefði játað á sig morðið. Sænsk yfirvöld vildu ekki staðfesta þetta. Réttarhöldin hófust á mánudag og þeim var haldið áfram í gær- morgun. Saksóknarinn í málinu, Anne Sjöblom, kvaðst hafa óskað eftir því að réttarhöldunum yrði frestað til að hægt yrði að rannsaka upplýsingar sem fram komu þegar hlé var gert á vitnaleiðslum á há- degi í gær. Réttarhöldunum var frestað þar til á morgun. Sjöblom sagði að rannsókninni lyki í fyrsta lagi í dag og þangað til mætti ekki skýra frá nýju upplýs- ingunum. Mjög óvenjulegt er að réttarhöldum sé frestað í Svíþjóð vegna nýrra upplýsinga. Réttarhöldum í máli Fadime frestað  Andstæðingur/25 ♦ ♦ ♦ FRÉTTASKÝRENDUR segja ekki útilokað að Saddam Hussein, forseti Íraks, verði við kröfum Sameinuðu þjóðanna og leyfi vopnaeftirlits- mönnum samtakanna að hefja störf á nýjan leik innan landamæra Íraks. Hosni Mubarak, forseti Egypta- lands, sagðist í gær þeirrar skoðunar að Saddam myndi leyfa eftirlitið. Þykir ólíklegt að Mubarak, sem átti í gær fund með Dick Cheney, varafor- seta Bandaríkjanna, hafi látið þessi orð falla að ástæðulausu en talið er að Írakar séu með þessu að reyna að koma í veg fyrir hugsanlegar hern- aðaraðgerðir Bandaríkjamanna í Írak, sem eigi sér það markmið að steypa Saddam af stóli. Leyfa Írakar vopnaskoðun? Bagdad, SÞ. AP, AFP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.