Morgunblaðið - 14.03.2002, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.03.2002, Qupperneq 2
Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isHaukar með níu fingur á titlinum / B3 Hertha Berlín vill halda Eyjólfi / B1 4 SÍÐUR Morgunblaðinu í dag fylgir auglýs- ingablaðið Kaup- hlaup frá Smára- lind. Blaðinu verður dreift á höfuðborg- arsvæðinu. 16 SÍÐUR Sérblöð í dag FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í Á FIMMTUDÖGUM STÓRTJÓN varð í gær þegar seg- ull úr 150 milljóna króna segulóm- tæki eyðilagðist í flutningum fyrir Hjartavernd í Kópavogi. Segullinn sjálfur er metinn á rúmlega 100 milljónir króna. Tækið átti að nota við öldrunarrannsóknir Hjarta- verndar og er eitt hið háþróaðasta sinnar tegundar í heiminum. Verið var að hífa segulinn úr tækinu af flutningabíl inn á planið hjá Hjartavernd þegar það skall á jörðina vegna slitinna festinga að því er virðist. Hlassið vegur yfir 10 tonn og féll um fáeina metra að sögn Vilmundar Guðnasonar yfir- læknis hjá Hjartavernd. Annað tæki á leið til landsins „Þetta er segulómtæki sem við fengum frá Generel Electrics í Bandaríkjunum og er þeirra eign uns það er komið í hús hjá okkur,“ sagði Vilmundur við Morgunblaðið í gær. Af þessum sökum er tjónið því ekki Hjartaverndar heldur að öllum líkindum tryggingafélags General Electrics. Tækið keypti Hjartavernd fyrir styrk frá Bandarísku heilbrigðisstofnuninni. Vilmundur telur að General Electrics muni nú útvega annað tæki og flytja það hingað til lands og telur ekki ólíklegt að forsvars- menn fyrirtækisins leggi metnað sinn í að gera það fljótt og vel svo öldrunarrannsóknin tefjist ekki, en hún á að hefjast um miðjan maí. Helíum, sem notað er til að halda ofurleiðandi seglinum nærri alkuli, lak út úr tækinu þegar það skall á jörðina, en ekki var talin hætta af því. Enginn slasaðist í óhappinu. Segull úr segulómtæki Hjartaverndar skall í jörðina 100 milljóna króna segull eyðilagðist Morgunblaðið/Sverrir Tjónið er gríðarlegt en lendir þó ekki á Hjartavernd þar sem tækið var ekki komið úr eigu General Electrics. MAÐURINN sem fannst látinn í íbúð sinni í Kópavogi aðfaranótt sunnudags hét Valur Arnar Magn- ússon, til heimilis í Hamraborg 26. Bráðabirgðaniðurstöður krufningar benda til þess að hann hafi hlotið inn- vortis áverka og eru maður og kona í haldi lögreglu, grunuð um líkams- árás sem leiddi til dauða mannsins. Hámarksrefsing fyrir slíkt brot er sextán ára fangelsi. Bæði hafa verið úrskurðuð í sjö daga gæsluvarðhald, konan á þriðju- dag en maðurinn í gær. Annað þeirra tilkynnti lögreglu andlátið eftir mið- nætti aðfaranótt sunnudags og voru þau handtekin þegar lögregla kom á vettvang. Þeim var sleppt að loknum yfirheyrslum á sunnudag en hand- tekin aftur eftir að bráðabirgðanið- urstöður krufningar lágu fyrir. Tvö í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts Yfirheyrslur halda áfram UM eitt hundrað mannár lækna í óteknum fríum hafa safnast upp á Landspítala – háskólasjúkrahúsi frá árinu 1997 er nýjar reglur um vinnu- tíma gengu í gildi hér á landi í sam- ræmi við tilskipun Evrópusambands- ins þar að lútandi, en frá því var sagt í Morgunblaðinu í gær að dæmi væru um að læknar á spítalanum ættu orðið inni heils árs frí. Jóhannes Gunnarsson, lækninga- forstjóri Landspítala – háskóla- sjúkrahúss, sagði í samtali við Morg- unblaðið að ástæðan fyrir þessu væri vinnutímaákvæði vegna aðildar okkar að Evrópska efnahagssvæðinu sem tekið hefðu gildi hér á landi á árinu 1997. Um túlkun þessara ákvæða hefði verið ágreiningur lengst af við Læknafélagið, en náðst hefði sam- komulag í þeim efnum fyrr á þessu ári og þá loksins hefði verið hægt að reikna út af öryggi hvað þarna væri um að ræða. Þá hefði komið í ljós að á spítalanum hefðu safnast upp hundr- að mannár lækna í óteknum fríum. „Gríðarlegur vandi“ „Þetta er alveg gríðarlegur vandi sem við stöndum frammi fyrir. Þetta er auðvitað reikningur sem einhvern tíma verður að borga. Hann verður ekkert saminn í burtu og alls ekki galdraður í burtu,“ sagði Jóhannes. Hann sagði að vinnuverndarsjón- armið lægju til grundvallar þessum