Morgunblaðið - 14.03.2002, Page 23

Morgunblaðið - 14.03.2002, Page 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 23 meistar inn. is GULL ER GJÖFIN Fyrir fagurkera og safnara Antik Kuriosa Grensásvegi 14 s. 588 9595 og 660 3509 Opið mán-fös. frá kl. 12-18 Lau. frá kl 12-17 SAKSÓKNARAR í Houston í Texas krefjast þess, að Andrea Yates, sem fundin hefur verið sek um að hafa myrt fimm börn sín, verði dæmd til dauða. Kvið- dómur úr- skurðaði sl. þriðjudag, eftir að hafa borið saman bækur sínar í aðeins tæpar fjórar klukkustundir, að Yates væri sek um morðin, og hafnaði kviðdómurinn þeim rökum verjenda hennar að hún væri ósakhæf sökum geðbilunar. Frosnir verði grafnir DÓMSTÓLL í bænum Saumur í Frakklandi úrskurðaði í gær, að auðug hjón, sem voru fryst eftir að þau dóu, skyldu tekin úr frystigeymslunni og greftr- uð. Hjónin voru fryst í þeirri von, að einhverntíma í framtíð- inni yrði hægt að lífga þau við. Komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu, að það stangaðist á við landslög að hjónin yrðu áfram geymd við 60 stiga frost í kæliklefa í kjallara fjölskyldu- óðalsins í Neuil-sur-Layon. Aftaka í Georgíu FORSETI þingmannasamtaka Evrópuráðsins, Peter Schneid- er, fordæmdi í gær aftöku Tracy Housels sem var dæmd- ur fyrir nauðgun og morð í Georgíu í Bandaríkjunum. „Dauðarefsing ... bindur enda á líf sakbornings en í staðinn fær hann frægð. Hið fyrra er lítil huggun fyrir aðstandendur fórnarlambsins, hið síðara eyk- ur þjáningar þeirra verulega,“ sagði Schneider. Housel var sprautaður með banvænu efni á þriðjudag en hann var með bæði breskan og bandarískan ríkisborgararétt. STUTT Krefjast dauða- refsingar Yates NORSKA ríkisstjórnin hefur ákveð- ið að minnst 40% stjórnarmanna í fyrirtækjum skuli vera konur. Regl- urnar taka gildi innan árs hvað rík- isfyrirtæki varðar en einkafyrir- tækjum verður gert að innleiða þessi umskipti árið 2005. Talsmenn ráðuneytis málefna barna og fjölskyldna í Noregi sögðu í samtölum við fjölmiðla að þeim væri ekki kunnugt um að sambærilegar reglur hefðu verið innleiddar í öðr- um löndum. Sem fyrr sagði tekur til- skipunin fyrst til fyrirtækja sem eru að hluta eða öllu leyti í eigu ríkisins en einkagerinn verður síðar skyld- aður til að gera slíkt hið sama. Laila Dåvøy, ráðherra málaflokks barna og fjölskyldna, sagði á fundi með fréttamönnum að ákvörðun þessi yrði að teljast söguleg. Að- spurð kvaðst hún ekki óttast að til- skipun stjórnvalda myndi hafa nei- kvæð áhrif að því marki að lítt reyndar konur yrðu teknar fram yfir hæfa karlmenn. „Við höfum beðið nógu lengi. . . það var orðið tímabært að gera eitthvað. . . Þau hæfustu verða valin og þau hæfustu finnast í röðum karla og kvenna.“ Nýju reglurnar gilda raunar einn- ig um karlmenn því kveðið verður á um að minnst 40% þeirra sem í stjórnum fyrirtækja sitja skulu vera karlkyns. Ekki eru allir jafnhrifnir af áform- um þessum. Þingkonan Siv Jensen, sem tilheyrir Framfaraflokknum, er ein þeirra sem andmælt hafa tilskip- uninni. „Þetta kemur jafnréttisbaráttunni ekkert við,“ sagði Jensen í viðtali við norska útvarpið. Hún sagði að konur myndu líta svo á að sæti þeirra í stjórnum fyrirtækja væru ekki til komin sökum eigin verðleika heldur sýndarmennsku yfirvalda. Raunar hafa nokkur norsk ríkis- fyrirtæki þegar innleitt reglu þessa og má þar nefna Statoil og Telenor- símafyrirtækið. Minna fer fyrir kon- um í stjórnum fyrirtækja í einka- geiranum og nánast óþekkt er að þær séu stjórnarformenn. Kristin Krohn Devold er hins vegar varn- armálaráðherra Noregs, ein fárra kvenna sem hafa það embætti með höndum í heimi hér nú um stundir. 40% stjórnarmanna séu konur Norðmenn setja reglur um aukinn hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.