Morgunblaðið - 14.03.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 11
SAMTÖK verslunarinnar hafa
kært til siðanefndar Samtaka ís-
lenskra auglýsingastofa vegna
auglýsingar sem birtist í Frétta-
blaðinu, þriðjudaginn 12. þ.m.
Auglýsingin var gerð af auglýs-
ingastofunni Gott fólk Mcann Er-
ickson fyrir sjónvarpsstöðina Sýn.
Í auglýsingunni eru birtir nokkrir
dagskrárliðir sjónvarpsstöðvarinn-
ar í marsmánuði og m.a. merkt við
íþróttaviðburði sem eiga sér stað í
miðri viku. Eru þeir vikudagar
merktir með rauðu. Í fyrirsögn er
síðan eftirfarandi texti: „Tveir
veikindadagar í mánuði! Veldu
vel.“
„Samtökin telja að hér sé bæði
verið að hvetja til lögbrota og
brota á kjarasamningum. Í lögum
nr. 19/1979, um rétt verkafólks til
uppsagnarfrests frá störfum og til
launa vegna sjúkdóms- og slysa-
forfalla, sbr. ákvæði flestra þeirra
kjarasamninga sem gilda hér á
landi eiga launþegar tiltekinn rétt
til launa í veikindum. Geta það
verið 2 dagar í mánuði á 12 mán-
aða tímabili eða eftir atvikum
lengri tími eftir starfstíma laun-
þega í viðkomandi fyrirtæki eða
starfsstétt. Rétturinn skapast
vegna veikinda.
Í framangreindri auglýsingu
verður ekki betur séð en að verið
sé að hvetja launþega til að „taka
sér veikindafrí“ án þess að um
raunveruleg veikindi sé að ræða
en láta vinnuveitendur greiða laun.
Merkingar á dagatali og tilvísun til
íþróttaviðburða gefa það mjög
sterklega í skyn. Verður ekki litið
á það öðruvísi en verið sé að
hvetja launþega til að brjóta lög
og kjarasamninga með því að ljúga
til um veikindi en krefja vinnuveit-
anda um óréttmætar launa-
greiðslur.
Samtökin krefjast þess að
nefndin verði þegar kölluð saman
og jafnframt að beitt verði ákvæði
3. tl. 5. gr. reglna um nefndina og
birting auglýsingarinnar stöðvuð
þegar í stað,“ sagir í fréttatilkynn-
ingu frá Samtökum verslunarinn-
ar.
Samtök verslunarinnar leggja fram kæru til siðanefndar SÍA
Kæra auglýs-
ingu frá Sýn
RÍKISSAKSÓKNARI telur að ekki
séu efni til að ákæra Davíð Þór Jóns-
son, fyrrverandi ritstjóra tímaritsins
Bleikt og blátt, en lögreglan í Reykja-
vík hafði rannsakað hvort hann væri
ábyrgur fyrir dreifingu barnakláms.
Snerist málið um það að á heima-
síðu tímaritsins var um nokkurt skeið
vísað á aðra vefsíðu sem innihélt
soralegt efni, m.a. barnaklám. Davíð
Þór sagði þegar þetta komst í hámæli
að ekkert barnaklám hefði verið á
umræddri síðu þegar hann tengdi
hana við heimasíðu tímaritsins.
Ekki efni til að
ákæra fyrrver-
andi ritstjóra
ÁFRÝJUNARNEFND samkeppn-
ismála hefur úrskurðað að tiltekinn
töluliður staðlaðs raðgreiðsluskulda-
bréfs Kreditkorta hf. brjóti í bága
við samkeppnislög og sé því ógilt.
Málavextir eru þeir að kvartað var
í fyrrasumar til Samkeppnisstofnun-
ar vegna synjunar Greiðslumiðlunar
hf. og Kreditkorta á að gera inn-
heimtusamning og taka til innheimtu
raðgreiðslusamninga sem kvartandi
hafði keypt og fengið framselda til
sín. Taldi kvartandi synjunina vera
brot á samkeppnislögum.
Ákvæðið umdeilda hljóðar svo:
„Seljandi hefur hvenær sem er heim-
ild til að framselja rétt sinn sam-
kvæmt samningi þessum til banka-
stofnunar eða verðbréfafyrirtækis
sem hefur gert innheimtusamning
við EUROCARD.“
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála
lítur svo á að umrætt ákvæði teljist
til samninga milli fyrirtækja í skiln-
ingi 10. gr. samkeppnislaga, enda
beri að mati hennar að meta umdeild
samningsákvæði í viðaukasamning-
unum og raðskuldabréfunum sem
eina heild í þessu sambandi.
Heimild söluaðila til að framselja
raðgreiðslubréf er háð því að banka-
stofnun eða verðbréfafyrirtæki hafi
gert innheimtusamning við áfrýj-
anda, segir í niðurstöðum áfrýjunar-
nefndarinnar. Telur hún að skilyrði
af þessu tagi séu ógagnsæ og til þess
fallin að takmarka eða stýra því
hvort nýir aðilar geti komist inn á
þann markað sem í málinu greinir,
þ.e. markaðinn fyrir viðskipti með
umrædd skuldabréf.
Því telur áfrýjunarnefndin að af
hömlunum leiði að aðilar séu útilok-
aðir frá markaðinum sem kunna að
fullnægja eðlilegum og almennum
skilyrðum til þess að stunda þessi
viðskipti.
Áfrýjunarnefnd
samkeppnismála um
Kreditkort hf.
Raðgreiðslu-
skuldabréf
brýtur í
bága við lög
ÞRJÁR tilraunir hafa verið gerðar
til að ráðast á tölvukerfi Landssím-
ans. Fyrst var það aðfaranótt sunnu-
dags og síðan tvisvar á þriðjudags-
kvöld. Heiðrún Jónsdóttir, forstöðu-
maður upplýsingafulltrúi Símans,
segir að þessar aðgerðir hafi ekki
valdið miklum erfiðleikum en truflað
og tafið sendingar um netið.
Heiðrún segir árásirnar hafa stað-
ið stutt yfir í hvert sinn og valdið töf-
um og truflunum á gagnasendingum.
Hún segir vitað að árásirnar komi
erlendis frá en ekki hafði tekist að
rekja þær síðdegis í gær. Heiðrún
segir refsivert að trufla fjarskipti og
verði leitað til lögreglu takist að
rekja hvaðan truflanirnar koma.
Reynt verður að beita frekari vörn-
um til að koma í veg fyrir árásir sem
þessar og takmarka sem mest tjón
sem af þeim gæti hlotist.
Ráðist á net-
kerfi Símans
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