ákvæðum á EES-svæðinu en ekki kjarasjónarmið og það væri eiginlega fyrst núna sem hægt væri að skipu- leggja vinnuna með þeim hætti að frí- in söfnuðust ekki svona upp og menn gætu tekið þau í eðlilegu framhaldi af löngum vinnulotum. Unnið væri í því á ýmsum deildum og reyndar væri búið að breyta fyrirkomulaginu á einni deild, þannig að þessi uppsöfnun minnkaði mjög mikið þar. Nokkrar aðrar deildir söfnuðu upp mjög mikl- um fríum, þ.e.a.s. þar sem væru bundnar vaktir sérfræðinga. Breytt skipulag kostaði hins vegar að það þyrfti að fjölga starfsmönnum, en að vísu heldur minna en haldið hefði ver- ið á tímabili þegar útlitið var hvað svartast. Það kostaði fé, auk þess sem einhvern tíma kæmi að skuldadögum hvað varðaði þau eitt hundrað mannár sem væru uppsöfnuð. Samkvæmt reglum getur viðkom- andi starfsmaður tekið þriðjung af óteknum fríum út í launum. Jóhannes sagði að fríin yrðu ekki greidd út nema viðkomandi óskaði þess. Það væri í höndum hvers og eins að taka ákvörðun þar að lútandi og ef viðkom- andi óskaði þess ætti hann rétt á að fá fríin greidd út. Jóhannes sagði að menn skrifuðu glaðir undir svona sáttmála, sem sjálfsagt væru til framfara, en enginn hefði áttað sig á hvaða kostnað þetta hefði í för með sér. Vinnutímatilskipun ESB hefur leitt af sér skipulagsvanda á Landspítala Læknar eiga samtals 100 mannár í óteknum fríum MÓÐURFÉLAG Íslenskrar erfða- greiningar, deCODE genetics Inc., upplýsti um afkomu síðasta árs eftir að Nasdaq-markaði var lokað í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Félagið tapaði 47,8 milljónum Bandaríkja- dala á síðasta ári, eða 4,7 milljörðum ísl. kr. Það er aukning um 54% milli ára. Tekjur síðasta árs námu 31,5 milljónum dala sem er 46% aukning milli ára. Þar af voru 10,6 milljónir dala tekjufærðar á síðasta ársfjórð- ungi. Árið 2000 námu tekjurnar 21,5 milljörðum. Lokagengi deCODE á Nasdaq í gær var 6,22 sem er 2,81% lækkun frá deginum áður. Í tilkynningu frá Íslenskri erfða- greiningu segir að mikla tekjuaukn- ingu samstæðunnar megi skýra með nýjum samstarfssamningum, sem undirritaðir voru á síðasta ári, og af mörgum rannsóknaáföngum sem náðust í eldra samstarfi. Bókfærðar tekjur ársins jukust um 70% frá árinu 2000 og námu 40,3 milljónum Bandaríkjadala sem er ívið hærra en gert var ráð fyrir í áætlun félagsins, sem hljóðaði upp á 40 milljónir dala. Í lok ársins 2001 var 13,1 milljón Bandaríkjadala skráð sem frestaðar tekjur í efnahagsreikningi deCODE. Þær verða tekjufærðar á komandi uppgjörstímabilum. Útgjöld til rannsókna- og þróun- arstarfsemi árið 2001 voru 71,8 millj- ónir Bandaríkjadala, eða 7,1 millj- arður króna, sem er 57% aukning frá 45,7 milljónum ársins 2000. Í til- kynningu Íslenskrar erfðagreining- ar segir að útgjaldaaukningin skýr- ist fyrst og fremst af því að rannsóknasvið fyrirtækisins hafi breikkað og af aukinni áherslu á framhaldsrannsóknir. Stjórnunar- og almennur kostnaður ársins 2001 var 12,4 milljónir dala og lækkaði um 19,3% frá árinu áður. Um síðustu áramót hafði deCODE um 167,1 milljón dala til ráðstöfunar í handbæru fé, sem er 27,1 milljón minna en í lok ársins 2000. Lausa- fjárstaðan styrktist á síðari hluta ársins um 43,5 milljónir dala vegna endurfjármögnunar á byggingu nýrra höfuðstöðva og kaupa á yfir 50 DNA-greiningartækjum. Gengið formlega frá kaupum á MediChem í vikunni Í tilkynningunni er haft eftir Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, að á síðasta ári hafi undirstöður fyrir langtímaáætlanir verið styrktar og metnaðarfull tekjumarkmið náðst. Hann segir að í þessari viku muni kaup á bandaríska lyfjaþróunarfyrirtækinu MediChem ganga formlega í gegn. Þau kaup og nýlegir samstarfssamningar geri fyrirtækinu kleift að koma fjöl- breyttum afurðum, sem þróaðar séu út frá niðurstöðum erfðafræðirann- sókna, á markað. Kári gerir ráð fyrir auknum tekjum á þessu ári. Símafundur um afkomutölur og horfur næsta árs verður sendur út á vefsíðu deCODE í dag og hefst kl. 13. deCODE genetics tapaði 4,7 milljörðum króna á síðasta ári Tekjurnar jukust um 46% milli ára
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.